Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2000, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2000, Blaðsíða 24
40 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2000 I>V BÓNUSVIDEO Tilvera____________________ í lagi meö appelsínu- húð og lafandi brjóst Söngkonan Jennifer Lopez segir það ekki skipta neinu máli þó konur séu með appelsínu- húð, lafandi brjóst og stóran rass. Það sé kynþokkinn sem skipti máli. „Kynþokki er háður sjálfsör- yggi. Þeir sem eru ánægðir með sjálfa sig hafa mestan kyn- þokka,“ segir söngkonan í ný- legu viðtali. Sjálf kveðst Jennifer vita vel af því að fylgst sé með því hvemig hún er í laginu. „Það fylgjast allir með mér og mér finnst að ég verði að halda mér í formi. Ég skokka á hverjum morgni til að verða ekki slöpp. Jennifer er þekkt fyrir ögrandi klæðnað en hún gætir þess að hann sýni ekki meira en hann á að gera. Hún segir að græni kjóllinn sem hún var í á Grammy-verðlaunahátíðinni hafi verið eins og þröngur sund- bolur svo það hafi ekki verið nein hætta á því að hann sýndi meira. Foreldrarnir eru hins vegar ekki hrifnir af klæðaburði hennar. Jennifer Lopez Söngkonan segir kynþokka háöan sjálfsöryggi. Sagði Bítlunum að þegja Mel Gibson hljóp almennilega á sig þegar hann var í hljóðveri í London fyrir mörgum árum, að því er hann segir í viðtali við breska blaðið Daily Mail. Þegar honum þótti koma of mik- iil hávaði úr einu herbergjanna æddi hann eftir ganginum og inn í upptöku- herbergið og æpti: „Viljið þið þegja!“ Hann gerði sér skjótt Ijóst að hann hafði verið að þagga niður í Paul McCartney, George Harrison og Ringo Starr. „Mér leið strax hræðilega," segir kvikmyndaleikarinn. „Þeir voru fyndnir, lágvaxnir og loðnir og ég gnæfði yfir þá. Mér fannst skyndilega eins og ég væri gestur í Prúðuleikur- unum.“ Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin em: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 15. júlí 2000, virðisauka- skattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. júní 2000 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í gjalddaga til og með 15. júlí 2000 á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisauka- skatti, virðisaukaskatti í tolli, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, búnaðargjaldi, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlits- gjaldi, vömgjaldi af innlendri framleiðslu, vömgjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutnings- gjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbómm á ógreitt útsvar, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum opinbemm gjöldum, sem em: tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, slysatryggingagjald vegna hehnilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnnöarmálagjald, þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmda- sjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Fjámáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma hðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjámám í för með sér vemlegan kosmað fyrir gjaldanda. Fjámámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjámám. Þinglýsingargjald er 1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Em gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt eiga von á að skráningamúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara. Fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 17. júlí 2000. Tollstjórinn í Reykjavík Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgamesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðtrrinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðtmnn á Ólafsfirði Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Gjaldheimta Vestfjarða Gjaldheimta Austurlands Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum Leigart í þínu hverfi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.