Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2000
Fréttir I>V
Sæbjörg ST-7 varð fyrst á slysstað:
Fengum kall um að
eitthvað mikið væri að
- segir Guðmundur Viktor Gústafsson skipstjóri
„Við fengum
kall frá Ingi-
mundi gamla
um að eitthvað
mikið væri að
gerast. Þeir
báðu okkur að
koma strax til
hjálpar,“ segir
Guðmundur
Viktor Gústafs-
son, skipstjóri á
Sæbjörgu ST-7,
sem varð fyrst á
slysstað á
Húnaflóa í gær.
Sæbjörgin var stödd í tæplega
fjögurra mílna íjarlægð frá Ingi-
mundi þegar kallið barst.
„Við hófum þegar í stað að hífa
en það er ekki liðin nema örskots-
stund þegar vélstjórinn hrópar að
báturinn sé að fara niður.
Ég sé að Ingimundur er horflnn
af radamum og þá var ekkert ann-
að að gera en að skera á togvírana
og setja á fulla ferð,“ segir Guð-
mundur.
Sæbjörgin tók þegar í stað stefn-
una á slysstað.
„Við vorum innan við hálftíma á
Guömundur Viktor
Gústafsson
skipstjóri.
DV-MYND BIRGIR ÁRNASON
Sæbjörgin viö bryggju á Skagaströnd
Sæbjörgin var fyrst á slysstaö og flutti skipverjana tvo sem björguöust til lands.
DV-MYND JÓSEF STEFÁNSSON
Ingimundur gamli
Báturinn, sem er 100 tonna stálbátur, var á togveiöum á Húnaflóa þegar hann sökk í gær.
staðinn, veður var gott og sjór lygn.
Við sáum björgunarbátinn um leið
og við nálguðumst slysstaðinn. Við
náðum skipverjunum tveimur, sem
voru í björgunarbátnum, strax um
borð,“ segir Guðmundur. Mennim-
ir voru nokkuð vel á sig komnir
miðað við aðstæður en þeir voru
báðir i flotbúningum.
Aðrir bátar sem komnir vom á
vettvang hófu þegar leit að þriðja
skipverjanum og skömmu síðar
bættust þyrla Landhelgisgæslunnar
og björgunarsveitarmenn frá
Skagaströnd og Hvammstanga sem
leituðu á svæðinu á þremur bátum.
Leit stóð yflr fram i myrkur í gær-
kvöld.
Sæbjörgin yfirgaf hins vegar leit-
arsvæðið og hélt áleiðis til Skaga-
strandar með skipverjana sem
höfðu komist í björgunarbátinn.
Seint í gærkvöldi tókst skipverj-
um á Sæbjörginni að slæða upp
trollið sem þeir höfðu skorið aft-
anúr þegar þeir héldu á slysstað.
-aþ
Smiðir við byggingu stórverslana í Smáranum óánægðir:
Boða yfirvinnu-
bann í næstu viku
- ístaksmenn hafa ekki orðið varir við óróann
íslenskir smiðir og bygginga-
verkamenn við verslunarmiðstöð-
ina í Smáranum eru óánægðir með
kaup og kjör og hóta yfirvinnu-
banni frá 17. október samkvæmt
heimildum DV. Einkum eru það ís-
lenskir smiðir sem eru óánægöir
með laun sín en í það minnsta einn
Svíi er á förum frá ístaki vegna þess
sem hann telur að séu svik við sig,
honum hafi verið greitt allmikið
lægri laun en heitið var í upphafi.
Sænski smiðurinn fullyrðir að ístak
sé á svörtum lista hjá sænskum
verkalýðsfélögum.
„Ég veit að þessi sænski maður er
óánægður og er á förum og viö ósk-
um ekki eftir að hann komi aftur til
vinnu. Við höfum samt gert vel hið
hann eins og aðra sem hjá okkur
starfa. En sænsku smiðimir hjá
okkur eru alls ekki óánægðir, það
ég veit,“ sagði Kolbeinn Kolbeins-
son, staðarverkfræðingur fstaks i
Smáranum.
Við hinar miklu byggingarfram-
kvæmdir starfa eins og er um 200
byggingamenn, þar af eru margir
útlendingar i 8 vikna úthaldi hver.
Þrír af hverjum fjórum hafa snúið
til baka til vinnu. Um 80 smiðir eru
í þessum hópi, þar af um helmingur
útlendingar, um 20 Svíar og Danir
og 19 Portúgalir.
Byggingahópurinn keppist við að
ljúka verkinu í heild fyrir septem-
ber á næsta ári en afhenda á eitt-
hvað af fokheldum plássum í sitt
hvorum enda byggingarinnar í jan-
úar, Debenhams í vesturenda og
Hagkaup í austurenda. Verkið er
nokkuð á eftir áætlun og yfirvinnu-
bann, ef af því verður, gæti seinkað
verklokum enn meira.
„Við erum illa launaðir á þessum
vinnustað, smiðir meö um 1.100
krónur á tímann og verkamenn
ekki hálfdrættingar þeirra. Óánægj-
an kraumar, vinnumarkaðurinn
seilist eftir mönnum. En ég tek fram
að ístak kemur vel fram við verka-
fólkið og vill að okkur líði vel, við
erum með fmt fæði, en ístak kann
ekki að lægja svona óánægju. Mönn-
um sem komu til að vinna á Kefla-
víkurflugvelli var lofað 200 sænskar
krónur á tímann fyrir vaktavinnu
frá 7 á kvöldin til 7 á morgnana en
fengu aðeins 185 krónur. Þetta telja
þessir menn svik við sig,“ sagði
starfsmaður við Smárann.
íslenskir starfsmenn telja sig
langt undir því sem borgað er á
markaðnum og eins fá þeir minna
en til dæmis portúgalskir starfs-
menn, 10 Bandaríkjadali á timann
eftir skatta, frítt fæði, frítt húsnæði
og ferðalög.
Telja islenskir smiðir og verka-
menn að þeim beri sömu kjör og
aðrir starfsbræður þeirra á vinnu-
staðnum. -JBP
DV-MYND E. ÓL.
Erlent vinnuafl á íslandi.
Erlendir og innlendir byggingamenn
keppast viö aö reisa ofurmarkaöinn
í Smáranum. Hér er einn portúgatsk-
ur í járnalögnum.
Ekki íþróttarás á RÚV
aMarkús Öm Ant-
onsson útvarpsstjóri
hafnar þeim mögu-
leika að Sjónvarpið
muni bjóða upp á sér-
staka íþróttarás í
framtíðinni. Dagur
Margir þurfa sérkennslu
Nærri 20% allra nemenda í grunn-
skólum i Reykjavík þurfa á sér-
kennslu að halda. Þetta hlutfall hefur
haldist óbreytt í 20 ár hér á landi en
það er hærra en í nágrannalöndun-
um. Visir.is greindi frá.
Gervisköpum stoliö úr búð
Þjófur hafði í gær gervisköp á
brott með sér úr verslun með hjálp-
artæki ástarlífsins á Vitastíg. Ekki
vildi þó betur til en svo að hann
skildi eftir debetkort sitt í verslun-
inni. Stöð 2 greindi frá.
Vilja að kaupverð ráði
Félag fasteignasala vill að lán til
fasteignakaupa miðist við kaupverð
en ekki brunabótamat eins og hing-
að til hefur verið. Félagsmálaráð-
herra segist hafa samúð með sjónar-
miðum fasteignasalanna. RÚV
greindi frá.
Kæra skattlagningu
Félag aldraðra hefur kært flár-
magnsskatt á lifeyri. Ólafur Ólafs-
son, formaður félags aldraðra og
fyrrv. landlæknir, segir félagið
reiðubúið að sækja rétt sinn til
mannréttindadómstólsins í Haag.
Stöð 2 greindi frá.
Kafari fiuttur á sjúkrahús
Þjálfaður kafari var fluttur á
Landsspítalann í Fossvogi með ein-
kenni köfunarveiki um hádegið í
gær. Hann hafði ásamt öðrum verið
við æfingar á vegum björgunar-
sveitarinnar Ársæls í skipsflaki á 25
metra dýpi út af Kjalarnesi. Bylgjan
greindi frá.
Fleiri fóstureyðingar
Fóstureyðingum Qölgar sífellt
hérlendis, öfugt við þróunina ann-
ars staðar á Norðurlöndum, en fóst-
ureyðingar miðað við höfðatölu eru
meira en tvöfalt fleiri hér á landi en
í Finnlandi. Enn fremur er verð á
getnaðarvömum hærra hér en víða
erlendis. Mbl. greindi frá.
Taka við rekstri Baldurs
Vegagerðin hefur samið við Sæ-
ferðir hf. um að taka við rekstri
Breiðaflarðarferjunnar Baldurs frá
næstu áramótum. Mbl. greindi frá.
Verð á hassi hækkar
Verð á hassi hefur ekki verið jafn-
hátt síðan SÁÁ byrjaði að fylgjast
skipulega með verði eiturlyfla í febr-
úar á þessu ári. Bylgjan greindi frá.
Rænt af pitsusendli
Þrjú þúsund krónum var rænt af
pitsusendli þegar tveir menn réðust
á hann í Bakkahverfi í Breiðholti
um tvöleytið aðfaranótt sunnudags.
Mbl. greindi frá.
Aldraðir ekki óreglufólk
Benedikt Davíðs-
son, formaður
Landssambands
eldri borgara, segir
að umræða um
óreglu aldraðra sé á
mjög lágu plani og
segir greinilegt að
alþingismaður hafi
ekki kynnt sér mál aldraðra nógu
vel. Visir.is greindi frá.
Pétur Blöndal