Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2000, Blaðsíða 32
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað T DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MANUDAGUR 9. OKTOBER 2000
Eftirlegukindur á heiðum uppi
Bændur í uppsveitum Borgarfjaröar fóru seinni leit á Holtavöröuheiöi í gær. Afraksturinn var nokkrar eftirlegukindur sem virtust hafa þráast viö aö skila sér til byggöa.
DV-MYND G.BENDER
/
/
/
/
:
ísafjörður:
Keyrðu beint
- i sjoinn
Hjón um sextugt sluppu ómeidd eft-
ir að bifreið þeirra hafnaði á tveggja
metra dýpi í ísköldum sjónum við
Skutulsfjarðarbraut á ísafirði á laug-
ardag. Óhappið varð um eittleytið og
var ferð fólksins heitið til Súðavíkur.
Þau munu hafa ekið niður Vallartún
en einhverra hluta vegna ekki náð
beygjunni með fyrrgreindum afleið-
ingum. Að sögn lögreglu var fólkið á
lánsbíl og ökumaðurinn ekki vanur
bílnum. Bíllinn fór á kaf og aðeins
glitti í farangurkassa á þaki hans.
Fólkið mun hafa beðið þess að biliinn
fylltist af sjó en síðan komið sér út og
til lands. Fjöldi fólks var á staðnum
en körfúboltaleikur var rétt í þann
^^nund að hefjast i íþróttahúsinu
skammt frá þegar slysið varð. Ekkert
amaði að fólkinu og eftir að hafa haft
fataskipti hélt það ferðinni áfram til
Súðavíkur. Bíllinn var dreginn á land
og mun töluvert mikið laskaður. -aþ
Borgarnes:
Ok á Ijósastaur
Mikil mildi þykir að ekki fór verr
þegar bifreið hafnaði á ljósastaur og
niður í skurði norðan við Borgames á
áttunda timanum í gærkvöld. Fjögur
ungmenni voru i bílnum, tvö sluppu
ómeidd en tvö hlutu minni háttar
meiðsl. Að sögn lögreglu virðist sem
bíllinn hafi verið í framúrakstri og
Jent í lausamöl með fyrrgreindum af-
' leiðingum. Bíllinn er mikið skemmdur
eftir óhappið. -aþ
AF HVERJU ER MER
ALDREI 30Ð\Ð MED?
Tveir björguðust úr skipsskaða á Húnaflóa:
Eins skipverja
enn saknað
- umfangsmikil leit stóð fram í myrkur í gærkvöldi
Leit að skipverjanum sem sakn-
að er af bátnum Ingimundi gamla,
sem sökk á Húnaflóa um eittleytið
í gær, bar ekki árangur í
gærkvöld. Þrír voru í áhöfn báts-
ins og tókst tveimur skipverjanna
að komast um borð í björgunarbát.
Þeim var síðan bjargað um borð í
Sæbjörgu ST-7 sem var á veiðum á
sömu slóðum. Tilkynning um slys-
ið barst Landhelgisgæslu klukkan
12.43 í gær og hófst umfangsmikil
leit þegar í stað. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar fór á vettvang og björg-
unarsveitarmenn frá Skagaströnd
og Hvammsfanga hófu leit á þrem-
ur bátum.
„Við brugðumst strax við kall-
inu en þegar björgunarsveitar-
menn komu á vettvang voru trill-
ur, sem höfðu verið á veiðum á
svæðinu, þegar byrjaðar aö leita
og höfðu fundið brak úr bátnum.
Veðurskilyrði voru góð framan af
en þegar leið á daginn fór að blása.
Björgunarsveitarmenn héðan og
frá Hvammstanga leituðu fram I
myrkur í gærkvöld en því miður
án árangurs," sagði Gunnlaugur
Sigmarsson hjá
Svæðisstjóm
SVFÍ á Skaga-
strönd í samtali
við DV.
Ingimundur
gamli, sem er
100 tonna stál-
bátur, var gerð-
ur út frá
Hvammstanga.
Hann var að
togveiðum þeg-
ar slysið átti sér
stað. Báturinn
mun hafa sokk-
ið á örskammri
stundu en dýpi
á þessum slóð-
um er í kringum 200 metra. TOdrög
slyssins eru ókunn en sjópróf munu
að líkindum fara fram í dag. -aþ
Sjá viðtal við skipstjórann
á Sœbjörgu á bls. 2
Húnavatnssýsla:
Mikið slösuð
eftir alvarlegt
umferðarslys
Alvarlegt slys varð í V-Húnavatns-
sýslu á fjórða tímanum í fyrrinótt þeg-
ar ekið var á mann og konu. Fólkið,
sem var að koma af dansleik í félags-
heimilinu Víðihlíð, var fótgangandi á
þjóðveginum þegar það varð fyrir bíl.
Lögreglumenn á Blönduósi voru við
störf við félagsheimilið og komu þeir
samstundis á vettvang. Þegar var ljóst
að fólkið var mikið slasað og var þyrla
Landhelgisgæslunnar kvödd á vett-
vang. Þyrlan flutti fólkið á Landspítal-
ann í Fossvogi þar sem það liggur
þungt haldið. Að sögn læknis á gjör-
gæsludeild er fólkið alvarlega slasað og
er haldið sofandi í öndunarvél. -aþ
Alvariegt umférðarslys
Tvennt liggurþungt haldið á sjúkrahúsi
eftir alvarlegt umferöarslys w'ð Víöihlíð í
Húnavatnssýslu aöfaranótt sunnudagsins.
Parísarferð smábátaeigenda gagnrýnd:
Þetta er fáránlegt
Gæði og glæsileiki
- segir stjórnarmaöur sem sat heima - Kostar ekki krónu, segir formaðurinn
„Ég er ósáttur við þessa ferð,
þetta er bara fáránlegt," sagði Eð-
vald Eðvaldsson, stjómarmaður í
Landssambandi smábátaeigenda,
um viku Parísarferð stjómar sam-
bandsins ásamt mökum. Eðvald af-
þakkaði boðið að fara til Parísar.
Kostnaður við ferðalag hátt í 40
manna er sagður vera á bilinu 1,6 til
2 milljónir króna. „Það vita allir að
samtökin em ekki vel rekin og eiga
ekki of mikla peninga. En það er
rétt, sumarfundir vora ekki haldnir
tvö ár í röð og kostnaðurinn
við þá er látinn renna til
ferðalagsins,“ sagði Eðvald.
„Þannig stendur á að
sfjómin fer til Parísar af því
að hér er haldinn aðalfund-
ur Alþjóðasambands strand-
veiöimanna þar sem ég var
endurkjörinn í stjómina. Ég
bar það upp í stjóminni að
kostnaður við tvo sumar-
fundi yrði lagður saman og
hann notaður til Parísar-
Arthúr Bogason
„Kostar ekki
krónu"
ferðar en stjómarmenn
kostuðu afganginn ef hann
yrði meiri,“ sagði Arthúr
Bogason í París i gær-
kvöldi.
„En þetta kostar lands-
sambandiö ekki eina krónu
meira en sumarfundimir
tveir hefðu kostað. Það er
eitthvað að hjá mönnum
sem eru að öfundast út í
þetta,“ sagði Arthúr.
-JBP
smort
(sólbaðstofa)
Grensásvegi 7, sími 533 3350.
brotheT
P-touch 9200PC
Prentaðu merkimiöa beint úr tðlvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Rafoort
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport_______