Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Blaðsíða 24
28 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 Tilvera i lí f iö F F T I R V I N N U Marilyn Monroe í Kaffileikhús- inu í kvöld í kvöld verður glæsileg Mari- lyn Monroe-dagskrá í Kaffileik- húsinu í Hlaðvarpanum, i flutn- ingin Andreu Gylfadóttur og Pálma Sigurhjartarsonar. Andr- ea Gylfadóttir bregður sér í gervi gyðjunnar Marilyn Mon- roe og flytur lög úr kvikmynd- um sem hún gerði vinsæl. Dag- skráin hefst kl. 22.00. Klúbbar ■ BRAVO A THOMSEN I kvöld verö- ur djammfílingur á Bravo-kvöldi á Thomsen. Þar koma fram Dj. Kári, X Rottweiler, Dj. Galdur og SesarA. Svo sýnir The Flower gjörning. Öðru- vísi fimmtudagskvöld. Aögangseyrir 500 krónur. Krár ■ RÖLEGHEIT Á CÁFÉ ROMÁNCÉ Enski píanóleikarinn og söngvarinn Miles Dowley spilar sig inn í hjörtu rómatískt sinnaðra hjartna á Café Romance. Kertaljós og Ijúfir tónar. Leikhús 1 HORFÐU REIPUR UM OXL Horföu reiöur um öxl í Þjóöleikhús- inu í kvöld á Litla-sviðinu, kl. 20.00. Uppselt. ■ SEX I SVEIT Sex í sveit í kvöld, kl. 20, í Borgarleikhúsinu. Aukasýn- ing. Kabarett ■ KÍNAKYNNING KÍNAKLÚBBS UNNAR Næsta Kínaferö Kína- klúbbs Unnar verður kynnt í kvöld, fimmtudagskvöld, á veitingahúsinu Shanghai, Laugavegi 28. Unnur Guöjónsdóttir, stjórnandi Kína- klúbbsins, mun sýna litskyggnur og veita allar upplýsingar um þessa 22 daga ferð sem verður farin verður þann 15. maí næstkomandi. Kína- kynningin er opin öllum sem hug hafa á að fara í ferðina og að kynn- ingu lokinni geta gestir fengið sér að borða kínverskan mat, ef þeir kjósa svo. Fundir ■ UPPLESTUR Á SÚFISfÁNUM í kvöld, kl. 20.00, verður Heimsbók- menntakvöld II á Súfistanum. Lesið verður upp úr eftirtöldum verkum: Blikktrommunni eftir Gúnter Grass, Ofurnæfur eftir Erlend Loe, Fáfræö- inni eftir Milan Kundera og Sjö bræörum eftir Aleksis Kivi. ■ GEÐVERND í 50 ÁR Á morgun veröur ráðstefna í húsakynnum Læknafélags íslands sem ber yfir- skriftina Geðvernd í 50 ár en Geö- verndarfélag íslands átti hálfrar ald- ar afmæli þann 17. janúar sl. Gylfi Ásmundsson sálfræðingur setur ráð- stefnuna og síðan verður fjallað um forvarnir, meöferð, endurhæfingu og framfarir. Ráðstefnan fer fram að Hlíðasmára 8 og hefst á morgun, kl. 13. Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is Geðrækt er heiti verkefnis sem stendur næstu þrjú ár: Viljum auka verga þ j ó ð arhaming j u Umræðan um geðheilsu hefur aukist til muna að undanförnu, enda er það markmið þeirra sem starfa að þessum málefnum að rjúfa þá þögn sem hefur umlukið geðsjúk- dóma eða geðraskanir. Geðrækt-geörækt Geðrækt er samstarfsverkefni Geðhjálpar, geðdeilda Landspítal- ans Háskólasjúkrahúss og Land- læknisembættis og hefur að mark- miði að fræða almenning bæði um geðheilbrigði og geðraskanir. Adda Steina Bjömsdóttir, starfs- maður Geðræktar, var beðin í upp- hafi að skilgreina orðið geðrækt. „Geðrækt er einfaldlega það að hlúa að géðheilsu sinni. Allir hafa geð- heilsu. Hún er misgóð en hún er nokkuð sem allir geta hugsað um og hlúð að sjálfir. Við leggjum áherslu á að fólk taki ábyrgð á geðheilsu sinni, rétt eins og líkamsræktin hvetur fólk til að taka ábyrgð á lík- amlegri heilsu. Það má má því segja að geðrækt+líkamsrækt=heilsu- rækt.“ Sýnilegt verkefni Markmiðið með Geðræktarverk- efninu er, að sögn Öddu Steinu, að eíla meðvitund fólks um eigið geð- heilbrigði og fræða um geðraskanir og eyöa fordómum gegn þeim. „Við ætlum að hefja fræðslu- og forvarna- starf. I upphafi einbeitum við okkur að fræðslustofnunum og tökum skólakerfið frá leikskólum og upp í háskóla." Verið er að gefa út efni til að nota í lífsleiknikennslu í leik- og grunnskólum. Farið verður með fræðslufyrirlestra í framhaldsskóla og þar verður einnig dreift litlum bæklingum með upplýsingum um hvert hægt er að leita varðandi mál Fjólskyltlumál Aðeins DV-MYND Fræösla um geörækt Adda Steina Björnsdóttir er starfsmaöur Geöræktar. sem snúa að geðröskunum. í Há- skóla islands verða svo Geðveikir dagar síðar i mánuðinum, þar sem verður fræðsla um kvíða streitu og þunglyndi og rannsóknir á geðsjúk- dómum, auk þess sem fræðsla verð- ur um geðrækt. Loks verður nám- skeið fyrir almenning nú í haust í Endurmenntunarstofnun Háskól- ans, þar sem fjallað verður um geð- rækt, helstu geðsjúkdóma og rann- sóknir á þeim. „Nú eru 60 rnanns 73 dagar búnir að skrá sig á þetta námskeið sem hefst í næstu viku,“ segir Adda Steina. Að auki hefur Geðrækt ver- ið í samstarfi við Völu Þórsdóttur um einleik sem tekur á geðhvörfum og loks staðið að listsýningunni Geðveik list i Gallerí Geysi. Síðar verður farið inn í stofnanir og fyrir- tæki með fræðsluna. Þjóðarhamingja Markmið verkefnisins Geðrækt til jóla er að fólki líði betur, að fólk sé með- vitað um að geðræn heilsa er eitt- hvað sem allir búa að og getur orð- ið betri eða verri eftir atvikum. Markmiðið er einnig að minnka for- dóma og fækka sjálfsvígum. „Við viljum auka verga þjóðarham- ingju,“ segir Adda Steina að lokum. -ss Þórhallur Heimisson skrifar um fjölskyldumál á miövikudögum Ekkert liggur á Þaö hefur verið segin saga undanfarin ár aö kaupmenn vilja margir gíra okkur inn á jólin sem fyrst. Þaö hafa þeirgert meö auglýsingum sem birtast æ fyrr. Það var fallegt haustveður og 12 stiga hiti í síðustu viku september þegar fyrsta jólaauglýsingin skall á lesendum dagblaðanna. Ég býst við að margir hafi hrokkið upp við vær- an blund eins og ég þegar þeir sáu umrædda auglýsingu. Samkvæmt auglýsingunni voru „aðeins" 90 dag- ar til jóla og því ekki seinna vænna að heQa jólaundirbúninginn. í dag, fimmtudaginn 12. október, eru „að- eins“ 73 dagar eftir fram að jólahelg- inni, þannig að nú er kominn tími til að spýta í lófana og hefjast handa. Eða það skyldi maður ætla, alla vega ef eitthvað er að marka auglýsingarnar. Því á þessum tíu dögum sem liðnir eru síðan fyrsta stóra jólaauglýsingin birtist, hafa fleiri álíka bæst í hópinn. Við getum látið allt jóla- stússið sem vind um eyru þjóta og gefið okkur í staðinn góðan tíma til að njóta haustsins í róleg- theitum með börnunum í faðmi fjölskyldunnar. En svo er það aftur spurningin hvort eitthvað sé yfirleitt að marka þessar auglýsingar Er einhver ástæða til þess að huga að jólaund- irbúningi í lok sumars? Það er þá í raun og veru alveg jafn tímabært að undirbúa páskana eða hvítasunnu- helgina árið 2001. Ég tala nú ekki um þegar jólin eru aðeins ein stutt helgi eins og i ár. Ef til vill er margt betra hægt að gera við frítíma fjöl- skyldunnar en að hella sér út i jóla- undirbúning í byrjun október. Eða hvað? Það er nefhilega kjarni málsins, frítími fjölskyldunnar. Hvemig ætl- um við að nota hann næstu vikurn- ar og mánuðina? Það hefur verið segin saga undanfarin ár að kaup- menn vilja margir gíra okkur inn á jólin sem fyrst. Það hafa þeir gert með auglýsingum sem birtast æ fyrr, eins og auglýsingin sem ég nefndi hér í upphafi. Markmiðið með þessum auglýsinguum er auð- vitað ekki að vekja okkur til meðvit- undar um boðskap jólanna. Hann er nú það fyrsta sem gleymist þegar gullið skellur í skríninu. Markmið- ið er fyrst og fremst að lengja jóla- neysluna, að fá fjölskyldur landsins til þess að eyða meira fé á lengri tíma. Helst eiga menn að halda jól allan desembermánuð með jólaveisl- um og jólauppákomum, sem reynd- ar byrja í október hjá mörgum veit- ingahúsunum. Svo þegar loksins kemur að jólunum sjálfum eru allir búnir að fá nóg fyrir löngu. Fyrir allt þetta jólastand þarf auðvitað að borga. Til þess að borga fyrir jóla- neysluna duga ekki venjuleg dag- vinnulaun. Það þarf að vinna auka- vinnu til þess að eiga fyrir öllum veislunum og fótunum og gjöfunum og vísareikningunum, svo maður sé nú maður með mönnum. Aukavinn- an kemur auðvitað niður á sam- verustundum fjölskyldunnar, börn- in sjá foreldra sína varla fyrir öllu vinnustressinu. í raun og veru eru það hálfgerð öfugmæli að kalla jólin hátíð barnanna og fjölskyldunnar eins og komið er. Allir eru nefnilega að vinna yflrvinnu. Annaðhvort er verið að vinna fyrir fyrir jólaneysl- unni hjá sér og sínum eða í sölu- mennsku af einhverju tagi. Síðan er frítímanum varið í verslunum, oft í allt öðru en jólaskapi eins og segir í góðri vísu: „Marga rekur búð úr búð, beiskja, sorg og mæða.“ Þannig mun þetta halda áfram svo lengi sem við, fjölskyldurnar í landinu, bítum á agnið. En auðvitað getum við séð við auglýsingunum og öllu heila dótinu. Þetta er frjálst land! Við getum látið allt jólastússið sem vind um eyrun þjóta og gefíð okkur í staðinn góðan tíma til að njóta haustsins í róleg- heitum með bömunum í faðmi fjöl- skyldunnar. Þvi það eru nefnilega 73 dagar til jóla og engin ástæða til þess að láta verslunina raska ró sinni, 73 dagar sem við getum gefíð hvort öðru og bömunum okkar í staðinn fyrir að eyða þeim í yfir- vinnu og kaupæði. Og það er jóla- gjöf sem blifur!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.