Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2000, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000
DV
Fréttir
HlV-málaferlin á ísafirði:
Draga úr mér kraft
- segir smitaði vélstjórinn sem langar aftur á sjóinn
Réttarhöld hófust I gærmorgun
í Héraðsdómi Vestfjarða í máli
Guðjóns Kristinssonar vélstjóra
gegn þrotabúi Vesturskipa hf. en
Guðjóni var vikið úr skipsrúmi
Geysis BA þegar hann tilkynnti
yfirmönnum sínum að hann væri
HlV-smitaöur. Réttarhöldin stóðu
fram eftir degi í gær og bíða
menn nú dóms sem er að vænta
innan fjögurra vikna. Mál þetta
er einstakt því nú reynir í fyrsta
skipti í islenskri réttarsögu á rétt
HlV-smitaðra á vinnumarkaðn-
um.
„Ég er feginn að þetta er komið
í gang en það er ekki gaman að
standa í þessu. Þetta dregur úr
mér kraft en ég verð að standa á
rétti mínum,“ sagði Guðjón vél-
stjóri að loknum réttarhöldum en
hann sat þá á Sjallanum á ísafirði
ásamt Baldvini Þorlákssyni, fyrr-
um skipstjóra á Geysi BA, en
Baldvin var einnig kallaður fyrir
réttinn. „Heilsan er stórfin um
þessar mundir og mig langar aft-
HlV-smifaður maður
sagður hjartveikur
4 • nkÍH U OlfUtal H tnta •UWMa ■ --
C
Frétt DV
Tímamótaréttarhöld á ísafirði.
ur á sjóinn. Ég hef bara ekki vilj-
að taka áhættuna á að ráða mig í
skipsrúm fyrr en niðustaða ligg-
ur fyrir í þessu máli þvi ég vil
vita minn rétt þó svo ég sé HIV-
smitaöur,“ sagði Guðjón sem
greindist með eyðniveiruna fyrir
Vélstjórinn og skipstjórinn
Guöjón Kristinsson og Baidvin Þorláksson í Héraösdómi Vestfjaröa í gærmorgun.
sex árum og vonast til að mála-
rekstur sinn gegn útgerðinni
breyti viðhorfum manna gagn-
vart HlV-smituðum.
Baldvin Þorláksson, sem var
skipstjóri á Geysi BA þegar Guð-
jón var rekinn í land, var kallað-
ur fyrir réttinn og inntur eftir því
með hvaða hætti brottrekstur vél-
stjórans hefði borið að:
„Ég sagði dómaranum að ég
hefði einfaldlega sagt Guðjóni að
fara suöur en það þýðir á sjó-
mannamáli að menn séu reknir.
Þegar ég rek Rússa læt ég mér
nægja að blaka höndunum, líkja
eftir flugvél og benda í suður,“
sagði Baldvin skipstjóri þar sem
hann sat á Sjallanum og drakk
kaffi með fyrrum vélstjóra sínum.
Það er Erlingur Sigtryggsson
héraðsdómari sem dæmir í HIV-
málinu á ísafirði en Erlingur
kvað sem kunnugt er upp kvóta-
dóminn víðfræga á sínum tíma
sem skók íslenskt efnahagslíf um
hríð. -EIR
„Ormurinn"
hættulegur
„Þessar beygjur og sveigjur á Langa-
rima sem áttu að vera til þess að draga
úr umferð hafa orðið til þess að bömin
eiga erfiðara með að átta sig á fjarlægð
og þær blekkja þau
enn meira,“ sagði
Halla Björgvinsdótt-
ir, móðir bams sem
slasaðist alvarlega í
umferðarslysi i
Langarima í haust.
Ibúar Grafarvogs
Halla berjast nú fyrir bættu
Björvinsdóttlr umferðaröryggi viö
Langarima, eða „Orminn" eins og
fundarmenn kölluðu götuna.
Á fundi með borgárverkfræðingi og
skipulagsnefnd í gærkvöldi var fjallað
um með hvaða hætti má bæta umferð-
aröryggið, en mörg böm fara um göt-
una á hverjum degi. -SMK
DVWND INGÓ
Vilja breytingar
íbúar í Grafarvogi fjölmenntu á fund í Foldaskóla meö borgaryfirvöldum í gærkvöldi, þar sem fjallaö var um Langarima
og hvaöa úrbætur koma til greina. Upphaflega vargert ráö fyrir aö gatan yröi lokuö, en þaö hefur ekki veriö gert og er
umferö um götuna þung. Ýmsar tillögur komu upp á fundinum í gær og kemur meöal annars til greina að setja 30
km hámarkshraöa viö hluta götunnar.
Sérleyfishafar huga að sameiningu:
Borgarfjarðarbrúin til bölvunar
- og farþegum fækkar, segir Sæmundur Sigmundsson sérleyfishafi
DV. BORGARNESI:
Eins og kunnugt er þá eru uppi
hugmyndir um sameiningu eða
samvinnu sérleyfishafa á Vestur-
landi og Norðurlandi. Sæmundur
Sigmundsson, sérleyfishafi í Borg-
arnesi, segir að á sínum tíma hafi
hann sameinað fjögur sérleyfl þeg-
ar hann keypti rútubifreiðir Þórð-
ar Þórðarsonar á Akranesi. Með
sérleyfi á Akranes, Borgames og í
Reykholt runnu upp hans bestu ár
enda margt fólk sem notaði rútum-
ar á þeim tíma.
„Síðan komu alls kyns uppákom-
ur, eins og til dæmis Borgarfjarð-
arbrúin, sem urðu mér til bölvun-
DV-MYND DVÓ
Breyttir tímar
Þessi rúta Sæmundar þótti góö á
sínum tíma en nýjar, stærri og mun
fullkomnari hafa leyst hana af hólmi.
ar því að allir komu þá hér í gegn
og sveitin datt út. Ég var meö
þónokkur viðskipti í mínum áætl-
unarferðum í Kjósina og í Hval-
fjörðinn á sumrin. Þá komu út-
lendingar í bunum sem vUdu fara í
Hvalfjöröinn og upp að Glym.
Þetta hefur allt dottið út og er hið
versta mál. Ég hafði áætlunaferðir
á þriggja til fjögurra tíma fresti tU
bóndans á Hálsi, nú hef ég ekki
neitt og ég tapa öUum þessum far-
þegum. Það eru bæði kostir og gaU-
ar við það þegar að veriö er að laga
vegina. Farþegafjöldinn hjá mér
snarminnkaði þegar Borgarfjarð-
arbrúin kom. Þegar ég lít um öxl
þá var það fólk sem var að fara
með mér áður og tímdi ekki að
fara á sínum finu nýju bUum um
malarvegina," segir Sæmundur í
viðtali við DV.
Sæmundur segir að hann sé bú-
inn að hagræða mikið á leiðinni
Akranes-Reykjavík-Akranes. Eftir
að Hvalfjarðargöngin opnuðust
vonaðist hann tU þess að einn bUl
gæti staðið undir sér og að hann
fengi eitthvað um helminginn af
þeim farþegum sem Akraborgin
flutti. En reynslan er ekki sú, að-
eins litið brot af farþegum fer með
rútunni sem fer fimm ferðir á mUli
Akraness og Reykjavíkur. -DVÓ
Stálu valtara
Lögreglan á Höfn í Homafirði hafði
á sunnudagskvöld afskipti af tveimur
mönnum sem höfðu tekið valtara
traustataki og óku honum um íþrótta-
svæði bæjarins. - Mbl. greindi frá.
Tilbúnir meö 50 milljaröa
Áform Norðuráls um að stækka
verksmiðjuna í aUt að 300 þúsund tonn
hefur valdið nokkmm titringi í stjóm-
kerfmu, m.a. vegna þess að erfitt getur
reynst að útvega nógu mikla raforku
vegna þessarar stækkunar. ÁæUað er
að þessi stækkun Norðuráls geti kostað
45-50 miUjarða króna. - Dagur greindi
frá.
Málefni kvenna og barna
FastafuUtrúi íslands hjá Sameinuðu
þjóðunum, Þorsteinn Ingólfsson sendi-
herra, flutti þrjú ávörp á AUsherjar-
þingi Sameinuöu þjóðanna í síðasUið-
inni viku. Ávörpin fiöUuðu um málefni
kvenna, mannréttindi bama og afvopn-
unarmál.
Eyrasparisjóður kaupir
Eyrasparisjóður hefur keypt útibú
Landsbankans í Vesturbyggð og í
Króksfiarðamesi. Starfsfólki Lands-
bankans verður boðið að starfa áfram
hjá Eyrasparisjóði og verða afgreiðsl-
umar á BUdudal og i Króksfiarðamesi
reknar áfram með sama sniði og verið
hefur. - RÚV greindi frá.
Auglýst eftir presti
Meðal þess sem lagt er fram á kirkju-
þingi er tUlaga um að auglýsa beri
embætti sóknarprests á BUdudal laust
tU umsóknar. Þar hefúr verið prest-
laust um hríð. BUdudalsprestur verði
jafnframt Evrópuprestur og honum
fengið erindisbréf þar sem komi fram
skipulag þjónustunnar hér á landi og á
meginlandinu. Er þetta hugsað sem tU-
raunaverkefni tU 5 ára. - RÚV greindi
frá.
Sparisjóöirnir veröi hlutafélag
Valgerður Sverris-
dóttir viðskiptaráð-
herra er með í undir-
búningi lagafrum-
varp sem gerir spari-
sjóðunum kleift að
sameinast í hlutafé-
lag og þá jafnvel með
Ueiri fiármálastofn-
unum. VUji er meðal ráðamanna spari-
sjóðanna tU að kanna málið og hefur
nefnd verið að störfum tU að kanna
með hvaða hætti hægt er að breyta
sparisjóðunum í hlutafélag. Dagur
greindi frá.
Færri koma til dvalar
Búið er að selja hús Kvennaathvarfs-
ins og hafa Samtök um kvennaathvarf
fest kaup á öðru húsi þangað sem öU
starfsemi athvarfsins verður Uutt fijót-
lega eftir næstu áramót.
Fugladráp á vellinum
Starfsmenn Flugmálastjómar skutu
tæplega 5000 sUamáva frá lokum aprU
fram í byrjun september utan flugvaU-
argirðingar á Miðnesheiði. - RÚV
greindi frá.
Norrænt hús í New York
Forseti íslands
Ólafur Ragnar
Grímsson mim ásamt
Karli 16. Gústaf Svía-
konungi, Benediktu
prinsessu frá Dan-
mörku og Maríu Lou-
ise prinsessu frá Nor-
egi taka þátt í viðhafnardagskrá vegna
vígslu Norræns húss - Scandinavia
House í New York í dag, þriðjudaginn
17. október. - Mbl. greindi frá -HKr