Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Side 2
2
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000
I>V
Fréttir
Barnaverndarmálinu á Akranesi áfrýjað til Hæstaréttar:
Lögmaður krefst þess
að fá barnið afhent
- nauðsynlegt að Hæstiréttur fjalli um málið, segir bæjarstjóri
Úrskurður barnaverndamefndar
á Akranesi frá því í janúar um að
svipta foreldra forsjá dóttur sinnar
var felldur úr gildi undir lok síð-
ustu viku í Héraðsdómi Vestur-
lands. Málið hefur vakið gríðarlega
athygli, enda hafði faðirinn verið
dæmdur í árs fangelsi í Hæstarétti
1997 fyrir kynferðisafbrot gegn dótt-
ur sinni - en refsingin var þó skil-
orðsbundin. í maí í fyrra var faðir-
inn enn kærður fyrir afbrigðileg-
heit við dóttur sina en héraðsdóm-
ur sýknaði hann þá um haustið.
Barnaverndarnefnd Akraness
svipti síðan foreldana forsjá yfir
bami sínu í janúar í ár. Bama-
vemdarráð staðfesti þann úrskurð í
apríl.
Foreldrarnir höfðuðu mál á hend-
ur nefndinni og kröfðust þess að fá
barn sitt aftur. Héraðsdómur felldi
síðan sinn úrskurð í því máli í vik-
unni og telja margir hann tíma-
mótadóm.
„Ég tel þennan dóm mikilvægan,
það verður að minna barnaverndar-
nefndimar á að þær verða að fara
að landslögum. Það er alvarlegt að
grípa inn í friðhelgi fjölskyldunnar
á þann hátt sem hér var gert,“ sagði
Valborg Þ. Snævarr héraðsdómslög-
maður í gærkvöldi. „Ég hef gert
kröfu um að fá barnið afhent," sagði
Valborg en hún er lögmaður hjón-
anna á Akranesi.
„Þau fá forsjána aftur, það tel ég
víst,“ sagði Valborg. Hún sagði að
foreldrarnir vissu ekki hvar bam
þeirra væri niðurkomið og hefðu
ekki fengið að sjá það síðan í sum-
ar. „Ég krafðist upplýsinga um það
á fimmtudaginn hvar barnið væri
niður komið en hef ekki fengið svar,
en vonast til að fá það í hendur
strax á morgun, mánudag," sagði
Valborg.
Erfitt hjá yfirvöldum
Sólveig Reynisdóttir, félagsmála-
stjóri á Akranesi og starfsmaður
barnavemdarnefndar, mótmælir
þessu. „Þeim bauðst að hitta fóstur-
foreldrana sem stúikan
dvelur hjá núna en þau
höfnuðu því strax í upphafi.
Það er ekkert leyndarmál
hvar barnið dveljur. Aftur á
móti var engin umgengni
foreldranna við barnið
þessa þrjá mánuði sem
reynslutíminn stendur. Það
er ekki bundið í lögum en
er vinnulag í fósturmál-
um,“ sagði Sólveig.
Hún á erfitt með að ræða
skjólstæðingamál. En hún
kveðst viðurkenna að viðsnúningur
héraðsdóms væri erfiður fyrir
barnaverndarnefndina. „Þetta er
mjög erfitt því við þurfum áfram að
vinna með viðkomandi ijölskyldu
og standa vörð um hagsmuni barns-
ins,“ sagði Sólveig.
Litla telpan sem um ræðir hefur
verið vistuð hjá fjórum fjölskyldum
á stuttum tíma og staðfesti Sólveig
að svo væri. „Því miður er það rétt,
og það er afar slæmt, þessi mál taka
svona langan tíma fyrir dómstólum
og í barnaverndarnefnd og
barnaverndarráði," sagði
Sólveig.
Gisli Gíslason, bæjar-
stjóri á Akranesi, sagði í
gærkvöldi að bæjarráð
hefði ákveðið að áfrýja úr-
skurðinum til hæstaréttar.
„Þarna eru býsna mörg efni
sem brýnt er að fá umfjöll-
un um í Hæstarétti. Það
þarf að skerpa á því sem
snýr að stjómsýslunni,
hvernig hún hefur staðið að
verki. í öðru lagi er ljóst finnst okk-
ur að verið er með þessum dómi að
breyta viðmiðunum sem hafa verið
gagnvart málum á stjómsýslustig-
inu og verið aö blanda þeim saman
við sönnunarbyrði í sakamálum
sem okkur finnst ekki eiga við. Og í
þriðja lagi er þarna verið að breyta
efnislega niðurstöðu barnavemdar-
yfirvalda og barnaverndarráðs, mál-
um sem þessum aðilum er sam-
kvæmt lögum falið vald til að ljúka.
-JBP/-DVÓ
Gísli Gíslason:
Brýnt aö Hæsti-
réttur fjalli um
máliö.
Forsetinn vekur athygli fyrir frjálslegan klæðaburð á Indlandi:
I strigaskóm á leið í ástarhof
- vakinn með fallbyssum í morgun
um kvikmyndir og framleiða árlega
mikið magn þeirra og horfa á enn
fleiri.
Opinber heimsókn forseta íslands
á Indlandi hófst klukkan 4.30 í nótt
að íslenskum tíma og bíða frétta-
menn sem fylgja honum spenntir
eftir heimsókn hans og unnustu í
Taj Mahal hofið sem lengi hefur
verið draumaáfangastaður elskenda
úr öllum heimshornum. Þar lét
Díana prinsessa mynda sig á eftir-
minnilegan hátt þegar hún stóð á
krossgötum í hjónabandi sínu með
Karli Bretaprinsi. Ekki er talið ólík-
legt að Ólafur Ragnar og Dorrit gefi
ljósmyndurum tækifæri til að
mynda sig á þessum sögufræga stað
þar sem hjörtu elskenda renna oftar
en ekki saman í eitt við stórbrotið
hofið og laugina sem að því liggur.
Opinber heimsókn forseta islands
Astarhofiö
Taj Mahal - þar sem hjörtu
elskenda renna saman í eitt.
til Indlands lýkur á fimmtudaginn.
Heimsóknin hefur ekki fengið mikla
umfjöllun indverskra fjölmiðla en
dagblað i Nýju-Delí greindi þó frá
henni innblaðs í stuttri frétt í fyrra-
dag.
-EIR
Opinber heimsókn forseta íslands
til Indlands hófst formlega í morgun
þegar Ólafur Ragnar Grímsson og
fylgdarlið hans var vakið með 21
fallbyssuskoti í höll þeirri sem hann
gistir í Nýju-Delí á meðan á Ind-
landsheimsókn hans stendur.
„Höllin er á stærð við Versali í
Frakklandi og ævintýraleg á að
líta,“ sagði einn úr fylgdarliði for-
setans í gærkvöldi en um 350 manns
flugu meö Júmbó-þotu Atlanta-flug-
félagsins sem flutti forsetann til Ind-
lands. Arngrímur Jóhannsson flug-
stjóri og eigandi Atlanta flaug sjálf-
ur Júmbó-þotunni út og „...smurði
hana listilega vel við brautina í
lendingu," eins og farþegar kusu að
orða það við komuna til Indlands.
Forsetinn hefur vakið töluverða
athygli ytra fyrir frjálslegan klæða-
burð en í gær og í fyrradag gekk
hann fyrir viðskiptasendinefnd á
vegum Útflutningsráðs og utanríkis-
ráðuneytisins íklæddur strigaskóm,
hvítum kakí-buxum og léttri skyrtu.
Unnusta hans, Dorrit Moussaieff,
fylgdi honum léttklædd með sólhatt
og dökk gleraugu. Auk þess er
Dalla, dóttir forsetans, með honum í
för. Heimsóttu þau Bahai-hoflð sem
er í líki lótusblóms auk þess sem
þau komu við á markaði þar sem
þau þáðu gjafir indverskra hand-
verksmanna.
Auk hefðbundins fylgdarliðs for-
setans eru í för með honum fulltrú-
ar frá 20 íslenskum fyrirtækjum
sem ætla að kynna vörur sínar og
rækta viðskiptasambönd á Indlandi
sem er einn stærsti markaður ver-
aldar. í hópnum er meðal annarra
Friðrik Þór Friðriksson kvikmynda-
leikstjóri sem kynna mun myndir
sínar á kvikmyndhátíð í Nýju-Delí
en Indverjar eru miklir áhugamenn
Meö handverk um háls
Forsetinn, unnusta hans og utanríkisráöherra þiggja gjafir af indverskum
handverksmönnum á útimarkaði.
DV-MYNDIR LKI
Léttklædd viö lótusblómiö
Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff viö Bahai-hofiö í Nýju-Delí sem er í líki lótusblóms.
Árni til Kína
Ámi M. Mathiesen, sjávarútvegs-
ráðherra mun fara til Kína í næstu
viku. Þar verður
hann einn þriggja
aðalfyrirlesara á
þriðju alheimsráð-
stefnu sjávarútvegs-
ins sem haldin
verður í Peking.
Þetta er í fyrsta
sinn sem íslenskur
sjávarútvegsráðherra fer í opinbera
heimsókn til Kína. Dagur greindi
frá.
Störfum fjölgar
Samkvæmt tölum frá Hagstof-
unni hefur störfum á íslandi fjölg-
aði um 15 þúsund frá því árið 1996.
Mest hefur störfum fjölgað í grein-
um eins og verslun og iðnaði. Störf-
um fækkar hins vegar i sjávarút-
vegi og landbúnaði. Sjónvarpið
greindi frá.
Hækka framlagið
Borgaryfirvöld í Reykjavík verða
að hækka framlag sitt til Strætis-
vagna Reykjavíkur um 60 milljónir
samkvæmt uppgjöri síðustu níu
mánaða frá Borgarsjóði. Mbl.
greindi frá.
Vandræðahundar
Lausir hundar hafa verið til
vandræða í Heiðmörk að undan-
fómu en slíkt er bannað. Tvö slys
hafa orðið, annað þegar hundur
feldi eldri konu sem féll og hrygg-
brotnaði en hitt var þegar hundur
beit mann til blóðs. Eigandi sá
hunds var með fjóra lausa hunda.
Morgunblaðið greindi frá.
Sveitarstjórnarmenn æfir
Guðmundur Árni Stefánsson
þingmaður segir að
sveitarstjómar-
menn séu æfir
vegna útsvars-
hækkunarinnar
sem stendur til án
þess að skattar
lækki á móti. Dagur
greindi frá.
Afkoman verri hjá 15%
Rúm 15% íslendinga telja af-
komu sína nú vera verri en fyrir
tíu árum. Þetta kemur fram í
könnun sem Pricewaterhouse
Coopers gerði á viðhorfi Islendinga
til flárhagslegrar afkomu þeirra.
Rúm 60% íslendinga telja sig vera
nokkuð eða mikið betur stödd nú
en fyrir áratug.
Einn fallið
Aðeins einn íþróttamaður hefur
komið jákvæður út úr lyfjaprófi hér
á landi á síðustu tveimur árum.
Birgir Guðjónsson lyflæknir segir
hlutfallstíðni lyfjamisnotkunar hér
á landi sé svipuð og öðrum löndum.
Stjórn BSRB endurkjörin
Þing BSRB samþykkti breytingar
á lögum bandalags-
ins. Tillögumar
fela það í sér að
stjórn bandalagsins
verður skipuð for-
mönnum aðildarfé-
laganna og fram-
kvæmdanefnd verð-
ur kosin. Einnig
að núverandi for-
menn aðildarfélaga skipi stjórn
bandalagsins á næsta kjörtímabili
sem þýðir að litlar breytingar verða
á stjórninni. _ma
var samþykkt