Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Side 8
8
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000
I>V
Glsesilegt úrval
Glæsilegt úrval af handunnum
rúmteppum, dúkum, Ijósum og
gjafavörum.
Matta rósin 20% afsl.
Pelsar í úrvali
Sigurstjarnan
virka daaa 11-18, í bláu húsi við Fákafen.
laugard. 11-16 Sími 588 4545.
Sundlaugar ÍTR
Starfsfólk vantar í Vesturbæjarlaug (100%),
Árbæjarlaug (100%) og Grafarvogslaug (75%).
Umsækjendur þurfa að standast hæfnispróf
sbr. öryggisreglugerð fyrir sundstaði.
Upplýsingar veita forstöðumenn:
Árbæjarlaug, Stefán Kjartansson, s. 510-7600
arblaug@islandia.is
Grafarvogslaug, Hafliði Halldórsson, s. 510-4600
img@islandia.is
Vesturbæjarlaug, Ólafur Gunnarsson, s. 561-5004
vestblaug@islandia.is
Umsóknarfrestur er til og með miðvikudagsins 1.11. nk. Umsóknum
skal skilað á skrifstofu ITR að Fríkirkjuvegi 11 á þar til gerðum
umsóknareyðublöðum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Vikuna 30. okt. - 4. nóvember
hefjast í World Class hin vinsælu
8 vikna adhaldsnámskeið Gauja litla
Innifalið er eftirfarandi: Yogaspuni 6 sinnum í viku, vigtun, ummáls-
mæling, fitumæling, ítarleg kennslugögn, matardagbækur, leiðbeiningar
um fæðuval, æfingabolur, vatnsbrúsi, fræðsludagur, kennsla í tækjasal,
viðtal við næringaráðgjafa, ótakmarkaður aðgangur í World Class.
Fagmennska í fyrirrúmi
Þeir sem koma að aðhaldsnámskeiðum Gauja litla eru m.a. læknir,
hjúkrunarfræðingur, næringarráðgjafi, næringarfræðingur, félags-
ráðgjafi, sálfræðingur, geðlæknir, íþróttakennari, íþróttafræðingur,
kennari, ásamt fjölda ráðgjafa og gestakennara.
Það er aldrei of seint að byrja !
Margra ára reynsla okkar tryggir þér frábæran árangur
Upplýsingar og tímapantanir í síma
WorldClass
/££LÞm
Fréttir
Skeifa slapp frá
sláturhúsinu í
annað sinn
DV, HUNAÞINGI:_________________
Það varð lítið úr því að Guð-
mundur Valtýsson, bóndi á Eiríks-
stöðum í Svartárdal í Austur-Húna-
vatnssýslu, leiddi hana Skeifu, 11
vetra á, til slátrunar í þessari viku,
eins og hann var búinn að ákveða.
Þegar Guðmundur kom út að fjár-
húsunum á miðvikudagsmorguninn
hafði Skeifa borið ljómandi falleg-
um hrút.
Þetta er ekki i fyrsta skipti sem
Skeifa bjargar lífi sínu og hún og
Guðmundur hafa reyndar ekki
alltaf verið sátt í hvort annars garð.
„Mér er ekki vel við að mínar kind-
ur verði eldri en tíu vetra og því var
ég búinn að ákveða að farga Skeifu
síðasta haust. En þá kom hún ekki
fram i smalamennskunni og það var
ekki fyrr en um 20. nóvember, eftir
hriðarbyl sem gerði, að hún kom
hingað niður að húsunum, með fal-
lega gimbur sem hún hafði borið
um vorið. Ég sá að það var fullseint
að farga henni úr þvi sem komið
var. En þegar Skeifa var geld í vor
en feit og pattaraleg sá ég að það
væri góður tími að farga henni nú í
haust. Það má svo segja að hún hafi
leikið á mig núna annað haustið í
röð.“
Og Guðmundur bætir því við að
hann og Skeifa hafi reyndar ást við
áður. „Það var fyrir nokkrum árum
að það hrá svo við að Skeifa vildi
ekki annað lambið sem hún bar. Ég
var ákveðinn í því að láta hana ekki
komast upp með það og hélt henni
hérna heima fram í júlí. Hún var
greinilega langt frá því að vera sátt
við mig en það gekk þó að lokum að
venja lambið undir. Þetta var lítil
gimbur sem ég kallaði Ögn og eftir
þetta bras ákvað ég að láta hana
lifa, þó stærðin væri nú ekki eins og
lífgimbrar eiga að vera. Og Ögn hef-
ur kunnað að meta þetta þvi núna í
haust kom hún með tvö rígvæn
lömb af fjalli sem lögðu sig á 17 kíló
hvort og þær hafa nú ekki gert það
margar betur,“ segir Guðmundur á
Eiríksstöðum. -ÞÁ
Eldri borgarar snerta
tölvur í fyrsta sinn
- barátta fyrir tölvukennslu þar sem karlarnir drógu lappirnar
DV-MYNDIR JÚLIA IMSLAND.
Enginn námsleiði
Áhuginn skín úr hverju andliti og þaö er næsta öruggt að kennarinn þarfekki
aö minna neinn á aö taka eftir. Auöur Jónasdóttir er aö fara yfír listann hverj-
ir hafi mætt.
PV, HORNAFIPÐI:____________________
Félag aldraðra á Hornafirði
stendur þessa dagana fyrir tölvu-
námskeiði og er umsjónarmaður
þess Auður Jónasdóttir og kennari
með henni á námskeiðinu er
Magnea Þóra Guðmundsdóttir,
tölvukennari við Heppuskóla.
„Ég er búin að berjast fyrir því í
tvö ár að fá tölvunámskeið fyrir
aldraða en karlarnir í stjórn félags-
ins hafa bara dregið lappimar og
ekkert gert,“ segir Auður Jónasdótt-
ir í spjalli við DV. „Svo var ég svo
heppin að fá Hauk Þorvaldsson,
tómstundafulltrúa hjá bænum, til
Aldrei snert á tölvu fyrr
Einar Gíslason (fjær á myndinni) er
alsæll með námskeiöiö. Hann seg-
ist aldrei hafa snert á tölvu og verið
dauöhræddur viö þetta fyrst. Meö
Einari er Kristján Ragnarsson.
liðs við mig og þá gekk þetta. Ég er
rosalega ánægð með námskeiðið og
sama er að segja um alla hina þátt-
takenduma - það er almenn ánægja
og mikiil áhugi. Við fáum aðstöðu i
tölvuveri Heppuskóla og námskeið-
ið er 15 klst., um einn og hálfur tími
i senn,“ sagði Auður.
Byrjað er á kennslu í ritvinnslu
og svo notkun Internetsins og pósts-
ins. Um helmingur hópsins hefur
aldrei notað tölvu en þetta gengur
alveg ljómandi vel enda er kennar-
inn frábær. Auður segir að félagslíf
aldraðra á staðnum sé mikið og fjöl-
breytt og iþróttir ýmiss konar njóti
vaxandi vinsælda.
-Júlia Imsland
Þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður:
Góð útkoma hjá FISK
DV, SAUÐÁRKRÓKI:
Hagnaður af reglulegri starfsemi
hjá Fiskiðjunni Skagfirðingi á síð-
asta rekstrarári var heldur meiri en
árið á undan, eða 218 milljónir í
stað 185 milljóna, þrátt fyrir að
meiri hækkun yrði á rekstrargjöld-
um en tekjum milli ára. Þá lækkuðu
fjármagnsgjöld talsvert á árinu og
skuldir fyrirtækisins einnig, auk
þess sem eigið fé jókst. Veltufé frá
rekstri er 535 milljónir eöa 22,2% af
veltu.
Rekstrarár FISK er kvótaárið og
ársreikningur liggur nú fyrir. Þar
eru helstu tölur þær að rekstrartekj-
ur síðasta árs voru 2.403 milljónir
og jukust um 0,17% milli ára. Meiri
aukning varð á rekstrargjöldum, úr
1703 í 1777 milljónir eða 4,35%.
Hagnaður án afskrifta og fjármagns-
kostnaðar var 626 milljónir eða um
10% lægri en árið áður. Afskriftir
voru eilítið meiri eða 317 milljónir
og reiknaðir skattar fimm milljónir
í stað tveggja árið á undan.
Eignir aukast lítillega milli ára
en veltufiármunir talsvert, eða úr
660 milljónum í 724 milljónir. Þá
lækka skuldir samtals um 123 millj-
ónir og voru nettóskuldir FISK í
árslok 1130 milljónir.
Jón Eðvald Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri FISK, segir menn
þokkalega sátta miðað við það að
ýmsar ytri aðstæður hefðu verið
óhagstæðar á síðasta kvóta- og
rekstrarári. Oliukostnaður hækkaði
til dæmis úr 80 milljónum í 140
milljónir. Afurðir væru seldar í evr-
unni og gengi hennar hefði sigið
nokkuð. Þá hefðu rækjuveiðar geng-
ið fremur treglega og hráefnisverð
þar verið í hærri kantinum. Einnig
hefðu þorskveiðarnar verið tregar
frá vormánuðum og meiri tilkostn-
aður til öílunar hráefnis fyrir
vinnsluna af þeim sökum. Jón Eð-
vald sagði lítil batamerki á lofti, til
að mynda virtist olíuverðið enn á
uppleið. -ÞÁ