Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2000, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2000, Page 6
heimasíöa vikunnar D r- Gunna Hinn andlegi meistari Srí Chinmoy hétt sína 600. fríðartónleika í Háskóiabíói á mánudaginn. Það var fullt út úr dyrum af fólki í leit að einhverju til að fylla i stóra góðærísgatið á sér. Dr. Gunni tók með sér vasaklút. unni um poka fyrir enn önnur tilefni, eins og einn hannaður fyrir notendur UNIX-kerfisins, annar helgaður stjórnmálamanninum Newt Gingrich og að sjáifsögðu poki frá Disneyland-skemmtigarðinum. Menn- ingarlegt gildi síðunnar er því óum- deilanlegt því hún er einstök heimild um þennan oft og tiðum afskipta geira mannlífsins. Þeir sem eiga poka frá Arnarflugi eða eitthvert álíka raritet geta svo lagt sitt af mörkum og jafnvel fengið eitthvað úr býttinu að launum i stað- inn. Að lokum er vert að benda ís- lenskum ungmeyjum á að Steven þessi er einhleypur en ákaflega róm- antískur, eins og sést af „Steve’s Tiny Book of Romance" sem fylgir siðunni í kaupbæti. Heimasíða vikunnar að þessu sinni er www.airsicknessbags.com. Á síð- unni er að flnna veglegt myndrænt safn rúmlega 400 ælupoka sem Banda- rikjamaður að nafni Steven J. Silber- berg hefur sankað að sér í gegnum tiðina frá öllum heimshornum. Ekki er nóg með að flestöll helstu flugfélög heims (og íjölmörg önnur) eigi sér þarna fulltrúa heldur eru þar líka pokar sem grípa má til ef ógleði gerir vart við sig í lestarferð, í loft- púðaskipi úti á rúmsjó, í sunnudags- bíltúrnum, i bíó eða jafnvel úti í geimnum. Sérstakur bálkur er á síð- KNICKERBOX Knickerbox Kringlunni sími 533 4555 Knickerbox Laugavegi 62 sími 551 5444 5 ára afmælisvika til sunnudagsins 5. nóvember. " 20% afslá áttur af öllum vörum. Sendum í póstkröfu. FM 95,7 Fylgist með afniælisleik okkar Glæsileg verðlaun Á LAUGARDAGINN VERÐUR STORVEISLA I KRINGLUNNI • GLÆSILEG TÍSKUSÝNING, ÞAÐ ALLRA NÝJASTA FRÁ KNICKERBOX. • EINAR ÁGÚST MUN KOMA OG TAKA LAGIÐ í TILEFNI AFMÆLISINS. • Kannski áritar hann NÆRBUXUR EÐA BRJÓSTAHALDARA HMMM... http://www.ai rsi- cknessbags.com Hann helti -joj-joj-joj Mörgum finnst nútlmajóginn Sri Chinmoy stór- kostlegur meistari. Með ástundun jóga getur þessi aldni meistari hvaö sem er: lyft Stein- grími Hermannssyni og hlaupiö margföld mara- þon án þess aö blása úr nös. Hann þykir gífur- lega fjölhæfur og víst er að hann er afkastamik- ill. Hann málar grófar krúsidúllur og klessur meö svampi I tonnavís, hefur teiknað tíu millj- ón myndir af fuglum (hefur einhver nennt að telja?) og dælir frá sér Ijóöum, eins og þessu: Ekki hætta aö dreyma! Einn daginn mun draumur þinn um alheimsfriö flæða yfir allan heiminn. Það er greinilegt aö svona tær snilld næst ein- göngu meö áralöngu jóga. Hann býöur upp á ókeypis hugleiöslunámskeiö og efst á Klappar- stlgnum eru tvær frábærar búðir sem fylgjend- ur hans á íslandi starfrækja, Heilsubúðin Musteri sálarinnar og kaffihúsiö Kaffihúsið. Ætli Sri hafi fattaö upp á þessu djúpspaka nafni eftir langa jógatörn? Er Sri bara svona góður? Ég mæli eindregiö með þessum búöum. Starfsfólkið er mjög kammó, maturinn ódýr og fínt grænmetisgums I boði, og ég hef ekki orð- iö var viö neinar tilraunir til heilaþvottar. Kannski gengur þetta Sri-dæmi aldrei þessu vant ekki út á neinn heilaþvott eða pen- ingaplokk. Kannski er Sri bara að þessu af því að hann er svona góöur? Þegar kafað er að- eins dýpra má þó sjá ýmislegt sem veröur aö teljast vafasamt og hægt er aö finna að alls konar skrumi sem á betur heima I Sjónvarps- markaðinum en hjá meistara andans. Sri hefur m.a. sagst vera andlegur bróöir Jesú Krists, hann segist hafa verið Thomas Jefferson I fyrra lífi og hann segir að Hindú-guöinn Vishnu hafi einu sinni sest á öxlina á sér. Svo eru þessir lyftingatiIburöir heldur vafasamir. Sri lyfti þrem- ur tonnum með annarri hendi 1985. Já, einmitt. Hann nuddar sér utan I ráðamenn við hvert tækifæri (er ekki Ólafur Ragnar vinur hans?), skipuleggur Friöarhlaup og hefur hengt upp friðarplatta á fræg mannvirki um allan heim - „friðarblómganir" kallar hann það. Það er ekki laust viö að manni detti svindlarinn Ma- harishi Mahesh Yogi (sá sem Bítlarnir sáu að lokum I gegnum) I hug I sömu andrá og Sri. Andaktug dýrð En hvað með það. Ekki ætla ég að setja mig I spor rannsóknarblaðamanns og fletta ofan af Sri greyinu. Flnt ef fyl^endur hans flla þetta allt saman og mln vegna mega þeir lifa fyrir kenn- ingar meistarans og stara á myndir af honum á sama hátt og þorri landsmanna lifir fyrir sjón- varpsdagskrána. Mln vegna má þetta almenni- lega fólk gleyma sér tímunum saman I hug- leiðslu fyrir framan skallann á Sri og hlaupa út um allan bæ I góðu stuði. Skárra væri það nú. Ég fór á friðartónleika meö Sri á mánudaginn. Ég fór líka fyrir 12 árum og skemmti mér kon- unglega. Átti að vísu að fyllast einhverri innri ró og vellíðan, en hló þess I stað eins og vitleys- ingur inn I mig allan tlmann. Sat á aftasta bekk og varð blár og grænn I framan á meðan ég reyndi að halda hlátrinum niðri I mér. Loks gat ég ekki meir, læddist út I gegnum andaktuga dýröina og sprakk grenjandi fyrir framan Há- skólabló. Troðinn salur Ég var spenntur þegar ég mætti á tónleikana á mánudaginn. Mundi ég hlæja jafn mikið núna og síðast? Ég tók vasaklút með til öryggis. Stóri salurinn I Háskólabíó var troðfullur af þeim forvitnu og þeim andlegu. Allir líkast til aö leita að einhverju til að fylla I stóra góöær- isgatiö á sér. Hvítklæddir lærisveinar rótuðu fyrir meistarann og sari-klæddar yngismeyjar dreiföu bæklingum. Loks voru Ijósin dempuð. Sex pæjur I kuflum komu úr bakherberginu og settust á fremsta bekk. Voru þetta eiginkon- ur meislarans? Helsti fulltrúi Sri hérlendis bankaði I hljóðnemann og bað fólk velkomið meö þessum skilaboðum: „Vinsamlegast klappiö ekki fyrr en I lokin." Tveir andans rót- arar höföu tekiö sér stööu viö útgöngudyrnar. Stóöu með krosslagðar hendur og ég var drulluhræddur um að bráðum færu þeir aö dreifa eitruðu djúsi eins og rótarar Jim Jones I denn. Gúrú í dótabúð Dauöaþögn. Þarna birtist loks sá gamli og staulaðist I stól. Bað lengi. Það mátti heyra saumnál detta, gemsa hringja. Sri tók varlega upp einhvers konar sltar og þá byrjaöi ballið. Hann byrjaði að sarga. Hann sargaöi eitthvaö út I loftið I tíu mínútur. Þreyttist við sargið og baö pæjurnar um að syngja. Þær héldu lagi. Aftur Sri, nú á blokkflautu. Eitthvað út I loftið eins og ofvirkur byrjandi. Það var ekki einu sinni hægt aö dorma þvl hvell plp úr flautunni rufu flæðiö. Næst puðraði Sri I einhverja framandi bóluflautu. Stutt verk. Gamalt bros tók sig ekki upp hjá mér fyrr en Sri tók upp Iftinn skemmtara og ruglaöi eitt- hvaö meö stiilt á harpsikord-sánd. Svo skipti hann yfir á ásláttarstillinguna og trommaöi smávegis. Stillti loks á pan-flautusándið og glamraði smá. Enn dauðaþögn, gestir eins og kanínur I bílljósum meistarans, en nokkrir þó farnir að læðast út. Hmm, hvaða dót á ég aö prufa næst, hugsaöi gúrúinn og skimaöi yfir úrvaliö. Ókei, fiölu. Ssssszzzarg eins og hjá sex ára stelpu. Auð- 'vitað haft bergmál á hljóönemanum. Þaö er svo andlegt. Nú var Sri orðinn þreyttur og stelpurnar sungu á ný. Meistarinn sat I himneskum friði á bak viö. Var hann kannski aö íhuga hvort Davíð Oddson væri til I aö láta lyfta sér? Hmm, best aö prófa banjóiö næst. Spoing- poing. Annaö slagið eitthvað sem var eins og lagllnan I Ég heiti Chinmoy og segi doj-joj-joj- joj-joj. Nú kom bló. Videóupptaka af erlendum Sri- fundi. Fölt fólk I mussum að tóna meö tómleg augu þess sem „hefur fundið sannleikann". Það tónaði nöfn á löndum og fáni viökomandi lands fór á loft. Sri hefur „friðblómgað" ein 115 lönd samkvæmt Mogganum og þegar komiö var að Kirgisistan - „Kirgisi-stan - Kirgisi-stan - ki hi hi hi hi hi hi hi hi hi hi hi hi hi hi hi hi hi hi hi hi hi hi Kirgisi-stan", söngl- aöi föla fólkið I mussunum - gafst ég upp og dreif mig út. Hvaða lærdóm dró ég af þessu? Jú, þaö á aldrei að reyna aö endurlifa gamalt hlát- urskast. Takk fyrir þá speki, mikli meistari. 6 f Ó k U S 3. nóvember 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.