Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2001, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 DV 7 Fréttir Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur: Búið að greiða um 5 milljónir - til atvinnulausra starfsmanna Nasco. Greiðslur stöðvast á næstu vikum Lárus Benedikts- son, formaður Verkalýðs- og sjó- mannafélags Bol- ungarvíkur, segir að félagið sé nú búið að borga á milli fjór- ar og fimm miOjónir i laun til starfs- manna rækjuverk- smiðjunnar Nasco sem var lýst gjald- þrota 8. desember. Uppsagnarfrestur mikils hluta starfsmanna rennur út á næstu tveim vikum og þá leggjast greiðslur Verkalýðsfélagsins jafn- framt niður. „Við höfum brúað bilið á miOi at- vinnuleysisbóta og væntanlegra út- borgaðra launa, en starfsfólkið er flest með mánaðar uppsagnarfrest og einhverjir í allt að sex mánuði. Við borguðum því fólki sem er með rauða kortið, og klárar sinn upp- sagnarfrest nú í byrjun janúar, á milli jóla og nýárs laun sem svara tO hálfs mánaðar. Við greiddum út samtals um 950 þúsund nú fyrir ára- mótin. Mest greiddum við fyrstu vik- una, eða um þrjár miOjónir, en þar inn í var desemberuppbót. í heOdina eru þetta orðnar 4,5 tO 5 mUljónir króna. Við getum ekki greitt meira Tryggvi Guömundsson. en sem nemur upp- sagnarfresti, annars fáum við það ekki til baka úr Ábyrgð- arsjóði launa, það yrðu þá að koma tU önnur úrræði," sagði Lárus, en fé- lagið hafði svipaðan hátt á er Islensk „ . .. „ miðlun i Bo ungar- Gunnarsson. vik varð gjaldþrota á síðasta ári. FuUar atvinnuleysis- bætur eru 64 þúsund krónur á mán- uði auk smáupphæðar á dag fyrir hvert barn sem er á framfæri launa- manns. „Þeir sem hafa verið að vinna hálfan daginn hafa fengið um sjö þúsund krónur á viku auk greiðslunnar frá verkalýðsfélaginu. Lárus sagðist engar fregnir hafa af hugsanlegri endurreisn fyrirtækis- ins, en sagðist gera sér vonir um að hún tækist sem aUra fyrst. „Það velt- ur mikið á því að fyrirtækið fari í gang, helst áður en uþpsagnarfrest- urinn er búinn. Annars er hætt við að los komi á það fólk sem á skemmstan uppsagnarfrest. Það yrði verulega slæmt að missa þetta fólk í burtu. Það hefur mikla reynslu og í þekkingu þess liggja mikil verð- mæti.“ Starfsfólk í rækjuvinnslu Nasco Uppsagnarfrestur flestra rennur út í næstu viku og þá getur verkalýösfélagið ekki lengurgreitt fólki upp í væntanleg laun frá Ábyrgöarsjóöi launa. Tilboð opnuö á föstudag Kristinn H. Gunnarsson, formaður stjórnar Byggðastofnunar, sem jafn- framt er stærsti kröfuhafi í bú Nasco, sagði að tUboð í eignir fyrirtækisins yrðu opnuð á fostudag og þá fyrst væri vonandi hægt að taka einhverja afstöðu tU málsins. Tryggvi Guð- mundsson, skiptaráðandi þrotabús- ins, sagði engin tilboð enn komin í eignimar. „Ég tel mig þó vita að ein- hver tilboð séu á leiðinni. Annars er ekkert hægt að segja fyrr en á fóstu- dag er væntanleg tUboð verða opn- uð.“ Fólki leiti andlegrar aöstoöar Lárus sagði fólk misjafnlega á vegi statt til að takast á við atvinnunu- leysið, bæði andlega og fjárhagslega. „Trúlega líður einhverjum mjög illa og ég hvet þá endilega tU að snúa sér til heUsugæslustöðvarinnar til að fá aðstoð. Fljótlega mun Svæðisvinnu- miðlun á ísafirði vonandi halda styrkingamámskeið fyrir þetta fólk líkt og gert var hér í Bolungarvík í haust fyrir þá sem verið hafa lengi atvinnulausir. Það er vel upp byggt og gott námskeið tU að hjálpa fólki að takast á við þessa erfiðleika." -HKr. Eldarnir slökktir dvmynd nh Slökkviliöið á Selfossi slökkti í brennu bæjarbúa eftir að logaö haföi í henni í um hálftíma. Sunnlensk áramót fóru vel fram: Slökkviliðið slökkti í áramótabrennunni Lögreglan á HvolsveUi stöðvaði á nýársnótt tvo ökumenn sem grunað- ir voru um ölvunarakstur. Á Selfossi voru áramótin anna- sömust hjá slökkvUiðinu. Það var með vakt yfir áramótin og þurfti að sinna þrem útköUum vegna sinu- bruna sem kviknuðu af flugeldum. Fyrr á gamlárskvöld hafði slökkvi- liðið verið fengið til að slökkva í áramótabrennu Selfyssinga þar sem þurr sina var farin að brenna vegna glóðar sem fauk úr brennunni. Að sögn lögreglu á Selfossi fór aUt ann- ars vel fram í hennar umdæmi. -NH Nýjárstungl yfir Reynisdröngum dv-mynd nh Þaö var ekki mikil birta sem nýtt nýjárstungl gaf frá sér þegar þaö var aö sigla á himninum yfir Reynisdröngum á fimmtudagskvöldiö. Þetta tungl er þó tákn fyrir fyrsta tunglmánuð nýja ársins, þrátt fyrir aö týran sé lítil á tungliö eftir aö fyllast og hníga eins og áöur. DV, SELFOSSI: ________________ Fyrstu áramót nýrrar aldar fóru fram með ágætum sunnanlands. Reynir Ragnarsson, lögreglumaður í Vík, sagði að í Vestur-SkaftafeUs- sýslu hefðu verið samkomur bæði í Vík og á Kirkjubæjarklaustri og aUt heföi farið vel fram. Að sögn Reynis setti helst hvassviðri strik í hátíð- ina, þó ekki á þann hátt að rokið væri tU teljandi vandræða. Á Hvolsvelli fengust þær upplýs- ingar að mannlífið hefði verið með ágætum yfir áramót. í umdæmi lög- reglunnar á HvolsveUi voru fjórar brennur sem leyfi voru veitt fyrir. Við tjörnina dvaiyndjak Smáfólkinu finnst fátt skemmtilegra en aö heimsækja endurnar á tjörninni og gefa þeim eitthvaö gott í gogginn og þaö lætur ekki frost og vetrarhörkur aftra sér frá þeirri skemmtun. Þolinmæði Hvalfjarðargangamanna er þrotin: Stálbitar munu stöðva ólöglega vöruflutninga DV, HVALFIRÐI:________________________ Ráðamenn Spalar, sem á og rekur Hvalfjarðargöng, hafa ákveðið að setja upp stálbita við gangamunnana í vetur tU að koma í veg fyrir að flutningabUstjórar fari undir fjörð- inn með of háan farm. Verið er að hanna bitana og þeim verður komið fyrir eftir fáeinar vikur. Áður en tU þess kemur mun Spölur kynna mál- ið frekar á opinberum vettvangi svo allir sem stunda þungaflutninga undir Hvalfjörð viti hvað tU stendur. Ástæður fyrir ákvörðun um stálbit- ama eru ítrekuð brot UutningabU- stjóra sem fara um göngin með mun hærri farm en heimilt er samkvæmt gUdandi lögum og reglum. Nú siðast lá við stórslysi við suðurmunna gang- anna skömmu fyrir jólin en bUstjór- inn var gripinn og færður í hendur lögreglu. Þann 7. desember fór bUl með gröfu á paUi um göngin og rakst upp í aflar hæðarslár á leiðinni en þær féUu þó ekki niður við höggin. Ljóst er að Spölur hefur orðið fyr- ir miUjónatjóni vegna umferðarlaga- brota af þessu tagi og lagfæringar á hæðarslánum vega þyngst í öUu við- haldi í Hvalfjarðargöngum. Stundum næst í þá sem brjóta af sér en aUs ekki aUtaf. Bílstjórarnir eru þá dæmdir tU að greiða fjársektir og tryggingarfélög bílanna taka á sig að bæta skemmdir. í þeim tUvikum þeg- ar lögbrjótarnir sleppa lendir við- gerðarkostnaður á Speli. Leyfileg hámarkshæð farms í flutningum er 4,20 metrar en menn hafa reynt að komast í gegnum göng- in með miklu hærri farma. TU dæm- is var flutningabUstjóri staðinn að verki í júlí með hús á palli sem mældist 4,60 metra hátt. Áður en Hvalfjarðargöng voru opnuð sumar- ið 1998 ræddu Spalarmenn þann móguleika að setja strax upp fasta stálbita við munnana tU að koma í veg fyrir að of hár farmur færi inn í göngin og skemmdi blásara, ljós og annan búnað í loftinu. FaUið var frá því að stiga þetta skref en í staðinn voru settar upp öryggisslár sem gefa eftir ef á þær er ekið. Slámar hafa verið brotnar niður nokkrum sinn- um og margoft hefur farmur rekist í þær og skemmt. KaUa þarf hverju sinni á vettvang körfubíl, kranabíl og mannskap tU viðgerðar og hvert tjón kostar því sitt. Nú er þolinmæði Spalarmanna sem sagt þrotin. Stál- bitar munu stöðva för þeirra sem æfla áfram að virða að vettugi reglur um hámarkshæð farms. -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.