Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2001, Blaðsíða 7
Ifókus mi irtóna á Gauk á Stöng eru löngu búin að skipa sér fastan sess I tónlistarlífi Reykvík- inga og nú skal en blásið á einu. Nánari upp- lýsingar á www.undirtonar.is. ©Klassík ■ PÁSKABAROKK j SALNUM Páskabarokk í tónleikaröðinni TÍBRÁ í Salnum, Kópavogi, kl. 20. Margrét Bóasdóttir sópran og Barokksveitin flytja ítalska söng- og hljóð- færatónlist. ■ FÓSTUVAKA í HÁTEIGSKIRKJU Helga Bachmann leikkona les píslarsöguna úrJó- hannesargubspjalli. Þau Peter Tompkins, óbó, og dr. Douglas A. Brotchie, orgel, leika fjölbreytta tónlist fyrir óbó og orgel, meðal annars eftir J.S. Bach, Telemann, Fauré og Jón Ásgeirsson. Dagskráin hefst kl. 20 og að- gangur er ókeypis. Leikhús ■ EVA Eva - bersögull sjálfsvarnareinleikur verður sýndur klukkan 21 I kvöld í Kaffileik- húsinu. Miðasala í síma 5519055. ■ LAUFIN í TOSCANA Verkið Laufin i Toscana eftir Lars Norén verður sýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins i kvöld klukkan 20. Örfá sæti eru laus. ■ MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI Leikritið Með fulla vasa af grjóti eftir Marie Jones veröur sýnt í kvöld kl. 20 á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Uppselt. Miðvikudagur 11/4 •K1úbbar ■ STÓRVIÐBURÐUR Á THOMSEN Miles Hollway og Elliot Eastwick saman, bak I bak, á bakvið spilarana á Kaffi Thomsen. Við höf- um heyrt í þeim í sitthvoru lagi. Nú er komin tími á að heyra snillingana á bakvið þjóðsög- una um Hacienda spila saman sem einn. 20 meðlimir á póstlista Thomsen verða á gesta- lista. Skráðu þig á www.thomsen.is. • Krár ■ SÓLDÓGG Á GAUKNUM Stuðdúddarnir í Sóldögg fræsa fjöri út í salarkynni Gauks á Stöng. € Klassík I FÓSTUVAKA í HÁTEIGSKIRKJU Dr. Sigur- jón Árni Eyjólfsson héraðsprestur flytur erind- ið Þeir vita ekki hvað þeir gjöra um þjáningu ogfyrirgefningu. Kirkjukór Háteigskirkju og kammersveit flytja Missa Brevis eftir Josef Haydn og körverk eftir Franz Liszt og Hugo Distler undir stjórn dr. Douglas A. Brotchie, organista. Dagskráin hefst kl. 20 og aðgang- ur er ókeypis. ■ TÓNLEIKAR Á HÓFN í HORNAFIRÐI Há- varöur Tryggvason kontrabassaleikari og Guðmundur Kristmundsson vtöluleikari tón- leika í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði. Á efn- isskrá veröa meðal annars verk eftir J.S.Bach, Dittersdorf, Bartok, Sperger og Gliere Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og eru skipulagöir af menningarmálanefnd Horna- fjarðar I samstarfi við Félag íslenskra tónlist- armanna. ■ TÓNLEIKAR í HALLGRÍMSKIRKJU List- vinafélag Hallgrímskirkju stendur fýrir tón- leikum í Hallgrímskirkju, kl. 20 undir yfirskrift- inni 0, crux ave. Prófessor Hans-Dieter Möll- er frá Dússeldorf í Þýskalandi leikur orgeltón- list eftir Bach, Nivers, Tournemire og Messi- aen, auk þess sem hann leikur af fingrum fram orgeltónlist yfir gregorisk stef dymbilvik- unnar. Sönghópurinn Voces Thules syngur gregoriska helgisöngva sem mynda grunninn aö spuna Möllers. Viðfangsefnin tengjast helgihaldi dymbilvikunnar, frá pálmasunnu- degi til föstudagsins langa. •Sveitin ■ SSSÓL í SKAGAFIRÐI Hljómsveitin SSSól kemur aftur saman eftir 2ja ára hié og leikur í kvöld á Miðgarði, Skagafirði. Kombakk eins og þau gerast best og brjálaö stuð. Skál og syngja Skagfiröingar skemmta sér og gera hitt. ■ SKUGGABALDUR í ÓLAFSVÍK Diskórokk tekið og plötusnúðurinn Dj. Skuggabaldur hefur verið á ferðinni og gerir nú stutt stopp í Ólafsvík. Hann mun halda uppi góðu fjöri á Bæjarbarnum þar og spilar ABBA, Ramm- stein og allt þar á milli. Það kostar 500 kall inn. ■ ÞÚSÖLD Á PÁSKAGLEÐI Hljómsveitin Þúsöfd spilar á Páskagleöi á Kaffi Kletti, Reykholti í Biskupstungum. •Leikhús ■ SYNGJANDI í SKÝFALLINU Leikritið Syngjandi í rigningunni eftir Comden, Green, Brown og Fred veröur sýnt klukkan 20 í kvöld á Stóra sviöi Þjóðleikhússlns. Örfá sæti laus. ■ SNIGLAVEISLAN Sniglaveislan eftir Ólaf Jóhann verður sýnd í lönó klukkan 20 í kvöld. Gunnar Eyjólfsson, Sigurþór Albert Helmis- son, Sunna Borg og Hrefna Hallgrímsdóttir fara með helstu hlutverk og leikstjóri er Sig- urður Sigurjónsson. Uppselt. ■ Á SAMA TÍMA SÍÐAR Leikritiö Á sama tíma síöar veröur sýnt í kvöld klukkan 20 í Loftkastalanum. Nokkur sæti eru laus. •Síöustu forvöö ■ JÓNA THORS Í USTASAL MAN VIP SKÓLAVÖRÐUSTÍG Listamaðurinn Jóna an 6. a p r í I til 12. anríl lliJJi I-B----y—I-LI-fJ-l L Höfum aldrei verið hefðbundnir SSSól kemur fram a Gauki á Stöng í kvöld og er þetta í fyrsta skipti í rúmt eitt og hálft ár sem sveitin leikur á dansleik. Helgi Björnsson söngvari segir að drengirnir séu orðnir hungraðir aftur og tilbúnir í slaginn. á Stöng í kvöld eftir eins og háifs árs útlegð. í vikunni verður svo landið tekið með Thors opnaði á dögunum sýninguna Spegill, Spegili... í Listasal Man við Skólavörðustíg 14 í Reykjavík og lýkur henni í dag. Á sýning- unni eru verk unnin aðallega úr spegium og leir. Viðfangsefni Jónu eru möguleikar spegl- unar og endurtekninga í formi og skreyti. Jóna Thors lauk námi frá leirlistadeild Mynd- lista- og handíðaskóla íslands árið 1990. Hún hefur tekið þátt í samsýningum á íslandi og erlendis en þetta er fyrsta einkasýning henn- ar. Sýningin er opin meðan verslunin er opin og frá klukkan 14-17 á laugardögum og sunnudögum. Aðgangur er ókeypis og allir vel- komnir. Fimmtudagur 12/4 Popp ■ KARAOKE Á CAFÉ NOBEL í kvöld verður skrifaður enn einn kaflinn í skemmtanasögu Reykvíkinga þegar hinn stórgóði skemmti- staður Café Nobel tekur upp á því að bjóða upp á karaokekeppni á hverju fimmtudags- kvöldi. Húsiö opnar klukkan 18 og hefst keppnin upp úr klukkan 20. Öllum er heimil þátttaka en atkvæðisrétt um sigurvegara hafa þeir einir sem gerast svo kræfir að versla sér bjór á barnum. Einn bjór gefur þér eitt atkvæði'og að sjálfsögöu má hver versla sér eins mörg atkvæði og hann vill. í boði eru glæsileg verðlaun, bikarar og fieira, en sigur- vegari kvöldsins gengur út með eitt stykki bjórkassa. Er það von þeirra Nobelsmanna að þarna sé helsta sumarskemmtunin komin, komin til aö vera. D jass ■ GÍTARDÚÓ Á MÚLANUM Þeir Jakob Olsen og Ómar Einarsson leika órafmagnaða tónlist úr söngbókum meistaranna á Múlanum I Húsi Málarans. ■ DJASSAÐ Á MÚLANUM Þeir Ómar Einars- son og Jacob Olsen mynda Gítar-dúóiö sem ætlar að djassa á Múlanum í Húsi Málarans í kvöld. •Leikhús ■ SÖNGLANDI í REGNINU Leikritiö Syngj- andi í rigningunnl, eftir Comden, Green, Brown og Fred, verður sýnt klukkan 20 í kvöld á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Örfá sæti laus. ■ SNIGLAVEISLAN Sniglaveislan eftir Ólaf Jóhann verður sýnd í síöasta sinn í Iðnó klukkan 20 í kvöld. Vegna mikillar aðsóknar hefur verið ákveðiö að flytja sýninguna í Loft- kastaiann eftir páska. Gunnar Eyjólfsson, Sigurþór Albert Heimisson, Sunna Borg og Hrefna Hallgrímsdóttir fara með helstu hlut- verk og ieikstjóri er Sigurður Sigurjónsson. Uppselt. •Síðustu forvöð ■ MINNINGAfRlTÓNLEIKAR í GALLERÍ NEMA HVAÐ? Minninga(r)tónleikar verða haldnir í gall- erí Nema Hvað Skólavörðustíg 22c i dag. Rutt veröur verkið RQTSORO eftir Margréti M. Norð- dahl og Þórunni Ingu Gísladóttur. Verkið sam- anstendur af hljóði sem unnið er úr röddum og myndum, kvikum og kjurrum, úr ýmsum áttum. Galleríið er opið milli 14-18. •Fundir ■ PALLBORÐSUMRÆÐUR í HÁTEIGSKIRKJU Pallborðsumræður eru haldnar i Háteigsklrkju um fyrirmyndir, samskipti og jákvæða örvun í fjölskyldunni. Þátttakendur eru sr. Carlos A. Fer- rer prestur, Elísabet Berta Bjarnadóttir félags- ráögjafi, Matthildur LaufeyHermannsdóttir leik- skólakennari, Páll Heimir Einarsson meðferðar- fulltrúi o.fl. Umræðurnar hefjast kl. 20. % \1 Hljómsveitin SSSól snýr aftur á trompl. „Við vorum beðnir að um að spila á Hlustendaverölaunum FM og ég held að þrýstingurinn hafi bara verið orðinn of mikill þannig að við slógum til til að losa um spennuna. Þetta var rosagaman og tókst mjög vel þannig að í fram- haldinu var ákveðið að taka nokk- ur gigg og losa enn frekar um spennuna þannig að ég held að menn séu bara að komast aftur I jógastellingarnar," segir Helgi í upphafi. Reanhlífarsamtökin SSSól „Já, þetta verður auðvitað hefð- bundið ball, ekki það að við höfum nokkum timann verið hefðbundn- ir. Þetta verður því óhefðbundið bail á okkar hefðbundna hátt,“ seg- ir Helgi um ballið í kvöld. Á dögun- um sendi sveitin frá sér nýtt lag, Ég veit þú spáir eldgosi, á nýjasta Pottþétt-disknum. „Svo eigum við náttúrlega orðið góðan katalóg af þekktum lögum, mjög þekktum lögum og rosalega þekktum lög- um,“ segir Helgi, glettinn á svip. Hvemig er skipan hljómsveitar- innar núna? „Við ermn með originalinn í þetta skiptið. Reyndar er þaö nú svo að SSSól er orðin að nokkurs konar regnhlífarsamtökum, þetta er fin aðstaða fyrir brilljant rokk- ara til að fá útrás og þegar menn eru búnir að spila sig út af borðinu vegna lélegrar æfingasóknar þá skiptum við einfaldlega." Rokkið blífur „Það er búið að vera ákaflega gaman að taka þátt i þessu æsku- lýðsstarfi með drengjunum í gegn- um tímann. Svo gaman að það verður að rifja upp taktana öðru hverju því þaö er jú rokkið sem blífur. Ég lít líka á þetta sem svona þróunarstarf til þjóðfélagsins og þeirra rokkara sem hafa verið aö djöflast í bransanum undanfarið. Þeir hafa verið að softast dálítið upp, þetta eru orðin hálfger boy- bönd, þannig að það er í lagi að minna þá á að þetta byrjaði á rokk- inu.“ Helgi segir að SSSól verði lítið að spila í sumar, þeir taki auðvitað vel valin gigg um landið en það eigi eftir að koma í ljós. Þeir hafi hins vegar ákveöið aö taka smárispu núna I staðinn. „Þetta byrjar núna með þessu páskahreti. Gaukurinn í kvöld er upphitun og svo verðum við í Mið- garði á miðvikudaginn og endum í Sjallanum á Akureyri á fóstudag- inn langa." nýtt í bíó Regnboginn frumsýnir um helgína myndina Bounce. Ástin er eilífðar umfjöllunarefni Ben og Gwyneth túlka hér tortryggnl vestræns nútímafólks gagnvart ástinni. Það er nokkuð öruggt að heilu vöruskemmurnar í Hollívúdd eru fullar af gömlum og misgleymdum ástarsögumyndum frá hinum ýmsu tímum. Sú söfnun tekur engan enda enda er einn af þeim ósiðum sem fólk virðist ekki geta hætt að stunda að verða ástfangið hvort af öðru, óháð kyni, litarhætti, aldri, hæð, líkamslykt, líkamslýtum né öðru, og á meðan það hættir ekki þá halda ástarsögur og myndrænar útfærslur á þeim áfram að streyma fram. Bounce er einmitt ein slík, þ.e. ástarsaga, sem fjallar um einstak- lingana Buddy Amaral og Abby Janello. Buddy er af tegundinni einhleypur kall, tegund sem, ef töl- fræði nýjustu kannana er rétt, fer sífellt fjölgandi i. Abby er af teg- undinni einstæð móðir, sem einnig telst vera fjölmennari nú en áður samkvæmt könnunum. Þau eru bæði að sleikja sár síðasta sam- bands þegar þau rekast á hvort annað af algjörri tilviljun. Þau að sjálfsögðu verða eitthvað skotin í hvort öðru. Þegar líður á samband- ið fer Abby að gruna að samfundir þeirra hafi ekki verið svo óvart. Það þarf ekki að kynna aðalleik- arana tvo en þar fara þau Gwyneth Paltrow og Ben Affleck. Gwyneth, næstum-því-Pitt, hefur leikið í fullt af myndum og sumum þeirra meira að segja góðum. Þar má meðal ann- arra nefna gæðaræmuna Seven þar sem hún var drepin af Kevin Spacey. Ben hefur líka leikið í nokkrum myndum og sjálfsagt flestir séð þær þar sem hann er vin- sæll um þessar mundir. Þar ber kannski hæst Good Will Hunting sem hann einmitt skrifaði með kannski-kærastanum sínum Matt Damon. Leikstjóri myndarinnar er Don Roos og er þetta önnur myndin hans. Eitthvað er ástin honum hug- leikið efni því fyrri myndin, The Opposite of Sex, var líka um þetta eilifðarmálefni en þó í mun svartari tónum en Bounce. Hann segist hafa viljað sýna fram á tortryggni vest- ræns nútímafólks gagnvart ástinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.