Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2001, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2001, Blaðsíða 3
16 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 17 Sport Úrslitaeinvlgi KA og Hauka i handknattleik karla: „Haukarnir KA dýrvitk - segir Jóhann Ingi Gunnarsson, fyrrum landsliðsþjálfari Úrslitaeinvígi KA og Hauka um íslandsmeistaratitilinn í hand- knattleik karla heldur áfram i kvöld, en þá mætast liðin í fjórða leik í íþróttahúsi Hauka aö Ásvöll- um og hefst hann kl. 20.15. Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir deildar- meistara KA og dugar norðanlið- inu því sigur í kvöld til að tryggja sér titilinn. Miðaö við úrslitin í fyrri leikjum er ljóst að heimavöllurinn ræður miklu hjá báðum liðum og því er frekar búist við sigri Haukanna i kvöld, þrátt fyrir útreiðina sem þeir fengu fyrir norðan á mánu- daginn. Þeir hafa verið í hálfgerð- um vandræðum með sóknarleik- inn frá því þeir misstu Halldór Ing- ólfsson út meiddan í fyrsta leikn- um, en fyrir höfðu þeir misst varn- arjaxlinn Petr Baumruk út og hef- ur það óneitanlega veikt liðið til muna, þar sem ungir og óreyndir leikmenn hafa þurft að taka við hlutverkum þeirra. Miðað við framgöngu Haukanna í siðasta leik virðist þreytan einnig vera farin að há þeim en álagið hefur verið mikið á mannskapnum í vetur vegna þátttökunnar í Evr- ópukeppninni, auk þess sem liðið lék til úrslita í bikamum. Léttleik- inn hefur aftur á móti verið ein- kenni KA-liðsins þar sem ungur og ferskur norðanvindur hefur leikið lausum hala og telja margir þann leikstil vænlegri til árangurs. Alla- vega hefur hann skilað liðinu deildarmeistaratitli og nú er Is- landsmeistaratitillinn í sjónmáli, ef ekki i kvöld þá frekar á laugar- daginn. Heimavöllurinn ræöur úr- slitum í kvöld DV-Sport fékk Jóhann Inga Gunnarsson, sálfræðing og fyrrum landsliðsþjálfara, til spá í spilin fyrir leikinn í kvöld, en hann er á því að Haukamir muni sigra, þannig aö hreinn úrslitaleikur fari fram á Akureyri á laugardaginn. „í þessum slag vigtar lítið það sem á undan er gengið og því hall- ast ég að því að heimavöllurinn muni ráða úrslitum í kvöld eins og í fyrri viðureignunum. Þetta getur samt fariö á hvorn veginn sem er, en ég hef þó trú á að Haukamir láti KA-strákana ekki valta yfir sig eins og í síðasta leik. Eftir þá út- reið mætti álykta að þetta væri spmngið hjá Haukunum, en ég tel að svo sé ekki. Haukarnir hafa byggt á reynsl- unni í vetur, en urðu svo fyrir því að missa út þá Halldór Ingólfsson og Petr Baumruk á lokasprettinum og auðvitað veikir það liðið. í stað- inn hafa ungir og efnilegir strákar eins og Ásgeir Örn Hallgrímsson og Einar Gunnarsson tekið við þeirra hlutverkum, en einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að þeir séu ekki eins tilbúnir í slaginn og ungu mennimir hjá KA. Það er kannski eðlilegt, þar sem KA-strákarnir hafa öðlast miklu meiri reynslu sem lykilmenn með sínu liði en Haukastrákamir hafa meira þurft að verma bekkinn á meðan þeir eldri og reyndari hafa verið að spila.“ Brestirnir komu í Ijós í leiknum fyrir noröan „Brestimir hjá Haukunum komu vel í ljós í leiknum fyrir norðan, en ég tel þó að þeir muni hrista af sér slenið í kvöld og þá muni reynslan vigta meira á þeirra heimavelli. KA-liðið átti mjög góðan leik og ég vil leyfa mér að kalla það kjöldrátt sem þar fór fram og trúi því ekki fyrr en ég tek á því að Haukamir láti það gerast aftur. Þeir hafa ekki haft neinn tíma til að brotna og ég er því viss um að þeir mæta dýrvitlausir í leikinn í kvöld og láti það ekki ger- ast að KA-menn vinni íslands- meistaratitilinn að Ásvöllum. Það yrði hálfsnubbóttur endir á annars ágætu keppnistímabili hjá Haukunum og þess vegna er ég viss um að þeir muni selja sig dýrt og ekkert annað en sigur komi þar til greina. Þeir höfðu deildarmeist- aratitilinn í hendi sér á tímabili, en misstu svo af lestinni í lokin, þannig að 3-1 tap gegn KA í úrslita- einviginu hlýtur að vera eitthvað sem þeir eiga erfitt með að sætta sig við. KA-liðið getur líka leyft sér meira en Haukamir í þessum leik, því þeir eiga jú heimaleikinn í pokahorninu og það getur haft sitt að segja. Ég á þó ekki von á neinni lognmollu hjá þeim og á frekar von á þeim friskum eins og fyrri dag- inn. Ég held líka að það verði gott fyrir handboltann i heild að fá flmmta leikinn fyrir norðan.“ Meö ólíkindum hvaö menn eru búnir aö bulla mikiö um þetta svokallaöa álag - Nú hefur mikió veriö talaó um þaó og þyi spáö aó KA-liðið muni vinni íslandsmeistaratitil- inn á friskleikanum og aö álagiö aö undanförnu veröi Haukunum að falli. Hvað viltu segja um þaö? „Það er með ólíkindum hvað menn eru búnir að bulla mikið um þetta svokallaða álag fram og til baka. í mínum huga eru engar af- sakanir til ef þú ætlar að ná langt í íþróttum. Þaö er alls staðar álag ef menn ætla að ná langt og ef menn treysta sér ekki í álagið þá eiga þeir ekkert erindi í Evrópu- keppni. Ég tel að þetta sé frekar spurning um viljann og þá viljann til að sigra. Þegar menn eru komnir þetta langt, alla leið í úrslitin, þá gleym- ist þreytan. Það er ekki svo að leik- menn séu að æfa alla daga þegar leikið er annan hvern dag, heldur miklu frekar í nuddi eða joggi eða þá bara að slappa af og gera sig klára fyrir næsta slag. KA-liðið er ekkert síður undir álagi og þar hafa meiðsli einnig gert vart við sig. Ég er því ekki til- búinn til að kaupa þessar afsakan- ir um álag og pressu og að það muni ráða úrslitunum. Þetta eru bara innantómar afsakanir sem eiga ekki að heyrast á meðan slag- urinn stendur og ekki við hæfi þeg- ar menn gera tilkall tO íslands- meistaratitilsins. Það er nógur tími fyrir afsakanir þegar þessu er lokið.” Ungu strákarir ekki tilbúnir - Hver er helsti munurinn á liöunum aö þínu mati? „Það er ljóst að ungu strákarnir hjá Haukunum, sem kastaö hefur verið út í djúpu laugina vegna meiöslanna, eru helmingi sterkari á heimavelli heldur en á útivelli og eru alls ekki tilbúnir fyrir þá miklu spennu sem fylgir úrslita- keppninni, hvað þá þegar komið er í sjálft úrslitaeinvígið. Þeir geta staðið sig vel heima, en þegar kom- ið er í lætin á útivelli missa þeir kjarkinn og einbeitinguna sem er kannski ekkert skrítið. Stemning- in fyrir norðan er heldur engu lík og það þarf harðan skráp til að standast hana. KA-strákarnir eru vanari þessu, enda lykilmenn í sínu liði og standast spennuna því betur. Þeir eru í raun skrefinu á undan og í því liggur munurinn á liðunum þegar á heildina er litið. Til að ná tilsettum árangri þá þarf liðið að spila vel sem ein heild og það verður aldrei sterkara en veikasti hlekkurinn. Því er mikil- vægt fyrir Haukana að þeir sem ætlað er að draga vagninn spili að eðlilegri getu. Þar á ég viö leik- menn eins og Rúnar, Shamkut og ekki síst homamennina Einar Örn og Þorvarð Tjörva, en þeir verða að sýna sitt besta til að eiga mögu- leika gegn frísku KA-liðinu. Það er þeirra hlutverk að draga vagninn frekar en yngri mannanna og ef það gengur ekki eftir þá er hætta á að aftur verði valtað yfir þá. KA-liðið er mikið stemningslið og ef það kemst í gang er erfítt að stöðva það. Haukamir verða því að gefa allt í leikinn og ég trúi ekki öðru en þeir klári þetta og tryggi fimmta leikinn um helgina. Til þess hafa þeir alla burði og hand- botans vegna vona ég það svo sannarlega.” Úrslitin ráöast á betri varn- arleik og markvörslu - Hvaö mun þá ráöa úrslitun- um í kvöld? „Úrslitin í kvöld munu fyrst og fremst ráðast á betri varnarleik og markvörslu Haukanna, en í þá verða þeir að keyra grimmt á hraðaupphlaupum. Það er þeirra helsta von í leiknum miöað við það sem á undan er gengið. Við höfum séð það í fyrri leikj- unum hvað markvarslan vegur þungt, en þar hefur Flóki vinning- inn og hefur farið á kostum. Ég tel að Haukamarkmennimir eigi mun meira inni og það muni þeir sanna í kvöld. Liðið hefur þann þroska og reynslu sem þarf til að koma til baka eftir útreiðina á mánudaginn og ég hef trú á að þeim takist það,“ sagði Jóhann Ingi. -EK Jóhann Ingi Gunnarsson spáir í spilin fyrir leik Hauka og KA í kvöld. Hann spáir því að Haukar sigri í kvöld og hreinn úrslitaleikur um íslandsmeistaratitilinn fari fram á Akureyri á laugardaginn. Elliðavatn: Glæsileg byrjun - þrátt fyrir ansi kalt veður „Veiðin hefur gengið vel og menn verið aö fá góða veiði, einn var með 25 fiska áðan og það er mjög gott,“ sagði Vignir Siguðrsson seinni partinn á opnunardag- inn í Elliðvatni, en þá höfðu margir kom- ið til veiða og enn þá fleiri kíkt upp að vatni. „Það hafa líklega um 150 veiðimenn komið og veitt sem er i góðu lagi. Ætli stærsti fiskurinn sé ekki um þrjú pund,“ sagði Vignir enn fremur. „Ég er með bleikjur og urriða og veiðin hefur gengið ágætlega," sagði Kristján Stefánsson sem við hittum fyrir neðan El- liðavatnsbæinn og Kristján var með fimm fiska, hann bætti um betur skömmu seinna. „Ég var að veiða þennan urriða fyrir nokkrum mínútum," sagði Ragnar Örn Ragnarsson en hann var einn af þeim fjöl- mörgu sem lögðu leið sína að Elliðavatni fyrsta daginn sem veiða mátti. Þrátt fyrir frekar kalsalegt veður var veiðin ágæt og veiðimenn voru að fá fisk víða um vatnið. Þegar við fórum af staðnum voru veiði- menn enn þá að gera sig klára. Lítið var mjög unga veiðimenn, þegar við vorum á staðnum enda þeir kannski ekki komnir á ról. -G. Bender Á stærri myndinni heldur Kristján Stefánsson á bleikj- um og urriðum en á þeirri minni landar veiðimaður fiski úr vatninu. DV-myndir G. Bender Sport Undanúrslit Meistaradeildar Evrópu: Markverðirnir í aðalhlutverkunum Leeds United og Valencia gerðu í gærkvöld markalaust jafntefli í fyrri leik liðanna í und- anúrslitum Meistaradeildar Evrópu, sem fram fór á Elland Road i Leeds. Bæði liðin óðu í fær- um og höfðu markverðir liðanna, þeir Nigel Martin hjá Leeds og Santiago Canizares hjá Velencia, í nógu að snúast. Canizares varði í þrígang meistaralega frá þeim Ian Harte, Dav- id Battiy og Alan Smith og þurfti síðan í fjórða skiptið að taka rækilega á honum stóra sínum þegar hann varði skalla frá Dominic Matteo í byrjun seinni hálfleiks. Það reyndi ekki síður á Martin, en i byrjun leiksins sýndi hann mik- il tilþrif þegar hann varði meistaralega frá Norðmanninum John Carew. Leedsarar sóttu mun meira í leiknum, sér- staklega í seinni hálfleik og fór Alan Smith þar fremstur í flokki. En þegar kom að því að klára færin brást honum bogalistin eins og öllum öðrum leikmönnum Leeds. Valencia fékk gott tækifæri til að klára leikinn í lokin en þá bjargaði Rio Ferdinand á línu frá Vicente. David O’Leary, stjóri Leeds, afsakaði fram- göngu sinna manna eftir leikinn og sagði það slæmt að hafa ekki auka framherja á bekkn- um. „Það hefði verið gott að hafa Robbie Keane á bekknum til að hressa upp á sókn- ina, en því miður er hann ekki löglegur með okkur í Meistaradeildinni. Ég er hæfilega bjartsýnn fyrir seinni leikinn og veit að á góðum degi getum við skorað hjá þeim. Úti- mörkin hafa nefnilega mikinn mátt og það skal enginn afskrifa okkur," sagði O’Leary. Hector Cuper, stjóri Valencia hældi sínum mönnum og sagði að þeir hefðu barist vel. „Þetta er þó engan veginn búið og ljóst að við þurfum að hafa fyrir sigrinum heima. Þeir hafa menn eins og Smith, Viduka og Kewell og af þeim má aldrei líta,“ sagði Cuper sem verð- ur án þeirra Carboni og Baraja í seinni leikn- um. -EK Helstad skoraði 5 mörk fyrir Brann Thorstein Helstad skoraði fimm mörk fyr- ir Brann sem sigraði Strömsgodset, 2-6, í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu gær- kvöld. Páll Veigar Guðmundsson var í byrj- unarliði Strömsgodset. Pétur Marteinsson og Tryggvi Guðmunds- son léku allan leikinn með Stabæk sem tapaði fyrir Sogndal, 1-0. Indriði Sigurðsson var í byrjunarliði Lilleström sem tapaði fyr- ir Odd Grenland, 4-1. Árni Gautur Arason var í marki Rosenborg sem sigraði Moss, 0-3. Vikings, sem sigraði Bryne, 1-3, er í efsta sæti eftir 4. umferðir með 12 stig. Odd Grenland hefur 10 stig og Rosenborg er í þriðja sæti með 9 stig. -JKS Spánn Barcelona Km/klst (meðaltal) j 1 Michael Schumacher 1 Ferrari B 65 1:31:03.306 202.507 2 Juan Pablo Montoya 6 Williams-BMW M 65 1:31:44.042 201.009 3 Jacques Villeneuve 9 BAR-Honda B 65 1:31:52.930 200.685 4 Jarno Trulli 12 Jordan Honda B 65 1:31:54.557 200.625 5 David Coulthard 4 McLaren-Mercedes B 65 1:31:54.920 200.612 6 Nick Heidfeld 16 Sauber-Petronas B 65 1:32:05.197 200.239 7 Olivier Panis 10 BAR-Honda B 65 1:32:08.281 200.127 8 Kimi Raikkonen 17 Sauber-Petronas B 65 1:32:23.112 199.592 9 Mika Hakkinen 3 McLaren-Mercedes B 64 Kúpling 204.203 10 Jean Alesi 22 Prost-Acer M 64 1 hringur 198.030 11 Luciano Burti 23 Prost-Acer M 64 1 hringur 196.531 12 Jos Verstappen 14 Arrows-Asiatech B 63 2 hringir 195.880 13 Fernando Alonso 20 Minardi-European M 63 2 hringir 195.864 14 Giancarlo Fisichella 7 Benetton-Renault M 63 2 hringir 193.483 15 Jenson Button 8 Benetton-Renault M 62 3 hringir 192.008 16 Tarso Marques 21 Minardi-European M 62 3 hringir 190.927 - Rubens Barrichello 2 Ferrari B 49 Fjöðrun 198.727 ■ Eddie Irvine 18 Jaguar M 48 Vélarbilun 199.522 - Ralf Schumacher 5 Williams-BMW M 20 Bremsur 203.686 - Enrique Bernoldi 15 Arrows-Asiatech B 8 Vélarbilun 187.155 - Perdro De La Rosa 19 Jaguar M 5 Óhapp 190.063 - Heinz-Harald Frentzen 11 Jordan Honda B 5 Óhapp 189.945 Stigakeppni ökumanna Michael Schumacher 36 David Coulthard 28 Rubens Barrichello 14 Ralf Schumacher 12 Nick Heidfeld 8 Jarno Trulli 7 Heinz-Harald Frentzen 6 Juan Pablo Montoya 6 Mika Hakkinen 4 Jacques Vilieneuve 4 Stigakeppni framleiðanda Ferrari McLaren-Mercedes Williams-BMW Jordan Honda Sauber-Petronas BAR-Honda Benetton-Renault Hraðasti hringur: M Schumacher / (209.831 km/klst), hringur 25 1:21.151 sek Arrows-Asiatech Prost-Acer Jaguar Minardi-Euröpean 18 Fyrsta æfíng 1 Sól/hiýtt Önnur æfing 1 Sól/hlýtt Tímataka Sól/hlýtt H. hrinaur í kpnnní HHH ■ ■J Coulthard 1:20.107 •j M Schumacher 1:18.634 •J M Schumacher 1:18.201 •j M Schumacher 1:21.151 2 Irvine 1:20.615 2 Barrichello " 1:18.674 2 Hakkinen 1:18.286 2 Hakkinen 1:21.368 2 Barrichello 1:20.823 3 Coulthard 1:18.686 •j Coullhard 1:18.635 3 Barrichello 1:21.720 Panis 1:20.826 •4 Raikkonen 1:18.765 Barrichello 1:18.674 4 Coulthard ” 1:22.091 M Schumacher 1:20.880 ; Heidfeld 1:19.010 j R Schumacher 1:19.016 j R Schumacher 1:22.362 ; Hakkinen 1:20.894 n Trulli 1:19.186 ; Trulli 1:19.093 | 2 Panis 1:22.475 7 De La Rosa 1:21.184 7 Panis 1:19.253 7 Villeneuve 1:19.122 7 Villeneuve 1:22.513 2 R Schumacher '1:21.259 3 Hakkinen 1:19.281 3 Frentzen ___ 1:19.150 0 Irvine 1:22.568 -j Villeneuve 1:21.401 3 R Schumacher 1:19.406 3 Raikkonen 1:19.229 3 Heidfeld 1:22.738 •Jir Trulli 1:21.647 •J0 Villeneuve 1:19.577 •J3 Heidfeld 1:19.232 j'j Montoya____ 1:22.841 •J'J Raikkonen 1:21.786 •j-j Frentzen 1:19.903 •j-j Panis 1:19.479 •J-J Raikkonen 1:23.049 •J2 Heidfeld 1:21.808 ■J2 Montoya 1:20.202 12 Montoya 1:19.660 12 Trulli 1:23.087 •J2 Montoya 1:22.020 •J3 Alesi 1:20.741 •J3 Irvine 1:20.326 ■J5 Alesi 1:23.668 ■JjJ Frentzen 1:22.221 •J4 Burti 1:20.801 ■J4 Burti 1:20(585 •J4 Burti 1:23.794 •Jv Alesi 1:22.843 •j-3 Bemoldi 1:20.997 ■Jj Alesi 1:20.601 ■Jj Verstappen 1:23.965 •J5 Bernoldi 1:22.888 •J3 Verstappen 1:21.069 •J5 Bemoldi 1:20.696 •J3 Alonso 1:24423 •jy Verstappen 1:22.962 •J7 Irvine 1:21.289 •J7 Verstappen 1:20.735 •J7 Bemoldi 1:24.740 •J3 Fisichella 1:22.971 j-S Fisichella 1:21.404 ■J3 Alonso 1:21.037 •J3 Fisichella 1:25.298 1-j Button 1:23.201 •Jíi Alonso 1:21.493 •J3 Fisichella 1:21.065 g -J3 Button 1:25.406 23 Alonso 1:23.801 2íi Button 1:21.804 2'J De La Rosa 1:21.338 2'j Marques 1:25.791 2’J Burti 1:23.885 21 De La Rosa : 1:22.296 21 Button 1:21.916 21 De La Rosa 1:25.932 22 Marques 1:25.540 22 Marques 1:24.371 22 Marques 1:22.522 22 Frentzen 1:26.158 ingur # 1 1 2 1 ; 3 1 4 1 i 5 1 í 6 1 ! 7 1 8 1 9 1 10 1 11 1 i 12 1 13 1 14 1 r 15 1 16 1 17 1 18 1 ! 19 1 ! 20 1 21 1 22 1 23 3 ! 24 3 I 25 3 | 26 3 ! 27 3 ; 28 1 ! 29 1 30 1 31 1 | 32 1 33 1 f 34 1 i 35 1 36 1 37 1 38 1 39 1 40 1 41 1 42 1 43 1 44 3 45 3 46 3 47 3 48 3 | 49 3 l 50 3 51 3 52 3 53 3 54 3 55 3 56 3 57 3 58 3 59 3 60 3 61 3 62 3 63 3 64 3 65 1 I COMPAQ. yfirburdir TækllÍVal © 2001 Federation Intemational de L’Automobile, 2 Chemin Blandonnet, 1215 Genf 15, Sviss Graffk: Russell LewisS SFAhönnun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.