Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2001
I>V
Fréttir
^ Lögregluafskipti eftir að hrossum var beitt í friðað hólf í Mosfellsdal:
Eg klippi á allt
- segir Þórarinn Jónsson. Hann á ekkert í landinu, segir nágranni
DV-MYND BRINK
Girtur af
Sonur Þórarins Jónssonar í Laxnesi virdir fyrir sér girðinguna sem sett var
upp til þess að hefta för hrossanna, m.a. í friðaö hólf sunnan Þingvallavegar.
„Ég klippi á allt,“ segir Þórarinn
Jónsson í Laxnesi sem á í útistöðum
við nágranna og yfírvöld vegna beitar
hrossa sinna.
Um 80 hross frá Hestamiðstöðinni í
Laxnesi í Mosfellsdal voru í síðustu
viku rekin úr friðuðu hólfl austan Mel-
kots og Gljúfrasteins og sunnan Þing-
vallavegar og 1 girðingu i landi eigand-
ans, Þórarins Jónssonar í Laxnesi.
Klippt hafði verið á lás á hliði að hólf-
inu og hrossin rekin í hólfið. Nágrann-
amir svöruðu með því að reka hrossin
til baka og yfirvöld girtu af landareign
Þórarins.
Halldór Þorgeirsson í Melkoti, ná-
granni Þórarins, segir að landið austan
Gljúfrasteins sé meira og minna ónýtt
og bannað sé að hafa hesta þar, auk
þess sem Þórarinn í Laxnesi eigi ekk-
ert í landinu þó hann hafi notað það í
30 ár. Eigendur séu Mosfellsbær,
Wathne-systur sem eru frænkur hans
og systir hans, Ragnhildur.
Bæjaryfirvöld voru búin að fá sig
fullsödd af málinu, girtu versta partinn
af og læstu honum með keðju og lás.
Síðan hafi starfsmenn hestaleigu Þór-
arins komið og klippt á keðjuna og tek-
ið hana með sér. Síðan voru hrossin
rekin inn á land sem að mati Halldórs
er gersamlega ónýtt. Beita má hrossum
á miðstykkið en Halldór segir að þar
hafi verið a.m.k. fjórfalt fleiri hestar en
stykkið þoli. Þetta mál sé fáránlegt þar
sem Mosfellsbær sé á sama tíma að
taka þátt í Staðardagskrá-21, sem er
umhverfisvænt langtímaátak sveitarfé-
laganna, sem Sameinuðu þjóðimar
standa fyrir.
„Ég og systir mín eigum tvo þriðju
hluta þessa lands. Mosfellsbær hefur
ekki getað skipt landinu og er jafn-
framt að girða í óskiptu landi en réttur
þeirra er enginn,“ segir Þórarinn í Lax-
nesi.
Hann segir að samkvæmt landslög-
um megi enginn fara og girða inni í
óskiptu landi.
„Ég bað um ítölur í landinu þar sem
þar hefur verið svo mikið af sauðfé.
Forsendur ítölu er að allt sauðfé sé í
burtu og landinu skipt en það hefur
ekki veriö gert þó liðin séu nær fjögur
ár síðan. Ég var þvi í fullum rétti að
klippa keðjur og lása í eigin landi,“ seg-
ir hann.
„Ég er þegar búinn að reka hrossin
aftur í þetta hólf, rek hrossin fram og
til baka og klippi á allt. Ég er búinn að
vera héma í Laxnesi síðan 1968 og hér
fara um líklega 9.000 útlendingar á ári
sem gefa fleirum tekjur en mér. En
þrátt fyrir það er bæjarfélagið í stöð-
ugu stríði við mig og nýtur stuðnings
nágranna minna viö þann verknað. En
ég má gera hvað sem er við mitt land,
t.d. rækta það upp og gera þar tún,“
segir Þórarinn Jónsson í Laxnesi.
Ágreiningur um meöferð hrossa og
umgengni um land hefur staðið um
árabil milli ábúenda Laxness og ná-
granna þeirra í Mosfellsdal og oftar en
ekki hefur þurft afskipti lögreglu til
þess að skakka leikinn. Lögreglan
þurfti einnig að hafa afskipti af hrossi
í Mosfellsdal sem var fast í girðingar-
ræfli. Hrossið komst óskaddað frá þeim
hildarleik og var teymt i beitarhólf.
-GG
Salmonella greinist á Ásmundastaöabúinu:
Líklegt að sýktar afurðir hafi komist á markað
- segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir
„Þó salmonella hafi greinst í
hluta af framleiðslunni verður búiö
að halda áfram að slátra þeim
kjúklingum sem það er með. Fyrst
um sinn verður að frysta afurðirnar
meðan við erum að skoða hvort þær
eru lausar við salmonellu, ef rann-
sóknir leiða í ljós að þær séu hrein-
ar á að vera óhætt að selja þær
frystar," segir Halldór Runólfsson
yfirdýralæknir.
Landbúnaðarráöuneytið stöðvaði
á laugardag dreifingu kjúklinga frá
alifuglabúi Reykjagarðs á Ásmund-
arstöðum í Rangárvallasýslu.
Salmonella mun hafa fundist i
nokkrum sýnum frá búinu við slátr-
un í alifuglasláturhúsi fyrirtækisins
á Hellu 25. og 27. júní. Ekki er talið
útilokað að sýkt kjöt hafi komist á
markað. „Við tökum sýni í hverri
einustu slátrun, venjulega er hægt
að setja þetta strax í fersksölu áður
en niðurstöður koma. Þetta hefur í
fór með sér að ekki er hægt að setja
afurðir frá Ásmundarstöðum í
fersksölu í bili. Aðrar ræktunar-
stöðvar Reykjagarðs geta áfram
framleitt á ferskvörumarkaðinn,“
segir Halldór.
Hann segir að fólk þurfi ekki að
hafa miklar áhyggjur af salmonellu-
sýktum kjúklingum á matvöru-
markaðnum. „Sennilega er þegar
búið að neyta þessara afurða. Sótt-
varnalæknir hefur ekki orðið var
við aukningu á salmonellusýking-
um í fólki. Þetta getur komið fyrir í
allri matvælaframleiðslu hjá hvaða
framleiðanda sem er. Fólk verður
eftir sem áður að gæta þess að gegn-
umsteikja allt hrátt kjöt, sama hvað
þaö heitir," segir Halldór.
Hann segir að salmonellan sem
komin er upp á Ásmundarstöðum sé
algeng í umhverfinu hér á landi og
komi alltaf upp öðru hvoru. „Þetta
getur borist með fóðri, lofti, vatni og
Salmonella greinist á Ásmundarstöðum
„Sennilega er þegar þúið aö neyta þessara afurða. Sóttvarnalæknir hefur ekki
orðið var við aukningu á salmonellusýkingum í fólki,“ segir yfirdýralæknir.
umgengni. Vatnið sem fer inn á Ás- campylobacter," segir Halldór
mundarstaðabúið er allt saman Runólfsson yfirdýralæknir.
geislað í kjölfar vandamálanna með -NH
Slökkvibílar:
Kaupverö 39
milljónir króna
Innkaupastofnun Reykjavíkur-
borgar hefur fest kaup á tveimur
slökkvibifreiðum hjá MT-bílum á
Ólafsfirði og er kaupverðið um 39
milljónir króna. Bílarnir verða af-
hentir í mars og október á árinu
2002. MT-bílar hafa selt 3 sams kon-
ar bíla og hafa þeir farið til Vest-
manna í Færeyjum, Hellu og Grund-
arfjarðar.
Samningurinn er algjör vítamín-
spauta fyrir fyrirtækið sem og at-
vinnulífið á Ólafsfirði sem hefur
ekki verið of burðugt undanfarin
misseri. Bílarnir er byggðir á grind
sem keypt er erlendis frá og er lögð
áhersla á kraftmikla vél í bílunum
sem og einfalda gerð sem skilar
þeim fljótt og örugglega þangað sem
þeirra er þörf. -GG
Drengur nærri
drukknaður
Drengur á fjórða aldursári féll í
sundlaugina á Illugastöðum i
Fnjóskadal og var nærri drukknað-
ur. Slysið varð á laugardaginn og
var aödragandi þess sá, að faðir
drengsins leit af honum eitt andar-
tak á meðan hann reyndi að fá lán-
aðan fyrir hann sundkút. Drengur-
inn féll af bakkanum og missti með-
vitund í vatninu. Snarráðir sund-
laugargestir, sem tök höfðu á að-
ferðum fyrstu hjálpar, gátu komið
honum til bjargar með blástursað-
ferð. Drengurinn var fluttur til að-
hlynningar á Fjórðungssjúkrahúsi
Akureyrar. Hjá lögreglunni fengust
þær upplýsingar að hann væri við
góða heilsu.________-sör
Bílvelta við Laugarvatn:
Klipptur úr
bílbraki
Bíll valt á Laugardalsvegi, í
grennd við Laugarvatn, um sexleyt-
iö í gærmorgun. Þrennt var í bíln-
um þegar hann lenti utan vegar og
hvolfdist. Bíllinn, jepplingur af
Suzuki-gerð, klesstist saman að
framan svo að slökkvilið bruna-
varna Árnessýslu varð að beita öfl-
ugum klippum til að ná ökumannin-
um út. Greiðar gekk að ná farþegum
hans, pilti og stúlku, úr brakinu. Öll
voru þau flutt til rannsóknar á
heilsugæslu Selfoss og þaðan var
ökumaðurinn fluttur á Landspítal-
ann í Reykjavík. Hann er talinn
hafa orðiö fyrir hnjaski á höfuð-
kúpu og hrygg, ásamt smærri
áverkum. Ekki leikur grunur á ölv-
unarakstri. -sör
Veðrið í kvöld | Sóiargangur og sjávarföil Veðrið á morgun
-,íf
8*(®
V.\'
W
0
W U’
í^s «-T‘
12<s
\\4
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 23.51 23.55
Sólarupprás á morgun 03.03 02.40
Siödegisflóö 20.07 01.33
Árdegisflóö á morgun 08.25 13.51
Skýrtnáar á voöurtóknum
10 4— HITI
Skýjaö á köflum
Skúrir sunnan- og vestanlands en skýjað með
köflum og þurrt noröaustan til. Norðaustan
5-13 m/s, hvassast á Vestfjörðum í dag.
Rigning eða skúrir um norðanvert landið en
dregur úr skúrum sunnanlands. Kólnar,
einkum noröanlands.
'->'VINDSTYRKUR 1 niotruin i tkikiintlir "S frost HEIÐSKÍRT
o o
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKYJAÐ ALSKÝJAÐ
ÍKrS C
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
•‘i.v-Vx ‘W -k
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEDUR SKAF- RENNINGUR POKA
Sólarakstur
Það getur verið ljúft að láta sólina baka
sig í gegnum framrúöu bílsins en
áríðandi er að ökumenn noti skyggni
eða sólgleraugu til að blindast ekki í
akstrinum. Einnig verður að huga að
smáfólkinu í aftursætunum og skýla
þeim fyrir ofbirtu. Með sólarakstri er
átt við að aka með sól í smetti og sinni
en ekki rakstur skósóla, sérstaklega
ekki í bíl á ferö.
Milt suðvestan til
Norðaustan 8-13 m/s og víða rigning eða skúrir, síst þó á Vesturlandi.
Hiti 5 til 13 stig, mildast suðvestanlands.
u
Vindur:
5-10
Hiti
lur: C vÁ—\
io fS \
7° tii 14 '
Fímrntu
Vindur:
6-11
%
Hiti0”til-0* W<W
"irLpÍþlhjglK
Vindur: ó
5-10
Hiti 0”til-0“
Norölæg eöa breytlleg átt
og skýjaö, úrkomulitiö.
hlýjast suövestan til.
Norölæg átt og vætusamt
noröanlands. Fremur svalt
í veöri.
Áfram hæg norölæg átt.
Þurrt aö kalla fyrlr sunnan
og ef tll vill sólarglæta.
EEEElm&i
AKUREYRi Skýjaö 12
BERGSSTAÐIR Úrkoma 14
BOLUNGARVÍK Hálfskýjaö 14
EGILSSTAÐIR Hálfskýjaö 16
KIRKJUBÆJARKL. Rigning 16
KEFLAVÍK Skúrir 11
RAUFARHÖFN Skýjað 12
REYKJAVÍK Skýjaö 12
STÓRHÖFÐI Skýjað 11
BERGEN Skýjað 21
HELSINKI Léttskýjaö 26
KAUPMANNAHÖFN Hálfskýjað 27
ÓSLÓ Skýjaö 26
STOKKHÓLMUR 27
ÞÓRSHÖFN Alskýjað 10
ÞRÁNDHEIMUR Léttskýjaö 19
ALGARVE Léttskýjað 21
AMSTERDAM Þokumóöa 19
BARCELONA Léttskýjaö 24
BERLÍN Skúrir 20
CHICAGO Hálfskýjaö 24
DUBLIN Skýjaö 15
HALIFAX Skýjaö 15
FRANKFURT Skýjað 20
HAMBORG Skýjað 20
JAN MAYEN Alskýjaö 5
LONDON Skýjað 20
LÚXEMBORG Skýjað 17
MALLORCA Skýjaö 30
MONTREAL Alskýjaö 18
NARSSARSSUAQ Heiöskírt 11
NEW YORK Rigning 21
ORLANDO Hálfskýjaö 24
PARÍS Skýjað 19
VÍN Skýjað 24
WASHINGTON Rigning 19
WINNIPEG Heiöskírt 17
C v-j j. ‘.Y;s