Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2001, Blaðsíða 20
24
___________________________FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001
Tilvera DV
[yndbandagagnrýni
*★★★ Sumar myndir eru svo góðar
að þær fara með manni út úr kvik-
myndahúsinu. Góð dansmynd gerir
mann léttan í spori, góð gamanmynd
getur spriklað í manni heilan dag og
góöir þriilerar skilja mann eftir óör-
uggan og spenntan og Memento gerir
það svo um munar. Pálminn fer til
leikstjórans og handritshöfundarins
Christophers Nolans sem vefur sögu
áreynslulaust úr nútíð í fortíð í nútíð
þannig að allt gengur upp og enginn
laus endi sem situr eftir eins og vont
■> bragð i munni. -SG
Bridget Jones’s Diary
★★★i Bridget Jones er persóna sem
skríður beint inn í hjartað á manni
og maður bæöi hlær og fmnur tO með
henni. Handritið er eins og best verð-
ur á kosið: bæði hnyttið og róman-
tískt og það er ekki nóg með að aðal-
persónumar þrjár séu vel úr garði
gerðar, meö þeim er heUl hópur af
velheppnuðum og vel leiknum auka-
persónum, nokkuð sem aðeins virðist
geta gerst í breskum myndum. -SG
The Virgin Suicides
★★★ Sofia Coppola hefur skapað al-
veg sérstaka kvikmynd sem byggist
meira á stemningu en atburðarás.
Hún er ákaflega áferðarfalleg með
hlýjum, rauöum, gulum og gullnum
litum, stundum minnir hún helst á
auglýsingar frá áttimda áratugnum ef
ekki væri fyrir þurran húmorinn sem
vegur upp á móti draumkenndri
dramatíkinni. Sofia leikstýrir af
mddu öryggi og fær aila leikara tO að
sýna okkur betri hliðina. -SG
TiIIsammans
♦ ★★★ Lukas Moodysson leikstýrði
Fucking Ámál. TOlsammans er ekki
eins áhrifamikO eða eins þétt kvik-
mynd og Fucking Ámál án þess hún
valdi vonbrigðum. Um er að ræða
skemmtOega úttekt á frjálslyndi í lok
hippatímabOsins á áttunda áratugn-
um og hvaða áhrif skoðanir og gerðir
foreldra hafa á bömin sem þau ala
upp í umhverfi sem þau eru ekkert
sérlega hrifin af. -HK
Skreggur
★★★ Skrekkur er ein af þessum ör-
fáu bamamyndum sem fuUorðnir
hafa líka gaman af. Persónumar í
Skrekk em kannski ekki raunveru-
legar (enda hvað væri skemmtOegt
við það?) en svo lifandi og hver and-
litsdráttur svo listOegur, hver hreyf-
ing svo ekta að það út af fyrir sig er
ævintýralegt. En ef tæknin væri það
eina sem gerði myndina athyglis-
verða hefði hún ekki haldið manni
jafn hugfongnum og hún gerði. Sagan
er einfaldlega skemmtOeg og afskap-
lega vel skrifuö. -SG
Spy Kids
★★★ Robert Rodriguez er heldur bet-
ur búinn að skipta um gír í Spy Kids,
laufléttri og skemmtOegri fjölskyldu-
mynd þar sem honum tekst að
skemmta öOum fjölskyldumeðlimum
á hvaða aldri sem þeir em. Spy Kids
er alveg laus við sykm-sætan sögu-
þráð sem oftar en ekki einkennir fjöl-
skylduvænar kvOcmyndir Myndin er
stórfenglegt sjónarspO tæknibreOna
og fyndinna atriða í samanþjappaðri
atburðarás sem svíkur engan. -HK
Brother
★★★ Söguþráðurinn er ekki merki-
legur. Upprisa og faO glæpagengja er
býsna algengt viðfangsefni og Brother
bætir ekki neinu við á þeim vettvangi
og satt best að segja hafa mun betri
myndir verið gerðar í þessum flokki.
-♦ Það sem Brother hefur við sig er að
vel er haldið á spöðunum í því flókna
kerfi sem myndast þegar jafn ólíkir
glæpamenn og japanskir Yakuzar
með sínar ströngu hefðir og svartir
götusalar fara að starfa saman. Þá
em hin mörgu ofbeldisatriði það hröð
að áður en maður veit af liggur fjöldi
^ manns í blóði sínu og dregur það
nokkuð úr neikvæðum áhrifum.
-HK
Risaeðlur fara hamförum
Þær risaeölur sem kynntar eru í Jurassic Park III eru hættulegri en forverar þeirra.
Jurassic Park III
Risaeðlurnar enn
sprelllifandi
Það var aðeins tímaspursmál
hvenær þriðja Jurassic Park-mynd-
in yrði gerð. Fyrirrennarar hennar
eru meðal vinsælustu kvikmynda
sem gerðar hafa verið og má segja
að kvótinn sé ekki almennilega
fyOtur fyrr en búið er að búa tO
tríólógíu. Risaeölumyndirnar eru
tvímælalaust einhverjar mestu og
bestu ævintýramyndir sem gerðar
hafa verið og þó aOs ekki sé hoOt að
fara með ung böm á þær þá eru þær
mikO upplifun fyrir alla sem hafa
gaman af spennu og ævintýrum.
Fyrsta kvikmyndin var gerð eftir
skáldsögu Michaels Crichtons og
leikstýrð af Steven Spielberg árið
1993. Crichton skrifaði framhalds-
bókina The Lost World sem Spiel-
berg geröi einnig kvikmynd eftir.
Þriöja myndin sker sig nokkuð frá
hinum að því leytinu til að Crichton
kemur hvergi nálægt sögunni. Að
vísu eru persónur sem hann skap-
aði kaOaðar til leiks og Steven Spiei-
berg lætur nægja að vera í sæti
framleiðandans og lætur Joe John-
ston (Honey, I Shrunk the Kids,
Jumanji) um að leikstýra myndinni.
Þegar við skildum við risaeðlum-
ar síðast lifðu þær góðu lífi á af-
skekktri eyju, án mannlegra af-
skipta. Auðkýfingurinn Paul Kirby
hefur mikinn áhuga á risaeðlum og
leitar upp dr. Alan Grant, sem er sá
sem veit mest um risaeðlur og við
kynntumst í fyrstu myndinni, og
býður honum mikinn rannsóknar-
styrk komi hann með sér á staðinn.
Dr. Grant veit vel hve hættulegur
slíkur leiðangur gæti verið en slær
tO þar sem skoðunarferöin fer fram
úr lofti. En þegar komið er á áfanga-
stað brýtur Kirby sinn hluta sam-
komulagsins og lætur lenda flugvél-
inni enda kemur í ljós að tOgangur
hans var annar en hann lét uppi.
SkyndOega er hópurinn kominn í
framandi heim þar sem maðurinn
er ekki lengur efstur í fæðukeðj-
unni. Eftir nokkurra ára þróun eru
risaeðlurnar mun hættulegri en
áður og fátt bendir tO þess að fólkið
komist lífs af.
Tveir leikarar úr fyrstu mynd-
inni koma fram á sjónarsviðið á ný,
Sam NeiU og
Laura Dem,
sem heyja bar-
áttu við út-
dauðu risana
í annað sinn.
Njóta þau
aðstoðar
Téu Leoni,
WiUiams H.
Macys og
Michaels
Jeters.
Eins og í
fyrri
myndun-
um eru tæknibreUurnar stórkostleg-
ar og virðist þetta ævintýri vera
langt frá því að deyja út.
Leikstjórinn, Joe Johnston, er
enginn nýgræðingur í kvikmynda-
bransanum og var áður en hann hóf
eigin leikstjómarferU einn mikil-
vægasti hönnuðurinn hjá George
Lucas og vann við aUar Star Wars-
myndimar og með Steven Spielberg
við Indiana Jones-myndimar.
Fyrsta kvikmyndin sem hann leik-
Professor Allan Grant
Sam Neill leikur prófessorinn í annaö sinn. Hann er fenginn á
fölsum forsendum til risaeölueyjarinnar Isla Sorna.
stýrði, Honey I Shrunk the Kids,
hlaut mikið lof og góða aðsókn. í
kjölfariö komu The Rocketeer, The
Pagemaster (leikni hlutinn),
Jumanji og nú síðast October Sky
sem Johnston hefur fengið mörg
verðlaun fyrir.
Jurassic Park III verður frum-
sýnd á morgun í Háskólabíói, Sam-
bíóunum, Laugarásbíói og Borgar-
bíó á Akureyri. -HK
Antitrust:
Skuggahliðar tölvuheimsins
Mllo og Lisa
Ryan Phillippe og Rachael Leigh Cook í hlutverkum sínum sem forritararnir
Milo og Lisa í spennumyndinni Antitrust sem fjallar um
skuggahliöar tölvuheimsins.
Kvikmyndin Antitrust, sem frum-
sýnd verður í Sambíóunum og Nýja
bíói á Akureyri á morgun, segir frá
forritaranum Milo sem hefur það
sem til þarf til að komast á toppinn
í tölvuheiminum. Hann hefur kom-
ið sér upp tölvufyrirtæki og mark-
mið hans er búa til tækni sem getur
breytt lifnaöarháttum fólks í kom-
andi framtíð.
Hins vegar breytist allt þegar
Gary Winston, eigandi risatölvufyr-
irtækis, býður honum einstakt
tækifæri í fyrirtæki sínu. Milo tek-
ur tilboðinu og kynnist á nýja
staönum forritaranum Lisu sem er
einstaklega hæfileikarík á tövusvið-
inu. Þegar síðan hræðilegur glæpur
er framinn sem snertir Milo per-
sónulega fer hann að líta öðrum
augum á stöðu sína og kemst í leið-
inni að ýmsu sem væri betra fyrir
hann að vita ekki. í hans stöðu get-
ur sannleikurinn verið hættulegur
og traust þýtt dauðadóm
Ryan Phillippe, sem þekktur er
úr myndum á borð við Cruel In-
tentions, Playing by Heart og I
Know What You Did Last Summer,
fer með hlutverk Milos. Aðalkven-
leikkonur myndarinnar eiga það
sameiginlegt að hafa báðar leikið á
móti Freddy Prinze Jr. í nýlegum
myndum. Claire Forlani leikur
Alice, kærustu Milos, en hún er best
þekkt fyrir hlutverk sitt í myndinni
Meet Joe Black þar sem hún lék á
móti kvennagullinu Brad Pitt. Með
hlutverk Lisu fer Rachael Leigh
Cook sem er aðeins tvítug.
Það er síðan leikarinn Tim Robb-
ins sem leikur Gary Winston. Tim
hefur leikið í fjölda kvikmynda og
hefur einnig haslað sér völl sem
handritshöfundur og leikstjóri í
kvikmyndaheiminum. Eitt eftir-
minnilegasta hlutverk hans var í
kvikmynd Roberts Altmans, The
Player, en fyrir það hlutverk fékk
hann verðlaun sem besti karlleikari
á kvikmyndahátíðinni í Cannes í
Frakklandi og Golden Globle-verð-
launum fyrir aðalhlutverk í söngva-
eða gamanmynd. -MA