Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001
DV
Helgarblað
Rafstöðvar
15
Mikið úrval bensín og
dísil rafstöðva.
Hagstætt verð!
Angelina Jolie
Menn segja aö kvikmynd hennar
Erfðasyndin sé svo vond að hún
verði aidrei sýnd.
Angeline Jolie:
Erfða-
syndin
er vond
Leikkonan Angeline Jolie á í hálf-
gerðu basli um þessar mundir.
Sennilega eru allir fjölmiðlar heims-
ins búnir að fá sig fullsadda af ein-
kennilegum yfirlýsingum hennar
um hjónaband og kynlif og hlýtur
þó að þurfa allmikið til.
Eins og það sé ekki nóg þá er fer-
illinn í hálfgerðum lamasessi. Tomb
Raider gengur að vísu mjög vel
enda eitt atriðið tekið á íslandi og
miklar vonir eru bundnar við fram-
haldsmyndina sem Jolie var nýlega
að semja um.
Vandræöin tengjast kvikmynd
sem Jolie lék í á móti Antonio Band-
eras og heitir The Original Sin sem
best væri þýtt sem Erfðasyndin.
Menn hafa verið að draga að sýna
myndina vegna þess að hún þótti
svo vond en loksins var henni laum-
að í bíó í Ameríku í síðustu viku.
Gagnrýnendur voru ekki látnir vita,
það var engin hátiöleg frumsýning
og ekki vottur af því húllumhæi
sem oft umkringir frumsýningu
efnilegra kvikmynda.
Það ber allt að sama brunni.
Erfðasyndin er vond.
Nicole Kidman:
Snýr á Lars
von Trier
Það vita allir að Nicole Kidman
er ekkert lamb að leika sér við. Hún
er hörð í horn að taka og vön að
hafa sitt fram eins og stórar stjörn-
ur eiga vanda til. Þetta fékk hinn
sérvitri og miskunnarlausi íslands-
vinur Lars von Trier að reyna á
dögunum.
Lassi hélt að hann væri búinn að
ráða Kidman til þess að leika i
næstu kvikmynd sinni sem á að
heita Dogville sem má kannski þýða
sem Hundabærinn. Kidman vék sér
þó jafnan fimlega undan því að
skrifa undir endanlegan samning. Á
endanum var Lars orðinn svo pirr-
aður að hann lét móðan mása um
stjörnustæla Kidman og þrjósku í
viðtali við eitthvert dagblað.
Þetta líkaði Kidman alls ekki og
lét danska snillinginn hafa það
óþvegið að sögn og hefur verulega
dregið úr líkunum á því að hún
$ SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, slmi 5S51S 50. Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00.
Borgarnes: Bilasala Vesturlands, simi 437 15 77. Isafjörður: Bllagarður ehf., Grænagarði, sími 456 30 95. Hvammstangi: Bfla- og búvélasalan, Melavegi 17, slmi 451 22 30.
Sauðárkrókur: Bila- og búvélasalan, Borgarröst 5, simi 453 66 70. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bllasala Austurlands, Fagradalsbraut 21, simi 471 30 05.
verði stjarna í Hundabæ. Skemmst
er að minnast grimmilegrar með-
ferðar Lars þessa á henni Björk
okkar sem hann grætti hvað eftir
annað. Það er eins gott að hann
komi aldrei til íslands en sennilega
hefur Björk verið ráðgjafi Kidman í
þessu máli,
Nicole Kidman
Hún vildi alls ekki leika í kvikmynd
undir stjórn Lars von Trier.
Suzuki Grand Vitara
er öflugur og vel búinn
grindarbyggður jeppi
með hútt og lágt drif
tengjanlegt um millikassa.
Berðu saman getu, aksturseiginleika, búnað, þægindi
og rekstrarhagkvæmni jeppiinga við það sem þú færð
í Suzuki Grand Vitara.
KOMDU í REYNSLUAKSTUR
full^
ERAMElPII
.aaiB!
Byggður á grind
Hátt og lágt drif