Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Page 26
26
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001
DV
Helgarblað
Sennilega vildu fáir vera í spor-
um Einars Bárðarsonar í dag.
Einar var forsprakki og frum-
kvöðull Eldborgarhátíðarinnar sem
enginn hefur viljað láta orða sig við
síðan helgarvíman rann af mönn-
um. Eldborgarhátíðin var ekki
stærsta útihátíð verslunarmanna-
helgarinnar en margt bendir til þess
að hún hafl verið sú versta. Margir
hafa orðið til þess að gagnrýna
framkvæmd hátíðarinnar en fátt
hefur heyrst frá höfuðpaurnum
sjálfum, Einari Bárðarsyni, sem yf-
irleitt forðast ekki sviðsljós fjölmiðl-
anna. Kappinn er örlítið þreytuleg-
ar þegar hann sest niður með blaða-
manni DV á heimili sínu nokkurn
veginn í miðju póstnúmeri 101
Reykjavík. Á veggnum hangir mynd
af Frank Sinatra með orðunum: I
Did It My Way og á sannarlega ekk-
ert illa við tilefnið.
- Það virðist sem margt við þessa
Eldborgarhátíð hafi gengið fram af
þjóðinni. Fékkstu svona vonda
gesti, Einar?
„Eins og sagði í yfirlýsingu okkar
þá var yflrgnæfandi meirihluti gest-
anna til fyrirmyndar og skemmti
sér. Þeir sem komu til að skemmta
sér gerðu það og það var fyrir þá
sem þessi hátíð var haldin,“ segir
Einar. - Var það ekki þessi yfirlýs-
ing sem nokkrir opinberir starfs-
menn á hátíðarsvæðinu mótmæltu
og sögðu að væri röng?
„Það náðist ekki að bera hana
undir lækna á svæðinu í tæka tíð,
það voru auðvitaö mistök sem við
göngumst við. En fulltrúar lögreglu
og björgunarsveitanna samþykktu
hana einróma.
Læknar sem störfuðu á Eldborg-
arhátíðinni sögðu aldrei við okkur
að einhverju væri ábótavant meðan
á hátíðinni stóð. Á sunnudeginum
sögðu læknarnir við okkur að þeir
myndu ekki breyta neinu ef ætti að
gera þetta aftur.“
Sameiginleg ábyrgð
- Kom þá óréttmæt gagnrýni að
einhverju leyti í bakið á ykkur?
„Þetta er og verður alltaf sameig-
inleg ábyrgð allra sem þarna voru
við störf, okkar og þeirra sem unnu
þessi mál fyrir okkur. Það kastar
henni engin frá sér. Það var engin
athugasemd gerð við þessa aðstöðu
meðan við vorum að setja hana upp
og ekki meðan á hátíðahöldunum
stóð.
Ég hef ekki viljað blanda mér í
umræðuna á opinberum vettvangi
því ég er þeirrar skoðunar að sam-
eiginlegur fundur með öllum þess-
um aðilum sem að málinu komu sé
eini vettvangurinn fyrir þessa um-
ræðu.“
Einar segir að leitað hafi verið
ráðgjafar allra þeirra sérfróðu aðila
sem hlut áttu að máli og farið eftir
þeirra tillögum í einu og öllu og
stundum gengið lengra.
„Annars hefðum við aldrei fengið
starfsleyfi frá sýslumanni fyrir
þessum hátíðahöldum. Við töldum
okkur vera að vinna eftir þeim leið-
beiningum."
Eftir að hafa uppfyllt öll skilyrði
sem sýslumaður setti upp þá geng-
um við enn lengra og buðum Stíga-
mótakonum að vera hjá okkur sem
hvergi er farið fram á í reglugerð-
inni. Við greiddum ferðir, uppihald
og aðstöðu fyrir þær og leigðum sér-
stakan sjúkrabíl inn á svæðið sem
var eins konar sjúkrahús á hjólum.
Þetta gerðum við umfram það sem
farið var fram á við okkur.“
Enginn talaði við okkur
- Þið teljið sem sagt að þið hafið
gert eins vel og kostur var?
„Já. Það er hins vegar leiðinlegt
hvemig fólk hefur nýtt sér sviðsljós-
ið til að kvarta yfir hátíðinni i staö-
inn fyrir að koma gagnrýni beint til
okkar, fólk sem engar athugasemdir
gerði alla helgina þótt það væri á
staðnum. Þetta fólk hefði átt að tala
við okkur áður en það fór að tala
við alla þjóðina. Það hefði verið
hægðarleikur að bæta úr flestu, ef
ekki öllu því sem menn segja núna
að hafl verið ábótavant ef menn
hefðu bara sagt okkur frá því þar og
þá. Það er ekki eins og hátíöin hafi
verið einangruð og víðs fjarri sið-
menningunni."
- í kjölfar Eldborgarhátiðar var
Ekki benda á
- Einar Báröarson, forsprakki Eldborgarhátíöarinnar um-
deildu, svarar fyrir sig og sína menn
Eldborg 2001 dvmynd hh
„Þaö er alltaf ráöist á nýjustu hátíöina. Halló Akureyri var hökkuö í spaö, Ux-
inn var tekinn af lífi og þannig mætti lengi telja. “
„Það er búið að skamm-
ast yfir þessum hœttu-
lega manni í fjölmiðlum
og hátíðin fœr versta út-
reið vegna viðkomu hans.
Honum var sleppt
nokkrum tímum eftir yf-
irheyrslu. Þetta endur-
speglar nú best að hér er
verið að hengja bakara
fyrir smið. Eiturlyfjasal-
inn er frjáls en enn er
vegið að mannorði hátíð-
arhaldara!“
fundað sérstaklega með landlækni
og starfsfólki hátíðarinnar og síðan
hélt dómsmálaráðherra sérstakan
fund með málsaðilum og skipaði í
kjölfarið starfshóp. Er þetta ekki
staðfesting á því að hátíðin gekk
fram af þjóðinni allri?
„Fundurinn var nú haldinn
vegna útihátíða almennt, ég held að
þessu sé ekki beint að okkur. Við
sem stóðum að þessari hátíð fengum
reyndar engan kost á því að sitja
þessa fundi. Það situr enginn í um-
ræddum starfshópi ráðherra frá
okkur og enginn sem reynslu hefur
af því að setja sama hátíðahald eins
og þetta.
Ef eitthvað var athugavert við
framkvæmdina þá vantar eitthvað i
reglugerðina um útihátíðir. Það er
sjálfsagt að taka þátt í að laga það
en við höfum ekki fengið neinn kost
á því.“
- Einar leggur mikla áherslu á
það að öll gæsla, salernisaðstaða,
ruslahirðing og önnur aðstaða hafi
verið miðuð við 10 þúsund manns
samkvæmt kröfu sýslumanns. Hann
segir að þegar flest var hafl 7-8 þús-
und manns verið á svæðinu. Hefðu
komið 10 þúsund manns þá hefðum
við samt verið með 9 klósettum of
mikið miðað við reglugerðina. Af
fenginni reynslu helgarinnar myndi
maður hugsanlega hafa fleiri klósett
og það er innlegg í breytta reglu-
gerð.“
Svona fólk er ekki velkomið
En sé það rétt að þið hafið verið
búnir undir að taka á móti 10 þús-
und gestum, hvað fór þá úrskeiðis?
Hvers vegna hefur þessi hátíð sér-
stöðu hvað varðar fjölda nauðgana
og ofbeldistilvik og slæma um-
gengni?
„Ég vona að yfirvöld taki á þeim
einstaklingum sem áttu þátt í
meintum nauðgunum, eiturlyfja-
sölu og ofbeldi af fullri hörku. Fólk
sem kemur með þetta hugarfar er
auðvitað hvergi velkomið en það er
erfitt að finna slíka skúrka í hópi
átta þúsund manna.
Það er talið t.d. að sá aðili sem
var með smjörsýruna hafi verið
einn. Það var vitað um hann áður
en Eldborg var haldin. Hann var
handtekinn hjá okkur tveimur tím-
um eftir að staðfest var að um
smjörsýru var að ræða.
Það er búið að skammast yfir
þessum hættulega manni í fjölmiðl-
um og hátíðin fær versta útreið
vegna viðkomu hans. Honum var
sleppt nokkrum tímum eftir yfir-
heyrslu. Þetta endurspeglar nú best
að hér er verið að hengja bakara
fyrir smið. Eiturlyfjasalinn er frjáls
en enn þá er vegið að mannorði há-
tíðarhaldara!
Til okkar komu krakkar af öllu
landinu, af öllum stéttum og með
alls konar bakgrunn. Það er ekki
eins og þetta hafi verið eitthvert
sérstakt úrtak."
Fundum ekki upp
unglingadrykkkju
- Það virðist sem þessi hátíð hafi
gengið fram af þjóðinni. Það er rætt
um hærra aldurstakmark, herta
gæslu og fleiri úrræði. Var Eldborg
ef til vill síðasta útihátíðin?
„Við fundum náttúrlega ekki upp
unglingadrykkju, það er ljóst. Það
er á hverju ári nýja hátíðin sem fær
harðasta gagnrýni og það gerðist
líka í ár. Um þetta mætti rekja mörg
dæmi. Ungt fólk mun alltaf safnast
saman til að skemmta sér. Það er
gömul hefð fyrir því. Og það er ekk-
ert séríslenskt fyrirbæri þó sumir
virðist ímynda sér það.“
Eigum líka systur og mæður
- Er þá gagnrýni á ykkur sem að
þessari hátíð stóðu tilhæfulaus og
ósanngjörn?
„Alls ekki! Við verðum að bera
ábyrgð því sem við getum. Umræð-
an undanfarna daga hefur verið yf-
irgengileg í eina átt og það hefur
ekki borgað sig að taka þátt í henni
opinberlega. Við eyddum 15 milljón-
um í öryggisgæslu og aðbúnað fyrir
gesti, að viðhöfðu samráði við þá
sem best eiga að þekkja til, og við
verðum þá líka að geta treyst því að