Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Side 42
54
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001
íslendingaþættir________________________________________________________________________________________________________py
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
1SB9
90 ára_____________________
Þórunn Guðjónsdóttir,
Kirkjuhvoli, Hvolsvelli.
80 ára_____________________
Björgvin Anton Jónsson,
Höröuvöllum 4, Hafnarfirði.
Guðlaug Sigurjónsdóttir,
Ásvegi 16, Reykjavík.
Magnús Ólafur Jonsson.
Skólastlg 16, Stykkishólmi.
María Valsteinsdóttir,
Litlahvammi 8b, Húsavík.
Vigdís Ferdinandsdóttir,
Gnoöarvogi 24, Reykjavík.
75 ára_____________________
Haraldur Hannesson,
Víöigeröi 2, Akureyri.
ZOára___________________________
Kristinn I. Karlsson,
Heiöarhrauni 23, Grindavík.
Ólafur Grímsson,
Kolbeinsgötu 28, Vopnafiröi.
60 ára__________________________
Hjördís Bára Þorvaldsdóttir,
Bogabraut 17, Skagaströnd.
Ingólfur Hansen,
Nónhæö 6, Garöabæ.
50 ára__________________________
Björn Kristinsson,
Hlíöarvegi 15, Njarövik.
40 ára__________________________
Andrés Pétursson,
Lækjasmára 90. Kópavogi
Anna Gyða Rebekka Reynisdóttir,
Goðaborgum 8, Reykjavík.
Emilía María Hilmarsdóttir,
Fjólugötu 1, Vestmannaeyjum.
Helga Sigríður Helgadóttir,
Túngötu 12, Grenivík.
Hjörtfríður Jónsdóttir,
Staöarhrauni 21, Grindavík.
I 'istinn Bergmann Þórólfsson,
1 eiöarhrauni 30c, Grindavík.
fristján Ólafsson,
álsaseli 36, Reykjavík.
Smáauglýsingar
DV
Þjónustu-
auglýsingar
►I550 5000
Andlát
Sigurður Á. Sigurbergsson, til heimilis á
Háaleitisbraut 30, lést á gjörgæsludeild
Landspítala Fossvogi miövikud. 8.8.
Sigurjóna Sigurðardóttir, áöur til
heimilis aö Þúfubaröi 11, Hafnarfiröi,
lést á Sólvangi miövikud. 8.8.
Vigfús Ebenesersson frá Tungu I
Valþjófsdal, lést á Landspltala
Hringbraut miövikud. 8.8.
■ ■ r/ : |
Attræð
Ingibjörg Tönsberg
kennari, Reykjavík
Ingibjörg Tönsberg kennari,
Glæsibæ 13, Reykjavik, veröur áttræð
á mánudaginn.
Starfsferill
Ingibjörg er fædd á Hömrum í
Grímsnesi og ólst þar upp. Eftir
barnaskóla fór Ingibjörg að prests-
setrinu að Mosfelli og undirbjó sig
undir nám í Kennaraskólanum. Hún
tók inntökupróf i Kennaraskólann og
hóf þar nám 1941 en varð að hætta
námi vegna veikinda. Ingibjörg fór í
Húsmæðraskóla Reykjavíkur árið
1942 þar sem hún lærði matreiðslu.
Áriö 1948 tók hún próf upp í annan
bekk Kennaraskólans, lauk
kennaraprófi 1951, lærði kyngrein-
ingu hænuunga i Danmörku 1953,
lauk stúdentsprófi frá Kennara-
skóianum 1974, las líffræði við HÍ í
nokkur misseri og sótti námskeið
fyrir leiðsögumenn 1972.
Eftir að Ingibjörg lauk prófi frá
Kennaraskólanum var hún með
smábarnaskóla heima hjá sér til
ársins 1953. Hún kenndi við
Landakotsskóla í Reykjavík 1954-57,
var við einkakennslu 1957-79 og var
forfallakennari við æfingadeild KÍ
1972 og var prófdómari við
Langholtsskóla vorið 1953.
Ingibjörg starfaði við kyngreiningu
á hænuungum á Suðvesturlandi
1954-96. Þá hefur hún verið
leiðbeinandi og sjálfboðaliði í
öldrunarstarfi í fjóra vetur.
Ingibjörg sat í stjóm Det Danske
Selskab í Reykjavík frá 1980, hiaut
viðurkenningu frá Búnaðarsambandi
Suðurlands á landbúnaðarsýningunni
á Selfossi 1978, var formaður
Kattavinafélags Islands 1988-90 og var
síðan gjaldkeri félagsins um skeið,
starfar i nefnd á vegum Bandalags
kvenna í Reykjavík, sat í stjórn
Kvenfélags Langholtssóknar, starfar í
nefndum á vegum Kvenfélags
Árbæjarsóknar og situr nú í stjórn
Foreningen Dannebrog.
Fjölskylda
Ingibjörg giftist 5.10. 1941 Einari
Tönsberg, f. 13.1. 1910, d. 23.5. 1986,
framkvæmdastjóra. Hann var sonur
Hermanns Friðriks Tönsberg,
bankastarfsmanns í Kaupmannahöfn,
og k.h., Johanne Marie Tönsberg
húsmóður.
Ingibjörg og Einar eignuðust einn
son, Hermann Tönsberg, f. 1.8. 1943,
bókhaldsráðgjafa sem búsettur er í
Reykjavík, kvæntur Kristínu
Arnardóttur fulltrúa á Biskups-
skrifstofu og eiga fimm börn en
Hermann átti tvö börn áður.
Langömmubörnin eru nú fimm
talsins.
Ingibjörg á tvö systkini: Þau eru
Jóhanna, f. 24.8. 1931, kennari í
Reykjavík, hún var gift Bjarna
Helgasyni leigubifreiðarstjóra og á
hún sjö börn; Gunnar, f. 15.12. 1932,
bóndi á Hömrum, kvæntur Kristinu
Carol Chadwick og eiga þau tvö börn.
Foreldrar Ingibjargar voru
Jóhannes Jónsson, f. 14.6.1885, d. 20.2.
1968, bóndi á Hömrum í Grímsnesi, og
k.h., Sigríður Bjarnadóttir, f. 14.2.
1893, d. 19.1. 1991, húsmóðir.
Ætt
Foreldrar Jóhannesar voru Jón,
bóndi á Þórisstöðum í Grímsnesi,
Jóhannssonar, bónda á Kotferju,
Hannessonar í Kaldaðarnesi og
Rannveig Sveinsdóttir Jónssonar.
Foreldrar Sigríöar voru Bjarni,
bóndi á Minnibæ, Jörgensson, bóndi á
Stærribæ, Bjarnason og Ragnhildur
Jónsdóttir söðlasmiðs í Arakoti og
siðar á Hömrum Björnssonar,
silfursmiðs á Búrfelli Jónssonar.
Áttræð
Jóhanna H, Lárusdóttir Cortes
fyrrv, fótasnyrtir í Reykjavík
Jóhanna H. Lárusdóttir Cortes
fótasnyrtir, Snælandi 2, Reykjavík,
er áttræð í dag.
Starfsferill
Jóhanna fæddist við Kárastíginn
í Reykjavík og ólst upp í Reykjavík.
Hún var í Austurbæjarskólanum,
stundaði nám við Ingimarsskólann
við Lindargötu, stundaði nám við
Húsmæðraskólann á Laugarvatni
1940 og við Leikskóla Lárusar Páls-
sonar í þrjú ár. Þá sótti hún tíma í
söngnámi hjá Sigurði Birkis í einn
vetur. Eftir að Jóhanna varð ekkja
stundaði hún nám í fótaaðgerðum
hjá Emmu Cortes fótaaðgeröar-
meistara og lauk prófum í þeirri
grein.
Eftir að Jóhanna komst á eftir-
laun hóf hún nám í postilínsmálun
hjá Ingrid Hlíðberg en Jóhanna
stundar enn þá iðju.
Jóhanna hélt heimili fyrir íoöur
sinn og þrjá bræður eftir að móðir
hennar lést. Þá lék hún hjá Leikfé-
lagi Reykjavíkur á árunum 1941^6,
m.a. í leikritunum Gift og ógift,
Pétri Gauti, og dansaði og söng í
óperunni í álögum.
Eftir að Jóhanna kvæntist fyrri
manni sínum fluttu þau fljótlega til
Stokkhólms þar sem þau voru bú-
sett í tvö ár. Hún stundaði siðan al-
farið heimilisstörf fram til 1965. Þá
hóf hún að starfa við fótaaðgerðir
og stundaði þá iðju á árunum til
1991 á Fótaaðgerðarstofu Emmu
Cortes, Elliheimilinu Grund, á veg-
um kvenfélaga Bústaðakirkju og
Langholtskirkju og
Kvennfélagasambands
Kópavogs.
Jóhanna söng í Dóm-
kirkjukórnum um
skeið. Þá starfaði hún
og ferðaðist, einkum
um hálendi íslands,
með Ferðaklúbbnum
Arnarfelli. Auk þess
hafa Jóhanna og
seinni maður hennar
ferðast mikið erlendis,
um Evrópu, Asíu og
Ameríku.
Fjölskylda
Jóhanna giftist 11.6. 1946 Óskari
T. Cortes, f. 21.1. 1918, d. 22.2. 1965,
fiðluleikara er lék fyrstu fiðlu í Sin-
fóníuhljómsveit Islands. Hann var
sonur Emanuels Reinfrieds Henriks
Cortes, f. 20.9. 1875, d. 12.7. 1947,
verkstjóra hjá Gutenberg, og k.h.,
Bjargar Vilborgar Zoéga, f. 27.1.
1885, d. 26.10. 1960, húsmóöur.
Dætur Jóhönnu og Óskars eru
Jónína Kolbrún Cortes, f. 16.10.
1947, þjónustufulltrúi, búsett i Kópa-
vogi, var gift Viggó Snorra Pálssyni
en þau skildu og eru synir þeirra
Óskar Torfi, f. 2.6. 1969, kerfisfræð-
ingur í Reykjavík, og Páll Snorri, f.
11.5. 1975, háskólanemi í Bandaríkj-
unum;Björg Cortes, f. 16.7. 1952,
BA, hjúkrunarfræðingur í Reykja-
vik, gift Andrési Sigvaldasyni lækni
og eru börn þeirra Jóhanna Cortes,
f. 4.2.1975, BA í félagsfræði, búsett í
Reykjavík, og Brynja Cortes, f. 19.6.
1977, nemi við Listhá-
skóla í Flórens.
Seinni maður Jó-
hönnu er Þorvaldur
Steingrímsson, f. 7.2.
1918, fiðluleikari.
Hann er sonur Stein-
grims Matthiassonar,
læknis á Akureyri, og
k.h., Kristínar Katrín-
ar Thoroddsen hús-
móður.
Fyrri kona Þorvalds
var Ingibjörg Halldórs-
dóttir, f. 5.3. 1919, d. 8.1. 1966, hár-
greiðslukona.
Böm Þorvalds og Ingibjargar eru
Sigríður, f. 12.4. 1941, leikkona í
Reykjavik; Kristín, f. 31.10. 1942,
hárgreiðslukona í Hafnarfirði; Hall-
dór, f. 27.9. 1950, framkvæmdastjóri
í Reykjavík.
Hálfsystir Jóhönnu, samfeðra,
var Ástríður, f. 22.2. 1909, d. 30.5.
1996, húsmóðir í Bandarikjunum.
Albræöur Jóhönnu: Aðalsteinn, f.
27.2. 1920, d. 14.3. 1974, búfræðingur
og sjómaður í Reykjavík; Gunnlaug-
ur, f. 10.3. 1923, fyrrv. skrifstofu-
stjóri, búsettur í Reykjavík; Róbert,
f. l.ll. 1924, fyrrv. sjómaður, búsett-
ur í Reykjavík.
Foreldrar Jóhönnu vom Lárus
Hansson, f. 16.12. 1891, d. 14.3. 1958,
innheimtumaður Reykjavíkurbæjar
og einn af stofnendum Karlakórs
Reykjavík, og k.h., Jónina Gunn-
laugsdóttir, f. 30.11. 1885, d. 12.1.
1943, húsmóðir.
95 ára______________________________
Arnfríöur Vilhjálmsdóttir,
Hólmgarði 56, Reykjavlk.
90 ára______________________________
Brynhildur Stefánsdóttir,
Vallholti 34, Selfossi.
85 ára______________________________
Laufey S. Jónsdóttir,
Mávahlíð 11, Reykjavík.
80 ára______________________________
Magnús Pálsson,
Syðri-Steinsmýri, Kirkjubæjarklaustri.
75 ára______________________________
Guðmundur Friðriksson,
Tröllagili 3, Akureyri.
Kristbjörg Þóröardóttir,
Skarðsbraut 1, Akranesi.
Pétur Jóhannesson,
Grundarbraut 4a, Ólafsvlk.
70 ára______________________________
Ólafía Salvarsdóttir,
Vatnsfirði, ísafj.
Siguröur Guðmundsson,
Gunnólfsgötu 18, Ólafsfirði.
Þórarinn A. Guöjónsson,
Stífluseli.5, Reykjavík.
60 ára______________________________
Ásgerður Ágústsdóttir,
Ryðrugranda 20, Reykjavík.
Gréta Sigrún Tryggvadóttir,
Árgerði, Dalvlk.
Sigríöur Margrét Siguröardóttir,
Urðarbakka 24, Reykjavík.
Sonja O. Garðarsson,
Kambagerði 2, Akureyri.
50 ára______________________________
Bjarni Vilhjálmsson,
Grófarsmára 33, Kópavogi.
Björg Svavarsdóttir,
Vogabraut 2, Höfn.
Eyjólfur Kristmundsson,
Lóurima 9, Selfossi.
Freydís Sjöfn Magnúsdóttir,
Hraunstíg 1, Bakkafirði.
ingibjörg Siguröardóttir,
Frostaskjóli 65, Reykjavík.
Ingólfur H. Matthíasson,
Kirkjuvegi 39, Keflavík.
íris Sigrid Guömundsdóttir,
Smáratúni 12, Selfossi.
Sigurður Sveinbjörnsson,
Baldursgötu 3, Reykjavík.
Skúli Bergmann Garöarsson,
Bjarkargrund 1, Akranesi.
Svavar Helgason,
Lautasmára 4, Kópavogi.
40 ára______________________________
Aöalheiöur G. Halldórsdóttir,
Skógargerði 2, Reykjavík.
Álfheiður Pálsdóttir,
Hryggjarseli 6, Reykjavík.
Guömunda I. Þorbjörnsdóttir,
Hlíðarhjalla 71, Kópavogi.
Gunnar Guömannsson,
Sunnubraut 1, Dalvík.
Magnús Eiríkur Eyjólfsson,
Sólheimum 44, Reykjavík.
Margrét Magna Árnadóttir,
Hallfreöarstöðum 2, N.-Múlas.
Ólafur Sigurösson,
Öldugötu 10, Dalvík.
Ómar Sæberg Gylfason,
Arnarslðu 4f, Akureyri.
Regina Jónsdóttir,
Viðarrima 48, Reykjavik.
Sigurbjörg Hjartardóttir,
Fífuseli 11, Reykjavík.
Sigvaldi Hafsteinn Jónsson,
Breiövangi 3, Hafnarfirði.
Þorvaldur R. Kristjánsson,
Fögrusíöu lla, Akureyri.
Þórhalli Einarsson,
Brúnastöðum 73, Reykjavík.
Þuríöur L. Rósenbergsdóttir,
Hlíöarvegi 34, Ólafsfirði.
Arínu e!drí
Jarðarfarir
Bergdís Rut Baldvinsdóttir, lést á heim-
ili slnu, Vesturási 15, þriöjud. 7.8. Jarð-
arförin fer fram frá Árbæjarkirkju
fimmtud. 16.8. kl. 13.30.
Kristine Þorsteinsson frá Siglufiröi lést
á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjud. 7.8. Út-
förin fer fram frá Siglufjarðarkirkju
föstud. 17.8. kl. 14.00.
Kristín Pétursdóttir, Innri-Skeljabrekku,
Borgarfirði, verður jarðsungin frá Hvann-
eyrarkirkju laugard. 11.8. kl. 14.00.
Sigurlaug Þóra Guöbrandsdóttir, Hóla-
vegi 19, Siglufiröi, veröur jarðsungin frá
Siglufjarðarkirkju laugard. 11.8. kl.
14.00.
Þorvaldur Skúli Hrafnkelsson lést
sunnud. 5:8. Jaröarför fer fram frá Hall-
grimskirkju þriðjud. 14.8. kl. 13.30.
-qH Kristleifur Þorsteinsson,
P ” ^ feröabóndi á Húsafelli I
4 v® Borgarfiröi, er 78 ára I
‘ ií óag- Kristleifur kvæntist
ÍST / « Sigrúnu Bergþórsdóttur
gjÉÉ&j^! húsfreyju en þau hjónin
eru bæði af Húsafellsætt
sem rakin er frá hinum sterka og stór-
merka klerki og rithöfundi, Snorra
Björnssynir.
Reyndar voru báöir foreldrar Kristleifs af
Húsafellsætt, Þorsteinn Þorsteinsson,
hreppstjóri á Húsafelli, og k.h., Ingibjörg
Kristleifsdóttir sem var dóttir Kristleifs
Þorsteinssonar, fræðimanns á Stóra-
Kroppi. Það væri því synd aö segja aö
niöjar Snorri sitji ekki enn jörðina með
sóma.
ETónlistarmaður snjalli,
Ólafur Gaukur, er 71 árs i
dag. Ólaf þarf ekki aö
kynna fyrir þjóðinni, a.m.k.
ekki þeim sem komnir eru
til vits og ára, svo nátengt
hefur tónlistarstarf hans
verið íslenskri dægur- og danstónlist um
áratugaskeiö.
Ólafur haföi atvinnumennsku af hljóm-
listarstörfum frá 1949 og lék þá á gítar
með ýmsum þekktustu danshljómsveit-
um landsins, s.s. KK-sextettinum og
Hljómsveit Svavars Gests. Lengst af var
hann þó með eigin hljómsveit sem gerði
sína eigin sjónvarpsþætti, sungna og
leikna, á sokkabandsárum rikissjón-
varpsins.
Olafur þótti sleipasti gítarleikari dægur-
lagabransans um árabil enda hefur
hann starfrækt Gítarskóla Ólafs Gauks
frá 1975. Hann er auk þess ágætis
laga- og textahöfundur eins og m.a. má
heyra á Eurovisonlaginu hans Sjúbídú
sem dóttir hans, Anna Mjöll, söng fyrir
íslands hönd á sínum tlma. Kona Ólafs
er Svanhildur Jakobsdóttir sem söng
meö hljómsveit hans um árabil.
0Þorsteinn Gylfason heim-
spekiprófessor verður 59
ára á morgun. Þorsteinn er
bróðir Þorvalds hagfræöi-
prófessors og Vilmundar
i. og ráðherra, en foreldrar
þeirra eru Gylfi Þ. Gíslason, fýrrv.
menntamálaráöherra og Guðrún Vil-
mundardóttir.
Þorsteinn hefur kennt heimspeki við HÍ
frá því heimspekideildin var þar sett á
laggir 1971 og unniö ómetanlegt starf
við að auka hróður heimspekikennslu HÍ
á erlendum vettvangi. Hann var frá upp-
hafi og um árabil ritstjóri Lærdómsrita
Bókmenntafélagsins, hefur samiö fjölda
ritverka um heimspekilegt efni og hefur
um árabil veriö eftirsóttur fyrirlesari vlða
um heim.
Þorsteinn hefur unniö mikið starf fyrir ís-
lensku óperuna, m.a. meö þýöingum
sínum, en hann er frábær íslenskumaö-
ur, óviðjafnanlegur stílisti, skáld gott og
skemmtilegasti maöur á íslandi frá því
Benedikt Gröndal var og hét.