Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Blaðsíða 12
12
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2001
Skoðun X>V
Hefurðu séð söngleikinn Wake
me up before you go go?
Sólveig Gunnlaugsdóttir, 12 ára:
Nei, mig iangar ekki að sjá hann.
Bryndís Bjarnadóttir, 12 ára:
Nei, en mig langar rosatega
aö sjá hann.
Margrét Árnadóttir, 11 ára:
Nei, en mig iangar rosalega aö sjá
hann. Þaö segja allir aö hann sé
skemmtilegur.
Karitas Svövudóttir, 11 ára:
Nei, en mig langar aö sjá hann.
Arna Arnarsdóttir, 10 ára:
Nei, en mig langar að sjá hann.
Pálmey Helgadóttir, 10 ára:
Já, þetta var alveg rosalega
skemmtilegur söngleikur.
700 milljónir fyrir
olíu og málma
Sameiginlegir
fundir munu senn
heflast með íslend-
ingum, írum, Bret-
um og Færeyingum
vegna tilkalls til
landgrunnsréttinda
á Hatton Rockall-
svæðinu sem er
langt suður í hafi.
Það er nefnilega
gamall draumur okkar íslendinga að
ráða yfir auðæfum á hafsbotni, ekki
endilega olíu heldur og dýrum málm-
um. Og nú eru það einmitt málmarn-
ir sem eru nefndir til sögunnar í
nýja ævintýrinu.
Áform þessi hafa þegar verið til-
kynnt og greinargerð sem send
verður tfi landgrunnsnefndar Sam-
einuðu þjóðanna verður dýru verði
keypt. Hana á að vinna á allt aö fjór-
um árum og mun kostnaður verða
700 milljónir króna. Líklega líður þó
langur tími áður en við íslendingar
eða aðrar þjóðir fara að vinna olíu
og málma á þessu hafsvæði. - En það
má reyna fyrir sér. Við höfum lagt i
dýpri álinn en þennan.
Margir sem fylgst hafa með þessu
máli spyrja sig þó til hvers leikurinn
sé gerður í þessu fyrir fram glataða
dæmi. Er nauðsynlegt að leita svo
langt yfir skammt? Hvers vegna ekki
að byrja á að fullkanna þau hafs-
botnsauðæfi sem liggja nær landinu?
Nú þegar hafa fundist setlög við
norðaustanvert landið, á Öxarfirði, i
Flatey á Skjálfanda eða út af Tjör-
nesi (fróðari menn en ég um þessa
hluti vita nákvæmlega hvar setlögin
fundust). Það hefði verið gáfuiegra,
skyldi maður ætla, að leita fyrst fyr-
ir sér þar sem ekki þarf að byrja á að
fá leitarheimild.
En hvað er þá á bak við hugmynd-
„Öfugsnúnast af öllu öfug-
snúnu er þó áhugaleysi
okkar íslendinga (les: fjöl-
miðla) um gang mála hjá
Fœreyingum sem nálgast
nú lokastig borunar eftir
olíu í sinni lögsögu. “
ina langsóttu um Hatton Rockall-
svæðið og dýru málmana á hafsbotni
þar annað en að fylgja eftir langþráð-
um draumi um að fá yfirráð á
Hatton Rockall-svæðinu? Persónu-
lega reikna ég með því að þarna sé
einfaldlega á ferð gamli, góði heim-
óttarskapurinn og hræðslan við að
leggja til atlögu við framkvæmdir á
íslandi. Því er einmitt sniðugt nú að
byrja á því langsótta áður en komið
er að hinu raunverulega efni.
Lika er hugsanlegt að í svona máli
(setlög og olía á hafsbotni) verði við
ramman reip að draga gagnvart sjáv-
arútvegi og umhverfisvernd. Sumir
myndu ekki taka því beinlínis fagn-
andi ef ísland breyttist skyndilega í
olíuríki!
Öfugsnúnast af öllu öfugsnúnu er
þó áhugaleysi okkar íslendinga (les:
fiölmiðla) um gang mála hjá Færey-
ingum sem nálgast nú lokastig bor-
unar eftir olíu í sinni lögsögu. Því
má búast við þeim mun meiri
sprengju þegar að því kemur að olía
fer að flæða um efnahagskerfi
frænda okkar. - En nú eru miklar
fréttir cif þingi Kiwanismanna í Þórs-
höfn þessa dagana - þar erum við á
réttri hillu.
Geir R.
Andersen
blm. skrifar:
Hamast á menntamálaráðherra
Gunnar Kristjánsson
skrifar:___________________________
Það ber vel í veiði hjá Ríkisút-
varpinu þessa dagana, að hafa
„fengið" upp á borðið skýrslu Ríkis-
endurskoðanda um mál þingmanns-
ins Áma Johnsens. í fréttum RÚV
síðustu daga hefur vart annað kom-
ist að en hve óhönduglega embætti
menntamálaráðherra hafi tekist til í
eftirliti með byggingarnefnd Þjóð-
leikhússins. Ekkert minna en af-
sögn menntamálaráðherra dugar
þeim á fréttastofum RÚV. Þvilíkur
fengur var það fyrir þá hjá RÚV að
varaformaður Samfylkingarinnar,
Margrét Frímannsdóttir, taldi eina
ráðið nú vera afsögn ráðherrans,
ummælin voru endurtekin marg-
„Afsögn menntamálaráð-
herra liggur i loftinu hjá
RUV, og rétt sama hversu
ráðherrann ítrekar að hann
og ráðuneyti hans hafi ekki
haft minnsta grun um atferli
hins stórtæka þingmanns. “
sinnis og hefur þó líklega ekki þótt
nóg að gert.
Já, það er nú aldeilis tími til kom-
inn að leggja í menntamálaráð-
herra, svo ötull sem hann hefur ver-
ið að upplýsa skoðun sína á breytt-
um rekstri Ríkisútvarpsins. Þessa
má ekki láta óhefnt. Nú er tækifær-
ið, hamra á og leita að mistökum í
menntamálaráðuneytinu. Og fleiri
en Árni Johnsen skulu fá að fiúka.
Afsögn menntmálaráðherra liggur í
loftinu hjá RÚV og rétt sama hversu
ráðherra ítrekar að hann og ráðu-
neyti hans hafi ekki haft minnsta
grun um atferli hins stórtæka þing-
manns.
Sannleikurinn liggur hins vegar
á borði hvers meðalgreinds manns.
Þarna er á ferð afbrot og dóm-
greindarleysi Árna Johnsens eins
og það verður ekki fært yfir á neina
aðra, þótt að sjálfsögðu verði þetta
atvik til þess að ráðuneyti mennta-
mála, rétt eins og öll önnur ráðu-
neyti, muni nú setja upp varnir
gegn þvílíkum uppákomum í fram-
tíðinni.
Kynningarherferð
Garri sá það í DV á dögunum að Kristján Þór
Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, ætlar að setja
nokkur hundruð þúsund krónur af skattfé bæjar-
búa í að kynna Akureyri fyrir landsmönnum. Til-
gangurinn mun vera sá að fá í bæinn fólk - sér-
staklega fólk á þrítugs- og fertugsaldri - sem síð-
an muni væntanlega skjóta rótum og auka við og
styðja þann sterka stofn Akureyringa sem fyrir er
í bænum. Bæjarstjórinn hefur meira að segja
fengið til liðs við sig almannatengslafyrirtæki
sem á að sjá um útfærsluna á því að laða fólk til
bæjarins þannig að búast má við faglegum vinnu-
brögðum i þessu efni. Þar verður væntanlega lítið
fiallað um hækkanir á dagvistargjöldum eða
þrönga atvinnustöðu, enda væri heldur ófaglegt
að fara að tína slíkt til i svona herferð. Auk þess
að þó staöan sé kannski ekkert sérstaklega spenn-
andi þessa dagana hefur atvinnuástand í bænum
oft verið verra en nú, ef marka má nýjustu tölur
frá Vinnumálaskrifstofunni. Hinu verður þó alveg
absolútt að halda leyndu, sem er að Akureyri hef-
ur mælst afgerandi láglaunasvæði og því er jafn-
vel haldið fram að bærinn sjálfur gangi þar jafn-
an í broddi fylkingar.
Fegurðin og veðrið
Garri sér fyrir sér að hin faglega nálgun á
þessu máli sé sú sama og alltaf þegar Akureyring-
ar byrja að auglýsa sig og bæinn sinn. í fyrsta
lagi yerður það dregið fram hvað fallegt er í bæn-
um. í öðru lagi eru yfirlýsingar um veðurfarið á
Akureyri nánast orðnar að trúarjátningu hjá öll-
um þeim sem segja frá þessum höfuðstað Norður-
lands. í þriðja lagi veröur svo dregið fram að Ak-
ureyri sé skólabær með tveimur framhaldsskólum
og háskóla, auk allra grunnskólanna, og ef menn
eru í stuði fær Tónlistarskólinn kannski að fylgja
með - en mestar líkur eru þó á að hann gleymist
eins og svo oft áður. Fegurðin, veðrið og tónlistin
verða því ugglaust meginþemun í kynningunni á
Akureyri sem fram undan er.
Engin tengsl við kosningar
Þetta er fyrir utan, auðvitað, einn þátt enn sem
hlýtur að vega þungt í svona kynningu. Gera
verður ráð fyrir að bæjarstjórinn sjálfur og bæjar-
yfirvöld verði nokkuð áberandi í kynningunni
líka - annaðhvort beint eða óbeint. Því það er
auðvitað bæjarstjóranum og bæjarstjórnarmeiri-
hlutanum að þakka hve gott er að búa á Akur-
eyri. Hinu mega menn síðan ekki blanda saman
við þessi mikilvægu kynningarmál að í hönd fer
kosningavetur og kynningin mun verða á ferðinni
um svipað leyti og menn eru að halda af stað í
sína kosningabaráttu. Auðvitað eru engin tengsl
þarna á milli, hin pólitísku bæjaryfirvöld myndu
aldrei vísvitandi stilla málinu upp þannig að
kynningin, sem greidd er af almannafé, lendi á
sama tíma og kosningabaráttan er að hefiast. Hér
er um algera tilviljun að ræða. í þessu gildir auð-
vitað hið fornkveðna sem jafnan er sagt þegar
flokksgæðingar fá háar stöður: Auðvitað væri
óeðlilegt að Kristján Þór Júlíusson notfærði sér
stöðu sína sem bæjarstjóri til að hygla Sjálfstæð-
isflokknum í auglýsingaherferð fyrir kosningar.
En hann og heill bæjarfélagsins má heldur ekki
gjalda þess að hann er pólitískur
bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins! Gafrí
Allt undir boröið
ofstæki eöa hreintrúarstefna?
Geöveik tóbakslög
Kristinn Sigurösson skrifar:
Ofstækisfullir einstaklingar hafa
enn einu sinni gert Alþingi að skrípa-
samkomu með því að samþykkja lög-
in um tóbaksvarnir án athugasemda,
til dæmis að verslun megi ekki hafa
tóbak í hillum. Þarna er vísast um
stjórnarskrárbrot að ræða og því eng-
in ástæða að fara eftir þeim ákvæð-
um. Ég tek fram að ég reyki ekki leng-
ur. Hefði nú ekki verið skynsamlegra
að byrja strax í barnaskóla að kenna
börnum um skaðsemi reykinga? Við
sem erum orðin fullorðin látum ekki
öfgafólk stjórna því hvort við kaupum
hitt eða þetta. Ég tel að stjómarskrá-
in tryggi reykingafólki sama rétt og
þeim sem ekki reykja. Útilokað er að
mæla með ofstæki þeirra sem standa
að nýju tóbaksvamalögunum.
Rugluð 68-kynslóö
Jóhann Ólafsson skrifar:
Ef bornar em saman sú kynslóð
sem nú ræður hér í flestum greinum
og þær sem á undan eru gengnar, t.d.
hvað varðar stjórnsýslu og svo niður
eftir stiganum, allt til viðskipta,
bankastarfsemi og skipulagsmála í
borg og sveit, þá verður vart komist
að annarri niðurstöðu en þeirri að nú-
verandi kynslóð standi langt að baki
hinum. Til marks um þetta er það að
flest sem úrskeiðis getur farið gerir
það í dag. Það er eins og 68-kynslóðin,
sem nú fer fyrir hér á landi, gangi
kengbogin að hverju verki og ábyrgð-
arhlutinn ekki sýnilegur, a.m.k. ekki
með berum augum. Vonandi er að sú
kynslóð sem við tekur komist til
meiri þroska og þekkingar og noti
hana landi og þjóð til farsældar.
Akraborgin viö festar
Of dýr til að standa ónotuö.
Akranes einangrast
íbúi á Akranesi skrifar:
Mér blöskrar að sjá hið fallega fley,
Akraborgina, bundna við festar á
Grandagarði. Ég fer þangað ávallt er
ég kem til Reykjavíkur, bara til að
skoða skipið sem fyrrum flutti hingað
farþega og bíla. Flestir ferðamennirn-
ir stönsuðu hér eða versluðu eitthvað
áður en þeir héldu áfram, einkum
þeir erlendu. Nú kemur enginn og
bærinn er að einangrast. Hví er Akra-
borgin ekki notuð í siglingar yfir sum-
artímann? Hafa engir trú á að svona
gott skip skili arði yfir háannatíma
ferðalaga? Akraborgin er mest ónotuð
yfir sumarið hvort eð er.
Töskur smábarna
Guðrún skrifar:
Mér barst bæklingur í hendur þar
sem auglýstar voru skólatöskur frá
bókabúð einni í Reykjavik. í bæklingn-
um var bent á hvað þyrfti að hafa í
huga við val á skólatöskum fyrir böm.
Þetta vakti athygli mína þar sem útlit
hefur frekar fengið að ráða ferðinni hjá
börnunum mínum en hagkvæmni og
heilsa. Fróðlegt væri að sjá Neytenda-
samtökin gera einhverja úttekt á skóla-
töskum í búðum, aðra en um verðkönn-
un. Ég er að senda fyrsta barnið mitt í
skóla í haust. Ég viðurkenni það að ég
hafði hvorki leitt hugann að stuðningi
fyrir bakið né að púðum. - En gott
framtak hjá Pennanum.
S3BBE
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.