Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Blaðsíða 24
36
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2001
Tilvera I>V
DV-MVNDIR EINAR J.
Rapp 101
Keppni í rímnaflæöi fór fram á Ingólfstorgi þar sem ungir og efnilegir rapparar stigu á stokk og fluttu nútímarímur af
miklum móð. Þessir ungu menn kölluðu sig Rapp 101 og röppuðu um lóur og spóa.
Mígandi rigning
á menningarnótt
lí f iö
Sýning á stein-
þrykksblöðum
Síðastliðinn laugardag var opnuð í
sal félagsins íslensk grafík sýning
á steinþrykksblöðum frá Grafíska
Verkstaðnum í Listasavni Foroya í
Þórshöfn í Færeyjum. Fjórir af
sýnendunum eru frá Færeyjum,
þrír frá Danmörku og einn frá
Svíþjóð. Sýningin stendur til 9.
september og er opin frá klukkan
14.00 til 18.00 fimmtudaga til
sunnudaga. íslensk grafík er til
húsa að Tryggvagötu 17 í
Reykjavík.
Krár
PJASS Á KRINGLUKRÁNNI Á
mánudagskvöldið verða stórtónleik-
ar meö djangóhljómsveitinni "Pearl
Django". Þetta er 5 manna
djangódjassband sem kemur frá
Seattle í Bandaríkjunum. Þeir koma
beint frá Akureyri þar sem þeir spil-
uðu á fyrstu alþjóölegu djangó djass-
hátiðinni á Islandi, Django Jazz
2001. Tónleikarnir hefjast kl. 21.
IBöll
BIIFF Á GAUKNUM Hljómsveitin
Buff sþilar í popparapartíi eftir að
allar helstu hljómsveitir landsins
hafa spilaö fótbolta í Tryggvagötu.
Operutónlist
ÓPERUVERKSTÆÐISVINNA AÐ
RIMUM I SVARFAPARPAL I Svarf
aðardal stendur yfir óperuverkstæð-
isvinna sem lýkur með tveimur óp-
erukvöldum. Mánudags- og þriöju-
dagskvöld kl. 20.30 verða sýnd at-
riði úr óperunum Brúðkaupi Fígarós,
Töfraflautunni og Idomeneo eftir
W.A. Mozart, La Traviata eftir G.
Verdi, Carmen eftir G. Bizet og
Fidelio eftir L. van Beethoven. Flytj-
endur eru 15 ungir íslenskir söngv-
arar undir stjórn Mörthu Sharp óp-
erusöngkonu og prófessors við Moz-
arteum-tónlistarháskólann í Salz-
burg í Austurríki.
Myndlist
DÍANA HRAFNSDÓTTIR SÝNIR í
SELINU Mvndlistamaðurinn Díana
Hrafnsdóttir sýnir yerk sín í Selinu
Gallerí Reykjavík, Óöinsgötumegin.
Sýningin ber yfirskriftina Undlr niöri
og eru verkin allt tréristur unnar á
þessu ári. í verkum sínum fjallar
Díana um einstaklingsbundna sýn
manna sem tengist eflaust
tilfinningum, persónu-leika og
þroska hvers og eins svo úr veröur
einhvers konar samspil.,Sumt er
augljóst en annaö virðist liggja dulið
undir yfirborðinu. Sýningin er opin
virka daga frá 13 til 18 og laugar-
daga frá 13 til 16. Henni lýkur 25.
ágúst.
MYNPLIST OG UÓÐ í LISTHÚSINU í
LAUGARDAL Þessa dagana sýnir
Anna Hrefnudóttlr, mynlistarkona
málverk og Ijóð I Llstacafé og
Veislugalleri. Á sýningunni eru
akrýlmálverk sem öll eru máluð á
þessu ári. Flest verkin voru gerð í
gestavinnustofu Gilfélagsins á
Akureyri sl. vetur en þar dvaldi Anna
í boði félagsins 1. janúar til 14.
febrúar og lauk þeirri dvöl með
sýningu í Deiglunni. Sýningin er opin
alla virka daga frá klukkan 9 til 19
og laugardaga frá klukkan 10 til 19.
Henni lýkur 31. ágúst
næstkomandi.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Visl.ls
Talið er að um og yfir fjörutíu
þúsund manns hafi tekið þátt í dag-
skrá menningarnætur sem fram fór
á laugardaginn. Verður það að telj-
ast nokkuð gott, ekki síst í ljósi þess
að veður var heldur leiðinlegt, rign-
ing og slagviðri. Menningarnótt var
nú haldin í sjötta sinn og var dag-
skráin fjölbreytt að venju. Tónlist-
armenn léku listir sínar um allan
bæ, jafnt inni á kafílhúsum og í
verslunum sem á götum úti. Hand-
verksmenn og listamenn opnuðu
smiðjur sínar og vinnustofur eða
fóru út á meðal fólksins. Dansglaðir
borgarbúar létu ekki veðrið halda
aftur af sér heldur dönsuðu dátt í
rigningunni og fengu fleiri í lið með
Kóngurinn lifir
Jósef „Presleyformaður Aðdá-
endaklúbbs Elvis Presleys á íslandi,
tók þátt í karaoke-keppni á svölum
Bankastrætis 11.
sér. Hápunktur hátíðahaldanna var
flugeldasýning á hafnarbakkanum
sem mörgum þótti að vísu ekki
komast í hálfkvisti við sýninguna í
fyrra.
Merkilegur kaöalspotti
Finnski ofurhuginn IIRO sýndi áhættuatriöi á hafnarbakkanum þar sem
honum tókst að leysa sig úr spennitreyju í áttatíu metra hæð. Á meðan
hann klæddi sig úr treyjunni brunnu böndin sem héldu honum og því reið
á aö vera snöggur. IIRO tókst að losa sig á elleftu stundu og var ákaft
fagnaö af áhorfendum á jörðu niðri. Hér skoöa nokkrir áhorfendur
brunna kaðalspottana sem héldu hetjunni.
Ung og glöö
Götur miðbæjarins fylltust af fólki þegar leið á kvöldið. Þetta þjóðrækna
unga fólk rakst Ijósmyndari á í Bankastrætinu.
Allir í kór
Fjöldi fólks lagði leið sína í Hafnarhúsiö til að hlusta á söng Karlakórs
Reykjavíkur.
Flugelda notiö á strætóskýli
Menningarnótt lauk með flugeldasýningu eins og hefð er fyrir. Var sýning-
in í ár þó hjóm eitt miðaö við herlegheitin í fyrra.