Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001
I>V
Fréttir
Heilbrigðisnefnd og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands:
Enn hörð átök um
tjáningarfrelsi
- heilbrigðisnefnd beinir spjótum sínum að framkvæmdastjóranum
Heilbrigöisnefnd Suöurlands hefur
kraflð Matthías Garðarsson, fram-
kvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands, skriflegra skýringa
vegna ummæla sem hann lét falla í
viðtali við DV 25. maí sl. Nefndin hef-
ur tekið málið upp á tveimur síðustu
fundum sínum eftir að viðtalið birt-
ist. Þá hefur hún boðað fram-
kvæmdastjórann á fund þótt hann sé
í veikindaleyfi þar til í haust. í fund-
argerð nefndarinnar er bókað án
frekari skýringa aö hann hafi ekki
mætt á fundinn. Nefndin ákvað að ít-
reka fyrrnefnd bréf til hans. Annaö
var fært í „trúnaðarmálabók,“ að því
er fram kemur í fundargerð.
Þessi krafa nefndarinnar á hend-
ur framkvæmdastjóra Heilbrigðis-
eftirlits Suðurlands er nýr kafli í
langri baráttusögu er varðar tján-
ingarfrelsi heilbrigðisfulltrúanna á
Suðurlandi i fjölmiölum.
Upphafið má rekja til þess er
campylobacter gaus upp árið 1999.
Heilbrigðisfulltrúarnir fóru þá í eft-
irlitsferð að kjúklingabúinu að Ás-
mundsstöðum, þar sem mest mæld-
ist 80 prósent campylobacter í
kjúklingum. Upplýsingar úr skýrslu
heilbrigðisfulltrúanna, sem send
var fjölmörgum stofnunum, fóru í
fjölmiðla. I kjölfarið máttu fulltrú-
arnir sæta lögreglurannsókn, auk
þess sem heilbrigðisnefndin bað
umhverfisráðuneytið að athuga
starfshætti þeirra. Niðurstöður
urðu þær að heilbrigðisfulltrúamir
reyndust hafa farið rétt að í einu og
öllu varðandi samskipti við fjöl-
miðla.Heilbrigðisnefnd fékk einnig
ráðgjafarstofuna KPMG til að gera
úttekt á starfsemi heilbrigðiseftir-
Seinni hálfleikur
Langvinnur málarekstur heilbrigöisnefndar Suöurlands á hendur heilbrigöis-
fuiltrúum var hafinn þegar DV birti viötal viö Birgi Þóröarson um umgengni á
Suöurlandi vegna átaksverkfnisins „Fegurri sveitir 2000“. í kjölfar þess viö-
tals hófst „seinni hálfleikur“ sem stendur enn.
litsins, auk þess sem nefndin hefur
verið með sérstakan lögfræðing í
málinu.
Seinni hálfleikur hófst með því að
DV tók viðtal við Birgi Þórðarson
heilbrigðisfulltrúa í tengslum við
átaksverkefni landbúnaðarráðherra
„Fegurri sveitir 2000“. Birgir hvatti
þá m.a. fólk tU að taka sig á og
ræddi þátt heUbrigðiseftirlitsins í
átakinu. Heilbrigðisnefndin gagn-
rýndi að hann hefði veitt viðtalið án
samráðs við Matthías Garðarsson,
framkvæmdastjóra heilbrigðiseftir-
litsins. Óskaði nefndin „skýringa
Birgis Þórðarsonar á tilurð um-
ræddrar fréttar". í kjölfarið fjallaði
nefndin um málið á hverjum ein-
asta fundi og bókaði um síendur-
teknar bréfaskriftir tU heilbrigðis-
Vill ekki
tjá sig.
Matthias
Spjótin beinast
nú aö honum.
fulltrúans og
kröfur sínar um
skýringar frá
honum. Loks sá
heUbrigðisfuUtrú-
inn þann kost
einan í stöðunni
að leita tU stéttar-
félags slns og lög-
manns þess um
aðstoð vegna
„stöðugs áreitis"
nefndarinnar.
í viðtali við DV 25. maí sl. lýsti
Matthías Garðarsson framkvæmda-
stjóri yfir fullum stuðningi við Birgi
Þórðarson í þessu umrædda máli.
Þaö varð til þess að heilbrigðis-
nefndin beindi spjótum sínum að
honum með ítrekuðum kröfum um
skriflegar skýringar á umræddu
viðtali.
DV hafði samband við Heimi Haf-
steinsson, formann heUbrigðis-
nefndar, tU að spyrja hann um þetta
mál. Heimir kvaðst ekki ræða þetta
frekar við blaðamann DV og skellti
svo tvívegis á. Varaformaöur nefnd-
arinnar, Svanborg Egilsdóttir, vís-
aöi DV á Heimi þegar haft var sam-
band viö hana. -JSS
Átakafundur hjá stjórn Sjómannasambandsins:
Konráð gekk á dyr
- formaður SR segir hann hættan
„Konráð gekk
af fundi og tU-
kynnti okkur sem
eftir sátum að
hann myndi sjá
okkur á næsta
sjómannasam-
bandsþingi. Það
er ekki fyrr en
eftir rúmlega ár
þannig að ég lít
svo á að hann sé
hættur í stjóm Sjómannasambands-
ins,“ segir Jónas Garðarsson, gjald-
keri Sjómannasambands íslands og
formaður Sjómannafélags Reykja-
víkur, sem segist líta svo á að Kon-
ráð Alfreðsson, formaður Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar, hafi hætt
sem varaformaður Sjómannasam-
bandsins á fundi sambandsstjómar-
innar sl. fostudag.
Frá því í vor hefur andað köldu
mUli formanna sjómannafélaganna
í Reykjavík og í Eyjafirði. Eyfirð-
ingamir voru ekki samstiga öðrum
félögum þegar gripið var til aðgerða
í kjölfar lagasetningar á sjómenn og
í kjölfarið viðhafði Jónas Garðars-
son stór orð um Eyfiröingana og
sagði þá m.a. hafa svikist undan
merkjum. í kjölfariö lýsti Konráö
yfir að framkvæmdastjóm Sjó-
mannasambandsins væri óstarfhæf
og hann hefur fyrir hönd Eyjafjarð-
arfélagsins margkrafist afsökunar-
beiðni frá Reykvíkingunum.
„Ég gekk út af fundinum eftir
smáorðasennu inni í stjórninni, en
ég þarf að ná stjórn Sjómannafélags
Eyjafjarðar saman áður en ég get
farið að ræða þetta mál að ráði í
fjölmiðlum," seg-
ir Konráð. Hann
segir að fleiri en
þeir Jónas hafi
tekið til máls á
fundinum og tjáð
sig um deUuefnið.
„Ég get þó sagt að
ég skil ekki
hvernig Jónas
getur fundið það
út að ég sé hættur
sem varformaður Sjómannasam-
bandsins sem er fjarstæða, Ég hef
ekki sagt mig úr sambandsstjórn-
inni og ekki sagt af mér varafo-
mennsku.
Ég er enn þá þama inni, það er
morgunljóst að það hefur engin
breyting oröið á því. Málið er hins
vegar mjög alvarlegt og þær ásakan-
ir sem Sjómannafélag Reykjavíkur
hefur borið á hendur mér og Sjó-
mannafélagi Eyjafjarðar eru þess
eðlis að við sættum okkur ekkert
við þær og ætlum ekki að sitja und-
ir þeim,“ segir Konráð.
„Ég ætla ekki að biðjast afsökun-
ar á því að hafa álit á því að þeir
gengu úr skaftinu í kjarasamning-
unum og drógu samningsumboð sitt
til baka frá Sjómannasambandinu.
Ég held reyndar að margir fleiri
hafi sama álit á því og ég en hafi
viljað tjá sig um það,“ segir Jónas.
Hann sagði aðspurður hvort hann
heföi stuðning innan stjómar Sjó-
mannasambandsins að þetta mál
komi Sjómannasambandinu ná-
kvæmlega ekkert viö. „Þetta eru
engar deilur innan sjómannasam-
bandsins," segir Jónas. -gk
Konráð
Alfreðsson.
Kynnisferðir sf. hafa starfað án ferðaskrifstofuleyfis:
Sóttu um leyfi að
tilskipun ráðuneytis
- eftir að ábendingar höfðu borist frá samkeppnisaðila
skrifstofu íslands,
Kynnisferðir sf.
hafa sótt um ferða-
skrifstofuleyfi til
samgönguráðuneyt-
isins, að kröfu hins
síðarnefnda. Það
var keppinautur
ferðaskrifstofunnar
sem vakti athygli
ráðuneytisins á að
þær væru reknar
án ferðaskrifstofu-
leyfis eða ferða-
skipuleggjendaleyf-
is. Ábendingin
leiddi til þess að
ráðuneytið skrifaði
Kynnisferðum og
tilkynnti að ferða-
skrifstofunni bæri
Leyfisleysi
Kynnisferðir sf. hafa starfað án
feröaskrifstofuleyfis en hafa nú
sótt um leyfí skv. tilskipun sam-
gönguráöuneytisins.
að sækja um
slíkt leyfi samkvæmt lögum. Að
sögn Guðbjargar Ársælsdóttur hjá
samgönguráðuneytinu er nú beðið
eftir mati á því hversu háa trygg-
ingu ferðaskrifstofan þurfi að hafa
til að hægt sé að gefa leyfið út.
Það var í byrjun þessa árs sem
Allrahanda ehf. gerði fyrirspurn til
samgönguráðuneytisins um hvort
Kynnisferðir sf. væru með ferða-
skrifstofuleyfi. I kjölfarið fylgdu
bréfaskriftir milli ráðuneytisins og
Kynnisferða þar sem í ljós kom að
þær voru ekki með tilskilin leyfi að
mati ráðuneytisins.
í skýringum forsvarsmanna
Kynnisferða kom fram að ferða-
skrifstofan væri sameignarfélag
fimm félaga sem öll væru með ferða-
skrifstofuleyfi, þ.e. Flugleiða, Ferða-
Samvinnuferða
Landsýnar, Ferða-
skrifstofu BSÍ og
Ferðaskrifstofunnar
Atlantik. Því væri
litið svo á að Kynn-
isferðir hefðu í raun
fimm ferðaskrif-
stofuleyfi til að
byggja ábyrgðir sín-
ar á. Frá stofnun
fyrirtækisins 1968
hefði það verið
skilningur sam-
gönguráðuneytisins
að leyfi eigenda
nægði fyrir ábyrgð-
um.
Guðbjörg sagði við DV að upp-
runalega hefði ráðuneytið litið svo á
að um væri að ræða kynnisferðir of-
angreindra ferðaskrifstofa sem allar
hefðu verið með leyfi. Síðan hefði
fyrirtækiö aukiö starfsemina, orðið
sjálfstæðara en áður og fengið sér-
staka kennitölu. í timans rás hefði
það tekið þeim breytingum að lög-
fræðingur ráðuneytisins hefði talið
að því bæri að sækja um leyfi.
„Það má kannski segja að 1999,
þegar síðasta breytingin varð á
ferðamálalögunum, hefðum við átt
aö taka viö okkur og benda þeim á
að þær þyrftu leyfi,“ sagði Guð-
björg. „En þær gengu strax í að
sækja um þegar ráðuneytið hafði
bent þeim á að það bæri þeim að
gera samkvæmt gildandi lögum.“
-JSS
ii'fy.nww
Umsjón: Birgir Guðmundsson
„Kauði" fundinn?
Sjónvarpið sýndi á sunnudagskvöld
þátt úr þáttaröðinni „Fréttir aldarinn-
ar“og var fjallað um Geirfinnsmálið.
Ólafur Jóhannesson, þáverandi dóms-
málaráðherra, flutti
fræga ræðu á Al-
þingi og sneri vörn
í sókn, en mjög
hafði verið sótt að
honum og hann
ásakaður um að hafa
haft óeðlileg afskipti
af rannsókn Geir-
fmnsmálsins. í ræðu sinni minntist
Ólafur á „kauða“ í fyrsta sinn, og sagð-
ist hann hafa grun um hver sá væri:
„það væri ekkert slæmt að leiða þann
kauða fram í dagsljósið, hann hefði
kannski eitthvað á samviskunni", sagði
Ólafur og leit upp í blaðamannastúk-
una i Alþingishúsinu. Eins og greini-
lega kom fram á myndskeiði í þættin-
um á sunnudagskvöld sátu þar þá tveir
ungir þingfréttamenn, þeir Davið
Oddsson og Alfreð Þorsteinsson.
Munu þeir hafa orðið mjög undrandi á
þessu en skýringin kom fljótlega í ljós,
því þingpallar höföu fyllst og fólk því
troðið sér inn í blaðamannastúkuna.
Þegar þeir félagar Alfreð og Davíð fara
að skima í kringum sig kom í ljós að
tollvörðurinn frægi, Kristján Péturs-
son, stóð fyrir aftan þá en hann hafði
beitt sér mjög í Geirfinnsmálinu. Telja
menn að þar hafi verið komin skýring-
in á augnagotum dómsmálaráðherra ...
Krækjur
í pottinum hafa orðiö talsverðar um-
ræður um klámið á Netinu í kjölfar
frétta af heimasíðunni hjá Bleiku og
bláu og raunar fleiri síðum líka. Aug-
ljóst er að frétta-
flutningurinn af
þessu klámefni hef-
ur vakið meiri at-
| hygli á því en nokk-
uð annað því fúllyrt
er að heimsóknum á
heimasíðu Bleiks og
blás hafi fjölgað gríð-
arlega eftir fréttimar í útvarpinu og
fyrstu dagana á eftir hafi þessar heim-
sóknir orðið um 30 þúsund talsins. í
ljósi tals um „klámkrækjur" á vefsíðum
velta menn nú fyrir sér hentugu orði
yfir þær þá hljóörænu krækjur sem
RÚV setti á heimasíðu Bleiks og blás ...
Menningarfulltrúi
Það er alltaf líf og fjör í menning-
arpólitíkinni á Akureyri og nú er far-
in af stað umræða um hver kunni að
verða næsti menningarfulltrúi Akur-
eyrarbæjar en ljóst
þykir að Ingólfur
Ármannsson, nú-
verandi menningar-
fulltrúi, muni hætta
fyrir aldurs sakir
um eða upþ úr ára-
mótum. Helgi Vil-
berg, skólastjóri
Myndlistarskólans á Akureyri, skrifar
mikla grein um þetta mál á vefsíðu
sína akureyri.to fyrir skömmu og þar
telur hann líkur á að í það minnsta
tveir menn muni sækjast eftir stöð-
unni, en það eru Þröstur Ásmunds-
son, sem er formaður menningar-
málanefndar bæjarins, og svo hins
vegar Þórgnýr Dýrfjörð sem er
menningarsinnaður framkvæmda-
stjóri búsetu- og öldrunardeildar bæj-
arins...
Himnagrátur
Það var fátt sem spillti góða skap-
inu hjá Reykvíkingum á menning-
arnótt og fæstir létu veðrið eða smá-
vægileg tæknileg at-
riði slá sig út af lag-
inu. Þannig lýsti
Ingibjörg Sólrún því
yfir að samsöngurinn
með Garðari Cortes
hefði verið hápunktur
kvöldsins þrátt fyrir
smávægilega óþekkt í
hátalarakerfinu. Einn pottverja
heyrði annan borgarfulltrúa tala um
að .jafnvel himnarnir grétu af gleði“,
en nokkur rigning var á stundum.
Þessi síðasta orðræða er raunar fengi
að láni frá Helga Hjörvar sem lýsti í
útvarp hátíðahöldum á Þingvöllum
1944 og mátti vegna stríðsins ekki
segja hvemig veðrið var ...