Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Blaðsíða 4
20 MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002 Sport Stór hópur íslendinga fór til Stokkhólms og lét vel í sér heyra. DV-mynd Pjetur F]arvera Patreks veikti íslendinga - sagði þjálfari Dana eftir leikinn „Ég er með ungt lið í höndunum og þetta er lið framtíðarinnar. Það er frábær andi innan vallar sem utan og það skilar sér i leikinn sjálf- an. Minir strákar sýndu hvers þeir voru megnugir og ég er stoltur af þeim. Fjarvera Patreks Jóhannes- sonar veikti íslenska liöið mikið í þessum leik. Á því er ekki nokkur vafi í mínum huga,“ sagði Torben Winther, landsliðsþjálfari Dana, eft- ir leikinn við íslendinga. Stuðningurinn ómetanlegur „Ég hefði að sjálfsögðu viljað fara lengra í keppninni en á hitt ber að líta að fjórða sætið er frábær árang- ur. Þó þetta hafi verið endasleppt í lokin þá má ekki gleyma því að ár- angurinn í heildina er mjög góður. Þessir strákar eru til sóma og mikil fyrirmynd,“ sagði Guðmundur Á. Ingvarsson, formaður HSÍ, í samtali við DV-Sport eftir keppnina í gær. „Það er mikil og björt framtíð með þetta lið. Þessir strákar eiga eftir að leika á alþjóðlegum mótum næstu árin. Við erum þegar búnir að tryggja okkur inn á Evrópumótið 2004 en nú liggja fyrir leikimir við Makedóníu fyrir forkeppni að heimsmeistaramótinu. Við eigum að klára það, liðið er tiltölulega ungt og meö mikla og dýrmæta reynslu að baki.“ Erum hrærðir „Við erum bara hrærðir að heyra frá þessum mikla stuðningi að heiman og stoltir að sjá hvað þjóðin er búinn að styðja vel viö bakið á handboltanum. Við höfum fengiö já- kvæða umfjöllun og stuðningurinn hefur verið ómetanlegur. Stuðning- urinn gerir okkur það kleift að styðja betur við öll landsliðin en áður. Árangurinn og umOöllunin hefur kveikt áhuga hjá ungviðinu sem er stórt atriði í okkar huga,“ sagði Guðmundur Ingvarsson. -JKS Sigfús Sigurösson lék mjög vel í íslensku vörninni og einnig stóö hann sig mjög vel í sókn - einn besti leikmaöur íslenska liösins í keppninni. DV-mynd Pjetur ái 900 þúsund til íslands DV, Stokkhólmi: Frammistaða íslenska liðsins á EM skilaði Handknattleikssam- bandi íslands 900 þúsund krónum í verðlaunafé. Ekki mun af veita því fjárhagur HSl hefur lengi verið bágborinn. Nú sést hins vegar til sólar í fyrsta skipti um langan tíma í fjármálun- um. Þess má geta að Svíar fengu 3,6 milljónir króna fyrir sigurinn á mótinu, Þjóðverjar 1,8 milljónir króna og Danir og Islendingar 900 þúsund krónur hvor þjóð. -SK/-JKS „Hræðileg tilfinning“ DV, Stokkhólmi: „Þetta er alveg hræðileg tilfinn- ing, að vera með þetta tækifæri og ná því ekki,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson við DV-Sport eftir leik- inn. - Hvaða breyting verður á lið- inu frá leikjunum í Globen og í riðlakeppninni þar á undan? „Þetta er góð spurning. Við nýttum ekki færi okkar í leikjun- um í Stokkhólmi eins vel og í riðl- unum. Viö létum markmennina verja mikið frá okkur og það var stór partur af því að við náðum ekki að vinna leikina við Svía og Dani. Fjórða sætið er gott en við hefðum viljað fara lengra," sagði Guðjón Valur. Getum verið mjög stoltir „Þaö var mjög sárt að tapa þess- um leik við Dani en mér fannst við hænufeti frá því að ná tökum á leiknum í síðari hálfleik eftir að við náðum að jafna. Því miður gekk það ekki. Menn eru eitthvað þreyttir en hin liðin eru jafnþreytt. Sóknarleik- ur bregst og margir aðrir þættir og vömin er langt frá því að vera eins sterk og áður,“ sagði Rúnar Sig- tryggsson. „Þegar frá líður og maður er bú- inn að sofa eina nótt er vel hægt aö vera stoltur með fjórða sætið. Það segir okkur að við erum fjórða sterkasta þjóðin i heimi í dag. Allar bestu þjóðimar eru í Evr- ópu og þá er ekkert annað að gera en halda áfram á sömu braut,“ sagði Rúnar. -JKS eur2o Ísland-Danmörk 22-29 (11-13) Leikmenn: Skot/Mörk 1 9 m Lina Hom Gbr. Hrað. Viti Sigfús Sigurðsson 9/6 67% 8/5 1/1 Ólafur Stefánsson 14/5 36% 11/3 2/2 1/0 Einar Örn Jónsson 3/3 100% 3/3 Ragnar Óskarsson 7/3 43% 5/1 1/1 1/1 Dagur Sigurðsson 9/3 33% 7/2 1/0 1/1 Rúnar Sigtryggsson 2/1 50% 2/1 Guðjón V. Sigurðsson 4/1 25% 1/0 2/1 1/0 Gunnar B. Viktorsson 2/0 0% 2/0 Gústaf Bjamason 2/0 0% 2/0 Aron Kristjánsson Halldór Ingólfsson Róbert Sighvatsson 1/0 0% 1/0 Samtals 53/22 42% 27/6 11/7 5/1 5/4 4/4 1/0 Markverðir Skot/Varin 9 m Lina Hom Gbr. Hrað. Viti Guðmundur Htafnkels. 37/9 24% 11/5 12/2 4/0 4/0 4/1 2/1 Bjarni Frostason 1/0 0% 1/0 Markverðir, samtals 38/9 24% 11/5 12/2 4/0 4/0 4/1 3/1 Leikstaóur og dagur: Stokkhólmur. 3. febr. Dómarar (1-10): Vakula og Ljudowik frá Úkraínu (7). Gœdi leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 12.076 Stoflsendingar FLskuð Tapaðir Stolnir Fráköst Fiskaðar (inn á línu) víti boltar boltar Varin (i sókn) 2 min 2 min 0 5(3) 0 2(2) 3(1) 1 1(1) 1 (0) 0 0 0 1(1) 1-0, 1-2, 2-2, 2-4, 3-4, 3-5, 5-6, 5-9, 8-9, 8-10, 9-11, 10-12, 11-12 (11-13), 12-13, 12-14, 13-15, 15-15, 15-17, 16-18, 18-19, 18-21, 19- 21, 19-23, 20-23, 20- 25, 21-25, 21-28, 22-28, 22-29. Sóknarnýting Fyrri hálfleikur: ísland (25/11 - 3 tapaðir) .44% Danmörk (24/13 - 4 tapaðir) . .. 54% Seinni hálfleikur: ísland (28/11 - 6 tapaðir) .39% Danmörk (29/16 - 3 tapaðir) ... 55% Samtals: Island (53/22 - 9 tapaðir) .42% Danmörk (53/29 - 7 tapaðir) . . . 55% 4(1) 0 2(2) 0 0 13 (6) 1 9 4 5 9 (5) 12 10 Skotum Skottil Stoðsendingar Tapaðir Stolnir Fráköst haldið mótheria (inn á linu) boltar boltar (í sókn) 2 min 3 3 0 0 0 2 (0) 0 0 0 0 0 0 0 0 3 3 0 0 0 2 (0) 0 Danmörk: Mörk/viti (skot/viti): Lars Krogh Jeppesen 7 (13), Michael Knudsen 6 (8), Lars Christiansen 4/2 (5/2), Joachim Boldsen 3 (5), Sören Stryger 2 (3), Claus Flensborg 2 (3), Lars Jargensen 1 (1), Torsten Laen 1 (2), Klavs Bruun Jergensen 1 (4), Claus Jakobsen 1 (5), Lasse Boesen (1). Varin skot/viti (skot á sig): Michael Bruun Pedersen 24/1 (46/1, 52%, hélt 10, sjö til mótherja) Mörk úr hraðaupphlaupum: 3 (Stryger 2, Jeppesen). Vitanýting: Skorað úr 2 af 3. Maður leiksins hjá DV-Sporti: Michael Bruun Pedersen

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.