Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2002, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2002, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 4. MARS 2002 23 Sport ^ Hörð toppbarátta í 1. deild kvenna í körfuknattleik: - eftir tvo sigra á KFÍ í Jakanum á ísafirði um helgina ÍS náði um helgina tveggja stiga forystu í 1. deild kvenna í körfuknattleik með tveimur mjög ólíkum sigrum á KFÍ í Jakanum á ísafirði. Ólík eru hlutskipti liðanna tveggja því á meðan ÍS trónir á toppnum féll KFÍniður í 2. deild með tapinu í fyrri leiknum. í þeirra stað koma Haukastúlkur sem tryggðu sér sigur í 2. deild fyrir skömmu. KFÍ-ÍS 52-59 ÍShafði góð tök á leiknum á fostudagskvöldið og hafði 12 stiga forystu á leikhléi, 35-23. Sá munur jókst síðan í 17 stig, 49-32, þegar þriðja leikhluta var lokið. Stúkumar í KFÍvoru þó ekki á þeim buxunum að gefast upp og komu tvíefldar til leiks í fjórða leik- hluta. Þær skoruðu 11 af fyrstu 13 stigum leikhlutans og þegar hálf mínúta var eftir höfðu þær minnk- að muninn niður í fimm stig, 55-50. Nær komust þær þó ekki og ÍS- stúlkur unnu sigur, 59-52. Sigríöur Guðjónsdóttir átti mjög góðan leik í liði KFÍ og þær Tinna Sigmundsdóttir og Anna Sigur- laugsdóttir léku einnig vel. Hjá ÍS tók Alda Leif upp þráöinn þar sem frá var horfið í síðasta leik gegn KFÍog skoraði 19 stig í fyrri hálfleik. Hún hægði á sér eftir hlé en þá tók Hafdís Helgadóttir við og skoraði 8 af 11 stigum sínum í 3. leikhluta. Alda Leif og Hafdís voru bestar í liði ÍS ásamt Jófríði Hali- dórsdóttur sem átti skínandi góðan leik þrátt fyrir að hafa ekki skorað stig i leiknum. Stig KFÍ: Sigríður Guðjónsdóttir 18 (12 fráköst, 6 í sókn), Tinna Björk Sigmundsdóttir 12 (4 stoösending- ar), Anna Sofiía Sigurlaugsdóttir 10 (6 stolnir, 5 fráköst), Stefanía Ás- mundsdóttir 8 (9 fráköst, 6 í sókn, 3 varin), Sara Pálmadóttir 2, Helga Salóme Ingimarsdóttir 2. Stig ÍS: Alda Leif Jónsdóttir 21 (19 stig í fyrri hálfleik, 5 stoðsending- ar), Hafdís Elín Helgadóttir 11 (hitti 5 af 8 skotum), Stefla Rún Kristjáns- dóttir 6, Lovisa Aðalheiður Guð- mundsdóttir 5 (7 fráköst, 5 varin skot), Svandís Anna Sigurðardóttir 4 (5 fráköst á 8 mínútum), Kristín Rós Kjartansd’óttir 4, Guðríður Svana Bjarnadóttir 4, Steinunn Dúa Jónsdóttir 2, Þórunn Bjarnadóttir 2, Jófríður Halldórsdóttir (8 fráköst, 6 stoðsendingar). KFÍ-ÍS 29-67 Það var ljóst frá upphafi að ÍS- stúlkur ætluðu sér ekki að lenda i sömu vandræðum og í fyrri leikn- um. Þær náðu forystu í upphafi leiks og juku hana jafnt og þétt það sem eftir lifði leiksins. ÍS leiddi með 21 stigi í hálfleik, 36-15. Fyrir ÍS-liðið fór fremst í flokki, fyrirliðinn Hafdís Helgadóttir sem fann sig vel á fjölunum í Jakanum á ísafirði um helgina. Hún skoraði 20 stig á 23 mínútum í seinni leiknum og nýtti alls 61% skota-sinna í leikj- unum tveimur. Auk Hafdísar áttu Þórunn Bjarnadóttir og Alda Leif Jónsdóttir góðan leik. Með fjórðu stoðsendingu sinni í leiknum varð Alda Leif fyrsti leikmaðurinn í efstu deild kvenna á Islandi til að senda 100 stoðsendingar á einu timabfli. Hún var einnig einni stoðsendingu frá þessu afreki árið 1999. Það var fátt um flna drætti í liði KFÍ í seinni leiknum. Stefanía Ásmundsdóttir átti þó þokklegan dag en spilaði sjálfa sig út úr leiknum með því að fá þrjár klaufalegar villur á sig í röð í byrjun seinni hálfleiks. ÍS-stúlkur urðu fyrir áfalli þegar Stella Rún Kristjánsdóttir meiddist á hné þeg- ar sjö mínútur voru búnar af seinni leiknum en óvíst er hversu alvarleg meiðslin eru. Cecile Larsson var ekki með ÍS um helgina vegna anna við próflestur. Stig KFÍ: Stefania Ásmundsdóttir 14 (7 fráköst, 3 varin), Tinna Björk Sigmundsdóttir 6, Sigríður Guðjóns- dóttir 4, Anna Sigurlaugsdóttir 3, Berglind Ingvarsdóttir 1, Fjóla Ei- ríksdóttir 1. Stig ÍS: Hafdís Elín Helgadóttir 20 (7 fráköst á 23 mínútum, hitti 9 af 15 skotum), Alda Leif Jónsdóttir 16 (7 fráköst, 5 stoðsendingar), Jófriður Halldórsdóttir 10 (6 fráköst), Stein- unn Dúa Jónsdóttir 7, Þórunn Bjarnadóttir 6 (6 stoðsendingar, 5 fráköst), Lovísa Aðalheiður Guð- mundsdóttir 5 (8 fráköst, 6 stoðsend- ingar), Stella Rún Kristjánsdóttir 2, Guðríður Svana Bjarnadóttir 1 (4 stolnir), Kristín Rós Kjartansdóttir (9 fráköst). Næsti leikur ÍS gegn KR í Iþrótta- húsi Kennaraháskólans er úrslita- leikur um deildarmeistaratitilinn. Þessi leikur er gífurlega mikilvæg- ur fyrir bæði lið en þó sérstaklega ÍS því liðið getur kliflð sálfræðilegt fjall með sigri gegn KR. ÍS hefur nú unnið flmm leiki í röð í defldinni í þriðja sinn í vetur en aldrei náð að vinna sjötta leikinn. -ósk/ÓÓJ Hafdís Helgadóttir lék mjög vel meö ÍS í tveimur sigurleikjum gegn KFÍ í 1 deild kvenna í körfuknattleik um helgina. Stórskotahríð hjá KR Það var sóknarleikurinn sem var í fyrirrúmi þegar KR fékk Grinda- vík í heimsókn í 1. deild kvenna á laugardag. KR sigraði 106-72 og ekki oft sem svona tölur sjást í deildinni á milli tveggja góðra liða. KR byrjaði vel en Grindavík kom til baka eftir leikhlé og var staðan 14-13 þegar vel var liðið á fyrsta leikhluta en þá skildu leiðir og var staðan orðin 34-15 um miðjan ann- an leikhluta. KR spilaði góðan sóknarleik og var hittnin góð. Það skipti engu máli hvort Grindavík spilaði mað- ur á mann vöm eða svæðisvöm, alltaf fundu KR-stelpur leiðina að körfunni. Grindavík missti Sigríði Önnu Ólafsdóttur út af strax i byrj- un seinni hálfleiks en hún er eini leikmaður liðsins sem spilar inni í teig. Eftir það var þetta nánast von- laust hjá Grindavík og forskot KR breikkaði hægt og bítandi. Hjá KR var liðsheildin sterk og allir leikmenn liðsins að spila vel. Guðbjörg, Gréta og Helga hittu nánast úr hverju skoti og Kristín og Hildur skiluðu sínu. Keith Vassell notaði erlendan leikmann sinn, Carrie Cofiman, lítið að þessu sinni og spilaði hún einungis 14 mínútur og hafði engin áhrif á gang mála. Hjá Grindavik var Cindy Johnson langbest en hún var samt lengi í gang. Stig KR: Guðbjörg Norðfjörð 22, Helga Þorvaldsdóttir 21 (10 fráköst), Gréta Grétarsdóttir 20 (10 fráköst, 4 stoðsendingar), Hildur Sigurðar- dóttir 17 (10 fráköst, 6 stoðsendingar), Kristín Jónsdóttir 11, Carrie Cofíman 9, Linda Stef- ánsdóttir 4 (4 stolnir), Guðrún Sig- urðardóttir 2. Stig Grindavíkur: Cindy Johnson 29 (9 fráköst, 4 stoðsendingar, 2 var- in), Sólveig Gunnlaugsdóttir 10 (2 varin), Sigríður Anna Ólafsdóttir 8, Petrúnella Skúladóttir 8, Erna Magnúsdóttir 6 (7 stolnir), Jovana Stefánsdóttir 6, Sandra Guðlaugs- dóttir 3, Rut Ragnarsdóttir 2. -Ben Loks sigur hjá Keflavík Keflavík bar sigurorð af Njarð- vík, 86-70, í Njarðvík á laugardag- inn í 1. deild kvenna í körfuknatt- leik og batt þar með enda á þriggja leikja taphrinu liðsins sem er sú lengsta í ellefu ár. Helga Jónas- dóttir skoraði 16 stig fyrir Njarð- vík og Díana Jónsdóttir og Pálína Gunnarsdóttir skoruðu 14 stig hvor. Kristín Blöndal skoraði 20 stig fyrir Keflavík, Erla Þorsteins- dóttir skoraði 14 stig og Theodóra Káradóttir skoraði 13 stig. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, sagði eftir leikinn að hugarfar sinna stelpna hefði verið aflt annað heldur en gegn KR um síðustu helgi. -ósk Bland i P oka Ausíurriski skidakappinn Stefan Eberharter tryggði sér um helgina sigur í risasvigi í heimsbikarnum í alpagreinum þrátt fyrir að hafna að- eins í þriðja sæti í risasvigskeppn- inni i Kvitfjell í Noregi. ítalinn Alessandro Fattori var fljót- astur allra í Noregi. Hann var 20/100 úr sekúndu á undan Svisslendingn- um Didier Defago en Eberharter kom síðan í þriðja'sæti 24/100 úr sekúndu á eftir Fattori. Eberharter varð tveimur sætum á undan Norðmanninum Kjetil Andre Aamodt en hann var sá eini sem gat náð Eberharter að stigum. Lennart Johansson, forseti Knatt- spymusambands Evrópu, segir að Sepp Blatter, forseti Alþjóða knatt- spymusambandsins, muni þurfa að svara til saka fyrir ásaknir um mút- ur í sambandi við forsetakosningar sambandsins árið 1998 þegar Blatter vann einmitt Johansson óvænt. „Það þýðir ekkert að stinga höfðinu í sandinn og láta eins og ekkert sé. Þaö verður aö fá þessi mál á hreint og Blatter hlýtur að geta skýrt þetta út,“ sagði Johansson sem neitaði því jafn- framt að hann stæði á bak við ásak- anirnar um múturnar. Magdeburg hefur framlengt samn- inginn við rússneska leikstjómand- ann Oleg Kuleschow um eitt ár en samningur hans við félagið átti aö renna út í júni. Kuleschow hefur lítið sem ekkert leikið með Magdeburg á þessu tímabili og hefur fjarvera hans veikt lið Alfreös Gíslasonar og Ólafs Stefánssonar. Gunnar Berg Viktorsson skoraði sex mörk fyrir Paris St. Germain sem vann Nimes, 27-25, í frönsku 1. deild- inni í handknattleik um heigina. Rússneska stangarstökkskonan Svetlana Feofanova setti enn eitt heimsmetið í stangarstökki innan- húss þegar hún vippaði sér yfir 4,75 metra á Evrópumeistaramótinu inn- anhúss í Vín í gær. Feofanova hefur verið iðin við að setja heimsmet á undanförnum vikum. Siguróur Bjarnason lék ekki meö Wetzlar þegar liöið gerði jafntefli, 25-25, gegn Eisenach í þýsku 1. deild- inni í handknattleik á föstudaginn. Hilde Gerg varð í dag heimsbikar- meistari 1 risasvigi kvenna eftir aö móti sem átti að fara fram í Sviss í dag var frestað. Helsti keppinautur Gerg um titilinn, Renate Götschl, varð fyrir því óláni að fótbrjóta sig í brunkeppninni i gær og getur ekki keppt út tímabilið. -ósk 1. DEILD KVENNA ls 19 15 4 1311-1014 30 KR 19 14 5 1394-1058 28 Keflavík 18 11 7 1235-1168 22 Grindavík 19 11 8 1325-1327 22 Njarðvík 19 4 15 1102-1416 8 KFÍ 18 1 17 930-1314 2 Næstu leikir fara fram 8. og 9. mars en þá mætast Keflavík og KFÍ í tveimur leikjum á ísafirði. Fyrri leik- urinn fer fram á föstudaginn kl. 19 en sá séinni á laugardaginn kl. 13. Mánudaginn 11. mars mætast síðan ÍS og KR í fþróttahúsi Kennarahá- skólans og hefst sá leikur, sem er úr- slitaleikur um deildarmeistaratitil- inn, kl. 20.15. -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.