Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Blaðsíða 4
Fréttir
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002
DV
Verkalýðsforystan vill skjót viðbrögð gegn fátækt:
Tenging bóta við
launaþróun í skoðun
- segir ráðherra - atvinnuuppbygging affarasælust, segir Vilhjálmur Egilsson
Vaxandi fátækt á íslandi var
áberandi umræðuefni i hátíðarræð-
um á alþjóðadegi verkalýðsins, 1.
maí. Var m.a. harðlega gagnrýnt að
stöðugt væri verið að hygla þeim
sem betur mega sín á kostnað hins
almenn launþega. Sjöfn Ingólfsdótt-
ir, formaður Starfsmannafélags
Reykjavíkur, sagði m.a. á útifundi á
Lækjartorgi að það væri ekki sæm-
andi fyrir samfélagið að fólk á Is-
landi gæti ekki leitað sér lækninga
vegna fátæktar.
Ekki nóg að gert
Ögmundur Jónasson, alþingis-
maður Vinstri grænna og formaður
BSRB, segir að stjómvöld séu síður
en svo að gera þaö sem hægt er til
að vinna gegn fátækt á íslandi. Það
eitt að efna þurfti til sérstakrar ráð-
stefnu, sem sýndi að yfir 10 þúsund
manns falla undir þá skilgreiningu
að teljast fátækir hér á landi, segi
sína sögu.
„Þetta eru samt blákaldar stað-
reyndir. Það þarf ekki mjög reikn-
ingsglöggan mann til að sjá það t.d.
að fólk með um eða undir 70 þúsund
krónum i tekjur á mánuði getur
ekki framfleytt sér. Af þessu þarf
m.a. að greiða húsaleigu, fram-
Ögmundur Jón
Jónasson. Kristjánsson.
færslu og lækniskostnað. Það sjá
allir að dæmið gengur ekki upp.
Það þarf skjót viðbrögð, m.a. með
verulegri hækkun bóta almanna-
trygginga. Það vantar samræmda
alisherjaráætlun til að taka á þess-
um vanda. Þjóðin mun ekki horfa
upp á það aðgerðalaus að ekkert sé
gert. Mál er að linni. Nú þurfa
menn að snúa vöm í sókn gegn auð-
valdi og í þágu jafnaðar. Þjóðin þarf
að taka höndum saman og hrista af
sér okið,“ segir Ögmundur Jónas-
son.
í stöðugri skoðun
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, segir að
endurskoðun bóta almannatrygg-
ingakerfisins sé verkefni sem hljóti
aUtaf að vera í
gangi.
„Árið 2001
voru miklir fjár-
munir settir inn í
grunninn til
þeirra sem lægst-
ar hafa bætumar
og við þurfum að
halda áfram á
þeirri braut.“
Jón segir að á
ráðstefnu Búnaðarbankans um
þessi mál hafi hann komið inn á að
það þyrfti að vera í forgangi að bæta
kjör þeirra sem eingöngu hafa bæt-
ur frá Tryggingastofnun. Hann seg-
ir að Þjóðhagsstofnun hafi verið
falið að taka saman gögn um þessi
mál og eftir þeim upplýsingum sé
nú beðið.
„Við höfum líka verið með það í
skoðun hvort bætur geti fylgt launa-
þróun og að launaskrið sé líka bætt.
Við höfum kallað eftir upplýsingum
um slíkt, en þetta er mál sem sam-
tök öryrkja og aldraðra hafa gert
kröfur um. Hins vegar liggja ekki
fyrir neinar ákvarðanir um þetta,
en þetta er í stöðugri skoðun,“ sagði
Jón Kristjánsson.
Eitt af verkefnum
stjórnvalda
Vilhjálmur Egilsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, segir þessa
umræðu svo sem ekki nýja af nál-
inni. Vissulega sé til fátækt fólk á
íslandi. Eitt af verkefnum stjóm-
valda sé m.a. að reyna að sjá til þess
að kjör þeirra sem þurfa að treysta
á velferðarkerfið fylgi eftir batnandi
lífskjörum almennt. „Það hefur þó
sýnt sig að tekjuskipting á íslandi
er jafnari en i flestum löndum
heimsins.
Ég tel hins vegar affarasælast að
byggja upp atvinnuvegina og bæta
þannig lífskjör landsmanna. Þar tel
ég að sú mikla uppbygging sem átt
hefur sér stað á síðustu árum hafi
haft mikil áhrif. Stefna stjómvalda
er að reyna að skapa hér velmegun-
arþjóðfélag þar sem allir geti fundið
sér farveg; einnig að reyna að
tryggja að við séum almennt í
fremstu röð í heiminum á því
sviði,“ segir Vilhjálmur Egilsson.
Hann telur þó að fátækt á íslandi
verði áfram tO umræðu og að hún
eigi líka að vera það. Það þurfi að
vera stöðugt umræðuefni hvemig
áhrifaríkast sé að berjast gegn fá-
tækt hér á landi. -HKr.
Vilhjálmur
Egilsson.
Bifreið á Nató-fundi:
Þolir hand-
sprengjuárás
B&L hafa flutt inn til landsins skot-
helda BMW-bifreið vegna NATO-fundar-
ins í maí. Er hann af gerðinni BMW 750
ILA og er um tveimur tonnum þyngri
en grunnútgáfa sama bíls. Að sögn Guð-
mundar Gíslasonar markaðsstjóra, er
bíUinn með skotheldu gleri og dekkjum
og gólf og toppur sérstaklega styrkt.
„Þessi bíll á að geta þolað hand-
sprengjuárás," segir Guðmundur, „því
að með þessum styrkingum getur hann
þolað það þótt tvær handsprengjur
springi í einu á honum.“
Bíllinn mun verða fluttur úr landi
aftur að loknum fundinum en nokkuð
merkilegt er að ef hann yrði hér áfram
þyrfti ekki að borga af honum vörugjöld
þar sem engin slík eru á skriðdrekum
og brynvörðum bifreiðum.
B&L flytja inn alls 45 BMW-bifreiöir
vegna NATO-fundarins, en áðumefndur
bíll er sá eini sprengjuheldni. Hann
verður til sýnis hjá B&L um helgina.-NG
DVAIYND HILMAR ÞÓR
Sinubruni í Eilífsdal
Litlu mátti muna að illa færi þegar sinueldur kviknaði í Eilífsdal í Kjós skömmu eftir hádegi í gær. Að sögn varðstjóra
Slökkviliðsins var eldurinn mikill og barst hratt yfir sökum vinds. Þrír sumarbústaðir voru í grennd og voru þeir taldir í
hættu. Slökkviliðsmönnum tókst hins vegar að slökkva eldinn áður en hann náði að læsa sig í húsin. Eidsupptök
munu þau að maöur einn var að brenna timbri í stálbaðkari þegar neisti hljóp í túnið með fyrrgreindum afleiðingum.
Bleytt var I sinunni til að fyrirbyggja útbreiöstu eldsins.
Átak gegn greiðslum til handrukkara:
Aldrei
að láta undan hótunum
- eru skilaboð Vímulausrar æsku og lögreglunnar
Vímulaus æska kynnti í gær í
samstarfi við lögregluyfirvöld átak
þar sem fólk er hvatt til að láta ekki
undan þeim sem hóta ofbeldi ef
fíkniefnaskuld verður ekki greidd,
eða svokallaðra handrukkara.
Vímulaus æska mótmælir skilaboð-
um um að heppilegast sé fyrir að-
standendur að greiða fíkniefna-
skuld eða aðra skuld þegar hún er
innheimt með hótunum um líkams-
meiðingar. Hótanir um ofbeldi
brjóti í bága við almenn hegningar-
lög og brot við því ákvæði varði
sektum eða allt að 2 ára fangelsi.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni-
efnadeildar lögreglunnar, segir að
það sé á engan hátt réttlætanlegt að
borga. „Við það eykst ofbeldið og
líkumar minnka á að það hætti.
Vandamálið er hins vegar að fólk
þorir varla að kæra svona mál en
það kemur ekki til greina af hálfu
lögreglu að slaka á í svona málum.“
DV-MYND E.ÓL.
Atak gegn handrukkurum
Átakið kynnt ígær. F.v.: Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögregl-
unnar, Vaidimar Jóhannesson hjá Vímulausri æsku og ÓlöfÁsta Farestveit af-
brotafræðingur.
Fram kom á fundinum að skyn-
samlegasta leiðin gegn hótununum
er að afla sannana, t.d. með segul-
bandsupptökmn. Vilji sé til þess hjá
dómstólum að taka á slíku. Þá kom
einnig fram að foreldrar séu oft
undir miklum þrýstingi, ekki bara
frá handrukkurunum sjálfum held-
ur einnig börnum sínum sem jafn-
vel hóta sjálfsvígi verði skuldin
ekki greidd. Þá séu dæmi um að for-
eldrar hafí orðið fyrir verulegu fjár-
hagslegu tjóni vegna slíkra skulda.
Það var einnig áréttað að hand-
rúkkarar standi sjaldan við hótanir
sínar, og þó að þeir geri það sé
ábyrgðin ekki hjá þeim sem verður
fyrir ofbeldinu, heldur hjá þeim
sem brýtur af sér.
Foreldrar bama sem verða fyrir
því að börmnn þeirra er hótað of-
beldi vegna fíkniefnaskuldar geta
leitað aðstoðar í Foreldrasíma
Vímulausrar æsku, 581-1799. -HI
DV-MYND HILMAR
Mynd sem mátti ekki taka
Ljósmyndari DV smellti af þessari
mynd i sömu mund og honum var
vísað á dyr. Varaformaðurinn sést
hér að baki Jöhönnu Sigurðardóttur,
eins af nefndarmönnunum.
Rætt um ríkisábyrgð:
Varaformaður
bannaði
myndatökur
MikiII taugatitringur virtist ríkja
í upphafí fundar efnahags- og
viðskiptanefndar Alþingis í gær er
tekið var til afgreiðslu mál er varð-
ar ríkisábyrgð handa íslenskri
erfðagreiningu. Var málinu þá
óvænt vísað til nefndarinnar. Þegar
ljósmyndari DV hugðist mynda
fundinn í nefndinni, eins og algengt
er, var honum vísað frá af varafor-
manni nefndarinnar, Kristni H.
Gunnarssyni.
Halldór Blöndal, forseti Alþingis,
sagði í samtali við blaðið að hann
minntist þess ekki sem forseti
þingsins að samskipti við fjölmiðla
hafi ekki gengið skammlaust fyrir
sig. Hann sagðist heldur ekki muna
eftir neinu í starfsreglum þingsins
sem bannaði beinlinis slikar
myndatökur. Þetta væri því ekki
gert að hans fyrirmælum. -HKr.
Alþingi lýkur
í dag
Alþingi lýkur störfum í dag og
frestar fundum til hausts. Sam-
komulag tókst um það milli for-
manna þingflokkanna í gærkvöld að
takmarka ræðutima þingmanna
þannig að ljúka mætti þingstörfum í
dag. Umræður í þinginu stóðu í all-
an gærdag og til klukkan fimm í
morgun en þingfundur hefst klukk-
an tvö í dag. Verður þá gengiö til at-
kvæða um þau mál sem enn eru óaf-
greidd og ekki hafa verið dregin til
baka. -ÓTG
DV-MYND ÓK
Stórtaekur bæjarstjóri
Kristján Þór Júlíusson, bæjastjóri á
Akureyri, tók í gær fyrstu
skóflustunguna eð nýjum nemenda-
görðum við Menntaskóiann á Akur-
eyri. Skammt frá stóð Tryggvi Gísia-
son, skóiameistari MA, og hvatti
Kristján áfram. Áættað er að bygg-
ingu nemendagarðanna Ijúki næsta
sumar 2003 en garðarnir eru ætlað-
ir nemendum beggja framhaldsskól-
anna á Akureyri, MA og Verkmennta
skóians á Akureyrí.