Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Blaðsíða 3
STOFNAÐ 2002
1. TBL. 1. ÁRG. ÞRIÐJUDAGURINN 7. MAÍ 2002 WWWVELKOMIN.IS
r
Ohapp í
Elliðaárdal
Eftir að ég fékk mér heimasíðu á
velkomin.is get ég skrifað fréttir af mér
fyrir vini og fjölskyldumeðlimi. Eins
og þú veist sennilega nú þegar, úr því
þú ert að lesa þetta, er vefslóðin mín:
www.velkomin.is/sigga.
Við fórum út að labba í síðustu viku
og pabbi fór með Sám út í hraun. Þá
datt Sámur og meiddi sig í löppinni.
Hann var draghaltur á eftir og það
blæddi mikið úr löppinni á honum svo
við urðum að fara með hann til læknis.
Læknirinn skoðaði löppina mjög vel
og setti umbúðir á hana. Hann sagði
að Sámur yrði að vera inni í dálítinn
tíma og að hann mætti hvorki fara út
Klára
bráðum
fyrsta
stigið
Það er oft gaman að æfa sig á
pfanó en stundum getur verið
leiðinlegt að þurfa að vera inni að
æfa. Ég klára fyrsta stig í vor og
svo æda ég að spá í hvort ég nenni
að halda áfram. Ég æfi mig á
hverjum degi. Til þess að ná fyrsta
stigi þarf maður að geta spilað
þrjá tónstiga. Kennararnir láta
mann svo spila einhver þrjú af
lögunum sem maður hefur æft.
Ég þarf hka að taka próf í tónfræði
en mér fínnst hún mjög leiðinleg.
En það er víst alveg nauðsynlegt
að kunna eitthvað í tónfræði.
Þegar ég verð stór langar mig til
að stofna hljómsveit með vinum
mínum. Frænka mín er að læra á
fiðlu en ég veit ekki hvernig það
passar að vera með fiðluna í
hljómsveitinni. Bróðir minn spilar
á trommur en hann er svo
ógeðslega lélegur að ég veit ekki
hvort ég myndi nenna að spila
með honum. Svo hugsa ég að hann
myndi líka alltaf vera að stríða
mér.
að leika né veiða með pabba.
Ég held að Sámur sé ekkert sérlega
hrifinn af spítölum. Hann titraði
pínulftið og ýlfraði allan tfmann sem
var verið að binda um löppina á honum
þó að það væri búið að deyfa hann. Ég
klappaði honum allan tfmann og talaði
við hann og ég held að honum hafl
fundist það mjög gott. Sámi leiðist
alveg rosalega að þurfa að vera inni og
mega ekki fara neitt nema út í garð til
að pissa og svoleiðis. Hann var auðvitað
fljótur að drulla umbúðimar á fætinum
út og þær em alltaf aðeins að losna. Ég
reyni að festa þær aftur og biðja hann
að vera rólegan.
Það er eitt skrýtið með Sám. Hann
verður alveg rólegur ef maður les
upphátt fyrir hann úr Harry Potter
bók. Ég hef reynt að leika við hann og
lesa fyrir hann eins og ég hef getað en
ég þarf auðvitað að læra og svoleiðis.
Þetta er í fyrsta skipti sem Sámur
meiðist. Við verðum greinilega að passa
okkur betur þegar við forum með hann
út í hraun. Sámur verður sex ára í júní.
Ég man ennþá þegar mamma og pabbi
komu með hann heim. Þau sögðust
vera með gest og að hann væri frammi
á gangi. Þegar ég fór fram sá ég fyrst
engan en svo heyrði ég í honum. Hann
var þá pfnulftill hvolpur og var í
pappakassa á gólfinu.
Sámur er orðinn hress
Sámur var bara með umbúðirnar á
löppinni í viku þá duttu þær af.
Dýralæknirinn sagði að það myndi
jafna sig. Hann væri orðinn næstum
því góður og myndi ná sér alveg með
tfmanum. Hann sagði að Sámur væri
duglegur hundur og mjög rólegur.
Mér finnst það vera rétt. Hann hefur
alltaf verið mjög stilltur, alveg frá því
að hann var hvolpur. Það er frábært
að hafa hann heima alltaf þegar maður
kemur heim úr skólanum. Hann
verður mjög glaður þegar hann sér
ndg og ég þarf alltaf að byrja á því að
klappa honum áður en ég fæ mér að
borða.
Hún Britney er hætt með Justin, eins og hann er sætur
Uppáhalds söngkonan
Uppáhalds söngkonan mín er Britney
Spears. Britney er nýhætt með Justin
Timberlake sem var kærasti hennar.
Nýjasti kærasti hennar er ekkert
frægur og 20 árum eldri en hún. Hún
segist elska hann.
Mér finnst Britney dansa mjög flott
og lögin eru æðisleg. Hún er búin að
vera í uppáhaldi hjá mér í tvö ár og
mér finnst hún alltaf jafn góð. Vinkona
mín fór á tónleika með henni í
Þýskalandi. Ég öfundaði hana alveg
Hérna er hún Britney, lang
flottasta söngkonan.
svakalega. Hún fór með stóru systur
sinni og kom í sjónvarpinu, það sást
reyndar bara í hana í nokkrar sekúndur
en hún var aiveg ótrúlega montin.
Svo finnst mér Jennifer Lopez líka
æðislega góð. Hún er frábær dansari
og lfka góð leikkona. Hún var að gefa
út nýjan disk og ég er byrjuð að safna
mér fyrir honum. Hann er víst rosalega
góður. Vinkona mín segir að Britney
Spears sé ömurleg en það er bara rugl.
Utlijrœndi
Jennifer JLope^
Hestar
Síban mín!
f --3
veWuonwús.
I
•:3EBiu.:-
h- p”i?****m Clj&fiHF—- m
Æðislegt sumar
Mallorka
og hesta-
namskeið
Eftir nokkrar vikur klárast skólinn. Ég
hlakka til að fara á reiðnámskeið í
sumar. Ég fór í fyrra. Við lærðum að
setja beisli og hnakk á hest og auðvitað
fórum við svo á hverjum degi í
útreiðartúra. Fyrsta daginn fældust allir
hestarnir vegna þess að það hljóp mús
yfir götuna. Einn strákurinn datt illilega
af baki. Hann jafnaði sig samt alveg.
Ég datt lfka af baki en meiddi mig
næstum því ekkert. Núna langar mig
mest af öllu í hest en ég held að ég fái
hann aldrei. Ég ætla með mömmu og
pabba til Mallorka f júnf f mánuð. Það
verður gaman. Ég hef heyrt að það sé
hægt að fá mjög ódýr og flott föt þar.
Svo verður maður auðvitað líka mjög
brúnn og getur farið á ströndina á
hverjum degi. Foreldrar Telmu,
vinkonu minnar, verða þama líka í tvær
vikur en hún verður með mér allan
tímann. Þetta verður svaka fjör. Ég er
nýbúin að kaupa mér bikiní. Það er
svona rautt með bleikum böndum.
Telma fékk sér appelsfnugult.
Mallorca er er hluti af eyjaklasa sem
heitir Baleareyjar. Hún er vinsælasta
ferðamannaeyjan. Þangað koma mjög
margir ferðamenn árlega og hafa það
gott í sandi og sól. íbúarnir eru um það
bil 430 þúsund. Höfuðborgin heitir
Palma. Hún stendur við Palmafjörð. Á
Mallorca eru margar spennandi
byggingar sem hægt er að skoða.
/------------------'N
|velkomin.is/|
Fáðuþýr
heimasíðu
Heimilisbankanotendur
Búnaöarbankans geta nú
auðveldlega sett upp eigin
heimasíður undir léninu
www.velkomin.is.
Fyrirtækið INNN veitir viðskipta-
vinum bankans þessa þjónustu
á mjög hagstæðum kjörum.
Heimasfðugerðin er bæði einföld
og þægileg. Viðskiptavinir skrá
sig fyrir þjónustunni (
Heimilisbanka Búnaðarbankans
og velja sér lén, til dæmis
www.velkomin.isA.igga.
Farðu á velkomin.is eda bi.is og
kannaðu málið. Þú getur byrjað
samdægurs á gerð nýrrar heimasíðu.