Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Qupperneq 5
5
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002_________________________
I>V Fréttir
©^2^ Hunl's.
Landsins forni fjandi:
í sjónmáli frá
Straumnesi
Haflsinn á Grænlandssundi, lands-
ins forni fjandi, er nú næst landi um
50 sjómílur frá Straumnesi eða í sjón-
máli við sæmileg skilyrði. í ískönnun-
arflugi Landhelgisgæslunnar sl. fostu-
dag reyndist þéttleiki ísbrúnarinnar
víðast vera um 7-9/10 suðvestan til og
10/10 austan 26. gráðu. Víða voru ís-
dreifar allt að 10 sjómílur út frá meg-
inísjaðrinum.
Þór Jakobsson, veðurfræðingur á
hafsísdefld Veðurstofunnar, segir að
hafisinn sé nú minni en í meðallagi á
þessum árstíma og nálægt miðlínu,
svo ekkert sé að óttast. Auk þess séu
engar spumir af borgarís á þessu
svæði. Þór segir vinda hagstæða á
þessu svæði en á fóstudag rikti þar
suðaustanátt, 5-10 hnútar. Reikna
megi þó með einhverri aukningu á
hafís fram til júníbyrjunar en þá eru
venjulega vetrarlok á þessu svæði og
hafls í hámarki. -GG
Túnfiskveiðar
aukast
Allar líkur eru til þess að íslending-
ar muni í auknum mæli stunda tún-
fiskveiðar í nánustu framtið. Nýlega
kom nýtt túnfiskveiðiskip tfl landsins
sem smíðað var í Kína, Stígandi VE,
og ekki er ólíklegt að þeim eigi eftir
að fjölga enn frekar. En þar sem tún-
fiskur er mikil fartegimd er ljóst að al-
þjóðlegt samstarf er nauðsynlegt til að
stjórna veiðunum.
ICCAT, Atlantshafstúnfiskráðið,
hefur til þessa ekki verið talinn fýsi-
legur kostur fyrir Islendinga þar sem
reglur ráðsins hafa verið með þeim
hætti að algjörlega hefur verið horft
ffam hjá rétti strandríkja. En vinnu-
hópur um úthlutunarreglur innan
ICCAT hefur lagt til að við endurút-
hlutun verði m.a. tekið tillit til sér-
stöðu strandríkja og ríkja sem mjög
eru háð sjávarútvegi. í sjávarútvegs-
ráðuneytinu er nú kannað hvort rétt
sé að kanna aðild að ICCAT, það gæti
verið sterkara þegar endurúthlutunin
fer fram heldur en að bíða og vona að
aðildarríkin úthluti Islendingum
þeim skerfi sem íslendingar telja að
þeir eigi sanngjarna kröfu tfl. -GG
Norskir laxeldis-
menn vilja í ESB
Steyptundan
veiðibjöllunni
Þórir Jónsson frá Vík sýnir hér
egg veiðibjöllunnar, sem líka geng-
ur undir nafninu svartbakur. Það
tíðkast að fara og steypa undan fugl-
inum. Tflgangurinn er tvíþættur - í
fyrsta lagi er þetta vöm gegn vexti
og viðgangi stofnsins, og í öðru lagi
er það til að verða sér úti um ágæta
máltíð, því mörgum þykja svart-
bakseggin bragðgóð, jafnvel hrein-
asti herramannsmatur. Bændur á
Sólheimabæjunum fimm vestast í
Mýrdal hafa sumir stundað þessa
eggjatöku í mörg ár. Þeir ræna
veiðibjölluna eggjum sínum en hún
verpir í aurunum með fram Hólsá
og Jökulsá á Sólheimasandi.
Norskir fiskeldismenn vilja að
Noregur gangi í ESB eins fljótt og
unnt er. Norðmenn sem eru fremsta
laxeldisþjóð heims eiga í erfiðleik-
um með að fá markaðsaðgang fyrir
eldisafurðimar, sérstaklega laxinn.
Á síðasta landsmóti Landssamtaka
um sjávarútveg og sjávarfiskeldi í
Noregi var ákveðið að vinna að inn-
göngu Noregs í ESB.
Jan Petersen utanríkisráðherra
telur norska fiskeldismenn gjalda
þess að Noregur er ekki aðili að
ESB. Fiskur er næststærsta útflutn-
ingsafurð Noregs á eftir olíu og gasi.
Útflutningsverðmæti fisks er um 20
mflljarðar norskra króna árlega. En
EES-samningurinn heftir vaxta-
möguleika á þessu sviði þar sem
Noregur má samkvæmt samningn-
um ekki auka framleiðslu sína um
meira en tíu prósent á ári. Sam-
keppnisríkin eins og Irland,
Skotland og Chile geta hins vegar
aukið framleiðslu að vild. Góðar að-
stæður í Noregi til fiskeldis, ásamt
rannsóknum á sviðinu, gerir Norð-
mönnum kleift að auka framleiðsl-
una verulega og lækka framleiðslu-
verðið. En það er einmitt þar sem
hagsmunir Noregs falla ekki að
EES-samningnum. Fiskeldismenn
telja að eini möguleikinn fyrir Nor-
eg sé nú að ganga 1 ESB, ef ekki
Grillti/boð Olís
S^C^ÖQ
1
Char-Broil 6000 gasgrill
næst að koma fiskeldi inn á innri
markaðinn í gegnum EES-samning-
inn. Hingað til hefur ESB ekki sýnt
áhuga á því.
Við stækkun ESB í austur mætir
norskur fiskútflutningur nýjum
áskorunum. Noregur hefur haft
frjálsaii markaðsaðgang að Eystra-
saltsríkjunum, til Tékklands, Pól-
lands og Ungverjalands. En eftir að
þessi ríki ganga í ESB munu þau
einnig setja tolla á norskan lax. -GG
Við sendum það heim til þín, tengjum gaskútinn,
kennum þér á það og tökum gamla grillið!
Með grillinu fylgir!
1 kippa 2 Itr. Coca-Cola
1 kippa 0,5 Itr. Carlsberg léttöl
Hunts Original BBQ grillsósa
4 tegundir Knorr grillkrydd
2 x 200 g Pringles Hot and Spicy
Tilboð gildir á þjónustustöðvum
Olís og I verslun Ellingsen.
ELLINGSEN
VERSLUN ATHAFNAMANNSINS