Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002
Fréttir I>V
Þorfinnur Ómarsson, framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóös, vísar ásökunum um fjármálaóreiðu á bug:
undan ábyrgðinni
- segir að sér hafi borist ýmsar sögur til eyrna á síðustu dögum
Þorflnnur Ómarsson, fram-
kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs ís-
lands, vísar þvi harðlega á bug að
óreiða einkenni fjármálaumsýslu
sjóðsins. í DV í gær var haft eftir
Vilhjálmi Egilssyni, sem er for-
maður sjóðsstjómar, að viss atriði
varðandi reikningsskil til Ríkis-
bókhalds hefðu verið í ólagi. Full-
nægjandi skýringar hefði vantað á
fylgiskjölum, svo sem vegna
bankareikninga og ferðalaga. Þetta
var vegna starfsemi sjóðsins á ár-
inu 2000. Bókhald hefði almennt
ekki verið með eðlilegum hætti og
slíkt væri mjög alvarlegt því nú
giltu orðið æ harðari reglur um að
ríkisstofnanir heföu þessi mál í
fullkomnu lagi. Hefði Þorflnni sem
framkvæmdastjóra nú i rúmlega
eitt ár verið veittur frestur á frest
ofan til þess að koma þessu málum
á rétt ról og það væri fyrst að
takast nú.
Umfangið vaxið gríöarlega
„Það var seint á árinu 1999 sem
ég lagði fram í stjóm Kvikmynda-
sjóðs tillögu þess efnis að ráðinn
yrði til sjóðsins sérstakur flár-
málastjóri. Hans hlutverk yrði að
halda utan um flármál sjóðsins og
Kvikmyndasafns íslands, auk þess
að sinna ýmsum öðrum tilfallandi
verkefnum hér. Þetta taldi ég mik-
ilvægt þar sem umfang starfsem-
innar hefur vaxið gríðarlega mikið
á allra síðustu árum. Fjárframlög
til sjóðsins hafa verið flórfölduð og
verkefnum sem við sinnum hefur
flölgað mikið. Það ætti að liggja í
augum uppi að þegar starfsemi
tútnaLr svona út þarf líka að
bregðast við því með flölgun starfs-
manna, sérstaklega á sviði flár-
málastjómunar, en ekki bara auka
álag á þá fáu starfsmenn sem hér
starfa fyrir,“ sagði Þorfinnur.
Hann segir að hins vegar hafi ekki
verið hljómgrunnur fyrir þessari
tillögu - og hann hafi því lagt mál-
ið til hliðar.
Þorflnnur segist fyrstur manna
viðurkenna að það losi sig ekki und-
an ábyrgð að reikningsskil hafi ekki
verið með fullnægjandi hætti vegna
þess að tillagan um flármálastjóra
Kvikmyndasjóðs náði ekki fram að
ganga. Hann bendir hins vegar á aö
þegar átti að sefla kraft i að koma
reikningsskilum á rétt ról nú eftir
áramótin hefði skrifstofustjóri
sjóðsins, sem annast daglega flár-
málaumsýslu og reikningshald,
veikst alvarlega og þurft að fara fyr-
irvaralaust í erflða aðgerð. Var
hann frá vinnu um þriggja mánaða
skeið. Mikilvægt væri að hafa þær
mannlegu og óviðráðanlegu aðstæð-
ur í huga í þessu sambandi.
Stjóri í stormi
„Mér hafa borist ýmsar sögur til eyrna aö undanförnu en hverjar þær eru vil ég ekki segja fyrr en sannleiksgiidi þeirra liggur fyrir,“
segir Þorfmnur Ómarsson, aöspuröur hvort aöfinnslur um bókhaid Kvikmyndasjóös séu hiuti af samsæri.
Tillaga um fjármálastjóra
aðnyju
„Formlegur frestur sem við höfö-
um til að koma þessu málum í lag
var til 1. mars en í sjóðssflórninni
voru heilmikilar umræður um
hvort sækja ætti um frest fram til 1.
apríl. Hefði svigrúm fengist til þess
tíma til að koma málum í lagi heföi
það breytt miklu í stööunni. En sem
betur fer er nú búið að koma reikn-
ingshaldinu öllu i eðlilegan farveg
og öldur ætti aö geta lægt,“ sagöi
Þorflnnur.
Við þetta er svo því að bæta aö á
stjómarfundi Kvikmyndasjóös í dag
kveðst Þorfinnur ætla að leggja
fram aö nýju tillöguna góðu um að
sérstakur flármálastjóri verði ráð-
inn til sjóðsins. Kveðst hann vænta
þess að betri hljómgrunnur verði
fyrir tillögunni nú, enda sé þörfm
fyrir slíkan starfsmann auðsæ. Ekki
síst í ljósi umræðu síðustu daga.
liTiifl'IMI'l—■
Siguröur Bogi Sævarsson
blaöamaöur
„Ég væri fyrst að bregðast ábyrgð
og skyldum mínum ef ég legði slík-
ar tillögur ekki fram.“
Sögur og sannleiksgildi
Eftir stendur hins vegar ósvarað
spumingu um meint samsæri.
Þyrla ráöandi menn upp moldviðri
vegna þess að Þorfinnur Ómarsson,
sem situr í úthlutunarnefnd Kvik-
myndasjóðs, studdi ekki umsókn
Hrafns Gunnlaugssonar um styrk
til gerðar myndar eftir smásögu
Davíðs Oddssonar, Glæpur skekur
Húsnæðisstofnun? Er afsvar við
þeirri umsókn undirrót þessa máls?
Vilhjálmur Egilsson segir í DV
þessa söguskýringu fráleita. Málið
snúist um að bókhald og reiknings-
skil sjóðsins hafi verið með ófull-
nægjandi hætti.
„Það hlýtur hver og einn að draga
sína ályktun, en ef svo er hlýtur hið
sanna að koma í Ijós. Mér hafa
borist ýmsar sögur til eyrna að und-
anfömu en hverjar þær em vil ég
ekki segja um fyrr en sannleiksgildi
þeirra liggur fyrir," sagði Þorfinnur
sem vildi ekki heldur segja úr
hvaða ranni hann teldi runnar þær
sögur sem væru á floti. -sbs
gAfNARFIÖRÐI
■r 3 fyrr co mí
KvJXmyodaMfn Ula
safnsJna h«fur frá up)
JkHlu jMseUir
Skipui6gð sófnun kvfi
kvíkmyfKJa tem var
kvöunyntíanrui og g®
krefur. Nákvœm sk/4
og munntegrö hoín
fcvtkmyodsífaíkj
K vtkmyrxJa saf ntö p
tendlnu ofl v»
kvikmyndagvt öarmó
aöguJegar hoímlidar
limarita um kvtkmyr
akxffa um fcvlkroynd
Stefnl «r oö þv
kvðcmy
M
()
ÍÍÉÍ
S£t6m
Eg losa mig ekki
^ Krafist sýknu af ákæru um manndráp vegna geðveiki:
Akærði staöfesti fvrri framburð
Ásbjöm Leví Grétarsson staðfesti
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
aö hann hefði orðiö manni að bana
í lítilli íbúö við Bakkasel 27. október
sl. Við aöalmeöferð málsins fyrir
dóminum i gær staðfesti ákærði þá
atburðarás sem áður haföi komið
fram. Hann viöurkenndi að hafa
banaö karlmanni sem fæddur var í
september 1957. Við verknaðinn not-
aði hann eldhúshníf. Mennimir
höfðu hist á krá á Laugavegi á föstu-
dagskvöldi. Þaðan fóru þeir heim í
íbúð Ásbjöms í Breiðholti. Fyrir
dóminum í gær lýsti Ásbjöm Leví
því yfir aö þeir hefðu farið þangað í
þeim erindagjörðum að reykja hass
og skoða bækur. Þegar i íbúðina var
komið hefði maðurinn sýnt honum
kynferöislega tilburði. Ásbjörn Leví
kvaðst hafa brugöist harkalega við,
hrint manninum frá sér og náð í
stóran eldhúshníf. Hann hefði
stungið manninn í bak og í brjóst-
kassa og síðan skorið hann á háls.
Ásbjörm Leví kvaðst hafa gert sér
grein fyrir því að maðurinn myndi
ekki lifa þetta af og því náð í hafna-
boltakylfu og barið manninn. Þegar
Ásbjöm sá að maðurinn andaði enn
kvaðst hann hafa náð í plastpoka og
lagt fyrir vit hans.
Eftir þessa atburðarás dró Ás-
bjöm líkið út úr íbúð sinni yfir í
garð nágrannans. Blóöslóðin frá
íbúðinni og yfir í garðinn var um 80
metra löng. Þegar lögreglan hand-
tók Ásbjöm Leví skömmu síðar var
hann farinn að þrifa blóðið af gólf-
inu, hnífnum og hafnaboltakylf-
unni.
Viö kruihingu á likinu fundust 8
stungusár. Hið dýpsta var 14 sentímetr-
ar. 9 skurðsár vora á hálsi. Þá fundust
um 10 áverkar á höföi mannsins.
Verjandi Ásbjamar, Björn L. Bergs-
son hrl., kraföist þess að hann yrði
sýknaður af ákæru um manndráp,
enda væri hann ósakhæfur vegna geð-
veiki. Kynferðisafbrot sem Ásbjöm
hefði orðið fyrir hefðu aukið veikind-
in. Hann heföi talið að hann væri að
ráðast á brotamanninn.
Ragnheiður Harðardóttir sak-
sóknari sagði að atlagan hefði verið
langdregin og hrottafengin. Dómur-
inn yrði að svara því hvort um væri
að ræða aðgerðir manns sem væri
með öllu ófær um að stjóma gerð-
um sínum. -JSS
Sólargangur c
niflLli
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 22.11 21.56
Sólarupprás á morgun 04.37 04.52
Síódegisflófi 15.57 20.30
Árdegisflófi á morgun 03.26 07.59
Hægir meö kvöldinu
Suðvestan 8-13 m/s og skúrir en
5-10 m/s og léttskýjað á
austanverðu landinu. Heldur hægir
þegar líður á kvöldið en hiti verður
á bilinu 6-10 stig.
nmffis&u'
Heldur hægari sunnanátt á morgim.
Hiti 7 til 13 stig að deginum, hlýjast
austanlands.
Veöriö
Fimmtudagur Föstudagur
Laugardagur
Híti 5° Hiti 3" Hiti 3“
til 12“ «112* til 13“
Vindur: Vindur: Vindur
3-8 «>A 5-10 "V* 5-10 >"A
Breytlleg átt og Noröarv og rigning eöa noröaustanátt, skúrir. Hægur léttskýjaö vindur og hlýtt. sunnan og vestan tll en skúrir austan til. 4 * Fremur hæg breytileg ðtt og víöa léttskýjaö. Hlýnandi veöur um land altt. 4-
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassvifiri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsavefiur 28,5-32,6
Fárvifiri >= 32,7
m
AKUREYRI skýjaö 7
BERGSSTAÐIR hálfskýjaö 5
BOLUNGARVÍK rigning 5
EGILSSTAÐIR léttskýjaö 6
KIRKJUBÆJARKL léttskýjaö 4
KEFLAVÍK skúr 5
RAUFARHÖFN skýjað 4
REYKJAVÍK úrkoma 5
STÓRHÖFÐI skúr 4
BERGEN hálfskýjað 11
HELSINKI léttskýjaö 13
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 9
ÓSLÓ léttskýjaö 13
STOKKHÓLMUR 10
ÞÓRSHÖFN súld 9
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 8
ALGARVE skýjaö 13
AMSTERDAM þokumóöa 11
BARCELONA rigning 13
BERLÍN rigning 10
CHICAGO hálfskýjaö, 20
DUBUN þokumóða 10
HAUFAX alskýjaö 7
FRANKFURT þoka 7
HAMBORG súld 9
JAN MAYEN þokumóða 1
LONDON súld 10
LÚXEMBORG þokuruöningur 5
MALLORCA súld 15
MONTREAL alskýjaö 11
NARSSARSSUAQ skýjaö 1
NEW YORK alskýjað 14
ORLANDO heiöskírt 22
PARÍS léttskýjað 9
VÍN þoka 12
WASHINGTON alskýjaö 16
WINNIPEG heiöskírt -3