Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Síða 9
9
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAl 2002
I>v
Neytendur
Starinn í hreiðurgerð:
Ekki flóafriður í húsinu
- ef aðgangur hans að
Einn af vorboöum íslands er star-
inn sem um þessar mundir er aö
vitja hreiðra sinna. Starinn er
skemmtiiegm- fugl en honum fylgir
óværa sem hefur komið á hann
slæmu orði, nefnilega flóin. Stara-
flóin er í raun og veru hænsnafló en
þótt hænsnin séu dálæti hennar
leggst hún einnig á aðar tegundir
fugla, svo sem dúfur og stara.
Lífsferill flónna er þannig að full-
orðin dýr skriða úr púpum á vorin
þegar staramir hreiðra um sig. Þær
byggja upp orkuforða sinn með því
að næla sér í nokkra blóðslurka og
verpa síöan í hreiðrin. Lirfur klekj-
ast úr eggjum að nokkrum dögum
liðnum, nærast á því sem til feliur
frá fúglunum og rotnandi hreiður-
efnum, vaxa þar upp fram á mitt
sumar og púpa sig þegar fullum
vexti er náð. Þannig bíða þær svo
fram á næsta vor.
Vilja sitt blóð
Yflrleitt er friður fyrsta árið sem
starinn byggir sér hreiður en þá er
lagður grunnur að næstu kynslóð
flóa sem gætu skapað vandamál í hí-
býlum manna árið eftir. Ef starinn
mætir aftur í hreiðrið að ári em lík-
ur á að flóin láti sér nægja blóð
hans og sjái ekkert tilefni til að fara
hreiðrinu er hindraður.
á flakk. Ef aðgangur starans aö
hreiðrinu er hindraður, eða að fugl-
inn mætir ekki aftur, þá era líkur á
vandræðum. Flæmar skríða úr púp-
um sínum og vilja sitt blóð seint í
mars eða apríl. Ef fuglinn er ekki til
staðar fara þær á stjá og leita til
allra átta út frá hreiðrinu. Sumar
finna sér leið inn í híbýli manna en
aðrar leita út úr holunni og stökkva
þar á allt sem á leið hjá, hvort sem
um er aö ræða menn eða dýr.
Þannig geta þær líka borist inn í
hús. Feldur hunda og katta hentar
flónum vel til að hanga í, enda verð-
ur ástandið oft verst á þeim heimil-
um sem slík heimilisdýr valsa um.
Bólgur og ofsakláði
Þótt staraflóin kjósi helst fugla-
blóð fúlsar hún ekki við blóði spen-
dýra, þar með talið manna. Hún get-
ur því angrað mannfólkið í all-
nokkurn tíma framan af sumri. Yf-
irleitt eiga flæmar þó erfltt með að
fjölga sér í íbúðum okkar því rotn-
andi efni liggja yfirleitt ekki á glám-
bekk.
Viðbrögð við flóabiti eru mjög
einstaklingsbundin. Sumir verða
bitanna vart varir en aðrir blása
upp í bólgur og ofsakláða. Rétt er að
fara varlega í að klóra í bitin því þá
Rétt að hreinsa þau eftir að varptíma lýkur
eða annars staðar sem fot þrengja
að. Þó er algengast að flær bíti
menn i svefni.
Hreinsun á kuldatíma
Best er að reyna að koma í veg
fyrir að stari byggi sér hreiður en
þeir velja helst að verpa inni á loft-
um, í þakskeggjum eða í holrýmum
í veggjum. Finni húsráðendur stara-
hreiður þarf að hreinsa það burt.
Það á aö gera að varpi loknu en best
er að hreinsa þau burt á kuldatíma
að haust- eða vetrarlagi. Þá eru
flæmar í hvíld í púpum og era til
friðs. Starinn er alfriðaður fugl og
því er óheimilt að eyðileggja varp
hans. Ef ráðist er á hreiðrin að vori
eða sumri er um brot á lögum aö
ræða auk þess sem nokkuð er víst
að ekki verður flóafriður i húsinu.
Gæta þarf þess að hreinsa upp og
fjarlægja öll hreiðurefni og helst að
verða sér úti um eiturefni til að
eitra allnokkurt svæði í kringum
hreiðrið. Sé vandamálið orðið veru-
legt þarf að leita ráða hjá meindýra-
eyðum. En grundvallaratriðið er að
losna við hreiðrin og koma í veg
fyrir hreiðurgerð.
Heimild: Starinn og árlegtflóa-
fár, vefsíóa Náttúrufrœöistofnunar
íslands, ni.is
Meindýraeyðlr meö starahreiöur
Stari er mjög ötull viö hreiöurgeröina
og ber í holu sína ógrynni af hreiöur-
efnum, enda eru hreiöur hans miktu
meiri um sig en gengur og gerist hjá
öörum spörfuglum hér á landi. Þeg-
ar hann hefur veríö óáreittur í sömu
holunni um nokkurra ára skeiö hefur
myndast þar allvæn heysáta.
ágerast einkennin. Mjög algengt er
að menn séu bitnir um ökklana.
Flæmar stökkva upp í buxnaskálm-
ar, koma sér fyrir undir sokkum og
fá sér að snæða. Á skömmum tíma
nær ein fló að stinga nokkrum sinn-
um og því má oft sjá nokkur stungu-
sár í þyrpingu. Þá er einnig algengt
aö menn séu stungnir undir belti
Kartöflurækt:
Að pota útsæðinu niður
- rétti tíminn frá 20. maí til 10. júní
Falleg uppskera
Hæfileg þyngd á útsæöiskart-
öflu er 40-60 g og eru þær sett-
ar 4-5 cm niöur í moldarjarövegi
og 6-8 cm í sandjarövegi.
Sprettan, og þar meö uppsker-
an, veröur fyrr á feröinni sé
glært plast eöa trefjadúkur lagö-
uryfir beöin þar til grösin eru
komin vel upp.
Kartöflurækt hef-
ur lengi verið stund-
uð hér á landi og
ekki er langt síðan
önnur hver fjöl-
skylda átti kartöflu-
garð. í dag er þetta
ekki eins algengt,
sérstaklega eftir að
framboð á landi sem
bæjarfélög buöu
íbúum sínum til
þessara nota minnk-
aði. Þó era allmarg-
ir sem eiga sér
skika, hvort sem
það er í garðinum
við húsið, sumarbú-
staðinn eða í landi
bæjarfélagsins.
Hvort vinnan við
ræktunina borgar
sig er álitamál en víst er að margir
hafa ómælda ánægju af því að rækta
sín matvæli sjálfir og fá tækifæri til
að dunda sér í náinni snertingu við
móður jörð endram og sinnum.
Vel þarf að lofta um
Nú er rétti tíminn til að kaupa út-
sæði, ef ekki var sýnd sú fyrirhyggja
að taka frá nokkur kíló af uppsker-
unni frá í fyrra. Miða skal við að um
5 kg af útsæði þurfi í 25 fermetra
garð. Gæta skal þess að vel lofti um
þann stað sem kartöflurnar era
geymdar á meðan þær spira því þær
þurfa súrefni til öndunar og of mikill
raki getur aukið hættuna á út-
breiðslu sjúkdóma. Algengast er að
útsæði sé látið spíra í rimlakössum
og era þaö í raun hentugustu ílátin.
Séu annars konar ílát notuð þarf að
gæta þess að á þeim séu rifúr til að
vel lofti um. Ekki ætti að setja fleiri
en tvö til þijú lög af
kartöflum í hvern
kassa.
Verð á útsæði er svip-
að hjá þeim aðilum sem
neytendasíðan hafði
samband við, en 5 kg
pokar kosta 690 kr. í
Frjó, 775 kr. í Blómavali
og 780 kr. í Garðheim-
um. Á öllum stöðum
fengust premier,
gullauga, Helga og rauð-
ar íslenskar.
í mold eftir 20. maí
Þegar kartöflurnar
era orðnar vel spíraðar
ætti að fara að huga að
niðursetningu þeirra,
svo framarlega sem ytri
skilyrði leyfa. Ekki ætti
að setja þær niður of snemma því ef
jörðin er of köld og blaut getur það
valdið kuldaskemmdum á spíranum.
Enginn vöxtur á sér heldur stað fyrr
en jarðvegshitinn er kominn yfir 5"
C. Heppileg viðmiðun fyrir niður-
setningu kartaflna er að fylgjast með
laufgun birkifrjáa. Þegar á þeim sést
grænt brum er öflu óhætt. Flestir
kartöfluræktendur setja niður í garð-
ana sína á tímabilinu 20. maí til 10.
júní en á Norðurlandi getur niður-
setningin dregist um nokkra daga
þegar illa viðrar.
Blandaður áburður
Garðurinn þarf að vera vel undir-
búinn og jarðvinnsla öfl vel af hendi
leyst. í hann er annaðhvort settur bú-
fjáráburður eða tilbúinn áburður eða
blanda af þessu tvennu, sem yfirleitt
skflar bestum árangri. Þumalfingurs-
reglan er sú að setja 30 lítra af þurrk-
uðum lífrænum áburði og 4-6 kg af
garðáburði á hveija 25 fermetra af
garðlandinu. Rétt er fyrir garðeig-
endur að kynna sér vel hvers kyns
áburðargjöf hentar í garðinn þeirra
því hlutföll næringarefnanna í jarð-
veginum skiptir sköpum fyrir útkom-
una. Þó má benda á að í þessum efn-
um er hófsemin best og of mikið er
um að braðlað sé með áburð í heim-
ilisgörðum, til óbóta fyrir ræktunina
og kartöflurnar. Þó aö hér á landi
hafi löngum tíðkast að gefa allan
áburðinn við upphaf ræktunarinnar
fer betur á þvi að skipta áburðar-
magninu í tvennt eða þrennt, gefa
fyrsta skammtinn í upphafi, sáldra
síðan geymda áburðinum á milli
raða þegar grös era komin vel á legg.
Þannig nýtist heildamæringin betur.
Nokkrar tegundir
Margar tegundir era til af kartöfl-
um en algengastar hér á landi era
gullauga, premier, Helga og rauðar
íslenskar. Þessar sortir hafa mis-
munandi eiginleika og sé garðurinn
stór er gott að setja niður fleiri en
eina tegund, t.d. eina snemmsprottna
og eina seinsprottna til að lengja það
tímabil sem uppskera fæst.
Gullauga er mikið ræktað hér á
landi. Undan því koma meðalstórar
kartöflur sem era fremur snemm-
þroska. Gullaugað er þurrefnaríkt og
vinsæl matarkartafla. Það geymist
vel.
Helga er um flest eins og gullauga
en hefur rauðleitt hýði og þykir
bragðbetri og hraustari. Hún er frem-
ur snemmþroska kartöflutegund og
geymist vel. Hún er þurrefhisrík og
afar vinsæl sem matarkartafla.
Premier kartöflur era stórar og af
þeim kemur mikil uppskera. Þær era
mjög snemmþroska og þurrefnisrík-
ar og henta vel í alla kartöflufram-
leiðslu. Þær geymast þó ekki eins vel
og gullaugað og hættir til að spíra
þegar líður á vetur.
Rauðar íslenskar er vinsælasta
afbrigðið og hefur haldiö þeim vin-
sældum í meira en 100 ár. Kartöfl-
urnar era smáar og fremur sein-
þroska. Þær era þurrefnisríkar og
þykja afar bragðgóðar og geymast
vel.
Að lokum er hér góð hugmynd.
Prófið að sá ýmsum kryddjurtum, eins
og t.d. dilli, steinselju, timian og gras-
lauk, í eitt homið á kartöflugarðinum.
Kryddjurtir eiga vel við soðnar kart-
öflur og auka mjög við matreiðslugildi
þeirra og hollustu. Saxið kryddjurtim-
ar yfir kartöflumar þegar búið er að
flysja þær á diskinn og borðið með ögn
af smjöri og salti. -ÓSB
Heimildir fengnar frá Blómavali
Smáráð
* Ef til era hálfar
sítrónur er gott að
kreista úr þeim
safann í ísmolabox og
frysta.
* Botnar í konfektkössum eru oft
úr plasti með allavega löguðum hólf-
um. Þau eru skemmtileg til að frysta
í þeim ísmola. Einnig er auðvelt að
losa þá.
* Stóra dúka sem þarf að geyma
lengi er gott að hengja á herðatré
með slá. Þá myndast síður brot i
þeim.
* Til að losna við slettur þegar
rjómi er þeyttur er gott að setja skál-
ina í plastpoka.
* Það er gott að hreinsa saumavél-
ar og lyklaborð á tölvum með pípu-
hreinsurum. Þeir fjarlægja rykið og
með þeim má komast í alla króka og
kima.
* Þurrblómaskreytingar er gott að
rykhreinsa með því að blása á þær
með lægstu stillingu á hárblásara.
* Þegar matur
brennur viö í ör-
bylgjuofninum og
vond lykt er úr hon-
um er gott að setja
skál með vatni og sítrónusafa í ofn-
inn og sjóða dálitla stund.
Sítrónusafinn losar lyktina og gufa
mýkir matarleifamar sem þá er auð-
velt að strjúka úr ofninum.
7 * Geymið kerti í ís-
- skápnum, þau brenna
jft. hægar þegar þau eru not-
■■-_rz:d uð.
* Ef verið er að vökva hengiplönt-
ur er fint að setja ísmola á moldina í
stað þess að hefla vatni. Þeir bráöna
í rólegheitum og engin hætta er á því
að það flæði út úr.
* Þegar verið er að flytja er ráð-
legt að setja upp rúmin fyrst. Þegar
flutningsdeginum lýkur er ekki víst
að mikið þrek sé eftir tfl að búa upp
rúmin og ósköp gott að geta farið
beint að sofa.
* Ef brauð er
orðið gamalt má
bursta yfir það með
mjólk og baka það í
ofni í 10-15 mín.
* Kóladrykkir eru ágætir til
blettaheinsunar, heflið þeim í salem-
ið, þaö leysir vel upp óhreinindi.
* Ef til er afgangur af soðnum
hrísgrjónum er gott að nota þau i
salat.
* Matbúið meira en þörf er á af
því sem auðvelt er að frysta, pakkið
vel og setjið í frysti, merkt og dag-
sett. Þannig er hægt að spara sér
vinnu þá daga sem mest er að gera.
* Takið til hliðar þá peningaupp-
hæð sem ætluð er til matarkaupa og
notið eingöngu til þess. Þá freistast
maður ekki til að nota þá peninga í
annað eða að taka af öðrum pening-
um til matarkaupa.
Úr Viltu spara? e. Vigdisi Stefánsdóttur
Verölækkun á
MASTERCRAFT
jeppadekkjum
sóinmuc
(gniineníaF
Kópavogi - Njarðvík - Selfoss
löfrfvr elrf. Akureyri
IS22
Glæsilega hönnuð og kraftmikil stæða
með 2x100W útgangs-magnara,
og Power Bass hátaiara.
.þegar h/jómtæki skipta máli
1922 CJi_y 2002
BRÆÐURNIR
momssoti
Lágmúla 8 • Slmi 530 2800