Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Side 10
10
Viðskipti__________
Umsjón: Víðskiptablaðiö
Ágætis afkoma hjá
Búnaðarbankanum
Búnaöarbankinn
Hagnaður af rekstri nam 846 milljónum króna eftir skatta á fyrsta fjórðungi
þessa árs og 1.036 milljónum króna fyrir skatta.
Hagnaður af rekstri Búnaðar-
bankans nam 846 milljónum króna
eftir skatta á fyrsta fjórðungi þessa
árs og 1.036 milljónum króna fyrir
skatta. Arðsemi eigin fjár var því
28,8% á tímabilinu. Ekki eru birtar
samanburðartölur fyrir síðasta ár
en hagnaður bankans nam 1.062
milljónum króna á öllu síðasta ári.
Hreinar vaxtatekjur námu 1.564
milljónum króna og vaxtamunur
var 3,11% á fyrsta ársfjórðungi.
Hreinar vaxtatekjur sem hlutfall af
hreinum rekstrartekjum nema
50,9% hjá Búnaðarbanka, en til
samanburðar er það 56% hjá Lands-
banka og um 70% hjá íslandsbanka.
Aðrar rekstrartekjur án gengis-
hagnaðar námu 618 milljónum og
gengishagnaður af verðbréfavið-
skiptum nam 888 milljónum króna.
Stærstan hluta gengishagnaðarins
má rekja til hlutabréfa en þau skil-
uðu um 936 milljóna króna hagnaði.
Rekstrargjöld námu 1.614 milljón-
um króna á fyrsta ársfjórðungi. Þar
af eru laun og tengd gjöld 846 millj-
ónir króna og annar rekstrarkostn-
aður um 638 milljónir. Aukning
rekstrargjalda skýrist m.a. af þeim
sameiningum sem áttu sér stað á
síðasta ári. Kostnaðarhlutfall Bún-
aðarbanka er nú 52,6% en var 70,8%
fyrir allt árið í fyrra. Sé tekið tillit
til gengishagnaðar er kostnaðar-
hlutfallið 73,9%. Framlag í afskrift-
arreikning nemur 420 milljónum
króna, sem er um 1,09% af útlánum
í lok timabils. Innlán bankans drag-
ast saman um 4% frá áramótum og
úOán um 1%.
Fjallað er um afkomuna í Morg-
unpunktum Kaupþings í gær, en
þar segir að ljóst sé að afkoma Bún-
aðarbankans taki mjög mið af sveifl-
um á verðbréfamarkaði. „Til að
mynda nam gengistap af annarri
fjármálastarfsemi 667 milljónum
króna á öllu síðasta ári en tæplega
900 milljóna króna hagnaður er nú á
þeim lið á fyrsta ársfjórðungi. Enda
þótt sú þróun sé fagnaðarefni verð-
ur vart hjá því komist að draga þá
ályktun að afkoma af viöskipta-
bankastarfsemi hafi verið með hóf-
samara móti. Bankinn birti þó ekki
sundurliðun yfir einstök afkomu-
svið en mætti þar taka sér aðra
banka til fyrirmyndar," segir í
Morgimpunktmn.
Auölindagjaldi komið á
Aukin umsvif
Flugleiða -
leiguflugs
Flugleiðir - leiguflug hf. og Flugfé-
lagið Atlanta hf. hafa gert hvort sinn
samninginn til 18 mánaða við
dóminíska flugfélagið Aeromar Air-
lines, sem kveður á um að hvort fé-
lag leggi dóminíska flugfélaginu til
eina flugvél á samningstímanum. í
tilkynningu frá Flugleiðum kemur
fram að vélarnar muni annast dag-
legt flug á milli borga í Dóminíska
lýðveldinu og New York og hugsan-
lega annarra staða í Bandaríkjunum.
í tilkynningunni kemur ekki
fram hve miklar rekstrartekjur
veröa af samningnum né væntingar
um hver afkoman af honum verður.
Leiguflugsverkefni munu gera félag-
inu kleift að draga úr sveiflum í af-
komu og auka sveigjanleika. Það er
mikilvægt, ekki sist í Ijósi þess sam-
dráttar sem varð í flugumferð í kjöi-
far 11. september, sér í lagi í flugi til
og frá Bandaríkjunum.
Flugleiðir - leiguflug munu í
samningnum nota Boeing 757 vél og
Atlanta Boeing 767 vél. Vél Flug-
leiða er nú aö ljúka verkefni í
Boston í Bandaríkjunum, þar sem
hún annaðist flug til Karíbahafs á
vegum ferðaskrifstofunnar GWV
Intemational.
Flugleiöir - leiguflug eru einnig
með samning um slíkt flug næst-
komandi vetur og hefst það flug um
miðjan desember. í tilkynningu seg-
ir að samningurinn sé í takt við
áætlanir um aukin umsvif Flugleiða
- leiguflugs en félagið tók til starfa í
ársbyrjun. Á vegrnn félagsins ann-
ast Flugleiðir nú leiguflug fyrir
ferðaskrifstofur i Danmörku, á ís-
landi og í Bandaríkjunum, auk
flugsins fyrir Aeromar. Áætluð
velta Flugleiða - leiguflugs á árinu
2002 er um 2,5 milljarðar króna.
Alþingi samþykkti á fóstudag
upptöku auölindagjalds í sjávarút-
vegi samkvæmt frumvarpi sjávarút-
vegsráðherra. Gjaldið kemur til
framkvæmda frá og með 1. septem-
ber 2004 og er reiknað 6% af afla-
verðmæti að frádregnum olíu-, öðr-
um rekstrar- og launakostnaði.
Fjallað var um þetta í Morgunkomi
íslandsbanka i gær.
Þar kemur fram að gjaldið muni
að fullu koma til framkvæmda árið
2009 og verður þá 9,5%. Sé tekið mið
af afkomu liöins árs megi ætla að
gjaldið hefði falið í sér útgjöld að
fjárhæð 80-150 milljónir króna fyrir
stærstu skráðu sjávarútvegsfyrir-
tækin á liðnu ári. Enn fremur segir
að í greinargerö komi fram að i ár
hefði gjaldið samtals numið rúmum
Á fyrsta ársfjórðungi hagnaðist
Sæplast um 18 milljónir króna eftir
skatta. Þetta er töluverð breyting
frá því í fyrra þegar tap var á starf-
seminni að upphæð 9 milljónir
króna. Hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði var tæpar 92 milljónir
króna eða um 13,5% af tekjum sem
er töluvert betri framlegð en í fyrra
þegar hún nam 8,6%. Veltufé frá
rekstri var tæpar 68 milljónir sem
er 18 milljónum króna meira en fyr-
ir sama tímabil á árinu 2001. Félag-
ið hefur hætt verðbólguleiðréttum
reikningsskilum.
Reksturinn á fyrsta ársfjórðungi
hefur gengið vel þrátt fyrir að sala
hafi verið undir áætlunum, en hún
fór mun hægar af stað í Norður-Am-
eríku en gert var ráð fyrir. Eigin-
fjárhlutfall í lok tímabilsins var
29,9% en var 31,4% um síöastliðin
áramót.
Nettóskuldir, þ.e. heildarskuldir
að frádregnum veltufjármunum,
lækkuðu á timabilinu úr 575 millj-
ónum króna í 519 milljónir. Veltu-
fjárhlutfall í lok timabilsins var 1,39
og arðsemi eigin fjár 9,6%. Rekstur
fyrsta ársfjórðung gekk i meginat-
riðum vel þrátt fyrir að sölumark-
mið hafi ekki náðst að fullu. Munar
þar mestu að salan í Ameríku var
nokkuð undir áætlunum. Samt sem
áður jukust sölutekjur samstæðunn-
ar í heild um tæp 23% milli tima-
bila.
Rekstrarkostnaður í heild er sam-
kvæmt áætlunum félagsins og er
2,1 milljarði króna, 1,6 milljörðum
árið 2001, 1,3 milljörðum árið 2000
og tæpum 1,6 milljörðum króna árið
1999. Gjaldið feli i sér talsverða út-
gjaldaaukningu fyrir útgerðir lands-
ins. Þó beri að hafa í huga að á móti
muni falla niður veiðieftirlitsgjald
og Þróunarsjóðsgjald og muni því
nettóútgjaldaaukning sjávarútvegs-
ins verða heldur minni.
„Sjávarútvegsfyrirtæki hafa und-
anfama mánuði hækkað verulega á
Verðbréfaþingi. Að mati Greiningar
ÍSB hefur í mati félaga á markaði
lítið tillit verið tekið til þessarar
hækkunar álaga á greinina. Ejár-
festar kunna þó að telja að upptaka
auðlindagjalds stuðli að aukinni
sátt um fiskveiðistjómkerfið.
Fyrstu viðbrögð fulltrúa andstæðra
ljóst að það mikla hagræðingarstarf
sem unnið var að allt síðastliðiö ár
er farið að skila sér. Hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði er nú um
13,5% af veltu þrátt fyrir að nokkurt
tap sé af rekstrinum í Kanada. All-
ar aðrar einingar félagsins skila já-
kvæðri afkomu.
sjónarmiða í fjölmiðlum gefa þó
vart tilefni tfl bjartsýni um að stöð-
ugleiki í rekstrarumhverfi greinar-
innar sé festur í sessi. Önnur veiga-
mikil breyting á fiskveiðistjómkerf-
inu felst í lyftingu kvótaþaksins
svonefnda en eftir samþykkt frum-
varpsins er heildarhlutdeild ein-
stakra félaga í heildaraflamarki
12%, en 20-50% í úthlutun einstakra
tegunda.
Þessi lyfting gerir félögum auð-
veldcira um vik við sameiningar og
aukin innbyrðis eignatengsl. Vænt-
ingar um aukið hagræði í greininni
vegna þessa kunna að hafa áhrif á
eftirspum eftir bréfum í sjávarút-
vegi um þessar mundir,“ segir í
Morgunkomi íslandsbanka.
Á árinu 2002 er gert ráð fyrir að
afkoman verði mun betri en á síð-
asta ári. Verkefnastaða félagsins er
góð um þessar mundir og virðist
sem sala í Norður-Ameríku sé að
taka við sér. Reiknað er með að
hagnaður verði af öllum einingum á
öðrum ársfjórðungi.
Viðsnúningur hjá Sæplasti
Sæplast
Reksturinn á fyrsta ársfjórðungi hefurgengið vel þrátt fyrir að sala hafi verið
undir áætlunum, en hún fór mun hægar af stað í Noröur-Ameríku en
gert var ráð fyrir.
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002
DV
m 13 > v -j -yj ^ ^! w iLii i-v. 3
HEILDARVIÐSKIPTI 2.330 m.kr.
j Hlutabréf 608 m.kr.
Spariskírteini 841 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
Straumur 150 m.kr.
| 0 Pharmaco 85 m.kr.
Kaupþing 65 m.kr.
: MESTA HÆKKUN
'O Rskmarkaður íslands 10,9%
| Q Nýherji 2,8%
0 Skeljungur 1,7%
MESTA LÆKKUN
O SÍF 5,0%
0 Pharmaco 3,8%
0 tslandssími 3,2%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.313 stig
- Breyting O 1,39%
Bandaríkin:
Atvinnuleysi meira
en búist var við
Atvinnuleysi í Bandaríkjunum
mældist 6% í apríl og hefur það ekki
verið hærra í sjö og hálft ár. Almennt
var búist við 5,8% atvinnuleysi en það
var 5,7% í mars. Störfum fjölgaði að-
eins um 43 þúsund í mánuðinum en
hagspekingar bjuggust við 60 þúsund
nýjum störfum.
Bandaríkjadollar veiktist í kjölfar
talnanna þar sem talið er að viðsnún-
ingur hagkerfísins verði hægari en
búist var við. Dollarinn var 91,7 stig á
móti evm og hefur ekki verið lægri
siðan í október. Veikingin á fóstudag-
inn var 1,5% og er það mesta dags-
veiking síðan í byijun janúar.
Landsbankinn
lækkar vexti
Landsbanki íslands hefur ákveðið
að lækka vexti sina af óverðtryggð-
um inn- og útlánum í kjölfar
ákvörðunar Seðlabankans um að
lækka stýrivexti. í fréttatilkynningu
frá bankanum segir að Landsbank-
inn telji brýnt að almennur spam-
aður aukist og í því sambandi hafi
verið ákveðið að bjóða bestu mögu-
legu innlánsvexti. Innlánsvextir
munu lækka minna en útlánsvextir
þar sem vextir á óverðtryggðum út-
lánum lækka um 0,3%, en óverð-
tryggð innlán nokkru minna eða
um 0,1-0,3%.
Þá haldast vextir óverðtryggðra
lífeyrisreikninga óbreyttir, 11,75%,
en með því vill Landsbankinn leggja
áherslu á mikilvægi langtímaspam-
aðar ásamt því að jafna mun á
vaxtakjörum óverðtryggðra og verð-
tryggðra lífeyrisreikninga.
S&P staöfestir láns-
hæfismat ríkisins
Matsfyrirtækið Standard og Poor’s
tilkynnti á iostudaginn að það hefði
staðfest óbreytt lánshæfismat fyrir ís-
lenska ríkið. Horfur um langtímaein-
kunnir i erlendri mynt eru áffam nei-
kvæðar. Fyrir um hálfum mánuði
gerði matsfyrirtækið Moodys slíkt hið
sama.
í mati S&P vegast á getan til að
bregðast við efnahagaðstæðum og ytra
ójafnvægi. Þar segir að þegar horft er
fram á veginn gæti minni þörf fyrir er-
lenda fjármögnun en nú er reiknað
með eða vöxtur í beinni erlendri fjár-
festingu styrkt lánshæfismat landsins.
Aftur á móti gæti endumýjað flæði
fjármagns úr landi til fjárfestingar leitt
til aukins þrýstings niður á við fyrir
lánshæfismatið. Sama myndi gilda um
versnandi rekstrarvísbendingar fyrir
bankakerfið eða lítinn árangur í að
bæta erlenda lausafjárstöðu og draga
úr erlendri fjárþörf.
E2E3___ _07. 05. 2002 kl. 945
KAUP SALA
RSDollar 90,500 90,970
E39pund 132,770 133,440
|*| Kan. dollar 57,670 58,030
BHpönsk kr. 11,1370 11,1990
bf" 1 Norsk kr 10,9080 10,9680
ESSænskkr. 8,8340 8,8820
3 Sviss. franki 56,8800 57,2000
|~>~|jap. yon 0,7091 0,7134
3 ECU 82,7924 83,2899
SDR 115,4200 116,1100