Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Page 22
22
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002
Tilvera DV
3
"1
Minnsta kvik-
indið
Þekktar eru 23.000 tegundir líf-
vera sem ekki teljast til skordýra
eða jurta. Eru það skriðdýr, fuglar
og spendýr. Nýlega er fundið
minnsta kvikindið af þessum teg-
undum. Það er eðla sem lifir á eyj-
unni Betaa sem tilheyrir Dóminíska
lýðveldinu í Karíbahafi. Jaragua
Sphaero er um 2,5 cm að lengd.
Sé gerður samanburður á
minnsta og stærsta kvikindi dýra-
ríkisins, ef skordýr eru undanskil-
in, þá er steypireyður 1.600 sinmrni
lengri og einum milljarði sinnum
þyngri. Litla eðlan er í útrýmingar-
hættu vegna skógarhöggs í heim-
kynnum hennar.
Nýtt og betra
skrapatól
Endurbætt ísskafa er komin á
markað vestan hafs. Þaðan berast
þau gleðitíðindi að nýja skafan sé
mun fljótvirkari en eldri gerðir. Á
henni eru mismunandi
tennur, grófar og finar,
sem hreinsa ís-
inn af bíl-
rúðum á fljótari
hátt en eldri gerðir.
Nýja skafan lagar sig líka
eftir bungunni á bílrúðunum
sem skafið er af. Kannski verður
maður kominn með endurbætta ís-
sköfu fyrir veturinn og verður ögn
fljótari að komast í vinnuna þegar
morgunferðalagið hefst á að ná isn-
um af bílrúðunum.
Hjartapoki
Fyrir kemur að hjartað í þeim
sem fá slag eða önnur áfóll sem
veikja þennan mikilvæga vöðva fer
að stækka en verður
máttminna að
sama skapi.
Þótt hjartað
stækki
deyja
frumur í
vöðvan-
um og
hann verð-
ur eins og
druslulegur
ofvaxinn poki.
Nú er búið að finna upp poka sem
er gerður úr sterku neti sem settur
er utan um hjartað til að koma í veg
fyrir ofvöxt þess. Hjartapokinn er
enn á tilraunastigi og er verið að
prófa notagildi hans á sjúklingum
sem þjást af hjartastækkun.
Leyndardómar móðurlífsins
Þeir sem rýna í manntalsskrár og
búa til vísindi og semja skýrslur
upp úr þeim standa agndofa gagn-
vart þeirri staðreynd að mun fleiri
drengir en stúlkur fæðast í Suður-
Evrópu en norðar í álfunni. í Norð-
ur-Ameríku er þessu öfugt farið. í
breska læknablaðinu er því velt fyr-
ir sér hvort breiddargráðan hafi
Stúlka eöa drengur?
Engin skýring finnst enn á hvers vegna færri drengir fæOast fyrir noröan en sunnan í Evrópu né hvers vegna
þessu er öfugt fariö í Ameríku.
einhver áhrif á hvort kynið hefur
vinninginn í fæðingartíðni. Niður-
staðan er sú að breiddargráðan
kunni að hafa einhver áhrif á fæð-
ingartíðni hvors kyns um sig, séu
margir aðrir kraftar að verki, en
ekki hægt að útskýra hverjir.
Rannsóknarmenn skiptu Evrópu
í þrjár breiddargráður í þessu tiiliti.
Syðst voru Malta, Spánn og Ítalía. I
miðjunni Austurríki, Frakkland og
Bretlandseyjar. Nyrst Danmörk, ís-
land og Svíþjóð. I Ameríku var
skiptingin; Mexíkó, Bandaríkin,
Kanada. Skýrslur Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunarinnar voru hafðar til
hliðsjónar við útreikninga.
Greinilegur munur er á fæðingar-
tiðni kynjanna eftir breiddargráð-
um. Mun fleiri drengir fæddust
syðst í Evrópu en í miðjulöndunum
og hinum nyrstu. En í Mexikó fædd-
ust mun fleiri stúlkuböm en dreng-
ir miðað við löndin þar norður af.
Það sýnist hvorki vera breidd-
argráða eða hitamunur sem ræður
mismun á fæðingartíðni kynja. Því
munu rannsóknir halda áfram 1
nafni vísindanna þar til svarið ligg-
ur ljóst fyrir.
Aldrei hlýrra en nú
Vasavideo
Síöan reglulegar hitamælingar
hófust vora fyrstu þrír mánuðir
þessa árs hinir hlýjustu sem sögur
fara af. Meðalhitinn á jörðinni var
0,71 gráðu hærri en meðalhitastigið
1961-1990 mældist.
Þetta er enn athyglisverðara fyrir
þá sök að ekki gætti hitabreytinga
frá Kyrrahafsstraumnum E1 Nino,
sem nú hefur hægt um sig, en hann
veldur miklu um hitafar hafsins og
þar með lofthjúpsins. Breytingar á
meðalhita hefur til þessa mátt að
einhverju leyti rekja til áhrifa
straumsins.
Sérfræðingur í breskri stofnun
sem rannsakar veðurfar og lang-
tímabreytingar á þvi heldur því
fram að samkvæmt mælingum á
trjáhringjum hafi veðrið á þessum
árstíma ekki verið heitara síðustu
þúsund árin.
Hitunin kemur vísindamönnum
ekki á óvart því spáð hefur verið
hitnandi veðurlagi og kenna margir
gróðurhúsaáhrifum um vegna
brennslu jarðarbúa og útstreymi
koltvísýrings. Aðrir halda því fram
að loftslagsbreytingaraar eigi sér
náttúrulegar orsakir og sé mönnum
ekki um að kenna nema að óveru-
legu leyti. Um hitt deila menn ekki
að hitinn hækkar og kemur til með
að gera það áfram um óvissan tíma.
Séu kenningar um gróðurhúsa-
áhrif vegna brennslu og útblásturs
af mannavöldum er vist að þótt
Vörn gegn
eitri í lofti
Það er torvelt að finna eiturefni í
lofti nema með tiltölulega viðamikl-
um tækjum. Nú er búið að finna upp
tæki sem hægt er að hafa í brjóstvasa
eða næla utan á sig og er ekki meira
um sig en krónupeningur. Á tímum
hryðjuverka og loftmengunar er talið
að nýja eiturvörnin verði almennings-
eign fyrr en varir.
Varnartækið er flókin efnafræðileg
samsetning en auðvelt í notkun. Þeg-
ar gas eða önnur eiturefni fara yfir
hættumörk litast tækið og er hægt að
sjá á þvi að vissara er að anda ekki
djúpt og hypja sig sem fyrst í annað
umhverfi, ef það er ekki orðið of seint.
Þegar komið er í hreinna loft fer
hættuliturinn af tækinu og það verð-
ur grámyglulegt á ný.
Tækið er nú á því stigi að það
skynjar eiturgas eða önnur loftkennd
eiturefni sem stafa frá iðnverum, út-
blæstri olíuknúinna véla og eitrun
sem hermdarverkamenn nota til að
skaða fólk. Tækið getur líka kveikt á
sér ef eiturgufur stíga upp frá kjöti
eða öðrum matvælum sem eru
skemmd.
Unnið er að þróun svipaðs tækis
sem nemur sýkla og varar við þeim
sem teljast hættulegir heilsu manna.
Eiturvörn
Ef mengun í lofti eöa eiturgas fer yfir hættustig breytir eiturvörnin um lit.
Innan þriggja ára er reiknað með
að vasavideo verði komið á almenn-
an markað. Kóreskt fyrirtæki er
búið að kynna sitt smátæki en búist
er við að fleiri framleiðendur séu aö
undirbúa framleiðslu á svipuðum
tækjum.
Litla tækið tekur upp efni úr sjón-
varpsstöðvum hvar sem er. Það er
þráðlaust og nær send-
ingum úr gervihnött-
um. Stærðin er um
9 sinnum 12 sm,
þykktin 3 sm.
brennsla verði minnkuð til mikilla
muna mun meðalhitinn halda
áfram að hækka vegna þess ferlis
sem komið er af stað. Hitinn mim
því hækka um allt að einni gráðu og
á næstu 30-40 árum mun sjávarborð
hækka þegar heimskautaísinn
bráðnar. Það tekur höfin mun
lengri tíma að hitna en andrúmsloft-
ið og því mun enginn mannlegur
máttur geta stöðvað áframhaldandi
hitnun hafanna.
Uppþornaöir kaktusar í Kólumbiu
En þurrkarnir stafa af breytingum á Kyrrahafsstraumnum El Nino, sem aftur breytist eftir hitaskiþtum í
andrúmsloftinu.