Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2002, Síða 13
13
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002
PV____________________________________________________________________Útlönd
IKl
Niðurskurðartillögur Sharons samþykktar í ísraelska þinginu í annarri tilraun:
Formenn ekki samstiga
Leiðtogi Fólka-
flokksins í Færeyj-
um, Anfinn Kails-
berg, lögmaður eyj-
anna, og Jóannes
Eidesgaard, leiðtogi
Jainaðarflokksins,
eru ekki sammála
um hvemig stjóm-
armynstur færi best að láta reyna á.
Kallsberg vill mynda stjóm með nú-
verandi landstjórnarflokkum og
jafnaðarmönnum en Eidesgaard vill
fá Sambandsflokkinn í stað hins
sjálfstæðissinnaða Þjóðveldisflokks
sem nú er í stjóm.
Mannfall í Kasmír
Fjórir Pakistanar féllu og um tólf
særðust þegar indverskar hersveitir
skutu á þorp við vopnahléslínu í
hinu umdeilda Kasmír-héraði og
inni í Punjab-héraði. Mikil spenna
er milli Indlands og Pakistans og
óttast margir að stríð brjótist út.
Sendiráð ísraels brann
Sendiráð ísraels í París gjöreyði-
lagðist í eldsvoða í nótt og þykir lik-
legt að eldurinn hafi komið upp af
slysni. Verið var að gera endurbæt-
ur á húsnæðinu. Rannsókn á þó eft-
ir að fara fram á orsökum brunans.
Bin Laden ekki í haldi
Bandaríski herinn bar í gær til
baka orðróm á fjármálamörkuðum
að hryðjuverkaforinginn Osama bin
Laden hefði verið handtekinn.
Sammála gagnrýni
Leiðtogar dönsku stjómarand-
stöðunnar tóku í gær undir gagn-
rýni sænskra ráðherra á útlend-
ingapólitík dönsku stjórnarinnar,
gagnrýni sem hefur farið mjög fyrir
brjóstið á dönskum ráðamönnum.
Lík Chöndru fundið
Lík ungrar banda-
jjM rískrar konu,
Chöndru Levy, sem
hvarf fyrir meira en
J ári fannst í gær í al-
■ menningsgarði í
H Washington. Chand-
Wm B ra var vön að skokka
"----—-------* í garði þessum.
Hvarf hennar vakti mikla athygli þar
sem hún hafði átt vingott við þing-
manninn Gary Condit.
Páfi vaknar á hóteli
Jóhannes Páll páfl syngur í dag
messu fyrir fámennan söfnuð kaþ-
ólskra í Aserbaídsjan. Páfi gisti í nótt
á hóteli en það hafði hann aldrei gert
á ferðalögum sínum erlendis í þau 23
ár sem hann hefur verið í embætti.
Tveir Israelar letust i
sjálfsmorðsárás í gærkvöld
Palestínskur sjálfsmorðsliði
sprengdi sjálfan sig í loft upp í bæn-
um Rishon Letzion í nágrenni Tel
Aviv í gærkvöldi með þeim afleiðing-
um að tveir óbreyttir borgarar, eldri
maður og unglingur, létust og allt að
27 slösuðust. Þetta er önnur sjálfs-
morðsárásin í bænum á síðustu
tveimur vikum en þann 7. maí létust
fimmtán ísraelskir borgarar þegar
sjálfsmorðsliði sprengdi sig i loft upp
á billiardstofu í bænum.
Árásin í gær var gerð í skemmti-
garði þar sem fjöldi fólks var við
skákiðkun og hafði sjálfsmorðsliðinn
litað hárið á sér ljóst til að villa um
fyrir öryggisvörðum.
Al-Aqsa-samtökin hafa þegar lýst
ábyrgð á árásinni, en hún var gerð
stuttu eftir að ísraelsk skriðdreka-
sveit hafði gert innrás í Balata-
flóttamannabúðimar í nágrenni Nab-
lus á Vesturbakkanum, þar sem fjórir
Palestínumenn voru skotnir til bana.
Þar á meðal var Mahmoud Titi, einn
Slasaðir fluttir á brott
Tveir ísraelskir borgarar létu lífiö og aö minnsta kosti 27 slösuöust þegar
palestínskur sjálfsmorösliöi lét til skarar skriöa i skemmtigaröi í bænum
Rishon Letzion i nágrenni Tel Aviv í gærkvöld.
helsti foringi al-Aqsa-samtakanna, en
hann hafði áður lýst því yfir i viðtali
að helsta takmark hans væri að stofna
palestínskan her sem hefði það að
markmiði að elta uppi og drepa
ísraelska hermenn og landnema. Ekki
er óljóst hvort sjálfsmorðsárásin í gær
var til að hefna morðsins á Titi.
Palestinsk yfirvöld voru fljót að for-
dæma sjálfmorðsárásina í gær og það
gerði Bush Bandaríkjaforseti einnig
og beindi að venju orðum sinum til
Arafats um að beita sér gegn síendur-
teknum sjálfsmorðsárásum.
ísraelska ríkisstjómin kom saman
í morgun til að ræða hugsanleg við-
brögð og bárust fréttir snemma í
morgun um að innrás skriðdreka-
sveita í bæinn Hebron á Vesturbakk-
anum væri hafin.
ísraelska þingið samþykkti í gær
niðurskurðartillögur Sharons, þegar
hann lagði þær fyrir i annað skipti
eftir að þær höfðu verðið felldar í
þinginu í fyrradag.
REUTERSMYND
I lausu lofti eftir langa súlustöðu
Fjöllistamaöurinn David Blaine stekkur hér niöur af 25 metra hárri og 56 sentímetra breiöri súlu i Bryant Park i New
York í gær, eftir aö hafa staöiö á toppi súlunnar i meira en 34 klukkustundir. Blaine lenti mátulega mjúkri lendingu i
pappakassahrúgu sem komið haföi veriö fyrir viö súluna.
Cheney óttast
upplýsingaleka
Dick Cheney, varaforseti Banda-
ríkjanna, sagði í gær að hann óttað-
ist að ný rannsókn á atburðunum
11. september, eins og leiðtogi
demókrata í öldungadeild Banda-
ríkjaþings hefur lagt til, yrði til þess
að leynilegar upplýsingar lækju út.
Það gæti síðan grafið undan við-
leitni stjórnvalda til að koma 1 veg
fyrir frekari árásir.
Demókratinn Tom Daschle sagð-
ist ætla að þrýsta á að óháð rann-
sókn færi fram eftir að fréttir
hermdu að stjórnvöld hefðu ekki
áttað sig á fjölda vísbendinga um yf-
irvofandi árásir á síðasta ári og að
ef til vill hefði verið hægt að koma i
veg fyrir þær.
Láttu þér líða
vel!
BLITZ fataskápur, B91 x D57 x H197.
Fæst í kirsuberja og beyki.
Hafðu pláss fyrir meira
ilJSO
BUTZ fataskápur, B181 x D57 x H197. Fæst í beyki og kirsuberja .
> , , v ’ • ,
v-' A
KENT fataskápur, kirsuberja. B225x D61 x H222.
HU5GAGNAHOLLIN
Bíldshöfða 20 • 110 Reykjavík
sími 510 8000 • www.husgagnahollin.is