Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Síða 6
6
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002
DV
Fréttir
Ósætti frænda
Mikla athygli vakti þegar í odda
skarst milli Máa og Þorsteins Vil-
helmssonar, frænda hans. Sá síðar-
nefndi seldi hlut sinn í Samherja og
fluttist til Reykjavíkur. Hlutur hans
var metinn á rúma þrjá milljarða
króna og urðu blaðaskrif um órétt-
læti þeirrar ráðstöfunar fjármuna
úr sameiginlegri auðlind þjóðarinn-
ar. Ekki ber heimildum DV saman
um nákvæmar ástæður þess að Þor-
steinn hætti hjá Samherja en hermt
er að þeir frændur hafi ekki talað
saman næstu misseri. Sjálfur sagði
Þorsteinn Vilhelmsson um viðskiln-
aðinn að þar réðu hagkvæmnissjón-
armið einkum.
Fagnar með Big Mac
í nóvember árið 2000 birti DV út-
tekt um valdamestu einstaklingana
á landinu. Þar var Þorsteini Má
Baldvinssyni lýst sem ókrýndum
konungi sægreifanna. „Hann er
stærsti eigandi og framkvæmda-
stjóri stærsta sjávarútvegsfyrirtæk-
is landsins, sem auk þess teygir
Þorsteinn Már Baldvinsson hjá Samherja:
erfiðlega gangi oft að ná tali af hon-
um. Jafnvel er hermt að Þorsteinn
Már vilji ráða umræðuefninu og
ferðinni i samskiptum við fjölmiðla
en þegar honum ofhýður umræðan
er hann óhræddur að viðra skoðan-
ir sínar. Stundum hefur orðbragð
hans valdið fjaðrafoki í samfélag-
inu.
„Hann er dálítill Akureyringur
en þó ekkert rosalega upptekinn af
því. Hans viðskipti eru alþjóðleg og
ég held hann sé fyrst og fremst upp-
tekinn af starfsemi síns fyrirtækis,"
segir einn náinna samstarfsmanna
Þorsteins Más.
„Vinnan er hans ástríða"
- efnaður dugnaðarforkur sem færist stundum of mikið í fang
Nafn: Þorsteinn Már Baldvinsson
Aldur: 49 ára
Fjölskylda: Kvæntur Helgu Steinunni
Guömundsdóttur,
2 börn.
Menntun: Stýrimaður og
skipaverkfræðingur
Heimlli: Akureyri
Staða: Framkvæmdastjóri
Efni: Aukin umsvif Samheija hf.
Þorsteinn Már Baldvinsson, 50
ára, er með umsvifamestu við-
skiptamönnum íslandssögunnar.
Hann er lykilstjórnandi hjá Sam-
herja og á stóran hlut í félaginu sem
hann stofnaði sjálfur. Umsvif hans
teygja sig þó langt umfram ítök
hans í sjávarútvegi, án þess þó að
Mái - eins og hann er kallaður á Ak-
ureyri - hafi sérstaka viðskipta-
menntun. Hann er skipaverkfræð-
ingur og stýrimaður að mennt og
bakgrunnur hans tengdist áður fyrr
fyrst og fremst útgerð. Hann sá skip
liggja í Hafnarfjarðarhöfn árið 1992
sem síðar hlaut nafnið Akureyrin.
Skömmu síðar varð Samherji stór-
veldi en í seinni tíð hefur nafn hans
tengst harðri alþjóölegri viðskipta-
baráttu sem teygir anga sina víða.
Þar má nefna ORCA-hópinn og átök-
in um íslandsbanka.
Nærmynd
Björn Þorláksson
blaðamaöur
Vinir og samstarfsmenn Þor-
steins Más lýsa honum sem vinnu-
þjarki sem veiti sér fáar afþreying-
arstundir. Hann skreppi örsjaldan í
veiði eða í einstaka skíðaferð en
fylgist ágætlega með íþróttaviðburð-
um, einkum frammistöðu KA, og
komi fyrir að hann gangi nánast af
göflunum í hita leiksins. Hann þyk-
ir standa fast á sínu og minnast
menn deilu milli hans og Þorsteins
Vilhelmssonar sem endaði með því
að sá síðarnefndi seldi hlut sinn í
Samherja og fluttist frá Akureyri.
„Hann er á kafi í sínum bissness
og hugfanginn af starflnu. Vinnan
er hans ástríða og hún tekur hans
tíma allan," segir einn samstarfs-
manna Þorsteins Más.
Sanngjarn stjórnandi
Þeir eðliskostir sem menn þakka
velgengni hans er að Mái þykir vel
geflnn þrátt fyrir „einstaka snögga
bletti", eins og einn viðmælenda DV
orðaði það. Þá þykir hann sann-
gjarn stjómandi alla jafna. Á hinn
bóginn hefur Þorsteinn Már stund-
um verið gagnrýndur fyrir að dreifa
ekki ábyrgðinni nægilega mikið og
færast of mikið í fang. Fjölmiðla-
menn hafa einnig kvartað undan að
arma sína til margra annarra
landa.“
í umsögn blaðsins sagði þá um
þennan harðduglega viðskiptajöfur:
„Hann fagnar milljarðasamningum
með því að fá sér Big Mac.“
Berst lítið á
Einn samstarfsmanna Máa segir
rétt að hann berist ekki mikið á.
Hann fari vel með fé og geri sömu
kröfu til vinnufélaganna. Hann sé
alltaf að pæla í sjávarútvegi og
þekking hans á greininni sé feiknar-
leg og nái til allrar Evrópu. Hann
hafl fyrst komist á sjó 6-7 ára gam-
all með fóður sínum. Sé talnaglögg-
ur enda margir stærðfræðingar i
ættinni. Hann er sagður þekkja
flestöll stærri fiskiskip í smáatrið-
um.
Eiginkona Máa er Helga Steinunn
Guðmundsdóttir og eiga þau tvö
uppkomin böm.
Iðnaðarráðherra segir óvissukostnað orkufyrirtækja allt of mikinn:
Vill setja skorður á umhverfisrannsóknir
- ótrúleg ummæli sem lýsa valdhroka að mati Vinstri grænna
Valgerður Sverrisdóttir, við-
skipta- og iönaðarráðherra, boðar
breytingar á löggjöf um virkjanir og
umhverfismat vegna þess mikla
kostnaðar sem orkufyrirtæki standi
frammi fyrir áður en ráðist er í
framkvæmdir. Þetta kom fram I
ræðu ráðherra á ársfundi RARIK
sem haldinn var á Akureyri í gær.
„Nú hafa hins vegar skipast veð-
ur í lofti varðandi ný virkjunar-
mannvirki frá því sem var á árdög-
um rafvæðingarinnar og jafnvel
þeir aðilar sem einna mest fá í sinn
hlut og best hafa notið nálægðar
virkjana vilja ekki lengur stuðla að
uppbyggingu orkuiðnaðarins í sinni
heimabyggð. Hér kemur eflaust
flestum í hug hin mikla umræða um
umhverflsmál virkjana sem áber-
andi hefur verið á undanfömum
misserum. Eins og kunnugt er
verða nýjar virkjanir í dag ekki
reistar nema að undangengnu mati
á umhverfisáhrifum. Kröfur sem
gerðar eru til rannsókna vegna
matsvinnunnar hafa stóraukist og
þessi rannsóknakostnaður er orð-
inn verulega íþyngjandi fyrir fram-
kvæmdaraðila þar eð sú óvissa er
alltaf fyrir hendi að ekki verði fall-
ist á viðkomandi framkvæmd í úr-
skurði stjómvalda um niðurstöður
matsins,“ sagði ráðherra.
Valgerður sagði brýnt að breyta
lögum þannig að orkufyrirtæki
þurfi ekki að eyða tugiun eða himd-
ruðum milljóna króna í mismun-
andi gagnlegar rannsóknir vegna
mats á umhverfisrannsóknum sem
hugsanlega skipti engu máli um það
hvort ráðist veröur í framkvæmd
eða ekki. „í raun eru þessar rann-
sóknir komnar langt umfram eðli-
legar kröfur sem gera verður til að
komast að raun um hvort viðkom-
andi mannvirki hafi óviðunandi
áhrif á umhverfi sitt. Við endur-
skoðun laga um mat á mnhverfisá-
hrifum er nauðsynlegt að setja ein-
Valgerður Ögmundur
Sverrisdóttir. Jónasson.
hverjar skorður á kröfugerð um
rannsóknir og ekki síður þarf að
setja skýrari reglur um inntak leyf-
isveitinga vegna virkjunarmann-
virkja,“ sagði ráðherra.
Ótrúleg ummæli
„Þetta eru ótrúleg ummæli og
hljóma nánast sem ögrun gagnvart
náttúruvemdarsinnum. Þótt ég geri
mér grein fyrir að Valgerður Sverr-
isdóttir hafi ráðherravald nú um
stundarsakir þarf að fara vel með
það vald og láta það ekki snúast upp
í valdhroka. Ég sé ekki betur en það
sé að gerast," segir Ögmundur Jón-
asson, þingflokksformaður Vinstri
grænna.
Hann segir að virkjanir og þær
breytingar sem þær hafi í för með
sér á náttúrunni séu ekkert stund-
arfyrirbrigði heldur þýði þær óaft-
urkræf spjöU og menn hafi ekki
leyfi til annars en ráðast í slíkar
breytingar að undangengnum ítar-
legum rannsóknum. „Þótt þær kosti
sitt er sá kostnaður smámunir í þvi
samhengi. Það eina sem skýrt gæti
ummæli ráðherrans er að stjóm-
völd ætli að hunsa niðurstöður
rannsókna eins og dæmin hafa
sannað. Þá er til lítils að leggjast í
mikinn kostnað en rannsóknrinar
em til þess að taka þær alvarlega.
Þessi ummæli Valgerðar Sverris-
dóttur eru fullkomlega ábyrgðar-
laus, ekki síst gagnvart komandi
kynslóðum," segir Ögmundur. -BÞ
RÉYKJAVÍK AKUREYRI
Sólnrlag í kvöld 23.25 23.11
Sólarupprás á morgun 03.25 03.11
Síðdegisflóð 21.26 14.23
Árdegísflóð á morgun 09.50 01.59
Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s.
Þokusúld um landið austanvert og
við norðurströndina en skýjað með
köflum og skúrir í öðrum
landshlutum. Hiti víða 10 til 15 stig
að deginum en svalara á annesjum
norðan- og austanlands.
Skýjað og víða úrkoma
Víða rigning á norðanverðu
landinu á morgun en skýjað með
köflum sunnan til og skúrir
síðdegis. Heldur kólnandi veður.
mg'm mmm J
Laugardagur Sunnudagur Mánudagur
O o
Hiti 7* Hiti 5° Hiti 5°
til 18° til 15° til 16°
Vindur: 3-8 "V* Vindur: 3-8m/« Vindur: 3-8 nV*
Suðlægeða breytileg átt. Skýjað meö köflum en lítíl úrkoma. Hæg breytíleg átt, skýjaö meö köflum og skúrir er líöur á daginn. Áfram hæg breytíleg átt og víöa hafgola. Birtír víöa tíl og áfram hlýtt í veðri.
t *
Logn
Andvari
Kul
Gola
Stinnlngsgola
Kaldl
Stinningskaldi
Allhvasst
Hvassviðrí
Stormur
Rok
Ofsaveður
Fárviðri
m/s
0-0,2
0,3-1,5
1,6-3,3
3.4- 5,4
5.5- 7,9
8,0-10,7
10.8- 13,8
13.9- 17,1
17,2-20,7
20,8-24,4
24.5- 28,4
28.5- 32,6
>= 32,7
AKUREYRI rigning 9
BERGSSTAÐIR
B0LUNGARVÍK hálfskýjaö 8
EGILSSTAÐIR rigning 5
KIRKJUBÆJARKL. skýjað 9
KEFLAVÍK skýjaö 9
RAUFARHÖFN rigning 7
REYKJAVÍK hálfskýjaö 9
STÓRHÖFÐI rigning 9
BERGEN súld 10
HELSINKI léttskýjaö 17
kaupmannahofn léttskýjað 13
OSLO rigning 11
STOKKHÓLMUR 15
ÞÓRSHÖFN skýjaö 9
ÞRÁNDHEIMUR skýjað 18
ALGARVE heiöskírt 18
AMSTERDAM skýjaö 12
BARCELONA léttskýjaö 15
BERLÍN heiðskírt 13
CHICAGO léttskýjaö 21
DUBUN skúr 10
HAUFAX þoka 10
FRANKFURT léttskýjaö 11
HAMBORG léttskýjaö 12
JAN MAYEN þoka 2
LONDON skýjaö 11
LÚXEMBORG léttskýjað 10
MALLORCA heiöskírt 18
MONTREAL 19
NARSSARSSUAQ skýjað 5
NEW YORK hálfskýjað 18
ORLANDO alskýjað 24
PARÍS léttskýjaö 11
VÍN léttskýjaö 16
WASHINGTON þokumóða 17
WINNIPEG þoka 16
H3FT7T7T3HI