Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Qupperneq 18
18
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002
Tilvera
WKKtMMSESM
Frumsýningar í bíóum:
Blaðberar óskast
í Kópavogi
Hverfi: Kársnesbraut
Fær Harry Potter
nýjan leikstjóra?
Chris Columbus er
á fullu við að leik-
stýra Harry Potter
mynd númer tvö. Þeg-
ar er farið að undir-
búa þriðju myndina, Harry Potter
and the Prisoner of Azkaban, og er
áætlað hún verði sýnd 2004. Sá sem
leikur Harry Potter, Daniel Radcliffe,
eldist eins og Harry Potter og er nú
talið vist að Chris Columbus leikstýri
ekki fleiri Potter-myndum. Líklegast
er talið að mexíkóski leikstjórinn Al-
fonso Cuarón (Y To Mamá También)
fái það hlutverk að leiðbeina Harry
Potter í gegnum unglingsárin, en
hann þykir einkar laginn við að leik-
stýra unglingum.
Pacino hælir Williams
Þrátt fyrir að eiga í
höggi við risana,
Spider Man og Star
Wars ... þá gerði
tryllirinn Insomnia
það gott í Bandaríkj-
unum um síðustu
helgi. Myndin sem
byggð er á norskri kvikmynd fékk af-
brags dóma hjá gagnrýnendum og hef-
ur það hjálpað tO, auk þess sem aðal-
leikaramir eru A1 Pacino og Robin
Williams. í tilefni frumsýningarinnar
var viðtal við Pacino sem eyddi mikl-
um tíma í að hæla Robin Williams:
„Það er ekki hægt annað en dást að
honum. Hann er vel upplýstur,
skemmtilegur og mannlegur. Mér leiö
alltaf vel í návist hans og hvað varðar
að vera fyndinn í eðli sínu þá er hann
langt fyrir ofan alla aðra sem ég
þekki.“
Prowse vill leika
Darth Vader
Það eru sjálfsagt
aðeins Star Wars-að-
dáendur sem dýrka
leikarann David
Prowse og vita hver
hann er. Prowse lék í
öllum þremur Star Wars-myndunum í
fyrstu seríunni. Lék hann Darth Vat-
er, sem enginn sá hvernig leit út. í
þriðju myndinni í nýju Star Wars-ser-
íunni og þeirri síðustu mun Darth Va-
ter koma aftur fram á sjónarsviðið.
Prowse, sem orðinn er 66 ára gamall,
vill óður og uppvægur fá að leika hinn
illa Vader aftur. „Ég held að það væri
skynsamlegast fyrir George Lucas að
fá mig í hlutverkið. Ég á fjöldann all-
an af aðdáendum sem mundu verða
fyrir miklum vonbrigðum ef ég fengi
ekki hlutverkið," segir Prowse og hef-
ur þar með sent boltann yfir tO Lucas-
ar.
Atriði með Jennifer
Lopez of djarft
Mótleikari JennO'er
Lopez í Enough, BOly
CampheO, var ekkert
ánægður með að vera
kaOaður í viðbótar-
tökur á myndinni
þegar hann frétti að í
staðinn fyrir að gefast upp fyrir töfr-
um Lopez átti hann að neita henni.
Ástæðan fyrir þessu er sú að kvik-
myndaeftirlitinu þótti sturtuatriði
þeirra of djarft og tO að fá réttan
stimpO á myndina var ákveðið að
klippa það burt: „Það er öfugsnúið að
þurfa að neita Jennifer Lopez,“ segir
CampbeO. „Hún er ein faOegasta kona
sem ég hef nokkru sinni hitt og ég
stóð mig að því hvað eftir annað við
upptökurnar að stara á hana.“
Týndur lottómiði, blóðsugur,
framhaldslíf og fortíðarsakamál
Nú eru vinsælustu kvikmyndir
sumarsins hingað tO, Spider Man
og Star Wars, búnar að ganga
lengi í aðalsölum kvikmyndahús-
anna á höfuðborgarsvæðinu og
kominn tími tO að flagga nýjum
kvikmyndum og á morgun verða
frumsýndar fjórar nýjar kvik-
myndir, sem allar eru bandarísk-
ar. Þótt ólíkar séu má segja að
dulúð og sakamál af einhverjum
toga sameini þær.
High Crimes
High Crimes er sakamálamynd
með Morgan Freeman og Ashley
Judd í aðalhlutverkum og er
þetta er í annað sinn sem þau
leika saman - muna margir eftir
þeim i hinni ágætu sakamála-
mynd Kiss the Girls. Judd leikur
lögfræðinginn Claire Kubik, sem
verður fyrir meiri háttar áfaOi
þegar eiginmaður hennar er
handtekinn og ákærður fyrir
morð á óbreyttum borgurum í E1
Salvador. Ekki er nóg með að
Claire vissi ekki um fortíö eigin-
manns hennar, heldur hafði hún
ekki grun um að hann hafði heit-
ið öðru nafni. Hún ákveður að
verja hann enda segist hann sak-
laus. Claire fær þó vissar efa-
semdir um atburðina og leitar á
náðir koOega síns, Charlie
Crimes (Freeman) sem hafði
starfað sem lögfræðingur fyrir
herinn og biður hann um aðstoð.
Auk þeirra Judds og Freemans
leika í High Crimes, Jim Caviezel
og Amanda Peet. Leikstjóri er
Carl Franklin sem á að baki tvær
úrvals sakamálamyndir, One
False Move og DevO in a Blue
Dress.
All About the Benjamins
Það eru tveir vinsælir svartir
leikarar og söngvarar, Ice Cube
og Mike Epps, sem leika aðalhlut-
verkin í AIl about the Benjamins,
sem er gamansöm sakamála-
mynd. Myndin fjaOar um Bucum
Jackson (Cube) sem vinnur við að
elta uppi fólk, tryggingafyrirtæki
og passar að verðandi tugthúslim-
ir stingi ekki af frá trygginga-
greiðslum sem halda þeim á göt-
unni fyrir dómsúrskurð. Bucum á
sér þann draum að opna sína eig-
in einkaspæjaraskrifstofu. Þar sem
hann vantar sárlega fé tO að gera
drauma sína að veruleika tekur hann
að sér að elta uppi smáglæpamann-
inn Reggie Wright (Mike Epps) sem
er sjálfstraustið uppmálað og
málglaður með eindæmum. Þetta eru
ekki fyrstu kynni Bucums og Reggies
enda hyggst Reggie ekki láta góma
sig á ný og felur sig í sendOerðabO í
nágrenninu. GaOinn er sá að í sendi-
bílnum eru demantaþjófar og ráns-
fengur þeirra; eðalsteinar upp á 20
mOljónir doOara. Hvorki Reggie né
Bucum hafa mikinn áhuga á að verða
á vegi WOliamsons en þar sem
Reggie gleymdi veski sínu í sendi-
bílnum er málið annað. í veski hans
er nefninlega lottómiði með 60 miOj-
óna doOara vinningi og slíkt er eitt-
hvað sem maður bara skOur ekki eft-
ir.
Queen of the Damned
Blóösugurnar Lestat (Stuart Townsend) og Akasha drottning (Aaliyah).
All About Benjamins
Einkalöggan Bucum Jackson (lce Cube) og smákrimminn Reggie Wright (Mike
Epps) snúa bökum saman gegn hættulegum glæpamönnum.
Queen of the Damned
Queen of the Damned er byggð
á einni bók í skáldsöguflokki
Anne Rice, Vampire Chronicles,
um vampíruna Lestat, sem Tom
Cruise lék i hinni eftirminnOegu
kvikmynd Interview with a
Vampire. Nú er Lestat orðin
rokkstjarna, sem vekur upp
drottningu allra vampira, Sú er
leikin af hinni nýlátnu söng-
konu Aalyah.
Tónlist Lestat er svo mögnuð
að hún vekur Akasha upp frá
dauðum og hún er svo máttug að
aOar aðrar vampírur verða að
sameinast tO að sigrast á henni.
Á sama tíma sem tónlist Lestat
heillar Akasha, þá verður Jesse
ástfangin af Lestat og spOlir þar
með fyrir Akasha. Mynd þessi
var gerð snemma á síðasta ári.
Stuttu eftir að tökum lauk lést
Aaliyah í flugslysi. Aaliyah var
söngkona í grúppunni L&C og
var á leið heim eftir upptökur á
nýrri plötu þegar vél hrapaði
með þessum afleiöingum. Lestat
er að þessu sinni leikinn af Stu-
art Townsend, sem er breskur
leikari sem virðist á uppleið.
Áður hefur hann leikið í Shoot-
ing Fish, Wonderland, Resur-
rection Man og About Adam.
Næsta mynd hans er 24 Hours
þar sem hann mun leika á móti
Kevin Bacon, Charlize Theron
og Courtney Love.
Dragonfly
Kevin Costner leikur aðalhlut-
verkið í Dragonfly, sem segja má
að fjaUi um samskipti hinna lif-
andi og dauðu. Læknirinn Joe
Darrow (Kevin Costner) er
þrúgaður af sorg vegna fráfaUs
eiginkonu sinnar EmUy sem lést
í rútuslysi í Suður-Ameríku þar
sem hún starfaði sem bama-
læknir í þróunarhjálp. Hann
sökkvir sér í aukavinnu á spítal-
anum tO að dreifa huganum. Yf-
irmaður hans neyðir hann tU að
taka sér frí frá störfum en Joe
finnur sig knúinn tU að líta eftir
ungum sjúklingum konu sinnar
líkt og hann hafði lofað henni.
Þegar hann heimsækir deUdina
fer hann að gruna aö kona hans
sáluga nýti sér dauðvona sjúk-
linga tU að ná sambandi við sig, sér-
staklega þegar bömin lýsa draum-
um sínum og táknum sem á óút-
skýranlegan hátt þeim firmst þau
verða að teikna upp. Heima fyrir fer
Joe líka að finna fyrir návist konu
sinnar sem reynir að ná sambandi
við hann að handan.
Auk Kostners leika í Dragonfly,
Susanna Thompson, Joe Mortin,
Ron Rifkin og Kathy Bates. Leik-
stjóri er Tom Shadyac sem þekktast-
ur er fyrir gamanmyndir á borð við
Ace Ventura, The Nutty Professor
og Liar Liar. Hann er þó enginn
byrjandi í gerð dramatískra kvik-
mynda. Hann leikstýrði tO að
mynda Patch Adams.
-HK
Uppiýsingar í síma 550 5743
Hlgh Crimes
Lögfræöingurinn Claire Kubik (Ashley Judd) leitar aöstoö-
ar hjá kollega sínum Charlie Grimes (Morgan Freeman)
þegar eiginmaöur hennar er ákæröur fyrír morö.
Dragonfly
Kevin Costner leikur yfirmann á sjúkrahúsi sem kemst í
samband viö látna eiginkonu.
uu