Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Page 27
FIMMTUDAGUR 30. MAl 2002
27
I>V
Sport
FH-KR 1-0 (0-0)
1-0 Valdas Trakis (59., skot úr teig, fylgdi eftir skoti Jóns Stefánssonar eftir að
KR-ingum mistókst að hreina frá fyrirgjöf Hilmars Bjömssonar).
Brotinn broddur
FH (4-3-3)
Daði Lárusson...........3
Hilmar Björnsson .......4
Freyr Bjarnason ........4
Róbert Magnússon........3
Magnús Ingi Einarsson ... 3
Ásgeir G. Ásgeirsson....4
Baidur Bett ............4
Jónas Grani Garðarsson .. 2
Jón Þ. Stefánsson.......2
(79., Guðmundur Sævarsson -)
Valdas Trakis ..........4
(76., Benedikt Árnason ....-)
Jóhann Möller...........2
(84., Sigmundur Ástþórsson -)
Dómari:
Eiríksson (2).
Áhorfendur: 1750.
Erlendur
Gul spjðld:
Jón (35. mín),
Ásgeir (67.),
Valdas (73.).
FH, Veigar PáU
(50.), Þorsteinn
(71.), Jón (90.),
KR.
Rauð spiöld:
Engin.
Skot (á mark):
12 (6) - 11 (7)
Horn:
1-6
Aukaspyrnur:
18-28
Rangstöður:
5-3
Varin skot:
Daði 4 - Kristján
5.
KR (4-3-3)
Kristján Finnbogason ... 3
Sigþór Júlíusson........3
Gunnar Einarsson........2
Þormóður Egilsson ......4
Jökull Elísarbetarson ... 4
(76., Niholas Purdue ....-)
Jón Skaftason ..........4
Sigurvin Ólafsson ......3
Þorsteinn Jónsson.......1
Amar Jón Sigurgeirsson . 2
(61., Magnús Ólafsson ... 2)
Sigurður Ragnar Eyjólfsson 1
(61., Guðmundur Benediktss. 2)
Veigar Páll Gutmarsson .. 2
Maður leiksins hjá DV-Sporti:
Ásgeir G. Ásgeirsson, FH
- FH-ingar unnu þriöja leik sinn í röö á KR
FH-ingar náðu tveimur stórum
takmörkum með 1-0 sigri á KR-ing-
um í gær og brutu um leið broddinn
af heitasta sóknarliði fyrstu tveggja
umferðanna. KR-ingar, sem léku í bý-
flugnabúningunum sínum að þessu
sinni, voru ekki svipur hjá sjón frá
því í fyrri leikjum og ógnuðu lítið
baráttuglöðum Hafnfirðingum.
FH vann fyrsta leik sinn í Síma-
deild karla og náði loksins að landa
sigri á fijálsíþróttavellinum þar sem
liðið hefur leikið síðustu þrjá leiki á
meðan skipt var um gras á sjáifum
Kaplakrikavellinum. Reyndar hafa
FH-ingar getað treyst á þrjú stig gegn
vesturbæjarliðinu á síðustu misser-
um en þetta var þriðji sigurinn í röð
og sá sjöundi í síðustu níu leikjum.
Það var nýr litháískur leikmaður
FH, Valdas Trakis, sem skoraöi sig-
urmarkið í fyrsta leik sínum en þessi
stóri og stæðilegi leikmaður sýndi
það að hann getur nýst FH-liðinu vel
i sumar. Trakis er sterkur í loftinu og
fljótur að þefa uppi skotfærin við teig-
inn. Sigurmarkið kom þegar hann
fylgdi eftir atlögu Jóns Þorgríms Stef-
ánssonar upp við markið. FH-ingar
gáfu allt í þennan leik og það var ljóst
að leikmenn liðsins voru mættir til
að berjast fyrir lífi sinu. Staðan hefði
verið slæm hefði annar heimaleikur-
inn tapast en með sigri eru FH-ingar
búnir að gerbreyta henni.
KR-ingar virtust værukærir og
engan veginn tilbúnir að takast á við
grimma Hafnflrðinga. Margir lykil-
mannanna áttu slakan dag og þrátt
fyrir góða frammistöðu ungu strák-
anna höfðu þeir ekki burði til að
halda leik liðsins uppi. Einar Þór
Daníelsson lék ekki vegna meiðsla og
munaði mikið um það.
Vallarstæðið var einnig erfitt yfir-
ferðar og bitnaði það mikið á gæðum
leiksins og ekki hjálpaði furöuleg
dómgæsla Erlends Eiríkssonar sem
refsaði meðal annars mönnum fyrir
að láta brjóta á sér með gulum spjöld-
um. Það ranglæti fékk Veigar Páll
Gunnarsson að þola eitt skiptið.
Ásgeir Ásgeirsson leysti Heimi
Guðjónsson af hólmi á miðjunni, lét
finna vel fyrir sér og var besti maður
FH-liðsins en einnig áttu þeir Hilmar
Björnsson, Freyr Bjamason og
Valdas Takris góðan leik.
Hjá KR stóðu ungu, strákamir Jök-
ull Elísarbetarson og Jón Skaftason,
sig vel, auk þess sem Þormóður Egils-
son var traustur í vöminni. -ÓÓJ
Baráttan gerði
gæfumuninn
- sagði Hilmar Björnsson, fyrirliði FH
„Okkar eina markmið í þessum
leik var að halda hreinu eftir að
hafa fengið á okkur sjö mörk í
fyrstu tveimur leikjunum og ég er
mjög ánægður með að það tókst,“
sagði Hilmar Bjömsson, fyrirliði
FH, í samtali við DV-Sport eftir
sigurinn á KR i gærkvöld.
„Við lögðum upp með skipu-
lagða vörn og KR-ingamir fundu
ekki leið í gegnum hana. Fyrstu
tveir leikimir hjá okkur voru
heldur slappir vamarlega og við
vissum að við ættum mikið inni.
Það þurfti bara að ná í það og það
gekk í þessum leik. Menn þjöpp-
uðu sér saman, börðust eins og
ljón og þá er ekki að sökum að
spyrja," sagði Hilmar.
Aðspurðm- hvort það hefði ekki
verið slæmt að vera án Heimis
Guðjónssonar, sem lék ekki með
vegna meiösla, sagði Hilmar að
það kæmi alltaf maður í manns
stað en viðurkenndi að hann vildi
ekki vera án Heimis í mörgum
leikjum.
Voru skipulagöari
Willum Þór Þórsson, þjálfari
KR, var daufúr í dálkinn eftir leik-
inn en sagðist þó hafa verið
ánægður með sína menn að því
leytinu að þeir gáfúst ekki upp.
„Við vorum að reyna allan tím-
ann og með það er ég ánægður.
Við vissum að þeir kæmu til með
liggja aftarlega og beita skyndi-
sóknum en því miður fundum við
ekki leiðina fram hjá þeim. Þeir
voru skipulagðari að þessu sinni.
Það koma svona leikir hjá öllum
liðum og við ætlum okkur ekki að
dvelja lengi við þennan leik. Það
er leikur á sunnudaginn gegn KA
og það mun öll okkar orka fara í
aö gera okkur klára fyrir þann
leik,“ sagði Willum Þór Þórsson,
þjálfari KR.
-ósk
Nýr lithaiskur leikmaður FH,
Valdas Trakis. skoraði sigur-
mark FH / tyrsta leik sintiin
með liðinu. Her glímir há’nn
við Jón Skaftason og Gunnai
Einarssön (leiknum i gær.
DV-mynd E.ÓI.
Keflavik a toppnum
- eftir 3-1 sigur á Fylkismönnum í Keflavík
Keflvíkingar skelltu sér á topp
Símadeildarinnar í gærkvöld er þeir
sigruðu Fylkismenn, 3-1, í Keflavík.
Leikurinn var fjörugur í upphafi þótt
liðin sköpuðu sér ekki nein færi og á
23. mínútu gerði Jóhann Benedikts-
son glæsilegt mark af löngu færi þar
sem Kjartan Sturluson, markvörður
Fylkis, truflaðist af sólinni og boltinn
yfir hann og í netið. Fylkismenn virt-
ust ekki eiga svör við sterkum vamar-
leik og Aðalsteinn Víglundsson, þjálf-
ari Fylkismanna, setti Theodór Ósk-
arsson inn fyrir Björgvin Vilhjálms-
son strax eftir 36 mínútur og breytti
úr 4-4-2 í 4-3-3.
Fylkismönnum tókst þó ekki að
skapa sér nein umtalsverð færi það
sem eftir lifði fyrri hálfleiks en á
fýrstu 15 mínútum síðari hálfleiks lá
þungt á Keflvíkingum og hreint með
ólíkindum að Fylkismenn skyldu ekki
nýta sér þau fínu færi sem þeir fengu.
Besta færi Fylkis fékk Sævar Þór á 53.
mínútu er Ómar, markvörður Kefla-
víkur, missti knöttinn frá sér og Sæv-
ar skaut af markteigi en Jóhann Bene-
diktsson bjargaði á marklínu. Mínútu
síðar áttu Fylkismenn svo góða sókn
upp hægri kantinn og frn sending
rataði beint á Sævar Þór á markteig
en skot hans fór hátt yfir.
Það er ljóst að Fylkismenn voru að
leika undir getu að þessu sinni en það
spilar víst enginn betur en andstæð-
ingurinn leyfir og taktík Keflvíkinga
með sterkum vamarleik og stórhættu-
legum skyndisóknum er svo sannar-
lega að bera árangur.
Það er ljóst að Fylkismenn voru að
leika undir getu að þessu sinni, en
það spilar víst enginn betur en and-
stæðingurinn leyfir og taktik Keflvík-
inga með sterkum vamarleik og stór-
hættulegum skyndisóknum er svo
sannarlega að bera árangur. Vöm
þeirra heimamanna, með Ómar Jó-
hannsson í fararbroddi, lék stórvel og
voru þeir Ómar og Jóhann Benedikts-
son bestu menn vallarins.
Þeir Magnús og Adolf vom síógn-
andi á köntunum, og þá átti Guð-
mundur Steinarsson einnig fínan leik
í framlínunni. Annars verður að
hrósa öllu Keflavíkurliðinu fyrir
mikla baráttu og ljóst að þeir ætla að
leggja allt í sölumar og blása á allar
hrakspár í sumar.
Það var enginn einn sem stóð upp úr
liði Fylkis að þessu sinni en aðstand-
endur Fylkis fdjóta að hafa hugsað til
Steingríms Jóhannessonar á meðan öfl
færin sem þeir fengu nýttust ekki.
Þeir vora ótrúlega lánlausir uppi við
markið og leikmenn eins og Sævar Þór
láta ekki svona færi fara fram hjá sér
fara mikið oftar í sumar.
Spilum skemmtilegan bolta
Kjartan Másson, þjálfari Keflvík-
inga, var að vonum kampakátur í
leikslok. „Við spilum skemmtilegan
bolta og við áttum helling af færum
upp úr skyndisóknum okkar. Við vor-
um rólegir og yfirvegaðir í leik okkar
og vömin sterk. Framhaldið er bara
barátta og við ætlum að halda áffam
að spila þennan bolta og sjá hvað það
skilar okkur langt."
Aðalsteinn Viglundsson, þjálfari
Fylkis, var ekki sáttur við niðurstöð-
una að leik loknum. „Við fengum á
okkur slysalegt mark þegar Kjartan
sá ekki boltann og það var það síðasta
sem mátti gerast í þessum leik því að
þeir lögðust aftar á völlinn og við
þurftum að koma hátt upp á völlinn
og þeir nýttu sér það vel með skyndi-
sóknum. En eins og seinni hálfleikur
spilaðist þá áttum við að skora 4-5
mörk, miðað við fjölda færa og með
ólíkindum að við skyldum ekki skora
úr öllum þessum fæmm.“ -EÁJ
Keflavík-Fylkir 3-1 (1-0)
1- 0 Jóhann Benedlktsson (23., skot utan teigs, sending Guðmundar Steinarss.).
2- 0 Guðmundur Steinarsson (28., skot úr teig, sending Magnúsar Þorsteinss.).
2- 1 Sverrir Sverrisson (87., skalli úr teig, aukaspyma Finns Kolbeinssonar).
3- 1 Þórarinn Kristjánsson (90., í annarri tilraun eftir stungusendingu Guðmundar).
Ómar Jóhannsson ....
Georg Birgisson.......
Zoran Daníel Ljubicic .
Haraldur Guðmundsson
Jóhann Benediktsson ..
Kristján H. Jóhannsson
Þórarinn Kristjánsson .
Hólmar Öm Rúnarsson
(77., Jónas Sævarsson
Magnús Þorsteinsson .
(84., Hafsteinn Rúnarsson
Adolf Sveinsson..........
(70., Ólafur ívar Jónsson .
Guðmundur Steinarsson .
Dómari: Garðar
Hinriksson (4).
Áhorfendur: 750.
öm
Gul spiftld:
. .5 . .4 . .4 .. 4 Þórarinn (44.), Ljubicic (85.), Keflavík. Rauð spiöld:
.. 5 Engin.
. . 4
..4
. .3
Skot (á tnark):
9 (6) - 12 (7)
Horrv
4-5
Aukaspyrnur:
9-12
Rangstöður:
4-1
Varin skot:
Ómar5-
Kjartan 3.
Fylkir (4-3-3)
Kjartan Sturluson......3
Björgvin Vilhjálmsson ... 3
(36., Theódór Óskarsson .. 3)
Ómar Valdimarsson .... 3
Þórhallur Dan Jóhannss. . 4
Gunnar Þór Pétursson ... 3
(77., Kristinn Tómasson .. -)
Valur Fannar Gíslason .. 3
Sverrir Sverrisson.....4
Finnur Kolbeinsson.....3
Hrathkell Helgason.....4
Bjöm Viðar Ásbjömsson . 3
Sævar Þór Gíslason......3
Gæðl leiKs;
Maður leiksins hjá DV-Sporti:
Ómar Jóhannsson, Kefiavík