Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Page 28
28 H&Iqcírblað !0'Vr LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 Að gefa út bók er að rétta upp hönd og hafa eitthvað að segja Jón Ynqvi Jóhonnsson, qaqn- rqnandi DV, hitti Mikael Torfason á Bo-Bi bar íKaup- mannahöfn oq talaði við hann um nqju skáldsöquna, íslenskar oq danskar bók- menntir, skqldur rithöfunda oq qmisleqt fleira. Nýjasta skáldsaga Mikaels Torfasonar heitir Samúel og kemur út um þessar mundir. Samúel er íslendingur sem er búsettur í Danmörku. Hann þjáist af mögnuð- um ranghugmyndum um sjálfan sig og konuna sína, sem kannski er mamma hans, og hann hyggur á heimsbyltingu. Útlendingahatrið í Danmörku og ástandið i Mið-Austurlöndum verða til þess að Samúel einsetur sér að gera byltingu gegn veruleikanum. Hann er búinn að sjá í gegnum allt og með hjálp átonómanna á Norðurbrú, róttæklinga sem sérhæfa sig í mótmælum og spellvirkjum, ætlar Samúel að svipta hulunni af blekkingum heimsins. í Samúel eru engin smámál á dagskrá, trúarbrögð, pólitík og geð- veiki fléttast saman við róttæka heimspeki Nietszches og Baudrillard, en bókin er samt fyrir alla og á erindi til allra, enda Mikael sannfærður um að rithöfundar sem vilja ekki ná til lesenda eigi ekki að skrifa bækur. Sjálfur hefur Mikael Torfason búið í Danmörku í nokkur ár. Á næstunni kemur Heimsins heimskasti pabbi út á dönsku og allar líkur eru á að Samúel fylgi í kjölfarið. En við ætlum ekki að tala um sigra Mikaels í útlönd- um, heldur Samúel og 68 kynslóðina, atómskáldin sem stálu ljóðinu, skyldur rithöfunda og ýmislegt fleira. Við byrjum á uppáhaldsskotmarki Mikaels: 68 kynslóð- inni - kynslóð foreldranna. Að breyta sjálfum sér en ekki heimin- um - Bæði í Heimsins heimskasta pabba og núna í Sam- úel er einhver reiði og uppgjör í gangi. En reiðin bein- ist ekki endilega gegn þessari eilífu leit 68 kynslóðar- innar eða draumum sem hafa verið sviknir. Það er meiri reiði út í hina endalausu úrvinnslu, út i fólkið sem er alltaf „að vinna í sínum málum“? „Já, þetta er svona eins og með pólitíkusa. Maður veit að þeir meina vel og allt það en það sem þeir gera er bara endalaust hjakk. Þannig er það líka með þessa endalausu sjálfsskoðun og sjálfshjálp sem' er í Samúel. í staðinn fyrir að breyta sögunni og heiminum þá er fólk alltaf að reyna að breyta sjálfu sér og hjakkast í því. En svo deyr það hvort sem er. Ég veit það ekki, ég held samt að fólk taki þetta stundum rosalega hátíðlega. Eins og með Heimsins heimskasta pabba, fólk tók hana geðveikt hátíðlega eins og t.d. þessa gagnrýni á 68 kynslóðina, og eins þétta með skilnaði. Fólki fannst ofboðslega merkileg tíðindi að ég væri einhvern veginn á móti þeim og vildi snúa aftur til einhverrar fortíðar og bla bla bla. Fólk heldur ótrúlega oft að maður hafi einhverjar skoðanir bara af því að persónurnar í bókunum manns hafa þær.“ - En á þetta bara við um skoðanir? Slengir fólk ekki saman þér og persónunum í sambandi við framkomu og hreinlega oröbragð? Heimsins heimskasta pabba er haldið saman af skít og í Samúel er það píkan sem ber uppi mikið af myndmálinu. Nöfnin sem hann velur mömmu sinni og þeirri sem hann heldur að sé konan sín eru t.d. ekki alltaf falleg. „Ja, sumir geta náttúrlega alls ekki lesiö bækurnar mínar. Ég man þegar ég skrifaði Falskan Fugl. Ég átti eina mjög góða vinkonu sem ég hafði oft rætt við um bókmenntir og svona - hún var amma vinar mins. Við vorum svona guttar að þykjast vera voða intellektúal og ræða málin. Hún var islenskukennari og voða góð við okkur. Ég lét hana hafa Falskan Fugl í handriti, vildi endilega að hún færi yfir stafsetningu og svona áður en ég færi að senda hana lengra. Hún gat ekki klárað bókina. Hún bara skildi þetta ekki. Samt þekkti hún mig náttúrlega fyrir. En það eru líka margir sem eiga í vandræðum með að hitta mig eftir að hafa lesið bækurnar, af því að persónurnar eru þannig." - En samsamar þú þig persónunum að einhverju leyti meðan þú ert að skrifa? „Ég verð svo manískur meðan ég er að skrifa bæk- urnar og það verður ekki alveg meðvitað hvemig per- sónan þróast. Nú er ég búinn að vera í tvo mánuði á geðveikum bömmer af því að þetta er búið. Ég var meira að segja farinn að skrifa greinar á strik.is um deiluna milli ísraelsmanna og Palestínumanna sem voru eins og Samúel hefði skrifað þær. Þetta voru mín- ar skoðanir að einhverju leyti en þetta ruglast allt í hausnum á mér. Ég get alveg þekkt þessar skoðanir í mér, en þær voru samt einhvern veginn bara hluti af stemningunni. Ég horfði á fréttir allan sólarhringinn og var inni á öllum vefsíðum um málið, af því að þetta var áhugamál hans, og síðan eftir að ég var búinn hef ég ekki getað horft á fréttir. Ég datt bara út úr fréttun- um og hef ekki hugmynd um hvernig staðan er í mál- um Palestínu og ísraels, sem ég var meö alveg á hreinu og hélt um brjálaðar ræður í öllum partíum." - Falskur Fugl, og núna Samúel eru rosalega samfé- lagslegar bækur. Það er hægt að lesa Falskan Fugl og örugglega Samúel lika sem félagslegt raunsæi, og vel hægt að finna sálfræðilegar og félagslegar skýringar á geggjun Samúels. „Það kemur líka frá mér, allt í kring um mig. Ég hef alltaf búið í samfélagi vina og nánustu fjölskyldu sem hefur ótrúlega mikil áhrif á mig. Þar hefur fólk verið í sértrúarsöfnuðum og ég hef gengið til sálfræðings og ég var ofsalega ofbeldisfullur unglingur og alls konar eyðileggjandi hlutir í mínu fari og vina minna. Þetta má alveg heita félagslegt raunsæi, en þetta er bara raunveruleiki sem ég þekki sem kemur þarna fram. Þetta er ekkert svo meðvitað að það eigi að vera ástæð- ur fyrir því að maður fari út í að vera t.d. manio depressiv, og ég hef reynt að forðast að hafa hlutina of einfalda."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.