Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2002, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2002
Fréttir I>V
Tryggingafélögin skila lakari afkomu vegna aukinna tjóna:
Minnkandi fjármunatekjur
og tap á eignatryggingum
Afdrifaríkt strand
Strand fjölveiöiskipsins Guörúnar Gísladóttur haföi umtalsverö áhrif á afkomu tryggingafélaganna.
Hagnaður tryggingafélaganna Sjó-
vár-Almennra, Vátryggingafélags ís-
lands og Tryggingamiðstöðvarinnar
nam samtals 922 milljónum króna á
fyrstu níu mánuðum ársins en var
1.095 milljónir króna árið 2001 og
dróst hagnaður félaganna því saman
um 15,7%. Hagnaður Sjóvár-Al-
mennra nam 320 miUjónum króna,
429 milljónum króna hjá VÍS og 173
milljónum króna hjá TM, en hjá TM
var hann 333 milljónir króna á sama
tímabili árið áður. Áætlaður hagnað-
ur ársins 2002 er 480 milljónir króna
hjá Sjóvá-Almennum, 520 milljónir
króna hjá VÍS og 390 milljónir króna
hjá TM, en betri afkoma TM á fjórða
ársfjórðungi skýrist einkum af aukn-
um hagnaði af sölu fjárfestinga. Mik-
ill viðsnúningur er i vátrygginga-
rekstri félaganna en hagnaður af vá-
tryggingarekstrinum nam alls 690
milijónum króna á fyrstu níu mánuö-
um ársins, samanborið við 2.096 millj-
ónir króna í fyrra. Mestur viðsnún-
ingur er þó í fjármálarekstri félag-
anna en á þessu ári var hagnaður af
fjármálarekstrinum 528 milljónir
króna, samanborið við 642 milijón
króna tap í fyrra. Kaupþing hefur
gert verðsamanburð á tryggingafélög-
unum þremur og út frá þeim saman-
burði telst Tryggingamiðstöðin vera
hagstæðasti fjárfestingarkosturinn af
tryggingafélögunum i dag.
Afkoma fyrirtækja
Annar hluti
Hagnaður Sjóvár-Almennra á fyrst-
u níu mánuðum ársins nam 320 millj-
ónum króna og er sú útkoma talsvert
undir spám markaðsaðila. Ef litið er á
þriðja ársjórðung nemur hagnaður 68
milljónum króna, samanborið við 253
milljóna króna hagnað á fyrstu 6 mán-
uðum ársins. Afkoma á þriðja árs-
fjórðungi í fyrra var einnig slök.
Áukning bókfærðra iðgjalda nemur
8% miili ára en á móti hækkuðu bók-
færð tjón mn 14,4%. Mestu munar í
uppgjörinu að fjárfestingartekjur hafa
dregist verulega saman milh ára, eða
sem nemur 552 milljónum króna. Mik-
ill neikvæður viðsnúningur er í
vaxtatekjum og gengismun, að fjár-
hæð 703 mihjónir króna. Skýrist hann
einkum af minni tekjum af verðbréf-
um og neikvæðum gengismun. í fjár-
málarekstri félagsins er það söluhagn-
aður af fjárfestingum, alls 200 milljón-
Kókosmjöl
Möndlur
Hnetur
... allt sem þarfí baksturinn!
ir króna, sem heldur fjármálarekstri
félagsins uppi en hagnaður alls af fjár-
málarekstri var 30 milijónir króna á
móti 264 milljóna króna hagnaði árið
áður. Hjá VÍS var hagnaðurinn af fjár-
málarekstri 252 milljónir króna og 246
milljónir hjá TM. Kostnaðarhlutfall er
minnst hjá TM, eða 18,4%, hjá Sjóvá-
Álmennum 18,9% en 22,4% hjá VÍS.
Keðjuverkun eftir 11. sept.
Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvár-
Almennra trygginga, segir að ekki sé
til einfalt svar við því af hverju
tryggingafélögin séu að skUa lakari
afkomu á fyrstu níu mánuðum ársins
2002 en ársins 2001 og því valdi marg-
ir samverkandi þættir. Tjónum hafi
fjölgað í fjöldamörgum vátrygginga-
greinum, bæði hvað fjölda varðar og
eins upphæðir. Félögin njóti verri
kjara vegna endurtrygginga þar sem
þar hefur orðið ákveðin keðjuverkun
því eftir 11. september í fyrra hafi
orðið mikið uppnám á trygginga-
markaðinum, bæði vegna tjónsins á
World Trade Center í New York, sem
reyndist mun meira en menn höfðu
nokkurn tíma áður staðið frammi
fyrir, og eins hafi hrunið á verðbréfa-
mörkuðunum um víða veröld komið
mjög illa við endurtryggingarfélögin
og komið mjög niður á þeirra efna-
hag. Þar hafl því þurft að grípa tU
harkalegra viðbragða, m.a. með
hækkuðum iðgjöldum. Svo hafi ís-
lensku tryggingafélögin verið að
senda endurtryggjendum stóra reikn-
inga vegna tjóna sem hafi orðið hér á
landi sem einnig leiði af sér hækkan-
ir tU þeirra. Einnig hafi tekjur farið
minnkandi af fjárfestingum.
„Ekki má heldur gleyma að sam-
keppnin á tryggingamarkaðnum
hefur farið harðnandi á árinu. Segja
má að við höfum ekki vinning í
neinu á þessu ári og við stöndum í
raun og veru frammi fyrir mjög al-
varlegu ástandi sem kaUar á við-
brögð. Við getum ekki staðiö hjá að-
gerðalausir. Ég er að horfa tU þess að
við þurfum að grípa tU ýmissa að-
gerða tU þess að draga úr tjónum og
við þurfum líka að hækka iðgjöld í
nokkrum greinum sem við höfum
reyndar þegar tUkynnt. Það er ekki
að stefna í neina „krísu“ á næsta ári
en menn verða að horfast í augu við
það að það verður að gera breyting-
ar. Ég vona að bæði okkar viðskipta-
vinir og umhverfið sýni því skiln-
ing,“ segir Einar Sveinsson.
lögjöld eignatrygginga upp
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar
telur afkomuna undir væntingum og
ekki viðunandi miðaö viö eigið fé fé-
lagsins. Fjármunatekjur hafi minnk-
að, stór tjón eins og þegar fjölveiði-
skipið Guðrún Gísladóttir sökk við
Norður-Noreg og rækjuskipið Aron
við Grímsey hafa lent á félaginu og
viðvarandi tap er á rekstri eigna-
trygginga sem nemur á þessu tíma-
bili 189 milljónum króna. Tjónaþungi
sé mikill í flestum greinum eigna-
trygginga og það mikið áhyggjuefni
að stór brunatjón virðast algengari
en áöur. Iðgjöld eignatrygginga verða
hækkuð frá næstu áramótum, eink-
um í tryggingum, tengdum atvinnu-
rekstri. Hagnaður af ökutækjatrygg-
ingum er 271 milljón króna fyrstu 9
mánuði ársins en tíðni óhappa og
slysa I umferðinni er heldur meiri
það sem af er árinu en á sama tíma í
fyrra. Tjónafjárhæðir hafa hins veg-
ar ekki hækkað til samræmis við
fjölgun tjóna. -GG
Tyrft um jólaföstuleytið
Þessi sjón er frekar sjaldgæf í lok nóvember þegar jólafasta er aö renna upp. En þaö er veriö aö tyrfa Þróttarvöllinn í
Laugardal, viö hliöina á Laugardalsvellinum. Þar var „grænt upp“, eins og sagt er, þegar Ijósmyndara bar aö garöi og
blómlegt um aö litast og tíu stiga hiti. Völlurinn er aö stækka og hlaupabrautin, þar sem Valbjörn stökk og rann sitt
skeiö foröum, er horfin, en íþróttavöllur þessi var lengi kenndur viö hann.
Sími:
544 4556
Dalvegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Sími: 544 4656
Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is
SNJÚKEÐJUR
Fyrir flestar gerðir vinnuvéla og vörubifreiða
Kona fannst látin í Ölfusá
Kona á flmmtugsaldri fannst
látin í Ölfusá um hádegisbilið f
gær. Hennar hafði verið saknað
frá þvl á laugardagskvöldið eftir
að til hennar sást á Selfossi.
Björgunarfélag Árborgar, Björg
á Eyrarbakka og Hjálparsveit
skáta í Hveragerði hófu leit að
konunni á ákveðnum stöðum á
laugardagskvöldiö en leit hófst
síðan á ný að morgni sunnudags-
ins og bar hún árangur um
hádegisbilið. Notast var við flug-
vél og fjóra báta við leitina en 35
björgunarsveitarmenn komu að
leitinni. -Ótt
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 15.46 15.10
Sólarupprás á morgun 10.50 10.59
Síödegisflóö 16.46 21.06
Árdegisflóö á morgun 05.16 09.36
s-.
Viða næturfrost
Hæg breytileg átt en suðlæg átt, 3-8
m/s síðdegis. Rigning norðaustan-
og austanlands. Skúrir norðvestantil
en annars skýjað meö köflum. Hiti
verður 0-7 stig aö deginum en víöa
verður næturfrost.
Suðaustan 13-18 m/s og rigning,
einkum suðaustantil. Suðlægari og
skúrir sunnan- og vestanlands
síðdegis en léttir til noröan- og
austanlands. Hiti verður 5-10 stig.
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
Hiti 3”
til 8°
Hiti 3°
til 8*
HitiO”
tii 5“
Vindur Vindur: Vindur:
10-15 "v1* 12-18 10-15"'/*
7! t *
S og SV 10- Hvöss Suðvestanátt
15 m/s vest- suöaustan- og skúrlr eða
an tll. Skúrir og sunnanátt slydduél
sunnan- og með vestan tll en
vestan til en rigningu, skýjað með
annars skýj- elnkum köflum norð-
að með köfl- suðaustan austan tll.
um. Hitl 3 tll tll. Hltl Kölnandl
8 stig. breytist litlð. veður.
Logn
Andvari
Kul
Gola
Stinnlngsgola
Kaldl
Stinningskaldi
Allhvasst
HvassvlÐri
Stormur
Rok
Ofsave&ur
Fárviöri
m/s
0-0,2
0,3-1,5
1,6-3,3
3.4- 5,4
5.5- 7,9
8,0-10,7
10.8- 13,8
13.9- 17,1
17,2-20,7
20,8-24,4
24.5- 28,4
28.5- 32,6
>= 32,7
AKUREYRI skýjað 1
BERGSSTAÐIR úrkoma í grennd 3
bolungarvIk skúr 5
EGILSSTAÐIR skýjaö 5
KEFLAVÍK skýjað 3
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 5
RAUFARHÖFN súld 5
REYKJAVÍK þoka í grennd 2
STÓRHÖFÐI alskýjað 4
BERGEN skýjað 5
HELSINKI skýjað -7
KAUPMANNAHÖFN alskýjað 2
ÓSLÓ snjókoma -3
STOKKHÓLMUR -3
ÞÓRSHÖFN rigning 8
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 0
ALGARVE skýjaö 17
AMSTERDAM alskýjað 8
BARCELONA alskýjaö 13
BERLÍN skýjaö 5
CHICAGO alskýjaö -9
DUBLIN skýjaö 7
HALIFAX skúr 4
HAMBORG þokumóöa 5
FRANKFURT skýjaö 8
JAN MAYEN þokumóöa 4
LONDON 12
LÚXEMBORG skýjaö 5
MALLORCA skýjaö 16
MONTREAL alskýjaö -7
NARSSARSSUAQ alskýjað 1
NEW YORK léttskýjað 1
ORLANDO alskýjaö 15
PARÍS rigning 9
VÍN skýjaö 9
WASHINGTON léttskýjaö -1
WINNIPEG skýjað -10