Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2002, Síða 28
52
AUKIN ökuréttindi
Hægt er að hefja nám alla miðvikudaga (Áfangakerfi)
Frábær kennsluaðstaða
Reyndir kennarar og góðir kennslubílar
Aukið við atvinnumöguleikana
Hringið eða komið og leitið upplýsinga
Sími 567 0300
Ökuskólinn í Mjódd
Þarabakka 3 -109 Reykjavík
S. 567 0300 - mjodd@bi prof.is
••
/f) S
1 jy
OKU
£KOLINN
MJODD
Einnig Vídd: Njarðarnes 9 - Akureyri Bæjcirlincl 4 — Sími 554 6800
og Agenlio ehf. — Baldursgotu 14 — Kefiavík www.vidd.is — vidd@vidd.is
>
(slenskar aringrindur. Hvergi annars staðar færðu þessa
innlendu hönnun, sem er smíðuð úr hertu gæðastáli.
Mikið úrval af fallegum og traustum arinvörum. Vönduð og
glæsileg skörungssett, með kústum, skóflum og fleira. Henta
bæði í sumarbústaðinn og heima í stofu.
10% aukaafsláttur
af vörum til jóla
Grandagaröur 2
www.ellingsen.is
580 8500 580 8501
Arinsett svart
7.204 kr.
Arinhlíf, antik
3.907 kr.
Feröa- og útivistarvörur, gasvörur, útgerðarvörur og bjðrgunar- og neyðarvörur afl.
Verslun athafnamannsins
ELLINGSEN
_________________________________________________MÁNUDAGUR 2. DESEMBBR 2002
Tilvera DV
Gus Gus á Súper
tDjómsveitin Gus Gus fagnaði út-
gáfu á diskinum Attention með tón-
leikum á efri hæð Astró um helgina.
Efri hæðin hefur hlotið nafnið
Súper og þótti við hæfi að Gus Gus
riði á vaðið þar með tónleikahaldi.
Hress a Super
Þau Freyja Einarsdóttir, Einar Sverr-
isson og Agnes Þrastardóttir höföu
gaman af Gus Gus.
Meö allt á hornum sér
Brynjar, Ari og Gauti stilitu sér upp
með tilþrifum og sýndu hornin sín.
Vígalegir
Þeir Árni Sigurösson, Jón Ari Ólafs-
son og Helgi Páll Helgason voru
vígalegir á Súper.
DV-MYNDIR HH
Gus Gus á sviöi
Uröur Hákonardóttir söngkona fór fyrir sveitinni sem þótti standa sig vel á
tónleikunum.
Fékk rós
Cathy Alexander tók utan um Stephanie Crose enda hæstánægö eftir aö
hafa fengiö gefna rós.
Bíógagnrýní
Smárabíó/Laugarásbíó/Regnboginn - Die Another Day: ★ ★
Sif
Gunnarsdöttir
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Bond er Bond er Bond
Þegar ég var táningur fór bekkur-
inn iðulega allur saman í bió þegar
ný Bond-mynd var frumsýnd. Ég fór
bara einu sinni með af því að mér
fannst fyrirbærið hallærislegt og
gamaldags - ofumjósnarinn, glæpa-
menn með mikilmennskubrjálæði
og vel vaxnar konur í vandræðum
sem hvísluðu Oh James með undr-
un og ástríðu þegar njósnarinn og
kvennabósinn káfaði á þeim. Þá
fannst mér meira spennandi að sjá
Sigourney Weaver kljást við geim-
veruskrímsli í Alien - engin hjálp-
arlaus kona þar. En þegar farið er á
Bond-mynd þá hendir maöur hug-
tökum eins og pólitískri rétthugsun
og jafnréttisbaráttu og leggur á
minnið að hér er það ekki áfanga-
staðurinn sem skiptir máli heldur
ferðin þangað. Allir vita út á hvað
Bond-myndir ganga: hann berst við
svívirðilega glæpamenn, yfirleitt
einn síns liðs en með réttu græjum-
ar, heillar draumfagrar konur upp
úr skónum (ég minni á græjumar)
og alltaf heldur hann andlitinu og
getur spýtt út úr sér meinhæðinni
athugasemd, sama hvað á gengur.
Það sem breytist eru græjumar sem
Q leyfir honum að leika sér að, i
hvemig slagsmálum hann lendir, í
hvers konar farartæki hann sleppur
og hver kvennanna fógru er svikari.
Af hvérju fer fólk á myndir sem ein-
ungis endurtaka tilbrigði við þekkt
stef? Vegna þess að stefið er
skemmtilegt og það er alltaf áhættu-
minna að eyða tíma í eitthvað sem
maður þekkir en að taka sjens á ein-
hverju framandi - better the devil
you know, eins og maðurinn sagði.
Nú er búið aö frumsýna 20. Bond-
James Bond
Meö uppáhaldsdrykkinn sinn,
martini kokkteil, hristan, en ekki
hræröan.
myndina, Die Another Day, og um
leið þá fjórðu þar sem Pierce Brosn-
an leikur hetjuna ódauðlegu. Nýsjá-
lendingurinn Lee Tamahori leik-
stýrir og greinilegt er frá fyrstu
mínútum að hann ætlar að leggja
meiri áherslu á sprengjur og
spennu en léttleika og húmor. For-
leikurinn í Die Another Day endar
til dæmis ekki með fifldjörfu flótta-
atriði heldur með því að Bond er
handtekinn af Norður-Kóreumönn-
um, haldið í fangelsi og pyntaður í
rúmt ár. Þegar hann er loksins lát-
inn laus (hann sleppur ekki sjálfur)
þá heldur yfirmaður hans, M, að
hann sé heilaþveginn og treystir
honum ekki fyrir núllunum sínum.
Þá þarf Bond að taka á honum stóra
sínum og leita hefnda út á
heimsenda - nánar til tekið á Is-
landi, með stuttri en afdrifaríkri
viðkomu í Havana. Sagan verður fá-
ránlegri með hverri mínútu en inn
á milli eru feikiflott atriði eins og
skylmingaratriði í finum breskum
klúbhi, brimbrettaatriðið í upphafi
myndar og ósýnilegi bOlinn sem er
ekta Bond-græja: algjörlega út í hött
og um leið frábær.
Brosnan er prýðilegur Bond, fág-
aður og töff með smekk fyrir hæðni.
Halle Berry í hlutverki hinnar dul-
arfullu Jinx er eflaust jafnglæsileg-
asta kona á jarðríki og þótt víðar
væri leitað og er leiknari með byss-
una - og önnur vopn sem hún kem-
ur höndum yfir - en fyrirrennarar
hennar og á vissulega framtíð fyrir
sér sem Bondína. Toby Stephens er
ágætur stórglæpamaður en Rosa-
mund Pike litlaus og leiðinleg sem
samnjósnari Bonds, Miranda Frost,
og Judy Dench augljóslega orðin
hundleið á því að leika M. John
Cleese var aftur á móti frábær senu-
þjófur í hlutverki sínu sem hinn
óþreytandi uppfinningamaður Q.
Die Another Day er, þrátt fyrir að
vera aðeins of löng, miklu betri en
síðasta Bond-mynd og sýnir að á
nýju árþúsundi er enn pláss fyrir of-
umjósnara hennai’ hátignar.
Lelkstjórl: Lee Tamahorl. Handrlt: Neal
Purvis & Robert Wade. Kvikmyndataka:
David Tattersall Tónlist: David Arnold.
Aöalhlutverk: Pierce Brosnan, Halle
Berry, Toby Stephens, Rosamund Pike,
John Cleese og Judi Dench.