Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2002, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002
Fréttir
DV
Tillit tekið til
skólagöngu í
fikniefnamáli
Dómari i Héraðsdómi Reykjaness
tekur tillit til þess að 22 ára maður,
sem hann dæmdi í fikniefnamáli í
fyrradag, er á námssamningi í iðn-
grein. Þannig var ákveðið að skilorðs-
binda alla refsinguna, þriggja mán-
aða fangelsi, en maðurinn er ákærð-
ur fyrir að hafa verið með 10 e-töflur
og 2,5 grömm af amfetamíni í bíl sín-
um þegar lögreglan í Hafnarfirði
handtók hann rétt fyrir siðustu jól.
Tillit var tekið til skýlausrar játn-
ingar mannsins.
„Á hinn bóginn verður ekki fram
hjá því horft að brot ákærða er alvar-
legt og þykir engu breyta í því sam-
bandi sá framburður ákærða fyrir
dómi að hann hafi aðeins ætlað að
selja fikniefni til að fjármagna eigin
neyslu," segir í niðurstöðu Jónasar
Jóhannssonar héraðsdómara.
Dómarinn ákveður að skilorðs-
binda refsinguna þar sem fram sé
komið í málinu að brotamaðurinn er
á námssamningi og hyggst halda
skólagöngu sinni áfram. Þá hafi hann
ekki neytt fikniefna i um það bil hálft
ár og virðist vera að reyna að ná betri
tökum á lífi sínu. -Ótt
Kristján
Ragnarsson.
Krefja formann
LÍÚ um skýringar
Formannaráðstefna Farmanna- og
fiskimannasambands íslands (FFSÍ)
lýsir vonbrigðum með óábyrga um-
fjöllun Kristjáns Ragnarssonar, for-
manns LÍÚ, um hlutaskiptakerfið. í
ályktun á ráðstefnunni, sem haldin
var í Hvalfirði 28. og 29. nóvember
sL, er óskað eftir
að formaður LÍÚ
nefni dæmi til
staðfestinga á að
skipstjórahlutur
hafi verið 50
miiljónir króna á
ársgrundvelli á
íslensku fiski-
skipi.
Bent er á að til
þess að skipstjóri
næði slíkum
launum þyrfti
hann að skila
meiri verðmæt-
um að landi en
nokkur dæmi eru
um í sögunni. Af-
komutölur í milli-
uppgjörum út-
gerðarfyrirtækj-
anna, þar sem um
rekstrarhagnað
upp á þúsundir milljóna er að ræða,
bendi ekki til aö launahlutfall til sjó-
manna standi útgerðum á íslandi
fyrir þrifum. Síöan segir:
„Það er íhugunarefni hvort hags-
munir hluthafa útgerðarfyrirtækja
séu æðri hagsmunum islenskra sjó-
manna. Árangurstengd launakerfi
mættu að skaðlausu vera víðar við
lýði í atvinnulífinu, s.s. í ýmsum
stórfyrirtækjum sem rekin hafa ver-
ið gegnum mörg ár með mígandi tapi
án þess að hróflað sé við ofurlaunum
æðstu stjómenda sem iðulega eru
margfold laun annarra starfsmanna.
Þegar hlutaskiptakerfið skapar sjó-
mönnum góðar tekjur aukast tekjur
útgerða að sama skapi.“ -HKr.
Ami Bjarnason.
Krefst skaðabóta af hálfu ríkisins vegna meints harðræðis við handtöku:
Franklín Steiner ósáttur
við framburð lögreglu
Úrgangi frá Valhöll ekki lengur dreift á Þingvöllum:
Seyra send með tank-
bílum til Reykjavíkur
Franklin Kristinn Steiner var afar
ósáttur við framburð varðstjóra hjá
lögreglunni í Hafharfírði í gær þegar
hann bar vitni í máli þar sem hann
stefnir ríkissjóði til greiðslu skaðabóta
fyrir ólögmæta og harkalega hand-
töku, að ungum syni sínum ásjáandi, i
lok janúar á síðasta ári. Ljóst er að
Franklín hafði ekkert brotið af sér þeg-
ar lögreglan handtók hann. Hins vegar
hafði lögreglan fengið „almennar upp-
lýsingar" um að Franklin feldi efni úti
í Krýsuvíkurhrauni - þess vegna hefði
honum verið veitt eftirfor á óein-
kenndum bíl sem endaði við heimili
hans. Varðstjórinn sagði að ákveðið
hefði verið að Franklín yrði í stöðu
grunaös og því hefði þótt ástæða til að
„ljúka málinu“, m.a. með því að leita í
bíl hans og slikt gæti tekið tíma.
Franklín krefur ríkið um rúma milljón
króna í skaða- og miskabætur.
Atburðir virðast hafa farið úr bönd-
unum, a.m.k. færðist hiti í leikinn,
eins og lögreglumaður orðaði það, og
handtakan endaði með handalögmál-
um. Franklín segir að hann hefði ver-
ið tekinn hálstaki aftan frá - kyrking-
artaki, þegar sonurinn horfði á - slikt
væri mjög hættulegt enda hefði hann
allt of háan blóðþrýsting. Varðstjórinn
kvaðst ekki muna til að kyrkingartaki
hefði verið beitt.
Franklín sagðist hafa verið að fara í
bíltúr með soninn í átt að Bláfjöllum
en síðan hefði hann tekið eftir aö hon-
um var veitt eftirfór. Honum ber ekki
saman við frásögn varðstjórans um
hvort honum hafi verið kynntur réttur
sinn við handtökuna - hann hafi verið
tekinn hættulegu hálstaki aftan frá
þegar hann var að sækja gsm-síma
sinn í bíl sinn til að gera viðvart vegna
drengsins. Varðstjórinn áréttaði hins
vegar að honum hefði einungis verið
hleypt úr bílnum til að ræða við dreng-
inn. Það hefði Franklín ekki gert.
Svo virðist, samkvæmt frásögnun-
um, að ekki hefði þurft að koma til
þess að þrir lögreglumenn héldu aftur
af Franklín - hann var einungis að
teygja sig eftir síma þegar átök hófúst
og eitt leiddi af öðru.
Dómurinn mun nú ákveða hvort hér
Krefst rettar sins
Franklín Steiner gengur hér úr húsakynnum lögreglunnar í gærdag. Hann telur aö
lögregla hafi handtekiö sig fyrr á
hafi lög verið brotin gagnvart hinum
grunaða en í bíl hans voru engin fikni-
efni. Félagsráðgjafi sem kom fyrir
dóminn bar að hann hefði gætt drengs-
ins á lögreglustöðinni að beiðni lög-
reglu meðan verið var að yfirheyra
án ástæöu, aö syni sínum viöstöddum.
Franklín og leita i bfl hans. Bamið
hefði verið rólegt á meðan en lögreglu
hefði verið umhugað um að því liði
sem best. Drengurinn fékk að þessu
loknu að fara aftur til fóður síns.
-Ótt
Seyru frá Hótel Valhöll á Þingvöll-
um er ekki lengur dreift á tún ofan
Þingvallavatns, eins og viðgengist hef-
ur um 15 ára skeið, heldur er henni
ekið tfl Reykjavíkur með tankbílum.
Losun skólps frá Hótel Valhöll á
Þingvöllum komst í hámæli i haust er
ljósmyndari DV myndaði er seyrunni
var dreift á tún með mykjudreifara í
Svartagili ofan Þingvallavatns. Elías
Einarsson veitingamaður hefur haft
með höndum rekstur Hótel Valhallar á
Þingvöllum síðan í byrjun sumars og
var brugðist skjótt við fréttum um
seyrudreifmguna enda kom hún hon-
um á óvart. í dag er málum þannig
háttað að tankbfll frá Hreinsibílum
ehf. fer reglulega til að tæma safhþró
hótelsins og ekur henni síðan í skólp-
stöð Reykjavík.
Hótelið er alfarið í eigu ríkissjóð
sem tekur nú þátt í seyruflutningun-
Seyru úr Valhöll drelft
ofan Þingvalla
Frétt DV 18. október.
um til Reykjavíkur. Þannig má segja
að úrgangur frá ferðamönnum á svæð-
inu, sem væntanlega koma flestir af
Reykjavíkursvæðinu, er nú sendur
rakleiðis til fóðurhúsanna á ný.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hreinsibflum ehf., sem annast þessa
seyruflutninga, er farin um ein ferð á
viku. Er ekið með seyruna í safnstöð í
Klettagörðum í Reykjavík. Þetta mun
þó aðeins vera bráðabirgðaráðstöfun
því að hugmyndin er að koma upp
hreinsibúnaði við hótelið.
Hótel Valhöll fellur undir forsætis-
ráðuneytið. Þar á bæ fengust þær upp-
lýsingar að í samráði við rekstraraðila
hótelsins, Þingvailanefnd og Fram-
kvæmdasýslu ríkisins væri nú unnið
að framtíðarlausn. Snerist þetta m.a.
um að staðurinn héldi rekstrarleyfi.
Þar væru menn að skoða uppsetningu
á hreinsibúnaði á staðnum. -HKr.
Stytting hringvegar:
Borgar sig upp á
um þremur árum
Örlygur Hnefill Jónsson, vara-
þingmaður Samfylkingarinnar á
Norðurlandi eystra, spurði Sturlu
Böðvarsson samgönguráðherra á
Alþingi á þriðjudag hvað það kost-
aöi að stytta veginn milli Reykja-
víkur og Akureyrar, annars vegar í
Húnavatnssýslu en hins vegar í
Skagafirði. í Húnavatnssýslu færi
vegurinn ekki tfl Blönduóss heldur
um Svínadal fram hjá Húnavöllum
og Svínavatni og yfir Blöndu á
móts við Finnstungu. Sú stytting
yrði 15,5 km en Vegagerðin metur
kostnað viö framkvæmdina á um
900 milijónir króna. í Skagafirði
lægi vegurinn ekki um Varmahlíð
heldur frá Víðimýri og yfir Héraðs-
vötn á móts viö Miklabæ. Þar stytt-
ist vegurinn um 3,5 km en sú fram-
kvæmd kostar um 500 mOljónir
króna að mati Vegagerðarinnar.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra telur spamaðinn nema um
400 mOljónum króna á ári og
þannig mundi framkvæmdin borga
sig á liölega þremur og hálfu ári. Á
móti kemur að mati ráðherra að
hagsmunir byggðarlaga og atvinnu-
rekstrar skerðast og fuOvíst má
telja að verslunareigendur í Varma-
hlíð og á Blönduósi muni verða
breytingunum andvígir, komi þær
tO umræöu. Krafa vegfarenda mOli
Akureyrar og Reykjavíkur er um
styttri og fljótfarnandi veg, enda
koma aOs ekki aOir við á viðkom-
andi stöðum tO að versla. Umferð-
aröryggismál tengjast einnig þessu
máli því sleppt er að aka gegnum
tvo byggðarkjarna. -GG
DVJHYND GVA
I öruggum höndum
Þaö er eins gott aö hafa litla hvutta
í öruggu haldi enda geta
vetrarhvellirnir sem fara yfir landiö
feykt þeim á loft. Hann heitir Dreki
þessi þótt hann viröist meinlítill.