Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2002, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002
19
DV
Tilvera
lífift
•Uppákomur
BUpplestur og tónlist á
Súfistanum
Það verður lesið úr nýjum verkum á Súfistan-
um á Laugavegi í kvöld kl. 20. Lesið veröur úr:
Pétur Gunnarsson: Myndir af heiminum II,
Andri Snær: Lovestar, Thor Vilhjálmsson:
Sveigur, Einar Kárason: KK-þangaö sem vind-
urinn blæs. KK leikur tónlist af nýjum geisla-
diski.
■Skáldakvöld i Iðnó
Þaö verður skáldakvöld í Iðnó í kvöld kl. 20.
30. Þeir sem lesa úr bókum sínum eru:
Steinar Bragi, Sigurbjörg Þrastardóttir, Andri
Snær, Sigtryggur Magnason, Beta rokk,
Gerður Kristný og Stefán Máni. Einnig verður
lesið úr bók Mikaels Torfasonar og spilað á
sjórekið píanð Guðrúnar 'Mlnervudóttur.
Hljómsveitin Ske leikur órafmagnað.
Eymundsson býður bækur höfunda á sérstöku
tilboðsverði.
• T ónleikar
MAIbert og Mudnus
Hljómsveitin Albert verður með fulla vasa af
rokki ásamt hljómsveitinni Mugnus á Gaukl á
stöng í kvöld. Frítt Inn og nóg af rokki týrir
alla.
■Vídalin
Þóra og Pétur verða með atmókvöld á Vídalín.
■Til stvrktar fátækum
Tónleikar til styrktar fátækum á ísiandi verða
haldnir í iþróttasal MS í kvöld og munu þar
koma fram hljómsveitirnar Alphanon, Úlpa,
Luna og Kaya ásamt tónlistarmanninum Slg-
urði Ármann. Dagskráin hefst kl. 19.30 og
lýkur kl. 23. Miöaverö 1000-kall. Allur ágóði
tónleikanna fer í aö kaupa mat sem
Mæðrastyrksnefnd mun svo sjá um að dreifa
meðal fátækra á íslandi. Allir mæti og styrki
gott málefni. Ath. þessir tónleikar eru pottþétt
í kvöld en þeir voru auglýstir hér I dálkinum í
gær sem var ekki rétt.
•Fyrirlestrar
■Franskar bókmenntlr
Fjórir þýðendur ræða saman um verk Michel
Houelleberg, Dai Sijie, Amélie Nothomb
Emmanuel Carrére, Eric Emmanuel Schmitt og
Yasmina Reza. Samkoman verður haldin I
Þjóðarbókhlöðunni kl. 17.15 og er skipulögö
af Alliance Francaise og Landsbókasafni
íslands háskólabókasafni. Þessir fjórir
þýðendur eru Friðrik Rafnsson, Guðrún
Vilmundardóttir, Kristján Þóröur Hrafnsson og
Sigurður Pálsson.
Krossgáta
Lárétt: 1 áætlanir, 4 háö-
kveðskapur, 7 detta, 8
tala, 10 gáleysi, 11 óhróö-
ur, 13 þilfar, 14 ódæði, 15
óvissu, 16 kynstur, 18
kát, 21 truflun, 22 sía, 23
erfingi.
Lóðrétt: 1 fálm, 2 kraft-
ar, 3 þekkt, 4 stíflur, 5 aö-
ferð, 6 mælir, 9 and-
styggð, 11 kjarkur 16 vilj-
ugur, 17 rölt, 19 málmur,
20 rotnun.
Lausn neðst á síöunnl.
Umsjón: Sævar Bjarnason
Skák
Svartur á leik!
íslandsmeistaramót kvenna stendur
nú yfir. 5 konur tefla í efsta flokki,
Ólympíulið íslands og Guðlaug Þor-
steinsdóttir geðlæknir. Guölaug hefur
teflt afgerandi best til þessa en tefld er
tvöfóld umferð. Það er einkar fróðlegt
að verða vitni að því að Guðlaug virðist
engu hafa gleymt eftir 15 ára fjarvistir
frá kappskákum og vinnur sigra sina
örugglega. Hér hefur Harpa Ingólfsdótt-
ir gerst of áköf i sókninni og gagnsókn-
in er að slá í gegn. 31. - Hh4 er erfiður
leikur aö mæta í þessari stöðu! Þegar
fyrri hlutanum er lokið er staðan
þannig: 1. Guðlaug Þorsteinsdóttir 4 v.
2. Harpa Ingólfsdóttir 3 v. 3. Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir 2 v. 4.-5. Aldís Rún
Lárusdóttir og Anna Björg Þorgríms-
dóttir 0,5 v. En spyrjum að leikslokum?!
Hvítt: Harpa Ingólfsdóttir
Svart: Guðlaug Þorsteinsdóttir
Sikileyjarvöm. íslandsmeistaramót
kvenna 01.12. 2002
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4
Rbd7 8. DÍ3 Dc7 9. 0-0-0 b5 10. g4 b4
11. Rce2 Bb7 12. Rg3 Hc8 13. Bd3
Be7 14. Rh5 Rxh5 15. Bxe7 Rhf6 16.
BxfB Rxf6 17. g5 Rd7 18. h4 Rc5 19.
Hh2 d5 20. e5 Rxd3+ 21. Hxd3 Dc5
22. h5 a5 23. Hdl a4 24. f5 De7 25. f6
gxf6 26. exfB Dd6 27. He2 Ba6 28.
He3 Dc5 29. Hd2 Kd7 30. g6 hxg6 31.
hxg6 Stöðumyndin. 31. - Hh4 32. c3
Hxd4 33. Hxd4 Dxd4 34. gxf7 Dc4 35.
Dg3 Dfl+ 36. Kc2 b3+ 37. axb3 axb3+
38. Kxb3 Bc4+ 39. Kc2 Bb3+ 40. Kxb3
Ddl+ 41. Kb4 Hc4+ 42. Kb5 Da4+ 43.
Kb6 Hc6+ 44. Kb7 Da6+ 45. Kb8 Hc8+
og mát! 0-1.
mrnrnf
na
•inj oz ‘Jia 61 ‘IQJ
L\ ‘snj 91 ‘!QæjB n ‘iQaSo 6 ‘l?m 9 ‘Sbi 5 ‘bqjbSqqp ý ‘puuejfujEU e ‘qo z ‘}Ed \ :j)0jQQ'j
•IJJB £7 ‘PjBS zz ‘IQæUO IZ ‘JláJ
81 ‘UJIJ 91 ‘BJ3 S1 'dæjs TI ‘WP £1 ‘QIU Z\ ‘}?ao 01 ‘JIQJ 8 ‘BHBJ l ‘unp i ‘uoid I :»3JB'I
Jólaljós og
jólalög
Þá er nú aðventan gengin í
garð. Gluggar verslana eru
fyrir nokkru komnir í jóla-
búning og búið að setja upp
götuskreytingar í miðbæ
Reykjavíkur og í miðbæjum
stærri kaupstaða. Jólalögin
eru fyrir löngu byrjuð að óma
á útvarpsstöðvunum og að-
ventuljósum í gluggum og
jólaljósum á svölum íbúðar-
húsa fjölgar með hverjum deg-
inum.
Sú var tíðin að engum,
hvorki kaupmönnum, útvarps-
mönnum né öðrum, datt í hug
að höfða til jólanna fyrr en 1.
desember. Þessir aðilar hafa
hins vegar verið að smá lengja
undirbúningstímann fyrir jól-
in á síðustu tuttugu árum. Á
sumum útvarpsstöðvum heyr-
ast jafnvel jólalög um miðjan
nóvember.
Flestir hafa einhverja skoð-
un á því hvenær sé tímabært
að byrja að höfða til jólanna.
Undirritaður er í hópi þeirra
sem vilja halda jólastússinu
við desembermánuð og sjálfur
set ég ekki upp útiseríur fyrr
en í fyrsta lagi daginn fyrir
Þorláksmessu. Þá flnnst mér
hreint ekki við hæfl að vera
með logandi útseríur fram í
miðjan febrúarmánuð.
Sumir halda því fram að það
sé um að gera að njóta jóla-
ljósanna sem lengst. En ég er
á öðrum máli. Ef við höldum
áfram að teygja á jólunum í
báðar áttir hætta ljósin og
lögin að höfða til jólanna sem
slíkra. Jólaljósin hætta þá að
vera jólaljós en verða í
staðinn einhvers konar vetrar-
ljós. Til þess var ekki stofnað
í upphafl.
Myndasögur
Koegakeppni - dagur 4
MZm ég ætla aö gefa
I ykkur 30 eekúndna hlé! I
6K0L
HLAUP
HLAUP
< SKOL
HLAUP
HLAUP
HLAUP
HLAUP
Hún er með gesti í mat.