Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002
Fréttir
DV
Öllum brögðum beitt í samkeppni stórmarkaða í sölu jólabóka:
Greiða hátt í þúsund
krónur með tilboðsbókum
Bókaveislan æsist
Árlegt bókastríö er aö ná hámarki sem endurspeglast einna best í tilboöum
stórmarkaöanna. Þar á bæ er veriö aö greiða hátt í 1000 krónur meö hverri
tilboösbók.
Rekstrarstjóri Nóatúns:
Neytendur
blekktir?
Nóatún gerir alvarlegar athuga-
semdir við bragðkönnun þá sem sagt
var frá í Fréttablaðinu í gær, mið-
vikudag, þar sem „kokkalandsliðið"
gerði bragðprófun á hangikjöti og
hamborgarhrygg frá 5 framleiðend-
um. Sigurður Gunnar Markússon,
rekstrarstjóri Nóatúns, spyr hvort
verið sé að blekkja neytendur með
þessari könnun en bornir hafi verið
saman hamborgarhryggir frá öllum
helstu framleiðendum hamborgar-
hryggja með einni áberandi undan-
tekningu. „Kokkalandsliðið fékk ekki
að prófa Nóatúnshamborgarhrygginn
sem vekur furðu, ekki síst í ljósi þess
að ríflega fimmti hver hamborgar-
hryggur á jólaborðum landsmanna
kemur úr Nóatúni," segir Sigurður.
Vekur hann athygli á að í sama blaði
hafi verið heilsíðuauglýsing frá Hag-
kaupum þar sem niðurstöðu kokka-
landsliðsins er slegið upp.
„Þessi auglýsing vekur spurningar
um það hvort prófunin var kostuð af
Hagkaupum og hvort ritstjóm Frétta-
blaðsins var kunnugt um það,“ segir
Sigurður.
Við þetta má bæta að hamborgar-
hryggur frá öðmm mjög stóram fram-
leiðanda, Ali, var ekki í þessari bragð-
prófun. -hlh
Ríkisábyrgð
vegna Ijósleiðara
Ríkissjóður veitir Farice hf., nýju
hlutafélagi um -lagningu ljósleiðara
frá íslandi um Færeyjar til Skotlands,
allt að 800 milljóna króna ríkisábyrgð
samkvæmt tillögu meirihluta fjár-
laganefndar í tengslum við afgreiðslu
fjárlaga næsta árs. Einnig er lagt til
að ríkissjóði verði heimilað að kaupa
hlutafé í félaginu fyrir allt að 560
milljónir króna. Eins og fram hefur
komið i fréttum er gert ráð fyrir að
eigið fé Farice verði um 1,2 milljarð-
ar en þar af verði hlutur Færeyinga
um 240 miiljónir og hlutur íslendinga
um 960 milljónir. Auk ríkissjóðs
munu Landssíminn og nokkur önnur
íslensk fjarskiptafyrirtæki leggja til
hlutafé. Lagningu ljósleiðarans á að
ljúka á næsta ári og er gert ráð fyrir
að heildarkostnaður verði 4,5 millj-
arðar króna. -ÓTG
Innbrotafaraldur
Brotist var inn í fimmtán bíla í
höfuðborginni síðasta sólarhring.
Að sögn lögreglu voru innbrotin vítt
og breitt um borgina og í flestum til-
vikum sakna eigendur geislaspilara
og eða radarrvara. Töskur og annar
vamingur í bílum freistar einnig
þjófa að sögn lögreglu og eru bíleig-
endur hvattir til að geyma ekki
verðmæti í bílum sínum.
Þá stefnir í metár hvað varðar
þjófnað á bílum en lögreglan 1
Reykjavík hefur fengið tilkynningar
um að 276 ökutækjum hafi verið
stolið á árinu og stefnir allt í að slik
máli fari yfir 300 á árinu. Flestir bíl-
amir fmnast fljótlega og málin eru
leyst - sem er á annan veg en oftast
með innbrot í bíla. -aþ
Enn haldið sof-
andi á gjörgæslu
Konunni, sem slasaðist þegar bif-
reið hennar hafnaði í Hólmsá síð-
astliðinn föstudag, er enn haldið sof-
andi. Konan liggur á gjörgæsludeild
Landspítalans við Hringbraut og að
sögn læknis er ástand hennar enn
alvarlegt.
Þrjú börn vom í bílnum þegar
slysiö varð - tvö þeirra sluppu
ómeidd en það þriðja mun vera á
batavegi. -aþ
Stórmarkaðir sem selja bækur fyr-
ir jólin selja margar tilboðsbækur
langt undir kostnaðarverði og greiða
umtalsverðar upphæðir með hverri
seldri bók. Dæmi eru um að greidd-
ar séu hátt í eitt þúsund krónur með
hverju eintaki tiltekinnar bókar.
Samkvæmt heimildum DV er þetta
herkostnaður sem menn eru meira
en tilbúnir að bera í feikiharðri sam-
keppni um viðskiptavini. Allt er gert
til að fá viðskiptavini inn í búðina
þar sem líkur eru á að þeir noti ferð-
ina til að gera almenn innkaup.
DV hefur dæmi um bók sem aug-
lýst var á tilboði um síðustu helgi.
Samkvæmt heimildum þeirra sem
gerst þekkja hefur innkaupsverð
verslunarinnar verið um 3.240 krón-
ur. Bókin var hins vegar auglýst á
2.730 króna tilboðsverði. Meðgjöf
verslunarinnar í þessu dæmi eru
rúmar 500 krónur. Afsláttur útgef-
enda til bóksala getur verið allt að
50 prósent í stöku tilfellum en al-
gengur afsláttur er 30-40 prósent.
Bókaútgefandinn fær sitt og höfund-
urinn einnig. Söluaðilarnir bera
kostnaðinn.
Kaupmenn sem DV hefur rætt við
viðurkenna að margir bókatitlar
séu seldir undir kostnaðarverði fyr-
ir þessi jól en þó yfirleitt í skamm-
an tíma í senn. Þannig eru dæmi
um tilboð sem einungis hafa gilt í
tvo daga. Neytendur sem eru vak-
andi yflr tilboðum geta gert feikigóð
kaup í bókum fyrir jólin en verða að
huga vel að gildistíma tilboðanna
sem yfirleitt er skráður með smáu
letri í auglýsingunum.
Borgarstjórn Reykjavíkur leggur
fram frumvarp að fjárhagsáætlun
ársins 2003 í dag.
Fjárhagsáætlunin sem kynnt var
í gær endurspeglar erfiðari rekstur
en á árinu 2002. Endurskoðaðar
hagspár sýna að áætlaðar tekjur
borgarsjóðs verða lægri en gert var
ráð fyrir þegar römmum var út-
hlutað til málaflokkanna sl. vor.
Brugðist hefur verið við með tillög-
um um aðhald og spamað í rekstri
og framkvæmdum. Niðurskurður-
inn var rúmlega hálfur milljarður
króna og er fjárhagsáætlunin lögð
fram með þeim breytingum.
Eftir að flármagni hefur verið
ráðstafað til rekstrar standa eftir
um 4,4 milljarðar (handbært fé frá
rekstri) sem unnt er að verja til
flárfestinga, annarrar uppbygging-
ar og lækkunar skulda. Með þess-
um aðgerðum er stefnt að lækkun
skulda borgarsjóðs um 120 milljón-
Guðmundur Sigurðsson, forstöðu-
maður samkeppnissviðs Samkeppn-
isstofnunar, sagði í samtali við DV
að engin einhlít svör væru til við
því hvort stórmarkaðirnir væru að
brjóta lög og reglur með þvl að selja
bækur undir kostnaðarverði. í sam-
keppnisfræðum væri til hugtakið
„predator pricing" eða drápsverðlag
en það gilti um þau tilvik þegar að-
ili með markaðsráðandi stöðu á
ákveðnu sviði seldi vörur undir inn-
kaupsverði í þeim tilgangi að ýta
samkeppnisaðilum út af markaðn-
um eða hindra innkomu nýrra.
Jólabókastríð stórmarkaðanna væri
ir að raungildi á næsta ári. Hlutfall
skulda af skatttekjum lækkar úr
62% í 59,2% milli ára.
Tekjur hækka minna en gjöld
Heildartekjur borgarsjóðs árið
2003 eru áætlaðar 34.154 milljónir
króna sem er 7,2% hækkun frá út-
komuspá þessa árs. Af áætluöum
heildartekjum eru skatttekjur 83%
eða 28.196 m.kr., sem er 5,5% hækk-
un frá útkomuspá 2002. Rekstrar-
gjöld hækka meira, eöa um 7,8%
frá útkomuspá 2002, úr 28.308 m.kr.
í 30.510 m.kr. Fjárhagsáætlunin
gerir ráð fyrir óbreyttu skatthlut-
falli.
Stórverkefni i skólamálum
Til bygginga skóla er fyrirhugað
að veita um 1.5 milljarða króna og
verður nokkrum stórverkefnum
lokið, s.s. viðbyggingu við Hlíða-
skóla, Árbæjarskóla og Klébergs-
flóknara fyrirbæri sem þyrfti sér-
stakrar skoðunar við. Enginn hefði
enn farið fram á slíka athugun.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, játti því að
það væru neytendur sem borguðu
þennan herkostnað stórmarkað-
anna þegar upp væri staðið.
„Þessir aðilar eru einfaldlega að
stunda viðskipti og hafa hagnað að
leiðarljósi. Þetta er engin góðgerðar-
starfsemi. Annars fagna ég aukinni
samkeppni og tækifæri sem athug-
ulir neytendur fá til að spara í
jólainnkaupunum," sagði Jóhannes.
-hlh
skóla. Á næsta ári verða 100 millj-
ónir settar í skólaeldhús. Skóladag-
ur yngstu barnanna verður lengd-
ur í fleiri hverfum og fristunda-
heimilum í grunnskólum flölgar.
Tveir nýir leikskólar verða
byggðir auk viðbygginga og endur-
bóta. Nemur flárfesting í þessum
málaflokki rúmlega 300 milljónum
króna.
Til reksturs skóla og leikskóla
renna samtals um 40% af skatttekj-
um borgarinnar, eða nærri 11.7
milijarðar króna sem samsvarar
yfir 107 þúsund krónum á hvem
íbúa borgarinnar. Hafa framlög til
þessara málaflokka hækkað um
36% að raungildi frá árinu 1999.
Þá verður m.a. veitt fé til tveggja
nýrra hjúkrunarheimila fyrir aldr-
aða, endurbóta í miðbænum og
framkvæmda við nýja keppnislaug
í Laugardal. -HKr.
DV-MYND HARI
Skammir dagar
Þaö tognar á myrkrinu í lífi landsmanna og röskar tvær vikur í stystan sólargang. Sólris í Reykjavík var ekki fyrr en 10.55 og
sólarlag rífum fjórum tímum síöar. Myrkriö varir því nánast í 20 stundir á sólarhring þessi dægrin ef dægur skyldi kalla.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur 2003:
Hálfs milljarðs niðurskurður
— skatthlutfall lækkar úr 62% í 59,2% milli ára
Fjárhagsáætlun kynnt
Frumvarp að A-
hluta flárhagsáætl-
unar Reykjavíkur-
borgar verður lagt
fram í borgarstjórn
í dag. Gert er ráð
fyrir að skatthlut-
fall haldist óbreytt
og tekjur hækki
um 7,2% en gjöld um 7,8%. Stefnt
er að því að handbært fé frá rekstri
verði 4,4% milljarðar. Samkvæmt
áætluninni er stefnt að minnkun
skulda um 120 milljónir króna, úr
16,7 milljörðum í 16,6 milljarða.
Borgarstjóri segir nauðsynlegt að
stíga á bremsuna í flármálum borg-
arinnar.
Mega ekki ættleiða
íslensk hjón mega ekki ættleiða
bam ef annað þeirra hefur átt við
veikindi að stríða. Hjón í þessum
sporum hafa samkvæmt frétt RÚV
árangurslaust barist fyrir því að fá
að ættleiða bam en þess eru dæmi
að einstaklingar hafl fengið að ætt-
leiða.
Styðja Samfylkinguna
Hlutfallslega ætla flestar konur
að styðja Samfylkinguna ef marka
má þjóðarpúls Gallups frá í nóvem-
ber. Samkvæmt könnuninni ætla
38,7% kvenna að kjósa Samfylking-
una en 35,4% Sjálfstæðisflokkinn.
Stuðningur kvenna við Samfylking-
una hefur vaxið þetta ár. mbl.is
greindi frá.
Sortuæxli algeng
Sortuæxli er núorðið algengasta
tegund krabbameins meðal ungra
kvenna hérlendis og það þriðja al-
gengasta meðal ungra karla. Þetta
kemur fram í rannsókn Elínar
Önnu Helgadóttur læknanema, sem
greint er frá á mbl.is. Nýgengi
sortuæxla hefur aukist hraðast allra
krabbameina hérlendis og er sú þró-
un ekki síst rakin til notkunar ljósa-
bekkja.
Með kíló af hassi
Við leit á hálfþrítugri konu, sem
var að koma frá Kaupmannahöfn í
fyrradag, fannst eitt kíló af hassi.
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
stöðvaði konuna. Við húsleit á
heimili hennar fannst meira af
fikniefnum og var önnur kona,
einnig á þrítugsaldri, handtekin.
Konurnar sæta vikulöngu gæslu-
varðhaldi.
Hassplöntur i vesturbæ
Alls fundust 72 hassplöntur við
húsleit í bílskúr i vesturbæ Reykja-
víkur í gær. Tveir karlmenn voru
handteknir á staðnum. Þeir voru yf-
irheyrðir og síðan sleppt.
Jón og Svava fái heiðurslaun
Jón Þórarinsson tónskáld og
Svava Jakobsdóttir rithöfundur
bætast í hóp þeirra sem fá heiðurs-
laun listamanna samkvæmt til-
lögu menntamálanefndar Alþingis.
Einhugur var um tillöguna í
nefndinni og má gera ráö fyrir að
hún verði samþykkt við afgreiðslu
flárlaga. Alls fá tuttugu og tveir
listamenn heiðurslaun samkvæmt
ákvörðun Alþingis, 1,6 milljónir
króna hver.
Miðstjórnin fundar
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
hefur veriö boðuð til fundar í Val-
höll á þriðjudaginn kemur. Á fund-
inum verða meðal annars rædd er-
indi kjördæmisráðs Norðvestur-
kjördæmis og fulltrúaráða sjálf-
stæðisfélaganna í Húnavatnssýslu,
í Skagafiröi og á Akranesi i kjölfar
prótkjörs flokksins í Norðvestur-
kjördæmi. Vilhjálmur Egilsson al-
þingismaður telur sem kunnugt er
að sigurinn hafl þar verið hafður
af sér „með brögðum". -aþ/-ÓTG