Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002
Fréttir
Hver er nú það? - spurðu margir
þegar tilkynnt var hver yrði fulltrúi
Suðumesja í 5. sœti á lista Sjálf-
stœðisflokksins í Suðurkjördæmi, og
fátt varð um svör. Ef
Orðheldinn en ein-
strengingslegur
Nafn: Böövar Jónsson
Aldur: 34 ára
Heimili: Reykjanesbær
maki: Anna Karlsdóttir Taylor,
kennari
Staöa: Fasteignasali
Efni: Væntanlegur nýr þingmaöur
Sjálfstæöisflokks í
Suöurkjördæmi
„Einstrengingslegur, en ágætur
piltur og orðheldinn." Þannig lýsa
viðmælendur DV Böðvari Jóns-
syni, 34 ára Njarðvíkingi, sem
skipa mun 5. sæti á lista Sjálfstæð-
isflokksins í Suðurkjördæmi fyrir
næstu alþingiskosningar.
Árangur ungu sjálfstæðismann-
anna þriggja í prófkjörinu í
Reykjavík, þeirra Birgis, Guðlaugs
Þórs og Sigurðar Kára, vakti
mikla athygli í fjölmiðlum, en af
einhverjum völdum hefur kastljós-
inu hins vegar ekki verið beint að
Böðvari félaga þeirra, þótt ágætar
líkur séu á að hann nái kjöri til Al-
þingis miðað við úrslit síðustu
kosninga.
Öruggur frami
Böðvar Jónsson er fasteignasali
og hefur búið í Njarðvík frá átta
ára aldri. Hann hefur jafnt og þétt
náð frama í stjómmálum á sveitar-
stjómarstiginu og skipaði annað
sæti á eftir Árna Sigfússyni á lista
Sjálfstæðisflokksins í síðustu
sveitarstjórnarkosningum. Liðlega
tvítugur stjórnaði hann kosninga-
baráttu flokksins í Njarðvík 1990;
1994 var hann í framboði og varö
varabæjarfulltrúi og 1998 skipaði
hann fimmta sæti listans og settist
í bæjarstjórn.
Hann kom til tals sem leiðtogi í
síðustu sveitarstjórnarkosningum
en sóttist ekki eftir því eftir að
Árni Sigfússon kom til sögunnar.
„Það var taktískt hjá honum; hann
tekur eitt skref í einu og seilist
ekki eftir of miklu, þótt hann sé
metnaðargjarn," segir náinn sam-
starfsmaður hans til margra ára.
Gefur ekki eftir
„Böðvar er frekar umdeildur;
annað hvort líst mönnum mjög vel
á hann eða alls ekki,“ segir sami
viömælandi. Og hvers vegna
skyldi það vera? Jú, hann þykir
fastur fyrir og margir segja að
hann eigi til að vera hrokafullur i
samskiptum við pólitíska andstæð-
inga og jafnvel við viðskiptavini.
Hitt vekur á hinn bóginn at-
hygli, að andstæðingar hans bera
honum ágætlega söguna. „Hann er
að mörgu leyti mjög réttsýnn og
það er ágætt að eiga við hann; það
sem hann segir stendur og maður
veit alveg hvar maður hefur
hann,“ segir einn þeirra en bætir
við: „Hann á það hins vegar til að
gleyma alþýðunni."
Nærmynd
Olafur Teitur Guönason
blaöamaöur
Frjálshyggjumaður
Faðir Böðvars er hinn
landskunni Jón Böövarsson, sem
gert hefur garðinn frægan með
vinsælum námskeiðum um fom-
sögurnar. Jón er ekki þekktur fyr-
ir hægrimennsku, en Böðvar son-
ur hans er hins vegar mikill frjáls-
hyggjumaður. „Mitt á milii Birgis
Ármannssonar og Sigurðar Kára,“
segir einn viðmælanda DV. Hins
vegar er það einróma álit þeirra
sem til þekkja, að heldur hafl
kvarnast úr frjálshyggjunni í póli-
tík Böðvars eftir nokkurra ára
þátttöku í sveitarstjórn Reykjanes-
bæjar.
Viðmælendur DV em sammála
um að Böðvar sé harður í horn að
taka, góður ræðumaður, skipu-
lagður í vinnu og atorkusamur, og
muni eflaust eiga í fullu tré við
sjóaða pólitíska andstæðinga á Al-
þingi nái hann kjöri, þrátt fyrir
ungan aldur.
Óþægileg staða?
Ekki er heldur víst að hann
haldi sig ávallt á flokkslínunni.
Hann stóð þannig gegn samherja
sínum Ellerti Eiríkssyni bæjar-
stjóra og andmælti kröftuglega
hugmyndum um að banna nektar-
dansstaði í Reykjanesbæ.
Á hinn bóginn hefur Böðvar get-
ið sér orð fyrir að halda sig fyrir
utan innanflokksátök, ekki síst í
Sambandi ungra sjálfstæðis-
manna. Nú tekur hann að vísu við
af sveitunga sínum og samherja,
Kristjáni Pálssyni, sem vikið hef-
ur verið til hliðar, og blandast þar
með í þau hörðu átök. Sumir segja
að stuðningsmenn Kristjáns hafi
undanfarin ár stutt dyggilega við
bakið á Böðvari, og því hljóti hon-
um að þykja staði sín svolítið
óþægileg nú.
Annar Árni
Svo virðist sem stjórnmálin eigi
hug hans allan þvi þrátt fyrir
áhuga á útivist og störfum sínum
á sviði fasteignaviðskipta, fer ekki
sögum af „dellu" á öðrum sviðum
en hvers konar félagsmálum.
Hann var formaður Nemendafé-
lags Fjölbrautarskóla Suðurnesja
og líka Ungmennafélags Njarðvík-
ur. „Ekki mikið sjálfur í sportinu
en í stjórnum íþróttafélaga."
„Er hann leiðtogi? Ekki kannski
afgerandi, nei, en þegar hann er í
því hlutverki stendur hann sig
ágætlega," segir vinur Böðvars um
forystuhæfileika hans. „Hann er
líklega svipuð týpa og Árni
Mathiesen: Mjög duglegur og setur
sig vel inn í málin, skilar góðu
verki og gerir ekki mistök, en sóp-
ar kannski ekki í kringum sig þús-
undum stuðningsmanna eins og
hendi sé veifað."
Telpa fyrir bíl
Sjö ára telpa varð fyrir bíl á
gatnamótum Leynisbrautar og Heið-
arhrauns í Grindavík um hálf-
sjöleytið í gærkvöld. Stúlkan var að
sögn lögreglu að leik við götuna
ásamt hópi barna. Hún virðist
skyndilega hafa hlaupið út á götuna
og í veg fyrir bílinn. Stúlkan var
flutt með sjúkrabifreið á slysadeild
Landspítalans en samkvæmt upp-
lýsingum læknis voru meiösl henn-
ar ekki alvarleg. -aþ
Engin skaðleg
hormón
Valin náttúruleg bætiefni
og jurtir fyrir
konur á breytingarskeiði
náttúrulega
eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smíratorgi
Nýir veitingamenn í Þjóðleikhúskjallarann:
Búið að endursmíða
vínbarinn fræga
- landsliðskokkur í hópi nýju rekstraraðilanna
DV-MYND E.ÓL
Þjóðlelkhúskjallarlnn aftur í gang
Nýju rekstraraöilarnir, viö endursmíöaöan frægasta bar á íslandi. Taliö frá vinstri:
Ragnar Ómarsson, Kristján Örn Sævarsson og Þormóöur Jónsson framkvæmdastjóri.
Nýir rekstraraðilar hafa tekið við
rekstri Þjóðleikhúskjallarans og
veitingaþjónustu við gesti og starfs-
fólk Þjóðleikhússins. Stofnað hefur
verið félag um reksturinn sem heit-
ir Leikhúskjcillarinn. Á bak við það
standa þrír aðilar, Þormóður Jóns-
son, framkvæmdastjóri og eigandi
auglýsingastofunnar Fítons, Ragnar
Ómarsson, liðsmaður í landsliði
matreiðslumanna og yfirkokkur á
Hótel Holti, og Kristján Örn Sævars-
son, þjónn af Hótel Holti.
Frétt DV 7. september
Stefán Baldursson þjóðleikhús-
stjóri segist vænta mikils af þeim fé-
lögum, en þeir munu hefja starfsem-
ina með opnun á föstudag og laugar-
dag. Matarveitingar fyrir almenn-
ing hefjast síðan fyrir alvöru 13.
desember og opið verður fyrir mat-
argesti um helgar. Þá verður þjón-
usta við leikhúsgesti alla daga sem
leikið er í húsinu.
Frægt varð er fram kom í fréttum
DV í byrjun september og mikið
uppistand þegar það uppgötvaðist að
fyrri rekstraraðili, Stefán Axel Stef-
ánsson, hafði fjarlægt mikinn bar úr
Þjóðleikhúskjallaranum um miðja
nótt og var málið kært til lögreglu. í
kjölfarið sagðist Stefán Axel_ hafa
fjarlægt barinn til að láta gera við
hann, en miklar deilur höfðu staðið
um reksturinn og sagði þjóðleikhús-
stjóri upp samningum við Stefán
Axel. Þegar hann skilaði svo bam-
um eftir nokkurt þóf var hann nán-
ast í henglum. Nú hafa nýir rekstr-
araðilar, i samráöi við arkitektana,
Guðmund M. Ólafsson og Oddgeir
Þórðarson, látið endursmíða barinn.
Þessir sömu arkitektar hönnuðu
barinn ásamt innréttingum á staðn-
um fyrir tíu árum. Þeir hafa nú aft-
ur tekiö sig til og er búið að flikka
upp á staðinn sem er nú mun bjart-
ari og skemmtilegri en áður.
Stefán Baldursson segir að sam-
skipti við fyrri rekstraraðila Þjóð-
leikhúskjallarans fari nú að mestu
fram í gegnum lögfræðinga. Hann
vonaöist þó til að þeim samskiptum
lyki án þess að til málaferla þyrfti
að koma. -HKr.
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 15.41 15.01
Sólarupprás á morgun 10.58 11.06
Síödegisflóð 19.05 23.38
Árdegisflóð á morgun 07.29 12.02
Lægir undir kvöld
25 m/s og talsverð rigning sunnan-
og vestan til fram yfir hádegi en
hægari vindur og úrkomulítið norðan
og austan til. Dregur smám saman
úr vindi meö skúrum í kvöld og nótt,
fyrst vestan til. Hiti 5-11 stig.
Suövestan 8-15 m/s og skúrir, en
hægari vindur og skýjaö með köflum
norðaustan til. Hiti 0-5 stig.
Veðrið n 'f.r-r u
Laugardagur Sunnudagur Mánudagur
^3
Hrti 0° Hiti 0° Hiti 5“
tll 5“ til 5° til 10°
Vindur: Vindur: Vindur:
5-10"'/» 5-10 ■"/* 8-13 HV*
71 «- Á
SV 5-10 Austlæg átt, SA 8-13 m/s
m/s og 5-10 m/s og og rlgnlng
skúrlr en skúrir suöaustan tll,
hægari og sunnan til. bjartvlðri
léttskýjaö Hiti 0 tll 5 norðanlands
fyrir austan stlg en um en annars
og norðan. frostmark skýjað.
Hltl 0 tll 5 um landlð Hltl 5 tll
stlg. norðanvert. 10 stlg.
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stlnningsgola 5,5-7,9
Kaldl 8,0-10,7
Stlnningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveður 28,5-32,6
Fárviðri >= 32,7
AKUREYRI skýjaö 6
BERGSSTAÐIR hálfskýjað 4
BOLUNGARVÍK úrkoma í gr. 5
EGILSSTAÐIR léttskýjað 3
KEFLAVÍK rigning 7
KIRKJUBÆJARKL. alskýjað 3
RAUFARHÖFN iéttskýjaö 3
REYKJAVÍK rigning 7
STÓRHÖFÐI rigning 7
BERGEN alskýjað 5
HELSINKI alskýjað -10
KAUPMANNAHÖFN rigning 2
ÓSLÖ alskýjaö -1
STOKKHÓLMUR -2
ÞÓRSHÖFN léttskýjaö 6
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjað 1
ALGARVE heiöskírt 12
AMSTERDAM alskýjað 5
BARCELONA
BERLIN þokumóöa 1
CHICAGO skýjað -6
DUBLIN heiöskírt 1
HALIFAX léttskýjað 10
HAMBORG súld 3
FRANKFURT rigning 4
JAN MAYEN þokumóöa 3
LONDON heiöskírt 5
LÚXEMBORG þokumóöa 3
MALLORCA
MONTREAL léttskýjaö -11
NARSSARSSUAQ heiöskírt -5
NEW YORK alskýjaö -1
ORLANDO hálfskýjaö 19
PARÍS rigning 6
VÍN rigning 3
WASHINGTON snjókoma -4
WINNIPEG -11