Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Síða 9
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002
9
Uppsagnahrina á
höfuðborgarsvæðinu
n>v
HEILDARVIÐSKIPTI 4.112 m.kr.
Hlutabréf 1.487 m. kr.
Húsbréf 1.207 m. kr.
MEST VIÐSKIPTI
0 Sæplast 592 m. kr.
0 Flugleiðir 260 m. kr.
©Jarðboranir 234 m. kr.
MESTA HÆKKUN
0 Sæplast 21,9%
0 Íslandssími 5,0%
© Rugleiðir 2,0%
MESTA LÆKKUN
0 íshug 2,9%
0 Líf 1,9%
0 Baugur 1,0%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.321
- Breyting 00,13%
Gengi krónunnar stöðugt
um þessar mundir
Gengi krónunnar hefur verið nokkuð
stöðugt að undanfórnu og hefur flökt
hennar ekki verið jafn lítið síðan krón-
an var sett á flot i upphafl árs 2001. Litl-
um viðskiptahalla og kaupum innlendra
aðila á erlendum verðbréfum hefur ver-
ið mætt með fjárfestingum erlendra að-
ila hér á landi og erlendum lántökum.
Greining íslandsbanka væntir þess að
litlar breytingar verði á þessu á næst-
unni og að verðgildi krónunnar verði
nálægt núverandi gildi í lok árs. Stórar
ákvarðanir eru hins vegar fram undan á
næstu vikum og mánuðum varðandi
hugsanlegar stóriðjuframkvæmdir.
Þessar ákvarðanir munu eflaust kalla á
breytingar á verðgildi krónunnar. ís-
landsbanki spáir því að krónan auki
verðgildi sitt á næsta ári, meðal annars
vegna vaxandi umsvifa i efnahagslífmu
og flárfestinga erlendra aðila hér á
landi.
500 milljóna afgangur
Frumvarp að fjárhagsáætlun Akur-
eyrarbæjar fyrir árið 2003 hefur verið
afgreitt í fyrri umræðu í bæjarstjóm.
Heildartekjur Akureyrarbæjar verða
tæpir 7,9 milljarðar króna en heildar-
gjöld rétt um 7,4 mUljarðar skv. sam-
stæðureikningi. Veltuíárhlutfall sam-
stæðureiknings er 1,09 og eiginfjárhlut-
fall er 40%. Gert er því ráð fyrir um 500
milljóna króna afgangi.
í frétt frá Akureyrarbæ kemur íram
að í fjárhagsáætlun ársins 2003 er áfram
gert ráð fyrir miklum Qárfestingum í
grunngerð samfélagsins og er það í sam-
ræmi við málefnasamning meirihiuta-
flokkanna.
Samkvæmt framkvæmdayfirliti Ak-
ureyrarbæjar eru framkvæmdir A-hluta
rúmir 1,4 milljarðar. Þar af eru 220
milljónir vegna öldrunarþjónustu, rúm-
ar 500 milljónir vegna fræðslu- og upp-
eldismála, 250 milljónir vegna menning-
armála og 268 milljónir vegna æskulýðs-
og íþróttamála. I B-hluta eru 685 milljón-
ir áætlaðar til framkvæmda og munar
þar mest um framkvæmdir á vegum
Norðurorku fyrir tæpar 400 milljónir og
Fráveitu Akureyrarbæjar fyrir rúmar
100 milljónir. Skatttekjur aðalsjóðs eru
áætlaðar tæpir 3,5 milljarðar lúóna og
framlag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 360
milljónir. Aðrar tekjur Akureyrarbæjar
eru rúmir 4 milljarðar skv. samstæðu-
reikningi.
Yfirverð á húsbréfum
Sparisjóður Hafnarfiarðar gerir ráð
fyrir að á næsta ári skapist aðstæður til
yfirverðs í stað affalla á húsbréfum.
Greiningardeild Sparisjóðs Hafnar-
fjarðar telur að í Ijósi þess að áhrif stór-
iðjuframkvæmda koma ekki strax fram
í efnahagslífinu séu litlar blikur á lofti
um að vextir hækki á ný á næsta ári.
Líklegra er að slíkar framkvæmdir ein-
faldlega haldi aftur af áframhaldandi hr-
inu vaxtahækkana. Áhrifa stóriðju gæti
farið að gæta eftir nokkur misseri og
hækkað vaxtastig aftur. Þar sem meiri
óvissa ríkir um vaxtahorfur eftir árið
2003 en nú er viðbúið að ávöxtunarkrafa
til bréfa með lengri gildistíma lækki
minna en skuldabréfa með styttri gildis-
tíma. Því er viðbúið að kúrfan á ávöxt-
unarkröfu húsbréfa hallist upp á við.
Þar sem verðbólguálag á óverðtryggðum
rikisbréfum er komið á svipaðar slóðir og
verðbólgumarkmið Seðlabankans, eða
um 2,5%, er líklegt að ávöxtunarkrafa
verðtryggðra skuldabréfa hreyfist í svip-
uðum takti og óverðtryggð skuldabréf.
Vegna þess geta skapast aðstæður til yfir-
verðs í stað afalla á húsbréfúm.
Síðustu daga hefur nokkuð borið á
fiöldauppsögnum hjá fyrirtækjum á
höfuðborgarsvæðinu. Fyrir skömmu
var tilkynnt um uppsagnir 33 starfs-
manna hjá Heklu hf. og á þriðjudag var
tilkynnt um uppsagnir 76 starfsmanna
hjá Íslandssíma hf. og Tali hf. auk þess
sem AcoTæknival sagði upp 10 starfs-
mönnum. Hjá þessum þremur fyrir-
tækjum hafa því alls 119 starfsmenn
misst vinnuna á skömmum tíma.
Þessar uppsagnir bætast við versn-
andi atvinnuástand á höfuðborgar-
svæðinu. Atvinnuleysi hefúr verið að
aukast á landinu öllu og mældist í októ-
ber 2,5%, en 2,8% á höfuðborgarsvæð-
inu. Það jafngildir því að í október hafi
að jafnaði um 2.500 manns verið at-
vinnulausir á höfuðborgarsvæðinu. Á
landinu öllu var atvinnuleysið í októ-
ber sl. um það bil tvöfalt meira en í
október fyrir ári. Þá var aukning at-
vinnuleysis milli októbermánaðar og
septembermánaðar mun meiri en með-
altalsaukning síðustu ára.
Atvinnuástandið versnar iðulega í
nóvember miðað við október. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Vinnumála-
stofnun hefúr atvinnuleysi aukist að
meðaltali um 9,5% frá október til nóv-
ember ef litið er til síðustu tíu ára.
Vinnumálastofhun telur því líklegt að
atvinnuleysið í nóvember aukist og
verði á bilinu 2,7% til 3,0%. Uppsagna-
hrinan á höfuðborgarsvæðinu siðustu
daga gefur svo tilefrii til að ætla að þró-
unin muni áfram vera á þann veg að
atvinnuleysi aukist eftir því sem líður
á veturinn.
________________Viðskipti
Umsjón: Viðskiptablaöid
Hausaþurrkunarlínur til
Laugafisks
Laugafiskur og Skaginn hafa gengið
frá samningi sem felur í sér að Skaginn
muni framleiða vinnslulínu sem geti
nýst til hausaþurrkunar fyrir verk-
smiðju Laugafisks á Akranesi.
Það sem af er árinu hefur Skaginn
þegar sett upp tvær slíkar vinnslulínur
til að þurrka þorskhausa í tveimur
verksmiðjum Laugafisks. Fyrsta
vinnslulínan var sett upp í verksmiðju í
Færeyjum sem er að hluta til i eigu
Laugafisks. Hin vinnslulínan er í verk-
smiðju félagsins að Laugum. Laugafisk-
ur er um þessar mundir að reisa nýja
verksmiðju á Akranesi og eins og áður
sagði verður sett upp slík vinnslulína
frá Skaganum þar. Ætlunin er að taka
verksmiðjuna i notkun í febrúar 2003.
SÉDOGHEYRT