Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Síða 11
ETMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002
11
DV
Útlönd
Kosningabaráttan hafin í ísrael:
Sharon styður tillögur Bush
um stofnun palestínsks ríkis
- lofar ad leggja málið fyrir þingið fái hann til þess stuðning í kosningunum
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Israels, sem nýlega var endurkjör-
inn leiðtogi Likud-bandalagsins,
sagöist í gær styðja tiliögur Bush
Bandaríkjaforseta um stofnun pal-
estínsks ríkis í kjölfar væntanlegra
umbóta og uppstokkunar í palest-
ínsku heimastjóminni.
Tillögumar, sem Bush lagði fram
fyrr á árinu, gera ráð fyrir stofnun
palestínsks ríkis innan hluta Vest-
urbakkans og Gaza-svæðins með
tímabundnum landamærum tO
bráðabirgða frá og með næsta ári en
varanlegum frá árinu 2005.
Sharon sagðist þó setja þau skil-
yrði fyrir stuðningi sínum að endi
yrði fyrst bundinn á ófriðinn og
hryðjuverkin og umframt allt að
palestínsku öryggissveitimar yrðu
leystar upp. Hann gerir sem fyrr
einnig þá kröfu að Yasser Arafat
hverfi frá völdum.
Þetta kom fram i ræði Sharons á
ráðstefnu sem haldin var í nágrenni
Ariel Sharon í kosningaham
Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, sagðist í gær styðja tiilögur Bush
Bandaríkjaforseta um stofnun palestínsks ríkis í kjölfar væntanlegra umbóta
og uppstokkunar í palestínsku heimastjórninni, fái hann til þess stuðning.
Tel Aviv í gær og hét hann því jafn-
framt að leggja væntanlegar friðar-
tiilögur fyrir ísraelska þingið til
samþykktar strax eftir kosningar,
fái hann til þess stuðning þjóðarinn-
ar í kosningunum eins og fastlega
er búist við.
Þegar Sharon var spurður um
nánari útfærslu á hugmyndum sín-
um um palestínskt ríki sagðist hann
sjá fyrir sér að íraelsmenn myndu
fallast á að það næði yflr hluta af
Gaza-svæðinu og Vesturbakkanum
með fullri öryggisábyrgð Palestínu-
manna eða að hluta til eftir atvikum
og átti þá við að íraelar færa með
öryggisgæslu á ákveðnum svæðum
sem að mestu væru byggð gyðing-
um. „Palestína yrði lýst vopnlaust
svæði en yrði leyfilegt að halda úti
léttvopnuðum löggæslusveitum.
ísraelar færu með landamæragæslu
og loftferðaeftirlit," sagði Sharon
sem kallar hugmyndir sinar raun-
sæjar og framkvæmanlegar.
REUTERS-MYND
Gerhard Schröder
Þýskalandskanslari tekur beiðni
Tyrkja um inngöngu í ESB ekki fjarri.
Frakkar og Þjóð-
verjar jákvæðir
Gerhard Schröder Þýskalands-
kanslari sagði í gær að Þjóðverjar
og Frakkar myndu taka sameigin-
lega og jákvæða afstöðu til beiðni
Tyrklands um inngöngu í Evrópu-
sambandið þegar leiðtogar þess
koma saman tU fundar í Kaup-
mannahöfn í næstu viku.
Schröder og Jacques Chirac
Frakklandsforseti urðu ásáttir um
það á fundi sínum í gær að sam-
ræma afstöðu sína á fundinum tU
allra annarra mála sem snerta fyrir-
hugaða stækkun Evrópusambands-
ins tU austurs.
REUTERS-MYND
Bændur vilja betri skilmála
Nokkur þúsund tékkneskir bændur efndu til mótmælaaðgerða í höfuðborginni Prag í gær þar sem þeir kröfðust betri
inngönguskilmála áður en Tékkland gengur í Evrópusambandið á árinu 2004. Þeim var greinilega heitt í hamsi.
Allt með kyrrum kjörum í Dili í morgun:
Mörg fyrirtæki eru lokuð og
gæsluliðar SÞ á hverju horni
Allt var með kyrrum kjörum í
DUi, höfuðborg Austur-Tímors, í
morgim eftir blóðug uppþot náms-
manna þar í gær. Mörg fyrirtæki
voru hins vegar lokuð í morgun og
friðargæsluliðar Sameinuðu þjóð-
anna voru um aUt.
Átökin í gær voru þau alvarleg-
ustu sem hafa orðið á Austur-Tímor
frá því landið fékk sjálfstæði fyrr á
árinu og þykja mikið áfaU fyrir tU-
raunir manna tU að koma þar á frið-
samlegu lýðræðisskipulagi.
Sumir sjónarvottar sögðu að þrir
tU fimm menn hefðu látið lífið í
uppþotunum í gær en SÞ og stjórn-
völd í DUi segja að aðeins einn mað-
ur hafi látist.
Nokkrar byggingar, þar á meðal
heimUi forsætisráðherra landsins,
urðu brennuvörgum eða skemmdar-
vörgum að bráð og rafmagnslaust
REUTERS-MYND
Óeirðlr í Dili
Mótmælendur kveiktu í stolnum
varningi á götum Dili á Austur-Tímor
í miklum ólátum þar í gær.
var í sumum hverfum borgarinnar í
morgun.
Caroline O’Brien, starfsmaður ut-
anríkisráðuneytis Austur-Tímors,
sagði fréttamanni Reuters á staðn-
um að fimm lögregluþjónar og einn
þingmaður hefðu særst. Hún hafði
ekki á reiðum höndum fjölda
særðra meðal mótmælendanna.
Ólætin upphófust þegar um fimm
hundruð námsmenn lentu í átökum
við lögreglu þegar efnt var til göngu
til að mótmæla handtöku lögregl-
unnar á námsmanni daginn áður.
Sjónarvottur sagði að mikil reiði
heíði brotist út í hópnum eftir að
lögreglan skaut einn göngumanna.
O’Brien sagði aftur á móti að
gangan hefði farið friðsamlega fram
til að byrja með en ólætin hefðu
brotist út eftir að annar hópur slóst
í för og tók að kasta grjóti.
VE I Q I K LÆ R
VEIQI-MATARGERQ-NÁTTÚRA
Jólagjöf matgœðingsins
Myndbandsspólan VEIÐIKLÆR
Fæst í Hagkaupum, Esso og betri veiöibúöum.
“áhorfandinn ærist um stund af matarlöngun"
Sæbjörn Valdimarsson mbl. 31.10.02
575 1230
Opið mnn-fös 09-18 og lau 10-16
Grjóthálsi 1
bilaland.is
UPPB0Ð
Framhald uppboös á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Dalsel 36, 0102, Reykjavík, þingl. eig.
Björn Stefánsson, gerðarbeiðendur
íbúðalánasjóður og Lífeyrissjóðurinn
Lífiðn, mánudaginn 9. desember 2002
kl. 15.00.____________________
Fluggarðar 29C, flugskýli nr. 29C,
Reykjavík, þingl. eig. Ragnar J. Magn-
ússon, gerðarbeiðandi SP Fjármögnun
hf., mánudaginn 9. desember 2002 kl.
11.00.
Flúðasel 81, Reykjavík, þingl. eig.
Hanna Hannesdóttir, Bogi Baldursson,
Steinunn Jónsdóttír og Baldur Jó-
hannsson, gerðarbeiðendur íbúða-
lánasjóður, Sparisjóður Hafnarfjarð-
ar, Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, útibú, og Tollstjóraembættið,
mánudaginn 9. desember 2002 kl.
15.30.
Hálsasel 10, 50% ehl., ásamt bílskúr
Reykjavík, þingl. eig. Friðrik Þór Hall
dórsson, gerðarbeiðendur Greiðslu
miðlun hf. og Tollstjóraembættið
mánudaginn 9. desember 2002 kl
16.00.
Hjaltabakki 30, 0301, Reykjavík,
þingl. eig. Jóhann Dagur Björnsson,
gerðarbeiðendur Hjaltabakki 18-32,
húsfélag, Sparisjóður Reykjavíkur og
nágrennis, útibú, og Tollstjóraembætt-
ið, mánudaginn 9. desember 2002 kl.
14.00.
Maríubakki 4, 0302, 50% ehl. Reykja-
vík, þingl. eig. Jóhanna Birna Einars-
dóttir, gerðarbeiðandi Sparisjóður
Reykjavíkur og nágrennis, útibú,
mánudaginn 9. desember 2002 kl.
13.30.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK