Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2002, Side 8
8
MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2002
DV
Fréttir
Framboð eiturlyfja
eykst í Skagafirði
- á annan tug ungmenna á Sauðárkróki er í vanda
Frá Sauðárkróki.
DV-MYND. J. IMSLAND
Laugin vígð
Þeir Ólafur Áki Ragnarsson og Björn
Hafþór Guðmundsson, fyrrverandi
og núverandi sveitarstjórar Djúpa-
vogs, vígðu laugina.
100 milljóna
króna sundlaug
Á laugardag var við hátíðlega at-
höfn vígð og formlega tekin í notkun ný
innisundlaug sem byggð var við íþrótta-
húsið á Djúpavogi. Byggingin er um 600
fermetrar. Sundlaugin er 16,70 m löng
og 10 m breið en einnig eru tveir heitir
pottar, allt hitað upp með rafmagni.
Kostnaður við sundlaugarbygginguna
er rúmlega hundrað milljónir króna
sem Djúpavogshreppur greiðir, utan
fjórtán milljóna króna styrks sem
hreppurinn fékk frá Jöfnunarsjóði sveit-
arfélaga. Sveitarstjórinn, Bjöm Hafþór
Guðmundsson, segir að vissulega sé
þetta stór og mikill biti fyrir fimm
hundmð og tuttugu manna sveitarfélag
en íþróttaáhugi er mikill á staðnum og
samstaða og einhugur um að láta þetta
ganga upp. Nýja sundlaugin leysir
gömlu útilaugina af hólmi en hún var
orðin léleg og ailtof dýr í rekstri.
Þegar búið var að vígja sundlaugina
mættu sveitarstjóramir, núverandi og
fyrrverandi, á sundskýlunum og stungu
sér tii sunds við múcinn fognuð við-
staddra.
J. Imsland
í tvígang að undanfömu hefur
lögreglan á Sauðárkróki farið í að-
gerðir vegna flkniefnamála í bæn-
um. í bæði skipt-
in voru það fjórir
aðilar sem komu
við sögu og þeir
sömu að hluta til
sem tengjast
þessum tveimur
málum. Seinni
aðgerð lögregl-
unnar átti sér
stað í síðustu
viku þar sem leit
var gerð í húsi og lítið magn flkni-
efna gert upptækt ásamt tólum til
neyslu.
Að sögn Bjöms Mikaelssonar yf-
irlögregluþjóns er nokkur hópur
ungmenna á Sauðárkróki, þau eru á
annan tug, sem hefur verið að fást
við neyslu af einhverju tagi og er í
vandamálum. Bjöm segir að þessir
krakkar séu trúlega ekki í dreif-
ingu, einungis eigin neyslu, en hins
vegar sé ljós sú þróun að framboð á
eiturlyfjum fari vaxandi í bænum.
Aðspurður hvort það tengist því að
„sölumenn dauðans" telji Fjöl-
brautaskólann álitlegan markað,
sagði Bjöm að ekkert hefði komið
fram sem tengdist skólanum. Um
bæjarunglinga væri að ræða í þess-
um tilfellum.
Óæskilegir leigjendur
1 spjalli við Björn yfirlögreglu-
þjón barst einnig í tal sú staðreynd
að fólk sem hefur verið í neyslu
og/eða á að baki afbrotaferil hefur
gjarnan leitað út á land og búið þar
í nokkum tíma. Oft eru grunsemdir
um að þeir aðilar séu þá að kort-
leggja svæðin fyrir þá hópa sem
fara svo í ránsleiðangra út um land.
Þetta fólk hefur til að mynda komið
við á Sauðárkróki og í haust leigði í
bænum par og átti pilturinn að baki
slóð innbrota. Sú spuming vaknar
hvort leigusalar húsnæðis geti með
einhveru móti aflað sér upplýsinga
um leigjendur sína, hafi þeir uppi
grunsemdir. Aðspurður sagði Bjöm
að lögreglan mætti ekki gefa upplýs-
ingar um feril fólks og því væru i
raun litlir möguleikar fyrir leigu-
sala húsnæðis að tryggja sig gagn-
vart slíkum óþægindum. Eini mögu-
leikinn væri sá að rýna í fallna
dóma sem væru opinber plögg, en
væntanlega fer hinn almenni íbúð-
areigandi ekki að leggja á sig slíka
vinnu. -ÞÁ
Samvinna verktaka:
Vilja stofna stórt
verktakafyrirtæki
Frá því í nóvember hefur At-
vinnuþróunarfélag Eyjafjarðar
ásamt þremur verktökum á Akur-
eyri unnið að stofnun félags sem
ætlunin er að verði undanfari að
stóru verktakafyrirtæki á Eyjafjarð-
arsvæðinu. Ætlunin er að sameina
krafta verktaka á svæðinu þannig
að þeir verði betur í stakk búnir til
að taka þátt í stærri útboðum, og er
þá sérstaklega horft á fyrirhugaðar
álvers- og virkjunarframkvæmdir á
Austurlandi I upphafi en væntan-
lega mun félagið horfa til stærri
verkefna alls staðar á landinu er
fram líða stundir.
I undirbúningshópi að stofnun
hins nýja félags eru Baldvin Valdi-
marsson frá Slippstöðinni, Davíð
Hafsteinsson frá Rafeyri og Sveinn
Heiðar Jónsson sem rekur bygging-
arfyrirtæki á Akureyri í eigin
nafni. í hópnum eru einnig starfs-
menn Atvinnuþróunarfélagsins og
Eiður Guðmundsson hjá Hönnun á
Akureyri sem hefur veitt hópnum
ráðgjöf.
Stefnt er að því að senda verktök-
um á Eyjafjarðarsvæðinu bréf eftir
áramót þar sem þeim verður boðið
að koma að málinu. Félagið á að
stofna fljótlega á nýju ári. -hiá
Björn
Mikaelsson.
Stjömustæði
á góðum stað
Nú eru tilbúin til notkunar 78 bílastæði á reitnum þar sem
Stjörnubíó var áöur.
Góð stæði fyrir gesti og íbúa
Laugavegar og nágrennis.
Fyrsta klukkustundin kostar
aðeins 80 kr. eða 1,33 kr. mínútan,
síðan greiðir þú 10 kr. fyrir hverjar
8 mínútur.
Góð viðbót í jólaannríkinu.
Gjatdsvæði 2 (mín)
80 kr/klst
10 kr 8 mín
50 kr 38 mín
ÍOO kr 75 mín
Falleg landkynning
íslenski vagninn var sannarlega glæsilegur í skrúðgöngunni, enda hafði fjöidi
Vestur-íslendinga lagt hönd á plóginn við gerð hans
Vestur-íslendingar í Norfolk:
Buðu jólin velkomin
á sjóræningjaskipi
Hin árlega jólaskrúðganga í Nor- Association í Norfolk að taka þátt í
folk fór fram síðustu helgina í nóv- göngunni og kynna heimalandið ís-
ember með pomp og prakt. Að venju land á þann hátt. -snæ
voru Vestur-íslend-
ingar áberandi í
göngunni en þeir
skörtuðu í ár sjóræn-
ingjaskipinu Tý sem
var ríkulega skreytt
með íslenskum fán-
um og þúsundum
jólaljósa. Þema göng-
unnar í ár var „Einu
sinni var“ og fékk ís-
lenski vagninn silfúr-
verðlaun, eina ferð-
ina enn, að þessu
sinni fyrir hið ævin-
týralega sjóræningja-
skip sitt sem innihélt
m.a. álfadís, Pétur
Pan, snjókall,
Kaptein Cook og
skuggalega sjóræn-
ingja. Hin árlega
skrúðganga markar
upphaf jólanna í Nor-
folk og kemur íbúum
í jólaskap á hverju
ári en það er orðinn
fastur liður hjá
Icelandic-American
Islenskt sjóræningjaskip
Tveir litlir sjóræningjar, Shannon Horvath og Kristján
Adolfsson, á víkingaskipinu Tý.