Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2002, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2002
DV
13
Neytendur
Oskabókin?
Ekki er víst aö allir fái þá bók sem þeir óskuöu sér í jóiagjöf og mikiö er um
skil á bókum eftir jólin. Reglur þar um eru hins vegar ólíkar frá einum söluaö-
ila til annars og því ráölegt aö kynna sér þær þegar bók er keypt.
Misjafnar reglur um skipti á bókum:
Kynnið ykkur reglurnar
„Þó að bækur séu gefnar í jólagjafir
geta verslanir engu að slður krafist
kvittunar þegar bókum er skilað. En
hún er varla inni í jólapakkanum.
Gjaman koma upp vandamál eftir jól,
tengd skilum á bókum. Stórmarkaðir
setja gjaman sem skilyrði að tekin sé
bók fyrir bók. En til að forðast vandræði
ráðleggjum við fólki að fá fullnægjandi
upplýsingar um skilarétt um leið og það
kaupir bækur. Skilaréttur á ógölluðum
vörum er ekki bundinn í lögum og
verslanir em með breytilegar reglur um
skilarétt þó reynt hafi verið að koma á
samræmdum reglum þar um. Því er
skynsamlegast að kynna sér skilarétt-
inn um leið og keypt er,“ sagði Jóhann-
es Gunnarsson, formaður Neytendasam-
takanna, í samtali við DV.
Mikill hasar er nú í bóksölunni enda
jólin á næsta leiti. Tilboðum rignir yfir
neytendur og geta þeir sem fylgjast vel
með auglýsingum gert reyfarakaup á
jólabókunum. DV sagði frá því á
fimmtudag að stórmarkaðir seldu bæk-
ur undir kostnaðarverði í grimmri sam-
keppni þetta árið. I framhaldi af þvi
kom eðlilega fram sú spuming hvort
fólk gæti keypt jólahækur á tombóluprís
og skipt þeim síðar fýrir aðrar dýrari og
þannig fengið óskabókina með auka-
afslætti.
Bóksalar sem DV ræddi við sögðu að
ef fólk væri að skipta bókum fyrir jólin
væri beðið um kassakvittanir eins og
við skil á öðrum vörum. Eftir jól er hins
vegar þegjandi samkomulag um að bók-
um sé skipt og oft tilgreindur ákveðínn
frestur til þess. Gjafabókum fylgir hins
vegar enginn verðmiði eða kvittun.
Söluaðilar eru þó í fúllum rétti að biðja
um kassakvittanir eða sönnun þess að
bókin hafi verið keypt hjá þeim, sjái
þeir ástæðu tii þess. Best er því að
kynna sér skilarétt þar sem bókin er
keypt.
Heitasta
búdin í
bænum !
100% mesta vöruúrval dferm.
Alltfrá magadansbúningum
til ektapelsa.
Oðruvt'si Ijós, styttur, myndir,
rúmteppi, dúkar, púðar, ekta
mokkaskinnsjakkar.
urvt
>avoru.
Sigurstjarnan
í bláu húsi við Fákafen,
sími 588 4545.
Einnig opið um helgar.
Smáauglýsingar
allt fyrir heimiliö
550 5000
Þrír gullsmiöir sem reka saman vinnustofu
og verslun aö Laugavegi 37
þar sem þeir hanna og
smíða einstaka hluti.
Hlutir frá okkur fást einnig á Listasafni íslands
HLUTAGERÐARFELAGIÐ
LAUGAVEGI 37 sími 511 6262