Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2002, Page 32
Míklir mðguleikar
gervihnaítasjánvarpsins
bjóða upp é fjöibreytta dagskrá
Verðfrá
39.900,-
OREIND
5Q7t,i TOS)
m
AuJbrekka 3 - Kópavogur
íimi: 5641660
Hljómplötuframleiðendur:
Tónlist með
hærri vask
en klám
„Erlend klámblöð eru með 14 pró-
senta virðisaukaskatt, en íslenskir
geisladiskar eru með fullan virðis-
aukaskatt sem er
Einar Báröarson.
24,5%. Eftir að
lögum um virðis-
aukaskatt var
breytt í haust er
lægra virðisauka-
skattþrep á
dönsku klámi
heldur en á ís-
lenskri tónlist,"
segir Einar Bárð-
arson, talsmaður hljómplötufram-
leiðenda, í vefpósti þeirra.
Hann segir þessa ákvörðun
stjórnvalda um skattlagningu hafa
valdið reiði meðal manna í tónlist-
argeiranum. Menn segi þetta
smekkleysu. „Ef tónlist nyti sömu
skattaálagningar og erlend klám-
blöð á íslandi þá væri verðlagning á
íslenskri tónlist samkeppnishæf
miðað við nágrannalönd en eins og
staðan er í dag er það ekki svo,“ seg-
ir Einar. -sbs
Slys í Hlíðarfjalli
Maður á mótorcrosshjóli slasaðist í
^ Hlíðarfjalli í gær. Maðurinn var að
leika sér á hjóli ásamt nokkrum félög-
um sínum þegar slysið varð upp við
skíðastaði Hlíöarfjalls. Hjól mannsins
lenti i holu með þeim afleiðingum að
það endastéikkst. Að sögn lögreglunn-
ar á Akureyri var um vana mótor-
hjólamenn að ræða en ekki er algengt
að menn séu á hjólum þarna uppi
enda um vatnsvemdarsvæði að ræða.
Maðurinn var fluttur á sjúkrahús með
áverka í andliti. -snæ
dagartil jóla
Yfir 150
fyrirtæki
KrÍKC*(c<K
*
iej/ii
ER MEt/HUI FYRIR JDEIN
VERÐUR Þ/e D/tNSKT
. KLAM I
JOLAPAKKANUM?
Viðbótarlífeyrissparnaður
Allianzóíj)
I -I „r-H
Loforð er loforð
MANUDAGUR 9. DESEMBER 2002
Símí: 533 5040 - www.allianz.is
DV-MYND: HARI
Jólastemnlng
Þaö ríkti mikil og Ijúf jólastemning á jólaballi Styrktarfélags lamaðra og fatlaöra sem haldiö var í Súlnasal Hótel Sögu
í gær. Hópur listamanna kom þar fram án endurgjalds og skemmti börnum og fullorðnum. Má þar nefna André Bach-
mann, Helgu Möller, Geir Ólafsson og Móu. Barnakór Kársnesskóla og Lúörasveit verkalýösins skemmtu einnig auk
jólasveina sem var vel og innilega fagnaö eins og myndin ber meö sér.
Áhrif „landkynningar“ erlendis um „heitt næturlíf“ í Reykjavík:
Auglýsingar farnar aö
leiða til ofbeldisverka
- einn Bandaríkjamaður nú í fangelsi vegna nauðgunarkæru
Aukning hefur orðið á því að kon-
ur leiti til neyðarmóttöku Landspít-
ala háskólasjúkrahúss eftir að hafa
orðið fyrir kynferöislegu ofbeldi eða
nauðgunum af hálfu útlendinga sem
hingað hafa komið í stuttar ferðir.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
er orðið töluvert algengt á skemmti-
stöðum að konur verði fyrir áreiti
slíkra manna, sem telja sig vera að
upplifa heitt og frjálslegt næturlíf
með fallegum konum í Reykjavík,
eins og gert hefur verið út á í aug-
lýsingum til „landkynningar" á síð-
ari árum.
„Það er alveg ljóst að við höfum
orðið vör við nokkur slík tilvik þar
sem um er aö ræða menn sem fara
síðan úr landi," sagði Guðrún Agn-
arsdóttir, yfirlæknir neyðarmóttök-
unnar, við DV. „Það er ekki mjög
oft, en kemur þó fyrir. Tilvikin geta
verið fleiri heldur en þau sem við
vitum um því ekki er víst að allar
konur sem verða fyrir kynferðis-
legu ofbeldi leiti til neyðarmóttök-
unnar. Þetta er örugglega í tengsl-
um við þessar auglýsingar aö ein-
hverju leyti, þó ekki sé hægt að full-
yrða að hve miklu leyti.
Ég myndi segja að þessi tilvik
væru tiltölulega ný af nálinni. Vita-
skuld eru ferðamenn alltaf á land-
inu en síðastliðin 3-4 ár leita konur
oftar á neyðarmóttökuna eftir að
hafa lent i þeim heldur en áður.“
Síðasta thvikið þar sem kona leit-
aði til neyðarmóttökunnar eftir að
hafa orðið fyrir kynferðislegu of-
beldi af hendi manns sem staddur
var hér í helgarferð átti sér stað
laugardag fyrir rúmri viku. Konan
kærði nauðgunina til lögreglunnar í
Reykjavík. í kjölfar kærunnar var
um það bil þrítugur Bandaríkjamað-
ur tekinn til yfirheyrslu. Hann var
að því loknu úrskurðaður í farbann.
Þrátt fyrir það reyndi maðurinn að
komast úr landi síðdegis á mánu-
daginn sl. Lögreglan sá hins vegar
við honum og handtók hann á Kefla-
vikurflugvelli. Síðan var hann úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 12.
desember nk. Hann situr því í fang-
elsi nú en unnið er að rannsókn
málsins.
Guðrún Agnarsdóttir sagði mjög
mikilvægt að lögreglan væri fljót að
bregðast við í tilvikum sem þessum.
Þess vegna skipti árvekni hennar og
skjót viðbrögð mjög miklu máli, því
lítið væri hægt að gera ef meintir of-
beldismenn kæmust úr landi. -JSS
Árni Steinar í 2. sæti VG í Norðvesturkjördæmi:
Tveir þingmenn skerpa línurnar
- segir Jón Bjarnason sem er í 1.
„Að við séum tveir þingmenn í
sætinu
efstu sætum listans skerpir á því
markmiði okkar að við ætlum að
ná tveimur mönnum inn í kosn-
ingunum í vor. Þetta er sterkur
listi og baráttan verður spenn-
andi,“ segir Jón Bjarnason, þing-
maður VG. Hann leiðir lista flokks
síns í Norðvesturkjördæmi, sem
er rökrétt framhald þess að á líð-
andi kjörtímabili hefur hann verið
þingmaður á Norðurlandi vestra.
Stóru tíðindin eru hins vegar að
Akureyringurinn Ámi Steinar Jó-
hannsson fer fram í nýju kjör-
dæmi. Skipar annað sætið, en
Ámi hefur veriö annar tveggja
Framboöslistinn
Listi VG í Norövesturkjördæmi er til-
búinn. Þingmennirnir Árni SteinarJó-
hannsson og Jón Bjarnason eru
hvor á sínum enda í fremstu röö.
þingmanna VG
eystra.
á Norðurlandi
Jón Bjarnason segir búhnykk
vera að því að fá Árna Steinar í
framboð fyrir vestan Tröllaskaga.
Hann hafi á vettvangi stjómmál-
anna á síðustu misserum til dæmis
mjög látið að sér kveða í málum er
varði hagsmuni byggðanna á Norð-
urlandi vestra, svo sem hvað varðar
sjávarútveg og atvinnumál.
„Þetta er listi skipaður baráttu-
glöðu fólki úr öllu kjördæminu. Ég
hlakka til að taka slaginn," sagði
Jón Bjamason. Þess má geta að
þetta er fyrsti framboðslisti VG sem
frágenginn er en vænta má að línur
varðandi aðra lista flokksins fari að
skýrast hvað úr hverju. -sbs
Litla-Hraun:
Ok jeppa í
gegum girðingu
Ökumaður jeppabifreiðar ók í
gegnum tvöfalda öryggisgirðingu
við fangelsið á Litla-Hrauni í fyrra-
kvöld. Maðurinn fór skiljanlega
ekki lengra eftir það og hafði lög-
reglan hendur í hári hans.
Tilkynningar bárust um ferðir
mannsins á Stokkseyri og að akst-
urslag hans þætti athugunarvert.
Lögreglumenn frá Selfossi fóru nið-
ur að ströndinni og höfðu upp á
bílnum en ökumaðurinn virti ekki
stöðvunarmerki. Barst leikurinn þá
að fangelsinu þar sem eftirleikurinn
varð með fyrrgreindum hætti.
Maðurinn, sem er fyrrum fangi á
Litla-Hrauni, var i vörslu lögreglu um
nóttina en í framhaldinu var honum
komið undir læknishendur. -sbs
DVAHYND HARI
Kristján Jóhannsson.
Hafnarfjörður:
Afmælistón-
leikaveisla
Efnt var til mikillar fjölskylduhá-
tíðar í íþróttahúsinu í Kaplakrika í
Hafnarfirði í gær. Tilefni þessa var
hundrað ára afmæli Sparisjóðs
Hafnarfjarðar sem haldið er upp á
um þessar mundir. Þar kom fram
fjöldi landsþekktra listamanna, m.a.
karlakórinn Þrestir, Björgvin Hall-
dórsson, Sigrún „Diddú" Hjálmtýs-
dóttir, Öldutúnskórinn, Kvennakór
Hafnarfjarðar, Tríó Björns Thorodd-
sen og Borgardætur. Eftir stutt hlé á
dagskránni kom Kristján Jóhanns-
son tenór fram á sviðið og síðan
Kvintett Kristjönu Stefánsdóttur,
Laddi, Hljómsveitin BSG, Bubbi
Morthens og Sálin. -HKr.
Sjálfvirk slökkvitækí
fYrir sjónvörp
Sími 517-2121
H. Blöndal ehf.
Auðbrekku 2 - Kópavogi
Innflutningur og sola - www.hblondal.com
SECURITAS
VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU!
Sími 580 7000 | www.securitas.is
112
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLlNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ
*