Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Síða 38
38 HelQarblað H>V LAUGARDAGU R I 4-. DESEMBER 2002 Sakamál Níðingur loks staðinn að verki Eftir að hafa setið ídauðadeild í fangelsi á Flórída dó 74 ára gamall karlmaður þar úr krabbameini í fgrra. Hann uar dæmdur fgrir að mgrða konu en 24 árum áður framdi hann annan glæp sem varla getur talistsíð- ur alvarlegur en morð. Hann nauðgaði og limlesti unga stúlku á hrottalegri hátt en orð fá Igst. Fgrir það hlaut hann væga refs- ingu og gekk lengi laus þar til hann gekk af annarri konu dauðri. Það var ótrúleg sjón sem blasti við Jim Godder og konu hans þar sem þau óku vörubíl nærri Del Puerto Canyon, tæplega 200 km suður af San Francisco. Nakin stúlka lá upp við klettvegg við veginn, handalaus, en blóð- ugir stubbar báru þess merki að stutt var síðan hendumar voru skomar eða höggnar af henni. Þegar þau sáu stúlkuna fyrst leit helst út íyrir að þama stæði stúlka nærri veginum i sundfötum og væri að sóla sig. Þegar hjónin óku nær sáu þau að stúlkan var nakin og síð- an að hún var handalaus og þau trúðu ekki sínum eigin aug- um. Fyrst í stað voru hjónin svo agndofa að þau vissu ekki hvað þau ættu að taka til bragðs. Bílstjórinn sagði síðar svo frá að þau hjónin hefðu strax áttað sig á að stutt var síðan sá sem aflimaði stúlkuna hafði höggvið hendumar af henni. Hún stundi upp að sér hefði verið nauðgað og þegar hún var spurð hvað hefði eiginlega komið fyrir muldraði hún eitthvað háffmeðvitundarlaus og virtist ekki vera viss um hvað hefði gerst og hvemig komið var fyrir henni. Hjónin lyftu limlestri stúlkunni inn í bílinn og óku eins hratt og þau komust að næsta síma þar sem þau hringdu eft- ir hjálp. í september 1978 var Mary Vincent á leið til Los Angeles til að heimsækja ættingia þar. Hún fór á puttanum og var með skilti sem á stóð ákvörðunarstaður hennar. Þetta var á fremur fáfarinni leið. Tveir bílar óku fram hjá henni án þess að stansa. Bílstjóri þriðja bílsins, sem sá skiltið, hafði ann- an ákvörðunarstað í huga þegar hann stoppaði sendiferða- bíl sinn og tók 15 ára gamla stúlkuna upp í. Hann sagðist heita Larry. Bráðlega sá hún að maðurinn ætlaði sér eitt- hvað annað en aka henni áleiðis til Los Angeles þegar hann beygði inn á malarveg. Við hans stóð skilti sem sýndi að fram undan væri 25 km vondur vegur. Hvar eru hendumar mínar? Nokkrum klukkustundum síðar rankaði hún við sér, Þegar Mary Vincent var 15 ára var henni niisþyrmt á hryllilegan hátt. Myndin er tekin rétt eftir að hend- urnar voru höggnar af henni. kvalin og mgluð, og rámaði í þungt högg sem henni var gef- ið og skreiddist hún um nakin og hræðilega á sig komin. Hún mundi líka að sterkar hendur tóku hana upp, bám að skurði og hentu henni niður í hann, þar sem hún var skil- in eftir til að deyja. Mary lá grafkyrr og heyrði að sendiferðabílnum var ekið á brott. Hún vissi ekki hve lengi hún lá í skurðinum en vissi að henni blæddi en áttaði sig ekki á hvar sárin vom og hvaðan blóðið kom. Hún gat hvergi séð bakpoka sinn eða fót þegar hún fór að svipast um eftir eigum sínum. Stúlkan vissi að hún varð að fá hjálp og skreið því upp úr skurðin- um og skjögraði af stað, eins illa á sig komin og raun bar vitni. Hún var skilin eftir á afskekktum stað og var þar hvergi nokkum mann að sjá en þar sem Mary slagaði um heyrði hún umferðamið og þegar hún kom að hraðbraut var hún orðin svo aðframkomin að hún gat ekki annað en lagst utan í klett við veginn. Vömbílstjórinn sem ók þama fram á hana sagði síðar að þau hjónin hefðu strax séð að stúlkan var í því ástandi að átta sig illa eða ekki á hvemig komið var fyrir henni. Eftir að þau komust í síma leið ekki á löngu þar tft sjúkrabíll kom og ók Mary á næsta spitala. Það var fyrst þar sem hún varð þess meðvitandi að hún var handalaus. Hún hrópaði upp: „Hendumar mínar. Hvar em hendumar mínar?“ Það vildu læknamir og lögreglan líka fá að vita. Nokkur von var til þess að hægt yrði að græða hendumar á stúlk- una aftur ef þær fyndust fljótlega. Leitað var á svæðinu þar sem glæpurinn var faminn en hendumar fundust hvergi. En hvers vegna blæddi Mary ekki út? Læknamir sem önnuðust hana sögðu að hún hefði verið aflimuð svo harka- lega að æðamar mörðust og blóðið storknaði og lokaði þeim áður en blóðmissirinn varð lífshættulegur. Væg refsing Mary Vincent lýsti árásarmanninum svo að hann væri hvítur á hörund, stórvaxinn og sver, á miðjum aldri og væri að byrja að fá skalla. Hann var með gleraugu og ör á andliti og kartöflunef eins og slagsmálahundar fá. Hún lýsti bil hans og sagði meðal annars að í honum væri ljósbrúnt gólf- teppi. Læknar gerðu að sámm stúlkunnar sem grem vel og síð- ar fékk hún gervihendur. Gerð var teikning af árásarmanninum eftir lýsingu Mary og sagði hún að myndin væri ágætlega lík manninum. Myndin var send út í sjónvarpi og bar það þann árangur að mæðgur í smábæ norðaustur af San Francisco þóttust þekkja þar fyrrverandi nágranna, Larry að nafni. Móðirin hringdi í lögreghma og spurði hvemig sendiferðabíllinn sem hann ók væri á litinn. Henni var sagt að hann væri blár. Það stemmdi við lýsingu Mary á bílnum. Eftirleikur- inn var tiltölulega auðveldur og eigandi bílsins fannst í bænum Sparks í Nevadaríki, þar sem hann dvaldi á heimili fyrrverandi eiginkonu sinnar. Var Larry Singleton, 51 árs gamall sjómaður á kaupskipum, handtekinn nokkrum vik- um eftir að hann framdi ódæðið. Blái sendiferðabillinn stóð á lóðinni og ljósbrúnt gólfteppi hékk á snúm til þerris eftir þvott. Tvær axir fundust við leit í húsinu. Níðingurinn Larrv Singelton þegar hann var hand- tekinn eftir að hafa myrt gleðikonu. Larry viðurkenndi að hafa tekið Mary upp í bfl sinn og haft við hana samfarir en neitaði að hafa höggvið hendum- ar af henni. Hann sagðist muna illa hvað gerðist vegna þess að hann var dmkkinn en bar að hann hefði líka tekið tvo menn upp í bflinn og hefði annar þeirra greitt stúlkunni fyr- ir að eiga með henni skamma ástarstund. Náunginn reyndi að smeygja sér undan réttvísinni og sagði rannsóknarlögreglumönnunum að þegar hann rank- aði við sér eftir drykkjuna hefði annar mannanna sem hann tók upp í verið undir stýri á leið tfl San Francisco en stúlk- an var þá hvergi í bflnum. En samkvæmt framburði Mary voru aldrei neinir aðrir menn í bflnum á meðan hún var í honum en Larry. Hún bar þegar í stað kennsl á hann þegar hún sá hann í vörslu lög- reglunnar. Hann var ákærður fyrir mannrán, nauðgun og morðtilraun. Kviðdómurinn fékk einnig að heyra hvemig maðurinn hafði svivirt stúlkuna með því að urgast í öllum líkamsop- um hennar á hinn ruddalegasta hátt. En samkvæmt hegningarlögum var hámarksrefsing fyrir glæpinn ekki nema 14 ára fangelsi og leyfi tfl að sækja um náðun mun fyrr. Larry Singleton var fyrirmyndarfangi og sýndi af sér svo góða hegðun í fangelsinu að honum var sleppt lausum eftir átta ára innilokun. Nýr vandi blasti þó við honum eftir frelsisgjöfina. Hann var orðinn svo illræmdur og víða þekktur vegna meðferðar- innar á stúlkunni að enginn vildi una við að eiga hann að nágranna. Það mál var leyst með því að yfirvöld komu hon- um fyrir í hjólhýsi á landarejgn San Quentin-fangelsis. Þegar skilorðið var útruamið flutti Larry tfl æskustöðva sinna, Tampa á Flórída. Skömmu síðar var sprengju kastað í garðinn hjá bróður hans, þar sem hann fékk að búa. Eftir það fékk hann nokkra samúð nágrannanna og að því kom að þeir sættust við að hafa gamla sakamanninn í námunda við sig. Hann vandist brátt og farið var að líta á Larry sem góðan granna sem alltaf var tilbúinn að spjalla og taka að sér smáviðvik fyrir nágrannana. Þeir fóru jafri- vel að trúa þeirri sögu sem hann sagði þeim að stúlkan sem hann var dæmdur fyrir að limlesta hefði verið eiturefnafík- ill og ekki með sjálfri sér. Eftir að Larry var látinn laus fór Mary Vincent í felur. Hún óttaðist svo mjög að hann myndi gera henni og 10 ára gömlum syni hennar mein að hún þorði ekki að dvelja heima og fór að læra sjálfsvamarbrögð til að mæta honum ef hann réðist á hana á nýjan leik. En Larry gamli hafði öðrum hnöppum að hneppa. Hann var tekinn fastur fyrir búðarhnupl en slapp með það þegar hann sagðist bara vera gamalt fífl og varla ábyrgur gerða sinna. Svo var honum bjargað frá sjálfsmorði þegar hann var búinn að tengja slöngu frá útblæstri sendiferðabflsins inn í hann og sat þar og andaði útblæstrinum að sér. Engin undankomuleið Svo var það 1997 að nágranni heyrði neyðaróp konu sem barst frá húsinu sem Larry bjó í. Hann hljóp tfl og sá inn um glugga hvar hann stóð nakinn og alblóðugur. Á gólfmu lá kona, sömuleiðis nakin og blóðug. Kvalari hennar stóð yfir henni og öskraði að hún ætti að þegja. Nágranninn hringdi í neyðarlínuna og tflkynnti hvað fram fór og að þar væri að verki sami náunginn og skar hendumar af stúlkunni. Þegar lögregluna bar að kom Larry til dyra og var nú kominn í nærbuxur en var annars ber og blóðugur. Konan á gólfrnu var látin. Hún var fiknieftianeytandi og fjármagn- aði neysluna með því að selja sig. Hún hafði líka fyrir böm- um að sjá. Nú var morðinginn svo gott sem staðinn að verki og var engrar undankomu auöið. Hann játaði verknað sinn og var dæmdur til dauða. Þar sem Larry beið í dauðadeildinni greindist hann með krabbamein og dó hann af völdum þess áður en dómnum var fúllnægt. Rúmt ár er liðið síðan ill- virkinn dó og getur Mary Vincent nú andað léttar því hún þarf ekki lengur að óttast að kvalari hennar og niðingur birtist á ný.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.