Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002
Fréttir
I>V
Endalausar afsakanir í sjö ár fyrir óbreyttu þungaskattskerfi:
Gildandi lög hindra sömu
þróun hér og erlendis
- þjóöin tapar og nú eru þingkosningar sagðar koma í veg fyrir olíugjaldsfrumvarp
Stöðugar afsakanir hafa verið fyrir
þvi í sjö ár eða lengur að koma í gegn
frumvarpi um að breyta óréttlátu
þungaskattskerfi í rekstri dísiiknúinna
bifreiða. Olíugjaldsfrumvarp var tilbú-
ið í vor en dagaði uppi og ekkert bólar
á endurflutningi þess á yflrstandandi
þingi. Fjármálaráðuneytið ber viö önn-
um og stuttu þinghaldi vegna þing-
kosninga í vor.
Félag íslenskar bifreiðaeigenda, FÍB,
sem og flest samtök atvmnubilstjóra
hafa verið þess sinnis að leggja beri
niður núverandi þungaskattskerfi og
taka upp olíugjald í staðin. Rökin eru
þau að þungaskattskerfið gangi á skjön
við jafiiræðissjónarmið þar sem í því
sé fólgin mismunun. Jafnframt gangi
kerfið á skjön við umhverfissjónarmið.
Því ætti það að henta hagsmunum ís-
lendinga að breyta þungaskattskerfmu,
ekki sist i ljósi ákvæða Kyoto-sáttmál-
ans um loftmengun.
Ekkert gerist
Jón Pálsson, vörubilstjóri og þáver-
andi ffamkvæmdastjóri vörubílastöðv-
arinnar Þróttar, sagði í samtali við DV
í maí í vor að almennur vilji væri hjá
atvinnubílstjórum að láta taka upp ol-
íugjald í stað núverandi þungaskatts.
Ekki væri spuming um hvort heldur
hvenær slikt yrði að veruleika. Þrátt
fyrir þessi orð er vitað að nokkur
tregða hefur verið í hópi vörubifreiða-
stjóra við málið og ýmsu borið við. FÍB
greindi frá skoðanakönnun í síðustu
viku þar sem fram kom að 95% þeirra
sem þátt tóku í könnuninni vildu að ol-
íugjald yrði tekið upp í stað þunga-
skatts. Ljóst er að núverandi kerfi
dæmir litla og meðalstóra fjölskyldu-
bíla algjörlega úr leik i samanburði við
bensínknúna bíla. FÍB-blaðið gerði
könnun meðal þingmanna um málið
þar sem 23 þingmenn gáfu svör við
spumingu blaðsins um hvort taka ætti
upp olíugjald í stað núverandi þunga-
skattskerfis. Svörin vora mjög afdrátt-
arlaus og á einn veg, neftiilega -, já“. -
Samt gerist ekkert.
Kerfið kemur í veg fyrir
eðlilega þróun
Dísilbftar hafa alltaf verið vinsælir á
meginlandi Evrópu og hafa vinsældir
þeirra aukist til muna á síðustu ámm.
Fjöldi fyrirtækjabíla skiptir líka máli í
Enn bólar ekkert á sérstöku olíugjaldi í staö gildandi þungaskattskerfis
Lög koma í veg fyrir aö aimenningur á íslandi geti nýtt sér kosti
dísilknúinna bifreiöa.
Fréttaljós
þessu sambandi þar sem þeir þurfa að
uppfylla meiri kröfur um minni eyðslu
og mengun en fólksbílar en skattar á
vinnubflana aukast eftir því sem þess-
ar mengunartölur hækka. Þess vegna
hafa dísilvélamar orðið sérstaklega
vinsælar þar sem þær eyða minna
þrátt fyrir meira afl og pumpa minni
koltvísýringi út í andrúmsloftið. Á ís-
landi er talið að óréttlátt þungaskatts-
kerfi komi í veg fyrir sömu þróun og
erlendis.
Auknar vinsældir dísilbíla
eriendis
Á síðustu árum hafa orðið stórstígar
framfarir i þróun disilvéla og vélarafl
þeirra aukist um allt að þriðjung á
meðan eyðslan minnkaði um þriðjung.
Um leiö hafa vélamar orðið þýðgeng-
ari, hljóðlátari og menga minna. Svo-
kallaðar einbunu- eða samrásardísil-
vélar, „Common rafl“, em nú orðnar
gæðavara sem allir framleiðendur
keppast um að setja í bíla sína.
DV hefur áður greint frá því að í
löndunum í kringum okkur hefur þró-
unin orðið þannig að dísflvélin hefur
tekið stórt stökk í vinsældum. Mark-
aðshlutdefld dísilvéla í venjulegum
heimilisbflum hefur aukist úr 22% árið
1977 í 32% árið 2000 og er talið að hún
verði komin í 40% árið 2004. Á síðasta
ári jókst sala á fólksbflum með disilvél-
um um 40% í Bretlandi og náði nýju
sölumeti upp á 436.591 bíl. Nú er þar
svo komið að fimmti hver nýr fólksbíll
er dísilbfll.
Andstætt hagsmunum
olíufélaga?
Hér á landi er þessu öfugt farið. Sala
á dísilbílum dróst i fyrra saman um
meira en helming sem er meira en alls-
Könnun FÍB
heijar-bflasölusamdráttur síðasta árs.
Ástæðan er bæði óhagræði vegna gild-
andi reglna um þungaskatt og hærri
vömgjöld á dísilbílum, þ.e. 45% á móti
30-^40% fyrir bensínbfla. Afleiðingin
verður minnkandi sala dísUbíla hér-
lendis á þeim tíma sem þeir gætu skU-
að þjóðarbúinu hagkvæmari viðskipta-
jöfhuði vegna minni eldsneytiskaupa
og hreinna lofti. Þama liggur hundur-
inn trúlega grafinn. Óbreytt kerfi virð-
ist vera mikið hagsmunamál olíufélag-
anna sem skýri helst þá sjö ára töf sem
orðið hefur á setningu laga um olíu-
gjald. Olíufélögin myndu þurfa að
horfa fram á mun minni innflutning á
bensíni ef olíugjald yrði að veruleika.
Litlar skýringar heyrast nefiidar um
orsakir á seinagangi yfirvalda tfl að
breyta úreltu þungaskattskerfi. Helst
hefur verið nefhdur fyrirsláttur olíufé-
laganna um mUúnn kostnað samfara
því að lita olíuna. Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda fékk í vor sérfræðing í lit-
un olíu hingað tU lands sem sýndi fram
á mun mflmi kostnað samfara þessari
breytingu en olíufélögin vUdu vera
láta. Þar með virðist ekki lengur hægt
að styðjast við þau rök gegn upptöku á
olíugjaldi í stað núverandi þunga-
skattskerfis.
Ormurinn langi er nú orðinn meira
en sjö ára gamall. Hvað dvelur breyt-
ingar á þungaskattskerfinu liggur ekki
í augum uppi en sífeUt koma þó nýjar
afsakanir. Nú em það þingkosningar í
vor sem sagðar eru koma í veg fyrir
löggjöf sem líklega myndi spara þjóð-
inni ómælda peninga vegna mumi elds-
neytisinnkaupa.
Rólegt hjá slökkviliðinu’.
Ekki einn
kertabruni
Rólegt hef-
ur verið hjá
slökkvUiði
höfuðborgar-
svæöisins
það sem af er
jólum en ekki
ein einasta innhringing vegna
kertabruna hafði komið inn á borð
þegar blaðið fór í prentun. Segjast
menn varla muna eftir öðrum eins
rólegheitum og er greinUegt að
áróður er farinn að skUa sér tU al-
mennings. SjúkrabUamir hafa hins
vegar verið á þönum enda fer salt-
aður jólamatur Ula í marga. -snæ
Haraldur Þórarinsson í Kvistási í Kelduhverfi:
Siv átti að sýna það hug-
rekki að friða rjúpuna
Umferð hefúr síðustu
daga farið nokkuð um nýja
veginn um Hafnarbrekku,
en það er nýr vegur frá
Kelduhverfi upp á Tjömes
um lónið. Við það leggst
vegurinn um Auðbjargar-
staðabrekku af, en hann
hefur oft verið hættulegur umferð að
vetrarlagi vegna bratta, og jafnvel
ófær. Meðan tíð helst óbreytt verður
áfram unnið við frágang á veginum.
Haraldur Þórarinsson í Kvistási í
Kelduhverfi segir að ein-
muna tíð í haust og vetur
komi honum alls ekki á
óvart því mýsnar á Öxar-
fjarðarheiði hafi í haust
grafið holur sínar inn í
þúfurnar að vestan, sem
segi að búast megi við ríkj-
andi austanátt, sem reyndar hafi orðið
reyndin.
Haraldur segir að í upphafi ijúpna-
vertíðar hafi verið aUgóð veiði, og þaö
megi rekja tU þess að þá skömmu áður
hafi brostið á suðaustan Ulviðri sem
hafi hrakið fuglinn norður eftir og því
hafi verið góð veiði á Noröausturlandi.
Síðan hafi varla sést ijúpa og í sumar
hafi varla sést ijúpa sem er þó mjög
óvenjulegt á þessum slóðum.
„Auðvitað átti Siv Friðleifsdóttir að
friða ijúpuna tU þess að bjarga íslenska
ijúpnastoftiinum, sölubann hefur svo
litið að segja. En ráðherra þorði ekki
að taka svo stóra ákvörðun, sem þó var
nauðsynlegt. Reynslan mun sýna það,“
sagði Haraldur Þórarinsson. -GG
VAGNHÖFÐA 23 • SÍIVII 590 2000 • WWW.BENNI.IS
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 15.57 15.54
Sólarupprás á morgun 10.36 10.39
Síódegisflóð 24.20 04.22
Árdegisflóö á morgun 00.20 04.53
Veðrið í kvöld
Hægviðri og yfirleitt léttskýjað, en
norðvestan 5-10 m/s og él á
annesjum norðaustanlands. Frost 0
til 5 stig en víða frostlaust við
ströndina framan af.
El við suðurströndina
Austan 5-10 og dálítil él viö
suðurströndina á morgun. Frost 0 til
5 stig en víða frostlaust við
ströndina að deginum.
Sunnudagur Mánudagur Þriðjudagur
Htt) 0" Hiti 0“ Hiti -1*
til -5' til -8” til -7°
Vindur Vindun Vindur.
3-15*n»/a 3-15 "V* 3-15™/*
K K K
Austlæg átt, Austlæg átt, Austlæg átt
víða 3-8 víða 3-8 og víða dálítil
m/s skýjað m/s, skýjað él en
með köflum, með köflum úrkomulitlð
en 10-15 og en 10-15 og vestanlands.
él vlð suður- él vlð suður- Kólnandl
ströndina. ströndina. veður.
Frost víða 0 Frost víða 0
til 5 stlg. til 5 stlg.
m/s
logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviðrí 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviðri >= 32,7
Voói íó kl. 6 fÍS£fr . *
AKUREYRI skýjaö -1
BERGSSTAÐIR alskýjað -1
BOLUNGARVÍK úrkoma í grennd 2
EGILSSTAÐIR heiöskírt -3
KEFLAVÍK léttskýjaö 2
KIRKJUBÆJARKL heiöskírt 1
RAUFARHÖFN hálfskýjaö 1
REYKJAVÍK heiöskírt -1
STÓRHÓFÐI léttskýjaö •0
BERGEN rigning 8
HELSINKI snjókoma -7
KAUPMANNAHÖFN rigning 1
ÓSLÓ alskýjaö -4
STOKKHÓLMUR -4
ÞÓRSHÖFN skýjað 6
ÞRÁNDHEIMUR slqrjaö -2
ALGARVE léttskýjaö 16
AMSTERDAM skýjaö 11
BARCELONA skýjað 11
BERLÍN þokumóða 1
CHICAGO hálfskýjaö -7
DUBLIN rigning 8
HALIFAX snjóél ■6
HAMBORG þokumóöa 3
FRANKFURT skýjaö 8
JAN MAYEN rigning 3
LONDON rigning 12
LÚXEMBORG rigning 8
MALLORCA hálfskýjaö 13
MONTREAL heiöskírt -10
NARSSARSSUAQ -11
NEW YORK skýjaö 2
ORLANDO skýjað 9
PARÍS rigning 12
VÍN frostúöi -5
WASHINGTON heiöskírt -2
WINNIPEG heiöskírt -12