Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002
Tilvera
DV
The Hot Chick frumsýnd á nýársdag:
Myndbönd
Fallegasta stelpan
í líkama fertugs manns
Gamanleikarinn Rob Schneider
virðist hafa gaman af því að fara út
á ystu mörk í kvikmyndum sínum.
í þekktustu myndum sínum leikur
■* hann persónur sem fyrst og fremst
eru afbrigðilegar og svo er það und-
ir smekks hvers og eins hvort þær
þykja fyndnar eða ekki. í Deuce
Bigalow: Male Gigalo er hann ein-
hver ólíklegasti kvennamaðurinn
og árangurinn er eftir þvi. í The
Animal lék hann lögreglumann sem
hélt að hann væri úr dýraríkinu og
í nýjustu kvikmynd sinni, The Hot
Chick, leikur hann stelpu í karl-
mannslíkama.
Rob Schneider kemur eins og svo
margir þekktir bandarískir gaman-
leikarar úr sjónvarpsseriunni Sat-
urday Night Live. Þar var þeim
Adam Sandler vel til vina og hafa
þeir stutt hvor annan dyggilega þeg-
ar á brattann er að sækja hjá þeim
og hefur Rob Schneider brugðið fyr-
ir í mörgum kvikmynda Sandlers.
Má geta þess að Adam Sandler er
framleiðandi The Hot Chick og
bregður fyrir í hlutverki bon-
gotrommuleikara. Schneider ólst
upp í San Francisco og er móðir
hans frá Filippseyjum en faðir hans
gyðingur. Hann var tíu ára gamall
þegar hann fór að semja brandara
og koma fram á sviði. Áður en hann
var ráðinn í Saturday Night Live
var hann fastagestur hjá David Lett-
erman.
The Hot Chick gerist í mennta-
skóla, Jessica Spencer lifir full-
komnu lífi, hún er fallegasta og vin-
sælasta stelpan í skólanum. Hún er
fyrirliðinn i klappstýruliði skólans
og kærasti hennar er fyrirliði fót-
boltaliðsins. En eitthvað á það allt
eftir að breytast þegar hún vakn
ar einn morguninn í líkama fer-
tugs manns. Hún gerir sér fljótt
grein fyrir því að útlitið kemur
henni ekki langt, en hún þarf
að lifa með þetta útlit þangað
til hún nær að breyta sér
aftur í sitt upprunalega
horf.
Mótleikarar
Schneiders eru flestir
ungir og óþekktir leik-
arar. Leikstjóri og hand-
ritshöfundur ásamt
Schneider er Tom Brady, en
þeir skrifuðu saman handrit-
ið að The Animal. Þetta er
fyrsta kvikmyndin sem hann
leikstýrir. Áður
hafði hann gert garðinn frægan í
sjónvarpinu þar sem hann skrifaði
meðal annars fyrir
Simpsons og Home
Aprovement.
-HK
Rob Schneider og hinar stelpurnar
Rob Schneider leikur fallegustu stelpuna í
skólanum sem vaknar einn morguninn í
líkama karlmanns. I
A {
o /
• f 'tyj+j ^
íW'SM** .
JoU’it'SL auu.
Þoo XftTA
níj
i+m ttS+\l W.
ttlei vi’
01^4 *' {,**,>*
Xajítí BUORfe VÍLL vcha ÁnVuw.
5í©AiV> 5.ÍÍ
pMMMMBlii
■ : •
PAtesKi
——-y--
r
112
frarrtóoS Jóiayaa
*3. /Vmla#vwíj*
15-rV
* n
'/V ..Á
*' \ „
I
- r
L
93ÚPAA
UfPS ELD
f C, vrc*ra^^’*'
er- >*****
'c < ccj
fScArvír «>íu/
Úft* » Ctföt
Í'
K-vý'td.
'OTfr
, íffecTTlft
! ÍFÍR
: Hvefc
j fþpdTtAAAA&Ok
l ÁRSÍNS^
' Tiui/gFN' ;
i NCrfi.fi
óug-a ;
I&Tr
3^u«k*.
3^.?
' ^
f>ÍMÍ KMK'O
-■>' <--■ n-tl Aó
* DV-fréttir
Það leynist ýmislegt í umslögum frá krökkunum sem taka þðtt í jólagetraun DV. Sum láta freistast til aö senda ýmsar teikningar. Meöal annars lét hún Jó-
hanna Kristófersdóttir fylgja sínum lausnum þessa skemmtilegu eftirlíkingu af DV.
Lacena ★★★
m
Lífið á veitinga
stað
La cena gerist öll
á einum veitinga-
stað á Ítalíu. Borðin
eru fjórtán og gest-
imir margir. Öfugt
við myndir á borð
við Big Night og
Dinner Rush, tvær úrvalsmyndir sem
einnig gerast á ítölskum veitingastað
(að vísu í New York), er ekki mikið
fjaliaö um matinn sjálfan heldur aðalá-
hersla lögö á vandamál sem gestimir
eiga við að stríða auk þess sem fjöl-
skyldumál eigendaima koma einnig við
sögu. Staðurinn er jarðhæð og sá gest-
anna sem fangar okkur fyrst er eldri
maður, fastagestur í mörg ár, sem er
eins og heimilisvinur. Hann er sá gest-
anna sem er í mestu jafiivægi og fylgist
vel með því hvað fer fram á öðrum
borðum þar sem meðal annars fegurfi
ardís tekur á móti nokkrum elshugum
sínum, unglingar halda afmælisveislu,
dóttir tilkynnir móður sinni að hún
ætli sér að verða nunna, glæsileg kona
sem gerir htið úr ungum manni á
biðilsbuxunum sem situr á næsta borði
og ýmis fjölskylduvandamál eru á fleiri
en einu borði.
Það þarf útsjónarsemi í klippingum
og tökum tll að þessi flóknu og ólíku
mynstur falli saman i eina heild. Þetta
tekst leikstjóranum, Ettore Scola, vel
enda reyndur leikstjóri með margar
gæðamyndir að baki. Gestimir búa
flestir yfir einhverjum leyndarmálum
sem viö fáum nasasjón af og engar
lausnir eru bomar á borð í lokin. La
cena er samt einkar ljúf, mannleg og
skemmtileg mynd þar sem leikarar em
hver öðrum betri. -HK
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Etorre Scola.
'ttalía, 1999. Lengd: 124 mín. Leikarar: Fanny
Ardant, Vittorio Gassman, Stefania Sandrelli og
Giancarlo Giannini. Leyfð öilum aldurshópum.
Death to Smoochy ★
Trúðar
mi
Það fyrsta sem
kemur upp í hugann
eftir að hafa horft á
Death to Smoochy er
hvað allt þetta hæfi-
leikafólk er að gera í
þessari dellu sem er
akkúrrat ekkert
fyndin þó hún eigi
að vera það. Þama höfum við í aðal-
hlutverkum Robin Williams, Edward
Norton, Catherine Keener og Danny
DeVito sem einnig leikstýrir mynd-
inni. DeVito hefur leikstýrt nokkrum
kvikmyndum, meðal annars War of the
Roses, Hoffa og Mathilda, allt prýðis-
myndir. Hér fer hann heldur betur yfir
strikið og er í raun skrýtið að jafnfynd-
inn maður og DeVito er skuli geta gert
jafn ófyndna kvikmynd. Robin Willi-
ams hefur verið mistækur sem gaman-
leikari. Þegar honum tekst best upp þá
er enginn fyndnari en hér á hann einn
af sínum slæmu dögum. Edward
Norton hefur sjálfsagt verið húinn að fá
nóg af dramatískum hlutverkum í bili
og viljað slá á létta strengi en hugsar
sig örugglega tvisvar um áður en hann
gerir slíkt aftur.
Wilhams og Norton leika tvo trúða
sem eiga ekkert sameiginlegt nema að
stunda sömu atvinnu. Witliams leikur
Smiley, illmenni þegar úr trúðsbún-
ingnum er komið og þegar upp um
hann kemst er hann rekinn úr vinsæl-
um sjónvarpsþætti. Norton leikur
Mopes, sem er með barnssál. Þegar
hann er ráðinn í staðinn fyrir Smiley
þolir Smiley það vægast sagt itla og
reynir allt til að koma hinum saklausa
Mopes fyrir kattamef.
Það má segja um Death to Smoochy
að mikið er reynt án árangurs. Hér
sannast það að ófýndinn farsi er eins
og iila blandaður kokkteill, hann
bragðast iila. -HK
Útgetandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Danny
DeVrto. Bandan'kin 2002. Lengd: 109 mín.
Leyfð öllum aldurshópum. Leikarar: Robin Willi-
ams, Edward Norton, Danny deVito og
Catherine Keener.