Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2002, Síða 32
Miklir möguteikar
gervihnattasjónvarpsins
bjóöa upp á fjöibreytta dagskrá
Verðfrá
39.900,
OREIND
5QT)
m
Auteí<ns3 ■ Kísa«9Uf
áorS«166C-
Viðbótarlífeyrissparnaður
Allianz (jH)
- Loforð er loforð
MANUDAGUR 30. DESEMBER 2002
Sími: 533 5040 - www.allianz.is
Þórólfur Árnason nýr borgarstjóri:
Halldór átti
hugmyndina
Heimildarmenn DV innan úr
Samfylkingunni og Framsóknar-
flokknum hafa staðfest að Halldór
Ásgrímsson, formaður Framsóknar-
flokksins, hafi átt hugmyndina að
því að Þórólfur Árnason, fyrrver-
andi forstjóri Tals hf., tæki við sem
nýr borgarstjóri Reykjavíkurlist-
ans. Hugmyndinni mun hafa verið
komið á framfæri við Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur í fyrradag.
í því sambandi má benda á að bróð-
ir Þórólfs er Árni Páll Ámason lög-
4 •maður, en hann er einn af trúnaðar-
mönnum og ráðgjöfum Össurar
Skarphéðinssonar, formanns Samfylk-
ingarinnar, og nýtur jafnframt mikils
trausts hjá Halldóri Ásgrímssyni.
„Hrófatildur"
„Þetta hefur verið mikill hráskinna-
leikur um málefni Reykjavíkurborg-
ar,“ segir Bjöm Bjamason oddviti
sjálfstæðismanna um niðurstöðu R-
listans í gær. „Að ekki varð sámstaða
um neinn borgarfulltrúa sem eftir-
< '♦mann hennar innan R-listans endur-
speglar trúnaðarbrest á milli manna
þar á bæ. Valið á manni utan borgar-
stjómar til að gegna embætti borgar-
stjóra stangast á við það grandvallar-
markmið R-listans að haga samstarfi
vinstri manna í borgarstjóm með öðr-
um hætti en á áranum 1978 tU 1982.
Engir hafa raunar kveðið fastar að
orði í gagnrýni sinni á slíka skipan en
einmitt talsmenn R-listans. Ljóst er að
ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar um
þingframboð fyrir Samfylkinguna
splundraði R-listasamstarfi og á rúst-
um þess hefur risið pólitískt hrófatUd-
ur,“ segir Bjöm Bjamason. -ÓTG
Engin slys enn
Engin slys sem rekja má tU flug-
elda hafa orðið enn sem komið er,
samkvæmt upplýsingum frá slysa-
deUd Landspítalans. Læknar segjast
þó búast við öUu þar sem slysin gera
ekki boð á undan sér. Lögreglan vill
enn fremur hvetja foreldra ung-
menna að hafa sérstakt eftirlit með
afkvæmum sínum á næstu dögum
svo þau fari sér ekki að voða. -vig
ÍFRETTASKOTIÐ
SIMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt.
hringdu þá t síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV.
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
VAR ÞA EKKERT PUÐUR I
R-LISTANUM?
Árni Páll, sem er 36 ára, var
sterklega orðaður við framboð í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík í vetur og er vonar-
stjarna margra I flokknum. Jón
Baldvin Hannibalsson skipaði
hann á sínum tima til trúnaðar-
starfa fyrir íslands hönd í Brussel,
hann hefur sérþekkingu á Evrópu-
málum og skrifaði m.a. kaflann um
utanríkismál í Evrópuúttekt Sam-
fylkingarinnar.
Á sama tíma hefur hann trúnað
Framsóknarflokksins og hefur með-
al annars setið í bankaráði Búnað-
arbankans með stuðningi flokksins.
Þá mun lögfræðistofa hans hafa
unniö fjölmörg verkefni fyrir utan-
ríkisráðuneytið og hann sjálfur hafa
verið Halldóri Ásgrimssyni til ráð-
gjafar í Evrópumálum. -ÓTG
DV-MYND E.ÓL
Farin fyrir fuilt og allt
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tilkynnti fjölmiölum I gærkvöld aö hún léti ekki kúga sig til aö hætta viö framboö til
Alþingis, en þar sem henni heföi veriö stillt upþ viö vegg í málinu heföi hún fallist á aö láta af starfi borgarstjóra.
Útilokaö væri aö hún tæki viö því aftur aö loknum þingkosningum.
Nýr borgarstjóri tekur væntanlega við 1. febrúar:
Þetta er auðvitað
spennandi verkefni
- segir Þórólfur Árnason, fyrrverandi Tal-forstjóri
Þórólfur
Árnason.
Þórólfur Árna-
son, fyrrverandi
forstjóri Tals,
mun taka við
starfi borgar-
stjóra af Ingi-
björgu Sólrúnu
Gísladóttur
þann 1. febrúar
ef samningar við
hann ganga eft-
ir. Atburðarásin
hefur verið afar hröð síðustu sól-
arhringa en síðdegis í gær var stíft
fundað og ljóst að R-listasamstarf-
ið hékk þá á bláþræði.
„Þaö var ekki talað við mig um
þetta fyrr en um hádegi í gær
(laugardag) er Ingibjörg Sólrún
hafði samband. Síðan hefur þetta
undið hratt upp á sig. Maður var
síðan í símanum meira og minna á
meðan þetta mótaðist. Þetta er
auðvitað gert til að verja meiri-
hlutasamstarfið. Ég tel aö það sé
bara af hinu góða ef talið er að ég
geti gert eitthvað til þess,“ sagði
Þórólfur Árnason í samtali við DV
á níunda tímanum í gærkvöld.
- Ert þú endanlega laus undan
störfum fyrir Tal?
„Já, ég hætti þar í lok nóvember
og það er allt í góðu og frágengið."
- Hvernig leggst þá í þig að taka
við stöðu borgarstjóra í Reykja-
vík?
„Þetta er auðvitað spennandi
verkefni. Ef þetta er ekki stærsta
fyrirtæki landsins, þá er þetta með
þeim stærri og flóknari sem gerast
í rekstri og stjórnun. Ég hef talið
mig vera fagmann í því og hef
áhuga á slíku og þetta er bara nýtt
svið að kljást við. Ég hef alltaf haft
gaman af að vinna með fólki og
vona bara að þetta nýtist Reykvík-
ingum vel.“
- Eru þá fundir með R-listafólki
fram undan?
„Ég veit i raun ekkert meira um
þaö en Ingibjörg hefur þegar sagt
um að ræða við mig. Ég ætla ekkert
að skorast úr leik með að tala við
þau og allavega skoða þetta.“ -HKr.
DV-Sport:
Ólafur íþrótta-
maður ársins
Olafur
Stefánsson.
Ólafur Stef-
ánsson, lands-
liðsmaður í
handknattleik
og leikmaður
þýska liðsins
Magdebúrg, . er
íþróttamaður
ársins 2002 á
DV-Sport. Árið
hefur verið ein-
staklega gott hjá
Ólafi sem segir að útnefning DV-
Sports væri mikill heiður fyrir sig.
Ólafur var valinn besti leikmað-
ur þýsku úrvalsdeildarinnar í vor.
Hann varð markahæsti leikmaður
á EM í Svíþjóð og valinn í úr-
valslið mótsins. Ólafur varð síðan
Evrópumeistari með Magdeburg.
Viðtal er við Ólaf Stefánsson í
DV-Sporti í dag en hann kemur
heim dag og hefur undirbúning
með íslenska landsliðinu fyrir
HM í Portúgal. -JKS
Formaður uppstillingarnefndar Samfylkingarinnar:
lllgerlegt að bjoða betur
Páll Halldórsson.
„Menn komust
með ærinni fyrir-
höfn inn í átta
efstu sæti í próf-
kjöri og það er
ekki auðvelt mál
að rífa það upp,“
segir Páll Hall-
dórsson, formað-
ur uppstillingar-
nefndar Samfylk-
aðspurður um það,
Ögmundsdóttir fengu hins vegar
ekki bindandi kosningu ofar á list-
anum. Tæknilega er uppstillingar-
nefnd því heimilt að bjóða öðrum
eitt þessara sæta.
„Ég tel að það sé illgjörlegt og á
ekki von á það verði gert,“ segir
Páll, aðspurður hvort hann geti úti-
lokað að þetta verði gert.
Sjálf segist Ingibjörg Sólrún ekki
gera ráð fyrir að verða ofar á listan-
um en í fimmta sæti. -ÓTG
otíier jneíliíuélij]
fyrir fagmenn
og fyrlrtæKI,
helmili og
skólð, fyrir röð
oy reglu, mlg
ogþlg. |
nýbgiaoegl 14 • slml S54 4443 • If.is/rafport
íngarmnar,
hvort til greina komi að bjóða Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur sæti ofar
á lista flokksins en í fimmta sæti, í
Ijósi þess að hún hafi nú fómað
borgarstjórastólnum fyrir þingfram-
boð. Samfylkingin þyrfti sem kunn-
ugt er að bæta verulega við sig fylgi
í Reykjavík til að koma fimm þing-
mönnum að í norðurkjördæminu.
Þeir Helgi Hjörvar og Ágúst Ólaf-
ur Ágústsson fengu bindandi kosn-
ingu í 7. og 8. sæti í prófkjörinu, en
Bryndís Hlöðversdóttir, Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir og Guðrún
Stefán Jón sáttur
SECURITAS
Stefán Jón
Hafstein.
„Fyrir mig per-
sónulega er það
mikil sorgar-
stund að Ingi-
björg Sólrún
skuli nú segja af
sér,“ segir Stefán
Jón Hafstein,
oddviti Samfylk-
ingarinnar í
borgarstjómar-
flokki Reykjavík-
segir að fundur
urlistans. Hann
borgarstjórnarflokksins í gærkvöld,
þar sem niðurstaðan var samþykkt
einróma, hafi verið tilfmninga-
þrunginn.
Ákvörðun Ingibjargar að velja
heldur þingframboð en borgar-
stjórastólinn veldur honum þó ekki
vonbrigðum. „Ég styð hana eindreg-
ið í þessari ákvörðun. Það hefði ein-
faldlega verið út úr hennar karakt-
er að láta beygja sig og reka sig aft-
ur með þessa tiltölulega léttvægu
ákvörðun, sem þó reynist gríðarlega
stór. Nú er hún komin í landsmálin
og hefur frjálsar hendur. Hún er
frjáls og á sig sjálf," segir Stefán
Jón. -ÓTG
VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU!
Sími 580 7000 | www.securitas.is
E!NN EINN TVEIR
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ