Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Blaðsíða 8
8
Fréttir
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003
DV
Rcídherralistinn kynntur
Davíð Oddsson, formaður
Sjálfstæðisflokksms, kynnti
fréttamönnum ráðherra/ista
flokksins. Breytingar, nú og
síðar á kjörtímabilinu, voru
meiri en margir áttu von á.
Davíð kemur á óvart og skiptir úr tveimur ráðherrum:
Dramatík
hverjir drykklanga stund yfir fréttamenn biðu þess fyrir utan að
kaffisopa í hliðarsal, á meðan spyrja þá spjörunum úr. -ÓTG
Sólveig bítur á jaxlinn:
Ágætt að breyta til
Margir höfðu spáð því að heldur
litlar breytingar yrðu í ráðherra-
liði Sjálfstæðisflokksins en niður-
staðan á þingflokksfundi í Valhöll í
gær varð sú að tveir ráðherrar
hætta. Loftið var hlaðið spennu
bæði fyrir og eftir fundinn; ný ráð-
herraefni ljómuðu af gleði en þeir
sem þurfa að víkja bitu á jaxlinn.
Áfall
Mest var áfallið fyrir Sólveigu
Pétursdóttur dóms- og kirkjumála-
ráðherra, sem lætur af störfum í
dag. Sólveig verður varaforseti Al-
þingis en forseti þess eftir tvö ár.
Halldór Blöndal stígur þá upp af
forsetastólnum en segist gera ráð
fyrir að halda áfram þingmennsku.
Tómas Ingi Olrich víkur úr
menntamálaráðuneytinu en fær þó
að sitja þar til áramóta og fær í
kjölfarið sendiherrastöðu í París.
Davíð Oddsson hafði greint þess-
um tveimur ráðherrum frá því fyrr
um daginn að hann myndi leggja
til að þeir hyrfu úr ríkisstjóm.
Óvænt ánægja
Bjöm Bjamason verður dóms-
og kirkjumálaráðherra í dag. Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir verð-
ur menntamálaráðherra um ára-
mótin. Og Sigríður Anna Þórðar-
dóttir verður umhverfisráðherra
þegar Sjálfstæðisflokkurinn tekur
við því ráðuneyti af Framsóknar-
floknum í september á næsta ári.
Hvorki þau né aðrir þingmenn
en þau Sólveig og Tómas Ingi vissu
að sögn nokkuð um það fyrir þing-
flokksfundinn, hver tillaga for-
mannsins yrði. Hún var samþykkt
einróma á fundinum, sem stóð
fremur stutt.
Til skamms tíma þýðir breyting-
in að engin kona verður í ráð-
herraliði Sjálfstæðisflokksins og í
stað Sigríðar Önnu sem formanns
þingflokksins kemur karl: Einar K.
Guðfinnsson. Til lengri tíma litið
fjölgar hins vegar konum í ráð-
herraliðinu úr einni í tvær; í stað
karls í stóli forseta Alþingis kemur
kona; og konum í þingflokknum
fjölgar þegar Arnbjörg Sveinsdóttir
tekur sæti á Alþingi í stað Tómas-
ar Inga Olrichs.
Upp og niður
Fundurinn var haldinn beint í
kjölfar fjölmenns fundar í flokks-
ráði Sjálfstæðisflokksins, sem sam-
þykkti með öllum greiddum at-
kvæðum gegn einu að heimila Dav-
íð að mynda ríkisstjórn með Fram-
sóknarflokknum á grundvelli sam-
komulags flokkanna um stefnuyfir-
lýsingu og skiptingu ráðuneyta. Sá
sem greiddi atkvæði á móti geröi
það að sögn Davíös vegna óánægju
með að forsætisráðuneytið var gef-
ið eftir. „Hann kom til mín á eftir
og sagði: Þú áttir annað og betra
skilið en að ég greiddi atkvæði
með þessu,“ sagði Davíð. Fjallað er
um stefnuyfirlýsingu stjómarinn-
ar á miðopnu blaðsins.
Eftir næsta fund - þingflokks-
fundinn - var fréttamönnum vegna
misskilnings vísað upp á efri hæð
að fundinum loknum og gengu þar
i flasið á þingmönnum, sem virtust
síður hafa átt von á heimsókn.
Ekki fór á milli mála að niðurstað-
an hafði orðið Sólveigu Pétursdótt-
ur vonbrigði þótt hún verðist allra
frétta í bili. Upp úr hálfgerðri
ringulreið kom í ljós að tU stóð að
Davíð Oddsson tUkynnti fjölmiðl-
um niðurstöðuna formlega niðri á
fyrstu hæð. Þar las hann upp ráö-
herralistann af minnismiða sínum
og svaraði spurningum.
Almenn samstaöa
„Það var almenn samstaða um
þessar tillögur og þegar þetta
verður allt komið í kring verða af
hálfu Sjálfstæðisflokksins tvær
konur í ríkisstjórninni og kona
forseti Alþingis," sagði Davíð.
Um ástæðu þess að Sólveig Pét-
ursdóttir hverfur úr ríkisstjórn
sagði Davíð að hún hefði verið
ráðherra í fjögur ár, staðið sig vel,
og menn vUdu breyta tU. „Hún
hafði í samtali við mig sagst geta
hugsað sér að það yrðu breytingar
á hennar háttum, hún einbeitti sér
frekar að þingstörfum og tæki svo
við starfi forseta þingsins á síðari
helmingi kjörtímabUsins." Davíð
hrósaði sömuleiðis Tómasi Inga
og Halldóri Blöndal fyrir störf
þeirra en sagðist hafa vUjað
„breyta tU“.
Davíð hvarf í kjölfarið til núver-
andi, fráfarandi og tUvonandi ráð-
herra, sem ræddu málin flestir
„Hún er auðvitaö ágætlega
ásættanleg," segir Sólveig Péturs-
dóttir um þá niðurstöðu að hún
hverfur úr ráðherrastóli og þarf að
bíða í tvö ár eftir að taka við sem
forseti Alþingis. „Ég átti langt sam-
tal við formann flokksins og það er
alveg ljóst að menn vildu sjá
ákveðnar breytingar. Ég fæ tæki-
færi tfl þess að gegna embætti for-
seta Alþingis sem er auðvitað mjög
góð og merkUeg staða þannig að
mér finnst ágætt að breyta tU. Ég
er sátt við þessa niðurstöðu."
Sólveig segist fagna því sérstak-
lega að konum fjölgi í ráðherrastól-
um. „Ég vU líka óska mínum félög-
um til hamingju. Ég held að þetta
verði sjálfstæðisstefnunni tU fram-
dráttar og flokknum til góðs,“ seg-
ir Sólveig og segist ekki líta á nið-
urstöðuna sem vantraust á sín
störf. „Það kemur aUtaf maður í
manns stað og það er ósköp eðlilegt
að huga að breytingum. Mér finnst
líka ágætt að breyta tU.“ -ÓTG