Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003
27
Birgir Leifur ofarlega
Birgir Leifur Hafþórsson kylfmgur
stóð sig vel á fyrsta hring á áskorenda-
móti í Hollandi. Hann lauk hringnum á
þremur höggum undir pari og var í
4.-10. sæti eftir daginn. Birgir Leifur
fékk skolla á 9. og 18. braut en bætti það
upp með alls fimm fuglum. Efstu menn
eftir fyrsta dag léku á fimm höggum
undir pari og því verða möguleikar
Birgis á því að komast í gegnum niður-
skurðinn að teljast nokkuð góöir. -vig
KARLAR
Fjölnir - Númi................1-2
Ragnar Sverrisson - Vésteinn Hauks-
son, Mikael Nikulásson.
HK - Leiknir, R...............5-0
Guðbjartur Haraldss. (45.), Panic
(56.), Þorsteinn Gestss. (59.), Davíð
Magnúss. (75.), Villy Ólafss. (90.)
Fylkir U-23 - Léttir .........4-3
Magnús Þorvarðars. (18.) Eyjólfur
Héðinss. (25., 38.), Heimir Ámass.
(79.) - Amar Sig. (85.), Óskar Þór (48.,
80.)
Árborg - Víðir................1-4
Bjami Sigurðss. (77.) - Georg Birgiss.
(13.), Ingi Þóriss. (39.), Kári Jónss.
(78.), Hörður Harðarson (87.)
Tindastóll - Magni............5-2
Elías Ámason (10.), Kevin Barr (30.,
45., 70.). (sjálfsm. 55.) - Kristinn
Bjömss. (2.), Amar Líndal (79.)
Stjaman U-23 - Selfoss.......1-5
Geir Ingi (36.) - Arilíus Marteinss.
(43.), Jón Guðbrandss. (46.), Ragnar
Gunnarss. (77.), Ingþór Guðmundss.
(79.), (sjálfsm. 86.)
Huginn-KE ....................4-0
Ragnar Konráöss. (12.), Egill Þor-
steinss. (36.), Friðjón Gunnlaugss.
(44.), ísleifur Aðalsteinss. (61.).
Ægir - Austri, Rh ............1-2
Óskar Siguröss. (23.) - Freyr Friðriks-
s., Ólafur Agnarss.
lR - Kjölur...................5-0
Óskar Alfreðss. (26., 40., 52.), Einar
Reyniss. (45.), Engilbert Friðfmnss.
(80.)
Völsungur - KA U-23...........6-1
Björgvin Sigurðss. (1.), Baldur Sig-
uröss. (42., 75.), Ásmundur Amarson
(47.), Birkir Ómarss. (60.), Amgrímur
Amason (85.) - Bjami Pálmason (35.)
Hamar - KFS...................1-4
Siguröur G. Guðjónss. (82.) - Jón
Bargi Ámason (18.), Ingvi Borgþórss.
(28., 50.), Davíö Egilss. (45.)
Leiknir F. - Sindri...........4-0
Vilberg Jónason (6., 55., 75.,), Ingimar
Guðmundss. (85.
•t 3. DEILD KARLA
.j*-
BÍ - Bolungarvik...........1-2
Sigþór Snorrason (60)
Pétur Jónsson (50.)
Pedrag (8.),
Rafpostur: dvsport@dv.is
Sannfærandi
hjá Sörenstam
Annika Sörenstam sést hér undirbúa sig undir pútt á 10. holu Colonial
vallarins í Texas í Bandaríkjunum í gær.
Sænska golfdrottningin Annika
Sörenstam þaggaði niöur í gagnrýn-
isröddum síðustu daga í gær þegar
hún stóð sig framar björtustu von-
um manna á sínum fyrsta hring á
PGA-mótaröðinni. Sörenstram lék á
einu höggi yfir pari vallarins og á,
með sams konar frammistööu á
morgun, ágætismöguleika á að kom-
ast í gegnum niðurskurðinn.
Sörenstam var öryggið uppmálað
á fyrstu níu holum Colonial-vallar-
ins í Flórída í gærmorgun og hafði
að þeim loknum leikið á einu höggi
undir pari. En tveir skollar á síð-
ustu fimm brautunum, þar af annar
þeirra á 18. og síðustu brautinni,
ollu henni skráveifu og færðu hana
mun aftar á skorlistanum.
Sörenstram, sem er fyrsta konan í
58 ár sem tekur þátt í PGA-mótaröð-
inni, var eftir mótið spurð hvort
frammistaðan hefði verið eitthvað í
líkingu við það sem hún hefði búist
við. Sú sænska svaraði að bragði:
„Þetta fór frgm úr mínum björt-
ustu vonum.
Ég er búin að vera taugaóstyrk í
allan dag. Ég hélt að ég myndi róast
niður eftir þvi sem leið á daginn en
svo var ekki.
Ég er samt mjög ánægð með
hvemig ég lék. Allir strákamir sem
ég lék með voru svo vingjamlegir og
ég veit hreinlega ekki hvort ég hefði
getað þetta án þeirra. Ég er bara
ánægð með aö deginum skuli vera
lokið - ég hef lært ótrúlega mikið og
ég er svo þakklát fyrir að geta tekið
þátt í þessu móti,“ sagði Sörenstam
um leið og hún brosti sinu blíðasta
til fréttamanna. -vig
Enskur sigur
í S-Afríku
Englendingar unnu S-Afríku-
menn, 1-2, í vináttulandsleik í
knattspymu í Durban í gær-
kvöld. David Beckham, fyrirliði
enska liðsins, meiddist á hand-
legg í leiknum og fór af velli í
byrjun síðari hálfleiks. Það þykir
nokkuð ljóst að hann verði ekki
með Englendingum gegn Slóvak-
íu í undankeppni EM 11. júní.
Gareth Southgate og Emile
Heskey skoruöu fyrir Englend-
inga en Benni McCarthy mark
heimamanna. -JKS
KORFUBOLTI J
C3 B
New Jersey-Detroit
97-85
Stig New Jersey: Kidd 34 (12 frák., 6
stoðs.), Martin 19 (6 fráköst).
Stig Detroit: Hamilton 21, Robinson
15, Williamson 15.
Staóan i einvíginu er 3-0fyrir NJ Nets.
Tveir NBA-leikmenn með
námskeið hér á íslandi
Tveir leikmenn úr NBA-deOdinni í
körfuknattleik eru væntanlegir til
landsins í næstu viku og munu verða
á meðal leiðbeinenda á körfubolta-
námskeiði sem Icelandair og KKÍ
standa fyrir. Leikmennimir sem um
ræðir eru þeir Bobby Simmons, sem
leikur með Washington Wizards, og
Lonny Baxter, sem er hjá Chicago
Bulls.
Námskeiðið verður haldið næst-
Fyrirlestur um bandaríska
haskólakörfuboltann
Körfuboltadeild Hauka fær tvo
þjálfara frá Bandaríkjunum í heim-
sókn um næstu helgi frá TCU-há-
skólanum í Texas. Larry Tidewell,
aðstoðaryfirþjálfara kvennaliðs
skólans og Sean McShane sem er
framkvæmdastjóri kvennakörfu-
bolta skólans. Saman hafa þeir mik-
ið til málanna að leggja og Larry á
að baki langa reynslu í þjálfún.
Möguleikar leikmanna
Larry Tidewell mun meðal ann-
ars halda fyrirlestur um ameríska
háskólaboltann, mótafyrirkomulag-
ið og hvaða möguleika ungir leik-
menn hafa á að stunda háskólanám
samhliða því að leika körfubolta.
Hann mun einnig fjalla um muninn
á þjálfún kvenna og karla- ef ein-
hver er og taka sérstaklega fyrir
þjálfún hávaxinna leikmanna.
Námskeiðið/fyrirlesturinn sem
verður á laugardeginum, stendur
frá kl. 10-14 og er dagskráin þessi:
1) Kynning á háskólaboltanum í
USA - 20 mín.
2) Gildandi reglur um skóla-
styrki. Kynning á þeim reglum sem
gilda um skólastyrki og möguleika
ungra leikmanna á skólagöngu í
USA - 30 min.
3) TCU-sóknarstíll - 30 mín.
4) Guard Play - 20 mín.
5) Post Play - 20 mín.
Hádegisverðarhlé
6) Æfmgar f. Post-leikmenn - 90
mín sýnikennsla meö leikmönnum
í íþróttasal.
Námskeiðið veröur í íþróttahús-
inu við Strandgötu og kostar 5.000 á
þátttakanda. Innifalin eru nám-
skeiösgögn, T-bolur og hádegisverð-
ur. Hægt er að skrá þátttöku í
tölvupósti til sverrir@skyrr.is.
-ÓÓJ
komandi miðvikudag í íþróttahúsi
Smárans i Kópavogi. Það ér hugsað
fyrir bæði drengi og stúlkur, fædd á
árunum 1986 til 1991, og mun standa
yfir frá kl. 16 til 19.30.
Varamaöur Jordans
NBA-leikmennimir, sem koma
hingað í boði Icelandair, eru báðir
ungir og efnilegir.
Lonny Baxter er 24 ára gamall kraft-
framherji (2,04 m, 118 kg) sem var að
ljúka sínu fyrsta tímabili með Bulls.
Baxter var valinn til Bulls í 2002 ný-
liðavalinu eftir frábæran feril sinn hjá
University of Maryland sem lauk með
því að Maryland vann meistaratitilinn
í bandaríska NCAA háskólaboltanum
vorið 2002.
Bobby Simmons er aðeins 22 ára en
hefur spilað í tvö ár fyrir Washington
Wizards. Hann var valinn í annarri
umferð nýliðavalsins 2001 eftir aðeins
3ja ára feril hjá DePaul University.
Simmons er 1,98 m hár og spilar stöðu
skotbakvarðar og framherja. Þess má
geta að Simmons spOaði allt síðastlið-
ið tímabO sem varamaður fyrir ekki
minni menn en sjálfan Michael Jord-
an, sem nú hefur ákveðið að leggja
skóna á hOluna, og Jerry Stackhouse.
Mikiö tækifæri
Það þarf ekki að fara mörgum orð-
um um hversu frábært tækOæri þetta
er fyrir unga letkmenn á íslandi tO að
sjá alvöru NBA-leikmenn leOia listir
sínar, spjaOa við þá og fá hjá þeim góð
ráð. Þá munu leikmennimir að sjálf-
sögöu árita myndir og fleira í þeim
dúr.
Upplýsingar um skráningu og ann-
að er að finna á vefslóðinni
www.icelandair.is/nba, sem og á
heimasíðu KKÍ. -vig
I
Spœnski handknattleiksmaðurinn En-
ric Masip, sem leikur með Barcelona, sló
markametið í heimalandi sínu um síðustu
helgi er lið hans bar sigurorð af Rúnari
Sigtryggssyni og félögum í Ciudad Real.
Masip skoraði átta mörk i leiknum og á
þeim 13 árum sem hann hefur leikið í
spænsku úrvalsdeildinni hefur hann skor-
að 1624 mörk alls.
Enska úrvalsdeildarlióió Chelsea er sagt
á höttunum eftir Argentínumanninu
Gabriel Battistuta sem nú er hjá Roma.
Claudio Ranieri, framkvæmdastjóri liðs-
ins, segir félagið þurfa á reyndum leik-
mönnum að halda til að ná langt í Meist-
aradeild Evrópu á næsta tímabili.
Engin ólögleg lyf fundust í prófsýnum
sem tekin voru úr sex keppendum sem
tóku þátt á íslandsmótinu í Ðtness sem
fram fór um páskana. Þess má geta aö á
sama móti í fyrra féllu þrír keppendur á
lytjaprófi.
Gunnar Bengston var i gær rekinn úr
staríi sínu sem knattspymustjóri norska
úrvalsdeildarliðsins Molde. Kalle Björk-
lund, aðstoðarþjálfara liðsins, hefur
einnig verið sagt upp störfum og er ástæð-
an slakt gengi í upphafi móts. Liðið hefur
aðeins hlotið fimm stig úr fyrstu sex um-
ferðunum en í fyrra hafnaöi það í 2. sæti
deildarinnar.
Forráöamenn Bayer Leverkusen þver-
neita þeim orðrómi sem nú gengur í
Þýskalandi um að félagiö hafi náð sam-
komulagi við Numemberg um að tapa vís-
vitandi gegn greiðslu þegar liöin eigast
við um næstu helgi. Með sigri heldur
Leverkusen sæti sínu í þýsku úrvalsdeild-
inni en Nuremberg er þegar fallið.
AÐALFUNDUR ÍFR 2003
ASalfundur íþróttafélags fatlaSra í Reykjavík
verSur haldinn laugardaginn 31. maí 2003
kl. 14.00 í íþróttahúsi félagsins aS Hótúni 14.
Dagskró:
1. Venjuleg aSalfundarstörf
2. Onnur mól
í kaffihléi verSur verSlaunaafhending.
Stjórnin